Innlent

Álfheiður býst við breytingu á bankaleynd

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar og þingmaður Vinstri grænna.
Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar og þingmaður Vinstri grænna.

Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, segist búast við að lögum um bankaleynd verði breytt með frumvarpi á haustþingi.

Bankaleynd var rædd á fundi viðskiptanefndar í morgun. Þar segir Álfheiður að nefndinni hafi verið kynnt skýrsla viðskiptaráðuneytisins um samanburð á íslenskum lögum og evrópskum.

„Umræðan um bankaleynd hefur verið önnur og meiri síðan í hruninu. Manni virðist sem menn beiti hugtakinu bankaleynd ansi rúmt og jafnvel þannig að það eigi ekki við," segir Álfheiður.

Nú sé verið að huga að því hvort nauðsynlegt sé að breyta lögum um bankaleynd og haldin verði ráðstefna á vegum viðskiptaráðuneytisins í september með aðkomu erlendra sérfræðinga. Í kjölfarið megi búast við breytingum á lögum.

Fundurinn í dag hafi verið fyrsta skrefið í þá átt.

Hún segir víðtækari aðgang aðila innan stjórnkerfisins að upplýsingum einkum í kastljósinu, þó þeir verði áfram bundnir trúnaði.

Þá þurfi jafnframt að skoða skilin á milli bankastarfsmanna og fjölmiðla þegar kemur að trúnaðarupplýsingum.

„Í mínum huga er ekkert sem heitir bankaleynd gagnvart fjölmiðlum," segir Álfheiður, þó öðru máli gegni um starfsmenn fjármálafyrirtækja.

Þá bendir hún á að Alþingi hafi þegar samþykkt lög sem rýmka bankaleynd til handa rannsóknaraðilum hrunsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×