Innlent

Makríllinn enn til vandræða

Makríllinn flækist fyrir síldveiðinni.
Makríllinn flækist fyrir síldveiðinni.

Síldveiðiskipin, sem veiða úr Norsk- íslenska síldarstofninum norðaustur af landinu, eiga í stökustu vandræðum vegna þess hve mikill makríll er í aflanum, en hlutfall hans í heildarafla hvers skips má ekki fara yfir tólf prósent.

Sjómenn segja að makríllinn sé á öllum síldarmiðunum og það grátbroslega í þessu öllu sé, að meira fáist fyrir afurðir makrílsins til manneldis, en fyrir afurðir síldarinnar til manneldis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×