Innlent

Sluppu vel úr bílveltu

Fimm manns sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglu, eftir að jeppi, sem fólkið var í, valt í Öxnadalnum skammt frá Akureyri um kvöldmatarleitið í gærkvöldi. Jeppinn, sem dró stórt hjólhýsi, var að fara fram úr örðum bíl, sem dró stóra kerru.

Hjólhýsið og kerran rákust saman, en við það splundraðist hjólhýsið og jeppinn valt út af veginum, að minnstakosti eina veltu. Hinn bíllin flaug út af veginum hinumegin, en kom niður á hjólin og sakaði engan í honum. Fólkið úr jeppanum var flutt á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar, en var útskrifað að því loknu.




















Fleiri fréttir

Sjá meira


×