Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjónusta við aldraða skert Samningur Landspítala háskólasjúkrahúss og dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar um rekstur deildar L-1 á Landakoti rann út nú um áramótin samkvæmt tilkynningu frá Grund. 4.1.2010 14:28
Fjórtán ára fær bætur fyrir ólöglega frelsissviptingu Íslenska ríkinu er gert að greiða fjórtán ára gamalli stúlku 300 þúsund krónur í miskabætur fyrir ólögmæta frelsissviptingu á síðasta ári. Þá var hún handtekin af lögreglunni á Akureyri. Hún var með tveimur mönnum sem eru talsvert eldri en hún. Þau höfðu farið í golf inn í Eyjarfirði í ágúst á síðasta ári. 4.1.2010 14:01
Sjö fíkniefnamál á Litla Hrauni Sjö fíkniefnamál komu til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi í liðinni viku. Öll málin komu í venjubundnu eftirliti fangavarða á Litla-Hrauni. Þar var ansi viðburðarríkt yfir hátíðarnar því tveir fangar struku þaðan um kvöldmatarleyti síðastliðinn miðvikudag. 4.1.2010 13:27
Brotist inn í fjölda sumarbústaða Sjónvarpstækjum var stolið í flestum þeirra fimm sumarbúastaða sem brotist var inn í um helgina í Grímsnesi. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi voru vegsummerki eins í innbrotunum fimm og því grunar lögregluna að sömu aðilar hafi verið að verki. 4.1.2010 13:22
Erlendir fréttamenn á leiðinni vegna Icesave Fjármálaráðherra Bretlands segir afar mikilvægt að forseti Íslands staðfesti Icesave lögin, þótt hann geri sér grein fyrir að málið sé Íslendingum erfitt. Ekki liggur fyrir hvenær forsetinn ákveður sig, en alveg eins má búast við að það gerist í dag. Áhugi erlendis er mikill á málinu en fréttastofu er kunnugt um að erlendir fréttamenn séu á leiðinni til landsins til þess að fjalla um málið. 4.1.2010 13:13
Söng í síðasta sinn í Reykjavík Kanadíska söngkonan Lhasa de Sela lést af völdum brjóstakrabbameins á heimili sínu í Montréal í Kanada á nýársdag 37 ára að aldri. Síðustu tónleikar hennar voru dagana 23. og 24. maí á Listahátíð í Reykjavík í fyrra. 4.1.2010 13:00
Davíð Oddsson klipptur út úr Áramótaskaupinu „Þetta var bara eitt af því sem fór undir hnífinn,“ segir Þórhallur Gunnarsson dagskrástjóri Ríkisútvarpsins, en atriði þar sem Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins leikur grínistan Örn Árnason, var klippt út úr Áramótaskaupinu. 4.1.2010 12:46
Slys nánast daglega um borð í íslenskum skipum Nánast daglega er tilkynnt um slys um borð í íslenskum skipum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem sýnir jafnframt að huga þarf betur að vinnuaðferðum um borð í skipum. 4.1.2010 12:20
Niðurskurður á Vogi: Bitnar verst á þeim veikustu Þeir sem hafa áður sótt sér aðstoð vegna vímuefnavanda á Vogi, svokallað endurkomufólk, þurfa að snúa sér til göngudeildar SÁÁ í Von við Efstaleiti til að fá aðstoð við að útbúa beiðni um vistun. Þetta kemur fram á heimasíðu SÁÁ en þar segir að biðlistar muni lengjast og veikustu sjúklingarnir muni fara verst út úr niðurskurði sem blasir við meðferðarstofnuninni. 4.1.2010 12:10
Barist um fyrsta sætið Borgarfulltrúi Vinstri grænna, Þorleifur Gunnarsson, hefur gefið kost á sér í fyrsta sætið í forvali flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Forvalið fer fram í byrjun febrúar en þegar hefur Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, sóst eftir sama sæti. 4.1.2010 12:01
Játaði stórhættulegar líkamsárásir Rétt rúmlega tvítugur maður játaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hafa gengið í skrokk á tveimur mönnum í nóvember og desember á síðasta ári. 4.1.2010 11:08
Fyrrverandi vistmenn á Silungapolli hvattir til að hafa samband Nefndin sem í fyrstu rannsakaði starfsemi Breiðavíkur á árunum 1950 - 1980 kannar nú nú svipaðar stofnanir annars staðar á landinu og hefur þegar lokið áfangaskýrslum um Heyrnleysingjaskólann, Kumbaravog og skólaheimilið Bjarg. Nú rannsakar nefndin uppeldisheimilið Silungapoll og hefur verið auglýst í blöðum eftir því að fyrrverandi vistmenn gefi sig fram til viðtals. 4.1.2010 09:45
175 skip komin á sjó 175 fiskiskip voru komin á sjó um sex leitið í morgun, en flotinn var allur í höfn yfir áramótin. Víða er gott sjóveður við landið og búist við mikilli sjósókn í dag, enda ríður á að koma fiskvinnslunni í landi í gang eftir fríið. 4.1.2010 08:59
Leitað að Brynjari Loga Barkarsyni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Brynjari Loga Barkarsyni, sem strauk í gær frá Stuðlum. Hann er 15 ára, 194 sentímetrar á hæð, ljóshærður, stuttklipptur og með blá augu. Brynjar Logi er klæddur í bláar gallabuxur og hvíta hettupeysu. Þeir sem kynnu að hafa orðið hans varir eru beðnir að láta lögregluna vita í síma 4441104 4.1.2010 07:36
Lengstu áramótaveislu Bretlands er lokið Lengstu áramótaveislu Bretlandseyja þetta árið lauk í gærmorgun þegar snjóruðningstæki náði loksins til Tan Hill pöbbsins, sem státar af því að vera í mestri hæð yfir sjávarmáli af öllum pöbbum á Bretlandi. 4.1.2010 07:34
Ökuníðings leitað á Akranesi Lögreglan á Akranesi leitar ökuníðings, sem með glannaakstri varð til þess að ökumaður bíls, sem kom á móti, missti stjórn á bíl sínum og hafnaði á ljósastaur. Ökumaðurinn og fjölskylda hans sluppu ómeidd, en var illa brugðið. Ökuníðingurinn, sem meðal annars ók yfir hringtorg, lét sig hverfa og er ófundinn. 4.1.2010 07:33
Lokun Kleppjárnsreykjaskóla mótmælt Um það bil 160 manns úr uppsveitum Borgarfjarðar komu saman til skyndifundar í félagsheimilinu Logalandi í gær, til að mótmæla þeim hugmyndum innan sveitarstjórnar Borgarbyggðar, sem kvisast höfðu út, að loka eigi grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum í sparnaðarskyni. 4.1.2010 07:28
Enn kveikt í á Suðurnesjum Tvívegis hefur verið kveikt í ruslagámum á Suðurnesjum á síðasta sólarhringnum. Fyrst í gærkvöldi í Garði um klukkan tíu en í síðara skiptið kviknaði í gámi sem stóð við íbúðablokk á gamla varnarliðssvæðinu. Gámarnir stóðu í báðum tilfellum upp við íbúðahús en eldurinn náði sem betur fer ekki að læsa sig í húsin áður en hægt var að slökkva. 4.1.2010 07:10
Reyndi að hjálpa en var stunginn þrisvar Ágúst Fylkisson bílstjóri var stunginn þrisvar sinnum með ydduðu skrúfjárni þegar hann reyndi að koma tveimur stúlkum til aðstoðar á nýársnótt. 4.1.2010 06:30
Ekkert um að kjósa eftir synjun Talið er líklegt að viðsemjendur Íslands nýti sér heimild til að hverfa frá samningum um Icesave fáist ekki staðfest lög um ríkisábyrgð vegna þeirra. 4.1.2010 06:00
Fíkniefnasalar heimsækja sprautufíkla á Landspítala Starfsfólk smitsjúkdómadeildar Landspítalans segir að harka og virðingarleysi á meðal sprautufíkla fyrir eigin heilsu og annarra sé langt umfram það sem áður hefur sést. Már Kristjánsson yfirlæknir segir starfsaðstæður á deildinni oft með öllu óviðunandi. Sprautufíklar sem eru til meðferðar boða til sín fíkniefnasala inn á sjúkrahúsið þrátt fyrir að vera lífshættulega veikir. 4.1.2010 05:30
Frekari rannsóknir verði á Drekasvæði Æskilegt væri að bæta rannsóknir á Drekasvæðinu áður en farið verður í útboð á leit og vinnslu olíu á ný, að mati sérfræðinga erlendra olíufyrirtækja. Þetta kom fram í jólaávarpi Guðna A. Jóhannessonar orkumálastjóra til starfsmanna Orkustofnunnar. 4.1.2010 05:00
Synjun gæti valdið pólitískri upplausn Taki forseti Íslands sér lengri umþóttunartíma en til dagsins í dag vegna Icesave-laganna kann hann að mati Eiríks Tómassonar lagaprófessors að vera brotlegur við stjórnarskrá. 4.1.2010 03:00
Til stóð til að friða braggann Friða átti braggann sem brann á gamla vallarsvæðinu við Keflavík á nýársdag. Hann hýsti Sölunefnd varnarliðseigna á árunum 1952 til 2004. 4.1.2010 02:00
Erlendir fjölmiðlar enn með hugann við Icesave Mikið er fjallað um Icesave málið og undirskriftarsöfnun Indefence í erlendum fjölmiðlum í dag. 3.1.2010 09:50
Hafa safnað einni milljón vegna Iceslave minnisvarða Hópur fólks sem stendur að byggingu minninsvarðar um Icesave lögin hefur safnað saman einni milljón króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hópurinn sendi frá sér í dag. 3.1.2010 19:28
Hekla gæti gosið á næstunni Búast má við því að Hekla geti gosið með skömmum fyrirvara, segir Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. 3.1.2010 17:21
Vill að forsetinn skrifi undir sem fyrst Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur að forseti Íslands þurfi að taka ákvörðun um Icesave lögin sem fyrst. Hann telur þó litlu máli skipta hvort hann skrifi undir í dag eða á morgun. 3.1.2010 16:40
Þrettán sjálfstæðismenn vilja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar Þrettán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fram fer 30. janúar næstkomandi. Eins og áður hefur komið fram gefur oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórninni ekki kost á sér og því ljóst að kosið verður um nýjan oddvita. 3.1.2010 15:26
Prýðilegt ferðaveður í dag Hæglætisveður er um allt land og góðar aðstæður til ferðalaga, segir Vegagerðin. Aðalleiðir í nágrenni Reykjavíkur eru auðar en annars eru hálkublettir á flestum leiðum um allt sunnanvert landið. Öllu meiri hálka er á norðurhelmingi landsins, allt frá Snæfellsnesi til Austfjarða. 3.1.2010 14:31
Engin viðbrögð frá forsetaembættinu Enn ríkir fullkomin óvissa um það hvernig Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun bregðast við Icesave frumvarpinu. Þrír sólarhringar eru liðnir síðan að hann fékk frumvarpið í hendurnar. Þá sagðist hann ætla að taka sér frest til þess að fara yfir málið og í gær tók hann á móti undirskriftum 60 þúsund manna sem skora á hann að synja lögunum staðfestingar. 3.1.2010 13:03
Enn allt óvíst um afstöðu forsetans Enn liggur ekki fyrir hvort forseti Íslands hyggst staðfesta lög um ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að áframhaldandi óvissa þjóni engum tilgangi og telur æskilegt að forsetinn taki ákvörðun sem fyrst. 3.1.2010 12:08
Stefndi í hópslagsmál í Kringlunni Það stefndi í hópslagsmál ungmenna við Kringluna á sjöunda tímanum í gær. Um sextíu ungmenni á grunnskólaaldri höfðu safnast þar saman inn í Kringluna og voru að undirbúa slag þar, eftir því sem fréttavefur DV hefur eftir sjónarvottum. 3.1.2010 10:32
Heppinn spilari græddi 10 milljónir Einn var með allar lottótölur kvöldsins réttar. Hann hlýtur rúmar 10 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Tvistinum Vestmannaeyjum, samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá. 2.1.2010 20:04
Forsetinn líka hvattur til þess að staðfesta lögin Settur hefur verið upp undirskriftarlisti til þess að hvetja Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, til þess að staðfesta Icesave lögin. 2.1.2010 20:42
Varaformaður fjárlaganefndar furðar sig á ákvörðun forsetans Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, furðar sig á þeirri afstöðu forseta Íslands að taka sér umhugsunarfrest áður en hann staðfestir Icesave lögin. 2.1.2010 16:25
Reykur í Hlíðaskóla Slökkviliðið var kallað að Hlíðaskóla fyrir örfáum mínútum en þar urðu menn varir við reyk. Ekki er vitað á þessari stundu hvort eldur er í húsinu. 2.1.2010 15:59
Veðjað á að forsetinn skrifi undir Meiri líkur eru á því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, staðfesti Icesave lögin en að hann synji þeim staðfestingar, 2.1.2010 15:40
Forsetinn verði samkvæmur sjálfum sér Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir ekkert annað vera í stöðunni en að forseti Íslands synji Icesave lögunum staðfestingar. 2.1.2010 14:54
Hægt að vera alræmdur fyrir verri hluti en umhyggju „Mér fannst það bara býsna gott verð ég að viðurkenna. Mér fannst reyndar konan mín hlæja helst till mikið af mér. Hún hefði mátt stilla því svolítið í hóf,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, um Áramótaskaupið. 2.1.2010 14:13
Forsetinn fundar með InDefence Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, situr nú fund með fulltrúum InDefence á Bessastöðum. 2.1.2010 11:29
Hundruð manna samankomnir á Bessastöðum Hundruð manna eru saman komnir við bústað forsetans á Bessastöðum. InDefence mun afhenda Ólafi Ragnari Grímssyni hátt í 60 þúsund undirskriftir, núna klukkan ellefu, frá fólki sem hvetur forsetann til að synja lögunum staðfestingar. Fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem er á staðnum telur að það séu minnst 600 manns sem taki þátt í athöfninni. 2.1.2010 10:57
Kirkjan var varnarlaus dýrgripur „Þetta er alveg skelfilegt. Þetta er svona varnarlaus lítill dýrgripur. Kirkjan hefur ekki verið fyrir neinum en það eru ákaflega margir sem bera hlýhug til kirkjunnar,“ segir Þórhallur Heimisson prestur í Hafnarfirði. 2.1.2010 10:34
Krýsuvíkurkirkja brann til grunna Krýsuvíkurkirkja brann í nótt og er fallin. Slökkviliðsmenn úr Grindavík nutu liðsinnis félaga sinna af höfuðborgarsvæðinu við að bjarga því sem bjarga varð. Ekki hafa fengist upplýsingar um eldsupptök. 2.1.2010 09:16
Fylgjast grannt með gangi mála á Íslandi Erlendir fjölmiðlar hafa fylgst grannt með framgangi Icesave málsins eftir að Alþingi samþykkti lögin á miðvikudag. Á fréttavef Daily Telegraph er sagt frá því að forsetinn muni í dag hitta forsvarsmenn Indefence hópsins. Indefence hefur safnað hátt í 60 þúsund undirskriftum til þess að hvetja forsetann til þess að synja Icesave lögunum staðfestingar þannig að kosið verði um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. 2.1.2010 08:00