Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aflinn dróst saman um nærri helming Afli íslenskra skipa nam rúmum 1.283 þúsund tonnum í fyrra, en það er 113 þúsund tonnum minna en í hitteðfyrra. 7.8.2009 09:44
Makríllinn enn til vandræða Síldveiðiskipin, sem veiða úr Norsk- íslenska síldarstofninum norðaustur af landinu, eiga í stökustu vandræðum vegna þess hve mikill makríll er í aflanum, en hlutfall hans í heildarafla hvers skips má ekki fara yfir tólf prósent. 7.8.2009 09:40
Obama ánægður með bensínhákafrumvarpið Barack Obama lýsti í dag mikilli ánægju sinni með að öldungadeild Bandaríkjaþings skyldi samþykkja áætlun sem gengur út á að borga fólki fyrir að losa sig við gamla bíla sem eru frekir á bensínið. Tveir milljarðar Bandaríkjadala verða settir í verkefnið sem ætlað er að minnka mengun og um leið örva sölu á nýjum bílum í landinu en bílaiðnaðurinn hefur verið í gríðarlegum vandræðum í bandaríkjunum síðustu árin. 7.8.2009 07:57
Dularfullur ljósagangur fyrir norðan Lögreglan á Akureyri og menn úr björgunarsveitinni Súlum leituðu án árangurs í nótt á Svalbarðsströnd og á Miðvíkurfjalli að einhverju, sem skýrt gæti torkennilegt grænleitt ljós, sem tilkynnt var um að þar hafi fallið til jarðar laust eftir miðnætti. 7.8.2009 07:21
Þúsundir mættar til Dalvíkur Þúsundir manna eru þegar komnar til Dalvíkur til að taka þátt í fiskideginum þar á morgun og eru öll tjaldstæði þegar orðin yfirfull. Gestir eru farnir að tjalda, leggja húsbílum sínum utan bæjarmarkanna, en fólk var farið að safnast þar saman strax á miðvikudag. 7.8.2009 07:19
Persónulegar deilur innan Borgarahreyfingarinnar harmaðar Félagsfundur Borgarahreyfingarinnar, sem stóð framundir miðnætti, harmar þann skaða, sem persónulegar deilur meðal stjórnarmanna og þinghópsins hafa valdið hreyfingunni. Þess er krafist að þingmenn og stjórnarmenn geri út um þessar deilur þannig að ekki hljótist frekari skaði af, og einbeiti sér að því að hrinda stefnumálum Borgarahreyfingarinnar í framkvæmd. 7.8.2009 07:15
Mun meira af geitungum Mun meira er af geitungum í sumar en í fyrrasumar. Þetta segir Erling Ólafsson skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. 7.8.2009 06:00
Mikill meirihluti á móti Mikil andstaða er við Icesave-samninginn meðal þjóðarinnar samkvæmt könnun Capacent-Gallup fyrir Andríki. 7.8.2009 06:00
Telur hættu á fólksflótta síst ofmetna Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur þær tölur sem nefndar hafa verið um mögulega fólksflutninga vegna kreppunnar síst ofætlaðar. 7.8.2009 05:45
Mikið forskot Fréttablaðsins í lestri Heldur dregur úr lestri á dagblöðum í sumar samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup. Fréttablaðið er sem fyrr með mun meiri lestur en Morgunblaðið, og helst forskot blaðsins svo til óbreytt frá síðustu könnun. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var á tímabilinu 2. maí til 31. júlí, lásu 61,1 prósent hvert tölublað Fréttablaðsins að meðaltali. Það er ívið minna en í síðustu könnun, sem gerð var á tímabilinu 1. febrúar til 30. apríl, þegar lesturinn mældist 61,9 prósent. 7.8.2009 05:30
Flest störf í skólunum mönnuð Vel hefur gengið að ráða í lausar stöður í grunnskólum Reykjavíkurborgar, að sögn Kjartans Magnússonar, formanns menntaráðs. „Almennt séð eru skólarnir fullmannaðir,“ segir hann og kveður hljóðið gott í skólastjórum hvað þetta varði. 7.8.2009 05:00
Svört skýrsla um Hróarskeldubanka gæti nýst Íslendingum Sérstakur saksóknari og forstjóri Fjármálaeftirlitsins telja að nýútkomin skýrsla danskra lögfræðinga um fall Hróarskeldubanka, þar sem líkur eru leiddar að umfangsmiklum lögbrotum stjórnenda, kunni að nýtast við rannsókn mála hérlendis. 7.8.2009 04:45
Mál og menning á Laugavegi Bókabúð Máls og menningar verður áfram rekin á Laugavegi 18, þrátt fyrir að reksturinn sem þar hefur verið sé að flytjast á Skólavörðustíg. 7.8.2009 04:30
Fjölskylduerjur þingmannsins Munnleg málsmeðferð fór fram í Héraðsdómi Suðurlands í gær í máli Eggerts Haukdals, fyrrverandi alþingismanns, gegn frænku hans og eiginmanni hennar. Fyrir tæpum þremur árum seldi hann bróðurdóttur sinni og manni hennar jörð sína ásamt húsi. 7.8.2009 04:00
Styrkur bara fyrir Íslendinga Creighton-háskólinn í Omaha í Bandaríkjunum hefur ákveðið að styrkja Ragnheiði Á. Gunnarsdóttur í nám við skólann. 7.8.2009 03:45
Enginn þingmaður mætti Enginn þingmaður Borgarahreyfingarinnar mætti á félagafund hreyfingarinnar sem haldinn var í gærkvöldi. 7.8.2009 03:00
Styðja við miðstöð í Namibíu Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi (SHH) mun styðja við bakið á stjórnvöldum í Namibíu við stofnun og starfrækslu sambærilegrar stofnunar þar í landi. 7.8.2009 02:45
Kæra borgarstjóra fyrir árás Tveir blaðamenn frá Montenegró kærðu í gær borgarstjóra Podgorica, höfuðborgar landsins, son hans og einkalífvörð fyrir að hafa barið sig. 7.8.2009 02:30
Braut rúður og hoppaði á bíl Lögregla handtók ölvaðan karlmann á Háteigsveginum á sjötta tímanum í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins hafði maðurinn brotið rúður á nokkrum bílum áður en lögreglu bar að garði. 7.8.2009 02:00
Kaupsamningum fækkaði fimmfalt Fimmfalt færri kaupsamningum fasteigna var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu fyrstu sjö mánuði ársins miðað við sama tíma árið 2007, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá ríkisins. Kaupsamningum hefur fækkað um ríflega helming samanborið við tímabilið janúar til júlí á síðasta ári. 7.8.2009 01:30
Níu til viðbótar með svínaflensu Níu til viðbótar hafa greinst með svínaflensuna hér á landi á undanförnum dögum. Tilfellin eru því orðin 63 talsins frá því fyrsta tilfellið var staðfest 22. maí. 7.8.2009 01:15
Bankaleyndin víða sambærileg Íslensk lög um bankaleynd eru í aðalatriðum sambærileg þeim sem gilda í Danmörku, Noregi, Þýskalandi og Bretlandi. 7.8.2009 01:00
Hjólhýsi langt utan bæjarins Mikill mannfjöldi er kominn á Dalvík vegna fiskidagsins mikla sem er á Dalvík um helgina. Um 2.000 manns eru þegar komnir, að sögn lögreglunnar á Dalvík, og er búist við nokkrum þúsundum til viðbótar um helgina. Öll tjaldsvæði eru löngu full og eru hjól- og fellihýsi komin út fyrir bæjarmörkin, samkvæmt lögreglunni. 7.8.2009 00:30
Þingmenn mættu ekki á átakafund Borgarahreyfingarinnar Enginn þingmanna Borgarahreyfingarinnar mætti á boðaðann átakafund hreyfingarinnar í kvöld. 6.8.2009 22:33
Þingkonur mæta ekki á átakafund Borgarahreyfingarinnar Þingkona Borgarahreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir, mætti ekki á átakafund Borgarahreyfingarinnar sem stendur nú yfir. Hún er því annar þingmaður flokksins sem ekki mætir. Áður hafði Birgitta Jónsdóttir boðað forföll þar sem hún fékk ekki pössun. 6.8.2009 21:44
Fékk ekki barnapössun og kemst ekki á átakafund „Kæru félagar, Vegna þess hve fyrirfarinn var stuttur sé ég mér ekki fært á að mæta í kvöld en ég hef ekki aðgang að pössun í kvöld og vil helst ekki taka son minn með á átakafund.“ 6.8.2009 20:33
Steingrímur J.:Þetta er harður heimur „Þetta er harður heimur,“ sagði fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, í viðtali við Kastljós í kvöld spurður út í raunverulegar seinkanir á fyrirtöku málefnis Ísland hjá Aljóðgjaldeyrissjóðnum. Aðspurður hvort ástæðan væri Icesave svaraði Steingrímur einfaldlega: „Já.“ 6.8.2009 20:07
Björgunarsveit sótti slasaðan hestamann Á sjötta tímanum í dag var Björgunarsveitin Dalvík kölluð út vegna hestamanns sem féll af baki og slasaðist þegar hann var í hópferð hestamanna í botni Svarfaðardals samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg. 6.8.2009 20:39
Harður árekstur í Ártúnsbrekku Harður þriggja bíla árekstur varð í Ártúnsbrekku rétt fyrir klukkan fimm. Tveir menn voru fluttir með minniháttar meiðsl á slysadeild. Lögreglan segir að gera megi ráð fyrir einhverjum umferðartöfum þarna næstu mínúturnar. 6.8.2009 16:49
Loftfimleikar yfir Vatnsleysuströnd Fjölskyldudagur verður haldinn í Vogum á Vatnsleysuströnd á laugardaginn. Óhætt er að segja að dagskráin sé fjölbreytt en hún hefst með dorgveiðikeppni á smábátabryggjunni klukkan 9:30. 6.8.2009 16:02
Aftur eldur í Vatnsstíg 4 Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Vatnsstíg 4 í dag vegna elds í anddyri hússins. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. All nokkrar skemmdir hlutust af þegar kveikt var í þessu sama húsi á föstudagskvöld. Húsið hefur staðið mannlaust um skeið en lögreglan var nokkrum sinnum kvödd þangað í vor þegar hústökumenn reyndu að taka sér bólfestu í því. 6.8.2009 15:42
Íslendingar styðja heyrnarlausa Namibíumenn Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi ætlar að styðja við bakið á stjórnvöldum í Namibíu við stofnun og starfrækslu sambærilegrar stofnunar þar í landi. Undanfarin ár hefur Samskiptamiðstöðin unnið á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við að bæta kennslu heyrnarlausra í Namibíu með áherslu á táknmál og þjálfun táknmálstúlka, segir í tilkynningu til fjölmiðla. 6.8.2009 15:10
Kúrðu á kamrinum vegna óveðurs Veður að Fjallabaki var með versta móti í nótt og hafði björgunarsveitin Suðurnes í nógu að snúast við að aðstoða fólk á hálendinu. 6.8.2009 13:52
Fimm ára með svínaflensu Fimm ára gamalt barn hefur greinst með H1N1 inflúensuna, eftir því sem fram kemur í upplýsingum frá Sóttvarnarlækni. Samkvæmt sömu upplýsingum voru ný inflúensutilfelli A(H1N1) staðfest hjá níu manns síðustu tvo sólarhringa og heildarfjöldi staðfestra tilfella er því samtals 63. Fólkið sem er nýgreint er á aldrinum 5 - 27 ára með búsetu 6.8.2009 13:19
Rabe ekki höfuðpaur í Papeyjarmálinu Það tókst ekki að sýna fram á að Peter Rabe hefði skipulagt innflutning á fíkniefnum í svokölluðu Papeyjarmáli, segir lögmaður hans. Rabe hlaut 10 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann var handtekinn ásamt fimm Íslendingum í apríl síðastliðnum fyrir smygl á 109 kílóum af fíkniefnum. 6.8.2009 12:10
Álfheiður býst við breytingu á bankaleynd Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, segist búast við að lögum um bankaleynd verði breytt með frumvarpi á haustþingi. 6.8.2009 11:40
Ríkislögreglustjóri vill sex lögreglustjóra á landinu Ég get tekið undir þá skoðun að nýframkomin hugmynd þriggja manna starfshóps dómsmálaráðherra um einn lögreglustjóra yfir landinu öllu er afar róttæk, segir Haraldur Jóhannessen ríkislögreglustjóri við fyrirspurn Vísis. Dómsmálaráðherra kynnti hugmynd starfshópsins fyrir lögreglustjórum í síðustu viku. 6.8.2009 11:13
Birgitta: Veit ekki hvort Þráinn er enn í flokksliðinu „Ég hreinlega veit það ekki," segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, aðspurð hvort Þráinn Bertelsson hafi klofið sig úr flokksliðinu. 6.8.2009 11:00
Vegagerðarmenn áttu fótum sínum fjör að launa Fjórir vegagerðarmenn, sem voru að laga vegaskemmdir á Óshlíðarvegi á tíunda tímanum í morgun, eftir mikið grjóthrun þar í nótt, áttu fótum sínum fjör að launa þegar grjót tók að hrynja á ný. 6.8.2009 10:34
Rúnar og Rabe fá tíu ára dóm fyrir Papeyjarsmygl Dómar í Papeyjarsmyglinu voru að falla í Héraðsdómi Reykjavíkur. Peter Rabe og Rúnar Þór Róbertsson fengu tíu ára dóm hvor. 6.8.2009 10:07
Hús Hreiðars Más málað rautt í nótt Rauðri málningu var í nótt skvett á heimili Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrverandi forstjóra hjá Kaupþingi. Þegar myndatökumann Stöðvar 2 bar að garði voru iðnaðarmenn í óða önn að þvo málninguna af húsinu. Hús Hreiðars er eitt af mörgum sem fengið hefur svipaða meðferð á síðustu vikum og síðast í gær gerðu umhverfissinnar svipaða árás á hús Rannveigar Rist forstjóra álversins í Straumsvík. 6.8.2009 08:57
Ferðamenn staðnir að utanvegaakstri Björgunarsveitarmenn, sem staðsettir eru á hálendinu í sumar, stóðu í gærkvöldi erlenda ferðamenn að utanvegaakstri, þar sem hann er stranglega bannaður. Þegar var haft samband við lögregluna á Húsavík og ferðaskrifstofuna, sem útlendingarnir tengjast, og hefur lögreglan nú málið til rannsóknar. 6.8.2009 08:05
Sluppu vel úr bílveltu Fimm manns sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglu, eftir að jeppi, sem fólkið var í, valt í Öxnadalnum skammt frá Akureyri um kvöldmatarleitið í gærkvöldi. Jeppinn, sem dró stórt hjólhýsi, var að fara fram úr örðum bíl, sem dró stóra kerru. 6.8.2009 07:59
Kílóverð á fiski aldrei verið hærra Meðalverð á íslenskum fiskmörkuðum í síðasa mánuði var hátt í 219 krónur fyrir kílóið, sem er það hæsta sem það hefur orðið í sögu fiskmarkaðanna hér á landi til þessa, samkvæmt upplýsingum Reiknistofu fiskmarkaðanna. 6.8.2009 07:57
Hestakerra olli töfum á umferð Töluverðar tafir urðu á þjóðvegi eitt sunnan við Blönduós í gærkvöldi, þegar hestakerra valt aftan úr bíl, sem dró hana. Við það snérist bíllinn þversum á veginum og truflaði umferð í báðar áttir þartil lögregla og björgunarmenn höfðu athafnað sig á vettvangi. Engin hestur var í kerrunni og er verið að kanna hvað olli því að hún valt. 6.8.2009 07:16