Innlent

Hjólhýsi langt utan bæjarins

Mikill mannfjöldi er kominn á Dalvík vegna fiskidagsins mikla sem er á Dalvík um helgina. Um 2.000 manns eru þegar komnir, að sögn lögreglunnar á Dalvík, og er búist við nokkrum þúsundum til viðbótar um helgina. Öll tjaldsvæði eru löngu full og eru hjól- og fellihýsi komin út fyrir bæjarmörkin, samkvæmt lögreglunni.

Fiskidagurinn er alltaf haldinn laugardaginn eftir verslunarmannahelgi á Dalvík og mættu um 10 þúsund manns í fyrra. Fjölbreytt dagskrá prýðir hátíðina í ár og mun Magni Ásgeirsson slá upp balli í kvöld.-vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×