Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
56 milljónir í ráðgjöf Félags- og tryggingamálaáðuneytið greiddi rúmar 56 milljónir fyrir aðkeypta þjónustu og ráðgjafa- og verktakakostnað í ráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur núverandi forsætisráðherra. 6.3.2009 11:34
Móttökugleði ári fyrir kosningarnar 2006 Ári fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006 stóðu forsvarsmenn R-listans fyrir fleiri móttökum á kostnað borgarstjórnar en á meðalári. Kosið var til borgarstjórnar 27. maí 2006 og voru haldnar 112 móttökur ári fyrir kosningarnar. Á tímabilinu 2004 til 2008 voru að meðaltali haldnar 91 móttökur á ári hverju. 6.3.2009 11:05
Tugir Vítisengla væntanlegir í dag Vítisenglar frá öllum Norðurlöndunum og víðar munu reyna að komast inn í landið í dag þrátt fyrir hert landamæraeftirlit samkvæmt heimildum Vísis. Um er að ræða tugi Vítisengla víða um heim. Meðal annars munu Vítisenglarnir koma frá Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Bretlandi og nokkrir frá Bandaríkjunum auk Norðurlandanna. Þeir fyrstu munu koma hingað með flugi um hádegisbilið og er búist við að þeir síðustu munu lenda á Íslandi um miðnætti. 6.3.2009 10:19
500 búnir að kjósa í forvali Samfylkingarinnar Rúmlega 500 manns eru búnir að greiða atkvæði í netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem hófst í gær og líkur klukkan 18 á morgun. Prófkjörið er opið öllum íbúum kjördæmisins. 6.3.2009 09:39
Bankarnir óstarfhæfir Svandís Svavardóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir að forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar sé að snúa hjólum efnahagslífsins af stað með því að gera bankana algerlega starfhæfa. Að hennar mati eru þeir engan veginn starfhæfir. Virkir bankar séu nauðsynlegir fyrir fyrirtækin en fyrirtækin fyrir fólkið. 6.3.2009 09:27
Verðmunur á höfuðborgarsvæðinu allt að 84 prósent Allt að 84 prósenta verðmunur var á sambærilegum hlutum, í nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Fimmtíu og ein vörutegund var skoðuð og reyndist verðið lægst í Bónus í 34 tilvikum. 6.3.2009 08:07
Ryk bundið í nótt Allar helstu umferðargötur í Reykjavík voru rykbundnar í nótt til að kom í veg fyrir svifryksmengun. Þetta var gert samkvæmt viðbragðsáætlun borgarinnar um loftgæði en í gær mældist styrkur svifryks við heilsuverndarmörk. 6.3.2009 07:34
Barist í Hlíðum Til átaka kom milli tveggja hópa unglinga á mótum Mávahlíðar og Lönguhlíðar í Reykjavík, á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vitni töldu að sumir hefðu hampað bareflum og jafnvel hnífum. 6.3.2009 07:27
Þrír í fangageymslu eftir árshátíð Þrír unglingar gista nú fangageymslur lögreglunnar á Selfossi þar sem þeir höfðust ekki við í uppábúnum rúmum á Hótel Selfossi og voru með háreysti og slagsmál á göngum hótelsins. Þeir höfðu verið á árshátíð fjölbrautaskóla úr Reykjavík, sem haldin var á hótelinu í gærkvöldi, en varð ekki svefnsamt. 6.3.2009 07:25
Gulldeplan á förum Gulldeplan, sem ýmist er kölluð kreppukóð eða bjargvætturinn, er nú um það bil að yfirgefa íslenska lögsögu djúpt suður af landinu. Tíu skip voru þar að veiðum í gær en eru um það bil að slá botninn í veiðarnar og halda heim. 6.3.2009 07:23
Sluppu nær ómeiddir úr bílveltu Þrír menn sluppu nær ómeiddir þegar jeppi þeirra valt út af Hrunamannavegi, skammt frá Flúðum í nótt. Hann valt tvær heilar veltur og er stórskemmdur ef ekki ónýtur. Mennirnir voru fluttir til læknis að Laugarási, þar sem þeir fengu aðhlynningu. Flughálka var á veginum þar sem slysið varð. 6.3.2009 07:19
Leit að Aldísi ber enn engan árangur Leit að Aldísi Westergren lauk án árangurs í gærkvöldi og er ekki búið að taka ákvörðun um frekari leit. Margir björgunarsveitarmenn og lögreglumenn tóku þátt í leitinni, en ekkert hefur sést til Aldísar í níu daga, eftir að hún hvarf af heimili sínu. Engar haldbærar vísbendingar hafa borist um ferðir hennar síðan. 6.3.2009 07:17
Átök milli unglinga í Hlíðahverfinu Lögreglan var kölluð að gatnamótum Lönguhlíðar og Mávahlíðar fyrir stundu en svo virðist vera sem komið hafi til slagsmála milli unglinga. Lögreglan er enn á staðnum og ekki er vitað að svo stöddu hvað olli átökunum eða hvort einhver hafi slasast. 5.3.2009 22:08
Leit að Aldísi lokið í dag Víðtæk leit sem staðið hefur yfir að Aldísi Westergren í dag lauk án árangurs þegar myrkra tók nú undir kvöld. 5.3.2009 22:52
Gríðarlegur fjöldi á framhaldsnámskynningu í HÍ Gríðarlegt fjölmenni var á námskynningu í Háskóla Íslands í dag þegar kennarar, nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands kynntu framhaldsnám næsta skólaárs. 5.3.2009 22:45
Ásgarður hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Ásgarður handverkstæði hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins að þessu sinni. Ásgarður er verndaður vinnustaður fyrir fólk með þroskahömlun. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. 5.3.2009 19:09
Flestir sögðust kjósa Sjálfstæðisflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn hefur mest fylgi allra stjórnmálaflokka meðal svarenda í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. 5.3.2009 18:28
Framsóknarboð Óskars á sér nokkur fordæmi Umdeilt boð sem Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, hélt fyrir flokkssystkini sín í nóvember á seinasta ári á sér nokkur fordæmi. Undanfarin ár hafa borgarfulltrúar annarra flokka staðið fyrir samskonar móttökum á kostnað borgarstjórnar. 5.3.2009 15:25
Bjartsýni á iðnþingi Formaður Samtaka iðnaðarins spáir því að Íslendingar verði fyrstir þjóða upp úr öldudalnum og að styttra sé í batann en af er látið. Iðnaðarráðherra lýsir sömuleiðis mikilli bjartsýni og spáir því að orkufrekur iðnaður skapi yfir tíu þúsund ársverk á næstu árum. 5.3.2009 19:03
Loftlagstillagan sett fram fyrir stjórnarfrumvörp Minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna mátti horfa upp á það á Alþingi í dag að meirihluti hinna flokkanna tók völdin af henni og setti loftlagstillögu í flýtimeðferð fram fyrir stjórnarfrumvörp. 5.3.2009 18:51
Ungum kynferðisbrotamönnum fjölgar Ungum kynferðisbrotamönnum hefur fjölgað um 65% á þremur árum. Yngstu gerendurnir eru allt niður í 10 ára og eru dæmi um að brotin séu grófari en tíðkast hjá fullorðnum gerendum. 5.3.2009 18:42
Undirrituðu samkomulag til að skapa atvinnumöguleika Ísland og Manitobafylki í Kanada undirrituðu samkomulag sem skapar atvinnumöguleika fyrir Íslendinga í Manitoba til eins árs. Sjúkratrygging fæst frá fyrsta degi, börn fá skólavist og makar atvinnuleyfi líka. 5.3.2009 18:55
Fjárreiðustjóri Ísfélagins ósammála stjórnarformanninum Baldvin Johnsen fjárrreiðustjóri Ísfélags Vestmannaeyja segist vera ósammála þeim orðum stjórnarformanns fyrirtækisins að hann hafi farið út fyrir heimildir félagsins eða vanrækt upplýsingagjöf til stjórnar. Baldvin og Ægi Pál Friðbertssyni, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, var sagt upp störfum fyrr í vikunni vegna taps félagsins af afleiðusamningum. 5.3.2009 17:53
Kannabisrækt í Kópavogi stöðvuð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 5.3.2009 17:05
Héraðsdómur: Fá bætur vegna harkalegrar handtöku Þremur ungum mönnum voru í dag dæmdar bætur í Héraðsdómi Reykjavíku þegar lögregla braut gegn meðalhófsreglu þegar gerð var á þeim líkamsleit í kjölfar handtöku. Lögreglan var vopnuð og beitti við handtökuna óþarflega særandi aðgerðum og á niðurlægjandi hátt að mati dómara. Skömmu síðar kom í ljós Mennirnir fá í bætur 200 þúsund krónur hver að viðbættum vöxtum. Gjafsóknarkostnaður sækjanda, 600 þúsund krónur, greiðist úr ríkissjóði. 5.3.2009 17:04
Íslandspósti gert að greiða starfsmanni 400 þúsund í bætur Hæstiréttur dæmdi í dag Íslandspóst til að greiða starfsmanni sínum 400 þúsund krónur í bætur vegna slyss þegar starfsmaðurinn féll af rampa. Starfsmaðurinn sem er kona hafði starfað hjá fyrirtækinu í rúma tvo áratugi. 5.3.2009 17:00
Dæmd til þess að greiða Geira 500.000 krónur Björk Eiðsdóttir blaðakona á Vikunni var í Hæstarétti í dag dæmd til þess að greiða Ásgeiri Þór Davíðssyni 500.000 krónur vegna ummæla sem féllu í blaðinu. Elín Arnar ritstjóri var sýknuð af fjárkröfu Ásgeirs. Héraðsdómur hafði áður sýknað blaðamennina en Ásgeir fór í meiðyrðarmál vegna ummæla sem fyrrverandi nektardansmey lét falla um Ásgeir í blaðinu. Vikunni var einnig gert að birta niðurstöður dómsins í næsta tölublaði auk þess sem ummæli voru dæmd dauð og ómerk. 5.3.2009 16:31
Sýslumaður tjáir sig ekki um komu Vítisenglanna Lögreglan og sýslumannsembættið vill ekki tjá sig um ákvörðun dómsmálaráðuneytis um tímabundna upptöku á landamæraeftirliti hér á landi. 5.3.2009 16:23
Foringi Vítisenglanna: Var á Íslandi fyrir tveimur vikum Leiðtogi norsku Vítisenglanna, Leif Ivar Kristiansen var hér á landi fyrir tveimur vikum síðan, í boði Fáfnis, samkvæmt heimildum Vísis. Leif er einn alræmdasti Vítisengillinn í Noregi en hann hefur meðal annars verið ákærður fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning. 5.3.2009 15:36
Maður reyndi að tæla stúlku í Langholtshverfi Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er með til skoðunar mál sem kom upp við Langholtsveg í Reykjavík í vikunni. Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri Langholtsskóla sendi foreldrum bréf þar sem þau eru beðin um brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíl hjá ókunnugum. Bréfið sendi hann í kjölfar þess að maður reyndi að tæla unga stúlku sem er nemandi í skólanum upp í bíl til sín. 5.3.2009 15:33
Brottvikning Margrétar kostaði Frjálslynda flokkinn rúma milljón Frjálslyndi flokkurinn hefur verið dæmdur til að greiða Margréti Sverrisdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra flokksins, 614 þúsund krónur með dráttarvöxtum vegna ógreiddra launa. Að auki þarf flokkurinn að greiða Margréti 600 þúsund krónur í málskostnað. 5.3.2009 15:03
Umdeild eftirlaunalög afnumin á Alþingi Þrjátíu og fjórir þingmenn samþykktu afnám laga um eftirlaun forseta, þingmanna, hæstaréttardómara og ráðherra á Alþingi í dag. Engin greiddi atkvæði gegn frumvarpinu en tuttugu og sex þingmenn voru fjarverandi. 5.3.2009 14:27
Beðinn um að missa minnið í réttarsal Ragnar Magnússon var beðinn um að missa minnið í dómssal í dag. Þar fór fram aðalmeðferð í þremur líkamsárásarmálum gegn Benjamín Þór Þorgrímssyni. Árásin á Ragnar vakti nokkra athygli á síðasta ári þegar hún var sýnd í fréttaskýringarþættinum Kompás. Ragnar sagði meðal annars að eftir þáttinn hefði hann fengið hótanir frá þriðja aðila sem bað hann um að missa minnið fyrir dómi. Hann sagðist því miður ekki geta gefið upp hver sá aðili væri. Fullt var út úr dyrum í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur. 5.3.2009 13:30
Sumarannir í staðinn fyrir atvinnuleysi Stúdentaráð Háskóla Íslands telur að stór hluti þeirra 13.500 stúdenta sem stunda nám við Háskólann muni ekki ná að verða sér úti um sumarvinnu. Því hvetur ráðið Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, til að endurvekja sumarannir við skólann. 5.3.2009 13:24
Móttökur hjá borginni fjórða hvern dag Móttökur á vegum borgarstjórnar Reykjavíkurborgar hafa verið haldnar að meðaltali fjórða hvern dag undanfarin ár. Með móttökum er átt við öll mannamót sem haldin hafa verið á kostnað borgarstjórnar hvort sem um er að ræða móttökur með vínveitingum eða öðrum veitingum. 5.3.2009 13:12
Jón Trausti Lúthersson: „Ótrúlega öfgakennd viðbrögð“ Fáfnismenn mótmæla harðlega viðbrögðum stjórnvalda en gefin hefur verið út yfirlýsing, af hálfu dómsmálaráðuneytis, þar sem fram kemur að tekið verði upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá 5. mars til 7. mars. 5.3.2009 13:08
Vítisenglaveisla ógn við þjóðaröryggi Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að taka upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá 5. mars til og með 7. mars. Í tilkynningu í Lögbirtingablaðinu kemur fram að breytingunni sé ætlað að „koma í veg fyrir væntanlega komu ákveðins hættulegs hóps frá og um nágrannalönd Íslands í Evrópu.“ 5.3.2009 13:04
Klúbbhús Fáfnis í ólöglegu húsnæði Klúbbhús vélhljólaklúbbsins Fáfnis sem fyrirhugað er að opna um helgina er í ólöglegu húsnæði. Það er byggt og samþykkt sem iðnaðarhúsnæði og öll breyting á því í aðra veru er ekki heimil. 5.3.2009 12:59
Ekkert ákveðið um mánaðarlegar barnabætur Ekkert bólar á loforði síðustu ríkisstjórnar um að barnabætur verði greiddar út mánaðarlega en ekki ársfjórðungslega. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lofaði þessu á blaðamannafundi um aðgerðarpakka fyrir heimilin þann 14. nóvember. 5.3.2009 12:16
FME getur tafið vinnu sérstaks saksóknara Tafir geta orðið á rannsóknum sérstaks saksóknara bankahrunsins, þar sem Fjármálaeftirlitið getur borið fyrir sig bankaleynd. Breytingar á lögum um saksóknarann eru langt komnar. 5.3.2009 12:08
Mannshvarf: Vitni sá Aldísi í miðbænum „Ég var ekkert að spekúlera í þessu fyrr en nokkru síðar," segir Erna Margrét Ottósdóttir, fyrrum vinnufélagi Aldísar Westergren, sem hefur verið týnd í rúma viku. Erna segist hafa séð Aldísi síðdegis fyrir um viku síðan, hún geti þó ekki verið viss hvort það var á mánudegi eða þriðjudegi. 5.3.2009 11:37
Eftirlaunalögin verði afnumin á kjördag Eftirlaunalögin verða afnumin 25. apríl, sem er áætlaður kjördagur, nái breytingartillaga á frumvarpi sem fjallar um eftirlaun æðstu ráðmanna fram að ganga. Lokaumræða um frumvarpið hófst í dag. 5.3.2009 11:19
Jákvæð fyrir sameiningu Varnarmálastofnunar og Landhelgisgæslu Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, telur að sameining Landhelgisgæslunnar og Varnarmálastofnunar sé einn af þeim möguleikum til hagræðingar sem verði að skoða með opnum hug. Erfitt sé að meta hvort slík sameining myndi hafa jákvæð áhrif á fjárhag Landhelgisgæslunnar. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag þegar að Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði ráðherrann um boðaðan niðurskurð hjá Landhelgisgæslunni sem nýverið var tilkynnt um. Fækka þarf starfsmönnum stofnunarinnar um 20 til 30. 5.3.2009 11:01
Hrefnan étur mun meira af þorski og ýsu en áður var talið Niðurstöður hrefnurannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar á árunum 2003-2007 benda til þess hrefnan éti árlega allt að 300.000 tonn af þorski og ýsu. Frá þessu er greint á heimasíðu LÍU og sagt að um fimmfalt meira magn að ræða en en eldri rannsóknir hafa leitt í ljós. Til samanburðar er nefnt að heildaraflamark þorsks og ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári er um 250.000 tonn. 5.3.2009 10:09
Íslendingar sem búið hafa erlendis lengur en í átta ár mega kjósa Breyting á lögum um kosningar til Alþingis sem tók gildi í dag gerir íslenskum ríkisborgurum, sem hafa verið búsettir erlendis í meira en átta ár og höfðu ekki sótt um að verða teknir á kjörskrá fyrir 1. desember sl., kleift að kjósa í alþingiskosningunum 25. apríl nk. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að sæki þeir um til Þjóðskrár í síðasta lagi 25. mars nk. geti þeir kosið í kosningunum í vor ef umsókn þeirra reynist fullnægjandi. 5.3.2009 09:58