Fleiri fréttir

Velti bílnum í götukappakstri

Ungur ökumaður velti bílnum sínum á Stapabraut í Innri Njarðvík í gærkvöldi en ástæðan var sú að hann var í kappakstri við annan ökuþór, sem var á svipuðum aldri, en þeir eru rétt tæplega tvítugir.

Atli Gíslason: Fangar eru kórdrengir miðað við auðmenn

„Ég á nöfnin á þessum fjörtíu, fimmtíu mönnum sem við erum að tala um," segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna spurður út í ummæli sín í Silfri Egils fyrr í dag þar sem hann talaði um að bankarnir á landinu þyrftu að setja auðmenn á válista.

Útskrifuð af gjörgæslu eftir tunnuslys

Önnur kvennanna sem lenti í alvarlegu vinnuslysi í Þykkvabæ fyrir helgi, verður útskrifuð af gjörgæslu í dag. Hin konan er enn haldið sofandi en hún er í öndunarvél. Samkvæmt vakthafandi lækni er ástand hennar stöðugt.

Hestur aflífaður eftir árekstur

Ökumaður fólksbíls ók á hross við Landveg nærri Hellu um miðnætti í gær. Hesturinn slasaðist illa og þurfti að aflífa hann á staðnum.

Skíðasvæðið á Siglufirði opið

Skíðasvæðið á Siglufirði verður opið í dag frá klukkan ellefu til fimm. Það er fimm stiga frost í fjallinu, norðvestan átt auk þess sem það er smá éljagangur. Þó er nóg um snjó og færi almennt gott samkvæmt forsvarsmönnum skíðasvæðisins.

Sex innbrot í nótt

Alls voru sex innbrot framinn á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt lögreglunni er fleira en gengur og gerist. Í einu tilvikinu var rúða brotinn á veitingastað í miðborg Reykjavíkur. Þjófurinn fór svo inn um gluggann og tæmdi sjóðsvél. Þá var einnig farið inn í heimahús í Kópavogi í nótt og tölvuturn tekinn ófrjálsri hendi.

Tólf þingmenn gefa ekki kost á sér

Tólf þingmenn hafa lýst yfir að þeir bjóði sig ekki fram í þingkosningum í apríl, heldur fleiri en hættu á þingi fyrir síðustu kosningar. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað á Alþingi undanfarin nokkur ár.

Með haglabyssu að hefna sín á Íslendingum

Tveir Danir sem fóru halloka fyrir Íslendingum í slagsmálum í bænum Haslev í Danmörku í gær fengu vin sinn til þess að mæta með afsagaða haglabyssu til þess að hefna harma sinna. Kráareigandinn, Frank, segir engum vopnum hafa verið beitt inn á kránni.

Seinka hugsanlega kosningum

Ríkisstjórnin telur að til greina komi að fresta kosningum til Alþingis um viku, svo að tími vinnist til að afgreiða öll þau mál sem hún telur nauðsynlegt að afgreiða fyrir kosningar. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina vilja afgreiða mál sem komi endurreisn efnahagslífsins ekki við.

Þóra Kristín hlaut Blaðamannaverðlaun ársins

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, blaðakona mbl.is, hlaut Blaðamannaverðlaun ársins en þau voru veitt við hátíðlega athöfn á Hótel Holti. Við tilnefningu Þóru Kristínar sagði dómnefndin að Þóra flutt vandaðar fréttir á mbl.is þar sem hún nálgaðist frumlega málefni líðandi stundar og netmiðillinn var nýttur með nýjum hætti í íslenskri fjölmiðlun.

Sakar Samfylkinguna um skipulagða rógsherferð

Formaður Framsóknaflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sakar Samfylkinguna um skipulagða rógsherferð gagnvart sér vegna fjármálastöðu sinnar og eiginkonu. Orðin lætur hann falla í helgarviðtali Fréttablaðsins sem kom út í dag.

Mótmælendur vilja kvótann aftur til fólksins

„Ætli það hafi ekki verið rúmlega þrjúhundruð manns þarna," segir Hörður Torfason en tuttugasti útifundurinn var haldinn í dag klukkan þrjú. Ný krafa var sett fram á fundinum, mótmælendur vilja kvótann til fólksins.

Björguðu átta manns eftir ótrúlega hrakningar

„Þetta voru þrír fullorðnir einstaklingar og svo fimm börn," segir Óskar Björn Óskarsson sem sótti átta manns til Reesnæs Strandvej í Danmörku en þau voru þar aðframkominn eftir að hafa verið svikinn um vinnu og pening. Um íslenska fjölskyldu er að ræða en með henni var vinur þeirra. Þau voru á þrítugsaldri en börnin frá tveggja ára aldri til ellefu ára.

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins: Ólöf Nordal býður fram í nýju kjördæmi

Ólöf Nordal, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi þar sem eiginmaður hennar er forstjóri Alcoa, býður sig nú ekki fram í heimabyggð fjölskyldunnar, og ætlar að taka þátt í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Vekur þetta athygli í ljósi þess að það er hefð fyrir því að bjóða sig fram í heimakjördæmum.

Fámennt á mótmælafundi

Fámennt var á tuttugustu mótmælunum sem voru haldin á Austurvelli í dag. Ræðumenn voru Marínó G. Njálsson ráðgjafi og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir framkvæmdarstýra. Fundarstjórinn var Hörður Torfason en forskrift fundarins er: Breiðfylking gegn ástandinu.

Segir Samfylkinguna hanna pólitískar atburðarásir

„Mér hefur þótt Samfylkingarfólk leggja helst til mikla áherslu á að hanna umræðu í stað þess að vera í pólitískri umræðu," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurður hvað hann eigi við með að vel skipulagður hópur innan Samfylkingarinnar hafi lagst í rógsherferð gegn sér og unnust hans.

Galið að herða innheimtu

Ríki og sveitarfélög hafa síðan fyrir jól farið mildari höndum um skuldara, segir framkvæmdastjóri Credit info á Íslandi. Því er ólíkt farið með ýmis einkafyrirtæki sem hafa hert á innheimtunni. Björn Þorri Viktorsson hæstaréttarlögmaður segir hagsmuni lánardrottna að skuldir verði færðar niður handvirkt. Strax. Enginn hafi hag af því að kreppan dýpki. Það sé í raun galið að ganga hart að skuldurum.

Geir H. Haarde: Útilokar breytingar á stjórnarskrá fyrir kosningar

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde, segir útilokað að hægt verði að afgreiða lög um breytingar á stjórnarskránni og kosningalögum fyrir komandi kosningar í vor. Hann segir forystumenn stjórnarflokkanna vilja fresta kosningum sem ekki komi til greina að hans mati.

Íslendingar valdir að skotárás í Danmörku

Svo virðist sem nokkrir Íslendingar hafi valdið skotárás Haslev í Danmörku í gærkvöldi. Lögreglan í Haslev segir í viðtali við Danska ríkisútvarpið að þetta hafi byrjað á bæjarkránni í Haslev í gærkvöldi.

Frjálslyndar konur vilja lengja húsnæðislán

Landssamband Kvenna í Frjálslynda flokknum skora á Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, að lengja um helming í húsnæðislánum. Þá eiga þær bæði við verðtryggð sem og erlend myntkörfulán.

Haldið sofandi eftir tunnuslys

Tvær konur, sem slösuðust alvarlega þegar lok af mæjónestunnu þeyttist í höfuð þeirra, er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Borgarspítalans í Fossvogi. Líðan þeirra er stöðug en báðar gengust þær undir aðgerðir í nótt við áverkum sínum. Konurnar eru verst slasaðar á höfði og í andliti.

Fíkniefnasali handtekinn í Vestmannaeyjum

Í nótt var aðili handtekinn á heimili sínu í Vestmannaeyjum þar sem við leit hafði fundist nokkuð magn af ætluðu amfetamíni samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Nauðungaruppboðum fjölgar um 180%

Auglýstum nauðungaruppboðum á eignum landsmanna hefur fjölgað um nærri 180 prósent á þessu ári. „Við erum á efnahagslegu Tjernobilsvæði," segir hæstaréttarlögmaður, sem segir nauðungaruppboð á heimilum fólks dapurlegar samkomur.

Gangast undir aðgerðir eftir sprengingu í Þykkvabænum

Konurnar tvær sem voru fluttar á slysadeild eftir sprengingu í kartöfluverksmiðju í Þykkvabænum eru báðar alvarlega slasaðar, að sögn vakthafandi læknis á slysadeild. Þær eru báðar með áverka í andliti og þurfa að gangast undir aðgerðir. Það var um tvöleytið í dag sem sprenging varð í kartöfluverksmiðjunni. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun majones-ketill hafa sprungið með fyrrgreindum afleiðingum.

Fagna viljayfirlýsingu um Tónlistarhúsið

Samtök ferðaþjónustunnar fagna því að ríkið og Reykjavíkurborg skuli hafa undirritað viljayfirlýsingu um að ljúka byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins. ,,Þrátt fyrir slæmt efnahagsástand þarf að skoða afleiðingar þess að hafast ekki að og ljóst að miklir fjármunir færu í súginn yrði hætt við bygginguna að sinni. Hálfklárað stórhýsi í miðbæ Reykjavíkur myndi þar að auki setja dapurlegan svip á bæinn,“ segir í tilkynningu.

Skáli Íslendings afhentur í dag

Ferðaþjónustufyrirtækið Íslendingur ehf., tók í dag við Skála Íslendings úr höndum verktakafyrirtækisins Spangar sem stýrt hefur framkvæmdum við verkið á Fitjum í Reykjanesbæ.

Bæjarstjórinn í Garði vill á þing

Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjörkjördæmi.

Sprenging í kartöfluverksmiðju - tveir alvarlega slasaðir

Tvær konur voru fluttir alvarlega slasaðir á slysadeild Borgarspítalans með þyrlu, eftir að sprenging varð í kartöfluverksmiðju í Þykkvabæ um tvö leytið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis mun Majones ketill hafa sprungið með þessum afleiðingum.

Sækist eftir forystusæti í Reykjavík

Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem haldið verður dagana 13. og 14. mars næstkomandi vegna komandi Alþingiskosninga. Sigurður Kári sækist eftir forystusæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og óskar eftir stuðningi í 2.-3. sæti í prófkjörinu.

Þriggja bíla árekstur við Hamraborg

Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg í Kópavogi rétt fyrir klukkan hálf fjögur í dag. Rúta og tvær fólksbifreiðar rákust saman og varHafnarfjarðarvegi lokað um stund. Umferð hefur verið opnuð á nýjan leik.

Ákvörðun um hvalveiðar óskiljanleg

Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum vonbrigðum með að ákvörðun Einars K. Guðfinnsonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, um veiðar á hrefnu og langreyði skuli standa. Samtökin segja hana óskiljanlega.

Tuttugasti útifundur Radda fólksins

Raddir fólksins standa fyrir útifundi á Austurvelli á morgun en þetta er tuttugasti laugardaginn í röð sem samtökin boða til mótmælafundar. Sem fyrr er fundað undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu.

Gefur ekki kost á sér í Suðurkjördæmi

Helga Sigrún Harðardóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, sækist ekki eftir sæta á framboðslista flokksins í kjördæminu. Helga Sigrún hyggst tilkynna um helgina hvort hún gefi kost sér til Alþingis og þá í hvaða kjördæmi.

Hvergi verði slegið af í baráttunni gegn umferðarslysum

Í nýrri ályktun frá Umferðarráði er bent á að það sem af sé ári hafi þrír einstaklingar látist í umferðarslysum. „Það er óásættanlegt,“ segir einnig. „Þrátt fyrir að fjöldi látinna í umferð hafi verið með lægsta móti á síðasta ári er full ástæða til að halda vöku sinni og slá hvergi af í baráttunni gegn umferðarslysum,“ segir einnig.

ESB-aðild hefur lítil áhrif á yfirráðarétt orkuauðlinda

Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, segir að ekki sé hægt að halda fram hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi hafa veruleg áhrif á stöðu landsins og möguleika varðandi yfirráðarétt og nýtingu jarðrænna auðlinda. Þetta kom fram í erindi Guðna á aðalfundi Samorku um íslenskar orkulindir og ESB.

Sýndarsjúklingurinn Hermann á ferð og flugi á morgun

Sýndarsjúklingurinn Hermann verður fluttur frá Landspítala Háskólasjúkrahúsi á morgun með sjúkrabifreið yfir á Háskólatorg. Flutningarnir munu verða strax upp úr hádegi og má reikna með ýmsum uppátækjum í Hermanni.

Ingi Björn snýr aftur

Ingi Björn Albertsson, fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram til Alþingis á nýjan leik en hann sat í átta ár þingi frá 1987 til 1995. Ingi Björn hyggst taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en framboðsfrestur rennur út í dag.

Gefur kost á sér í kraganum

Íris Björg Kristjánsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-5. sæti á prófkjörslista Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum.

Bankarnir sýna Alþingi óvirðingu

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kvartaði undan því á Alþingi í morgun að enn hafi ekki borist svör við tveggja mánaða gamalli fyrirspurn frá henni um bifreiðahlunnindi fyrrverandi og núverandi starfsmanna bankanna. Hún sagði bankanna sýna Alþingi óvirðingu.

Sjá næstu 50 fréttir