Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill leiða Frjálslynda í Reykjavík Viðar Guðjohnsen, formaður Landssambands ungra frjálslyndra, sækist eftir að leiða lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík suður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðari. 12.2.2009 11:11
Haarde í HardTalk: Hefur ekki talað við Brown Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur ekki rætt við Gordon Brown eftir að hryðjuverkalögin gegn Íslendingum voru sett á í október. Hann telur hins vegar að hann hefði ef til vill átt að ræða við hann eftir atburðina. Geir ræddi við Stephen Sackur, stjórnanda sjónvarpsþáttarins HardTalk, í gegnum gervihnött á BBC WORLD NEWS núna í morgun. 12.2.2009 09:55
Hvetja vegfarendur til að flauta á Davíð Nú er mótmælt við Seðlabankann fjórða morguninn í röð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru á bilinu 20-30 manns við bankann og fara mótmælin vel fram. Fólk lætur þó í sér heyra en mótmælendur hafa sett upp skilti þar sem vegfarendur eru hvattir til þess að flauta Davíð Oddsson út úr bankanum. 12.2.2009 09:38
Sprengingar við Seðlabankann í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu frá Seðlabanka Íslands við Kalkofnsveg klukkan 02:26 í nótt. Öryggisverðir bankans tilkynntu um sprengingar við bankann og mætti lögregla á staðinn. 12.2.2009 09:27
Verið að landa fyrstu loðnu vertíðarinnar Verið er að landa fyrstu loðnunni á þessari vertíð, sem skipin veiddu úr 15 þúsund tonna rannsóknarkvóta, sem gefinn var út í gær. 12.2.2009 07:17
Bændur óttast hærra áburðarverð Bændur óttast að áburðarverð muni enn hækka í ár, jafnvel um 20 til 30 prósent. Í fyrra hækkaði áburðarverð um hátt í 80 prósent frá árinu áður. 12.2.2009 07:13
Fer fram á allsherjarkosningu um formann VR Kristinn Örn Jóhannesson ætlar í dag að fara fram á allsherjarkosningu um formann VR fyrir kjörtímabilið 2009 til 2011. Í tilkynningu frá Kristni segir að Gunnar Páll Pálsson, núverandi formaður VR, hafi virt að vettugi þá beiðni félagsmanna í VR, að hann stígi til hliðar á meðan á rannsókn á málefnum gamla Kaupþings fer fram. 12.2.2009 07:11
Leiguverð hefur lækkað um 20 prósent Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 20 prósent frá því í haust, að mati Húseigendafélagsins. Þetta á við um þau boð leigusala, sem nú eru í gangi, en leiga hjá þeim, sem gerðu leigusamninga síðastliðið haust upp á ákveðna upphæð á mánuði, hefur almennt ekki lækkað. 12.2.2009 07:07
Byssu beint að Íslendingi í vopnuðu ráni í Danmörku Jóhannes Ottósson, 33 ára gamall gullsmiður, varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífreynslu í dag að vopnað rán var framið á vinnustað hans í Kaupmannahöfn. Skammbyssu var beint að andliti hans. Tveir menn dulbúnir sem póstburðarmenn komust inn á skrifstofu fyrirtækisins og höfðu í hótunum við starfsmenn þess. 11.2.2009 20:45
Forsetinn fær að svara fyrir sig Forsetaembættinu gefst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við utanríkismálanefnd í tengslum við beiðni Björns Bjarnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, frá því í morgun. Á fundi nefndarinnar óskaði Björn eftir skýrslu frá utanríkisráðuneytinu um áhrif blaðaummæla vegna viðtals við Ólaf Ragnar Grímsson í þýskri útgáfu Financial Times sem birt var í gær. 11.2.2009 22:45
Hótað í kjölfar umfjöllunar um vændi Ungu konunni, sem sagði frá samskiptum sínum við Catalinu Ncoco, bárust hótanir eftir að viðtal við hana var birt á Stöð 2 í gær. 11.2.2009 19:45
Samþykkti 24 styrki til velferðarmála Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag 24 nýja styrki til verkefna á sviði velferðarmála. Nýir styrkir og þjónustusamningar Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar nema nú 33 milljónum króna, en samtals er varið 180 milljónum króna til verkefna og þjónustusamninga á árinu. 11.2.2009 21:34
Forstjórastaða FME auglýst til umsóknar Starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins hefur verið auglýst laust til umsóknar. Fram kemur í auglýsing að mikilvægt sé að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 25. febrúar. 11.2.2009 21:29
Efnahagsmál rædd á Alþingi Á morgun fer fram umræða utan dagskrár um efnahagsmál og Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, málshefjandi. Til andsvara verður Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Umræðan hefst klukkan 15 en þingfundur hefst klukkan 10:30 á óundirbúnum fyrirspurnartíma. Fjórtán mál eru á dagskrá. 11.2.2009 21:03
Næsti pottur í Víkingalottóinu hálfur milljarður Enginn var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu í kvöld og verður fyrsti vinningur því tvöfaldur að viku liðinni. Hann gæti orðið 500 milljónir ef ofurtalan verður ein af aðaltölunum. 11.2.2009 19:41
Sigurður Ingi vill á þing Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir, hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu á lista Framsóknarflokksins Í Suðurkjördæmi. 11.2.2009 19:32
Íkveikjan á Litla-Hrauni litin alvarlegum augum Fangi á Litla-Hrauni reyndi að slökkva eld sem hann hafði sjálfur kveikt í klefa sínum í gærkvöldi með djús og gítar. Brotið er litið alvarlegum augum og var fanginn settur í einangrun. Agabrot í fangelsinu á Litla-Hrauni voru hátt á annað hundrað á síðasta ári. 11.2.2009 18:52
Seðlabankafrumvarp hugsanlega að lögum innan tveggja vikna Stjórnarliðar telja líklegt að frumvarp ríkisstjórnarinnar um Seðlabankann verði afgreitt úr nefnd í næstu viku og geti jafnvel orðið að lögum innan hálfs mánaðar. Allir flokkar á Alþingi standa að þremur aðskildum frumvörpum um breytingar á yfirstjórn bankans, nema Sjálfstæðisflokkurinn sem ekki hefur lagt fram neinar formlegar tillögur í málinu. 11.2.2009 18:45
,,Veljum íslenskt" ekki alltaf íslenskt Sala á ákveðnum íslenskum vörum hefur tekið kipp eftir að Samtök iðnaðarins hófu herferð sína Veljum íslenskt eftir bankahrunið. Fyrirtæki munu í fullum rétti að selja erlenda framleiðslu með íslenskum fánaborðum og þekktum Íslendingum og gera það sum purkunarlaust, án þess að víkja einu orði að erlendum uppruna vörunnar. 11.2.2009 18:41
Lífeyrissjóðirnir neituðu Landsbankanum Landsbankinn reyndi skömmu fyrir hrun að fá lífeyrissjóðina til að gera upp gjaldmiðlaskiptasamninga við bankann upp á 600 milljónir evra. Fjárhæðin hefði dugað bankanum til að verða við kröfu breska fjármálaeftirlitsins til að taka Icesave í flýtimeðferð. 11.2.2009 18:29
Grétar Mar nýr þingflokksformaður Á fundi þingflokks Frjálslynda flokksins sem haldinn var í dag var Grétar Mar Jónsson, alþingismaður Suðurkjördæmis, kosinn formaður þingflokksins í stað Jóns Magnússonar sem sagði sig úr flokknum í fyrradag. Varaformaður var kjörinn Guðjón Arnar Kristjánsson. 11.2.2009 17:49
Vara við brostnum forsendum fjárhagsáætlunar Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar í velferðarráði vöruðu við brostnum forsendum fjárhagsáætlunar borgarinnar í bókun á fundi ráðsins í dag. 11.2.2009 17:40
Íslendingar leiða alþjóðlega rannsókn á sviði gervigreindar Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur verið úthlutað tveggja milljóna Evra styrk úr sjöundu rammaáætlun Evrópusambandsins að andvirði um 300 milljónir íslenskra króna til gervigreindarrannsókna. Fram kemur í tilkynningu að styrkurinn er sá langhæsti sem veittur hefur verið íslenskum aðilum til rannsókna í tölvunarfræðum og jafnframt hæsti rannsóknarstyrkur sem veittur hefur verið vísindamönnum við HR. 11.2.2009 17:24
Lúðrarnir komnir á skilorð Sturla Jónsson vörubílstjóri og mótmælandi var boðaður í skýrslutöku eftir að hann beitti gaslúðrum fyrir utan Seðlabankann í morgun. Var honum tjáð að þeytingin væri brot á lögreglusamþykkt sem snéri að látum á almannafæri. Hann segir að lúðrarnir séu nú komnir á skilorð, sjálfur ætlar hann þó að halda áfram mótmælum. 11.2.2009 17:11
Auðveldara að verða forseti Íslands en formaður VR Lúðvík Lúðvíksson sem ætlar að bjóða sig fram til formanns VR segir að nú sé búið að setja saman lista sem skilað verði inn í fyrramálið. Hann segir núverandi formann og trúnaðarráð eiga von á alvöru mótframboði en einfaldara sé að bjóða sig fram til forseta Íslands en til formanns í VR. Hann gagnrýnir hversu knappur tími sé til kosninga. Þær fara fram 23.febrúar. 11.2.2009 16:55
Eldri borgarar í efra Breiðholtið Reykjavíkurborg og Félag eldri borgara, með Margréti Margeirsdóttur, í forsvari, undirrituðu viljayfirlýsingu um kaup borgarinnar á 12 þjónustuíbúðum í væntanlegu fjölbýlishúsi í efra Breiðholti af Félagi eldi borgara í Reykjavík. 11.2.2009 16:47
Steingrímur: Felst á afsagnir Vals og Magnúsar Steingrímur J. Sigfússon segir að boðað verði til hluthafafundar hjá Nýja Glitni og Nýja Kaupþingi svo fljótt sem auðið er til þess að fylla þau skörð sem stjórnarformennirnir Valur Valsson og Magnús Gunnarsson skilja eftir sig með afsögnum sínum. Þeir tilkynntu Steingrími í dag að þeir stæðu við afsagnir sínar þrátt fyrir að ráðherrann hefði beðið þá um að sitja fram að aðlfundum bankanna sem ráðgert er að halda í apríl. 11.2.2009 16:34
Meirihluti þingmanna samþykkur hvalveiðum áfram Alls hafa 36 þingmenn skrifað undir þingsályktunartillögu um að veiðum á hrefnu og langreyði hér við land skuli haldið áfram. 11.2.2009 16:11
Átta stiga frost í Bláfjöllum Opið er í Bláfjöllum og fjöldi manns á svæðinu en frostið er nokkuð, eða um átta gráður. 11.2.2009 16:11
Ástralar fengu samúðarkveðju forseta Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í dag ríkisstjóra Ástralíu Quentin Bryce og stjórnvöldum landsins samúðarkveðjur vegna skógareldanna sem geisað hafa þar en fjöldi Ástrala hefur látið lífið og þúsundir misst heimili sín. 11.2.2009 15:56
Verða ekki við beiðni fjármálaráðherra Valur Valsson og Magnús Gunnarsson stjórnarformenn Nýja Glitnis og Nýja Kaupþings ætla ekki að verða við beiðni fjármálaráðherra og sitja áfram. Þetta kemur fram í bréfi sem þeir sendu fjármálaráðherra í dag. Þeir þakka traust Steingríms en telja mikilvægt að eyða allri óvissu um stjórn bankanna sem fyrst. Í ljósi þess telja þeir rétt að víkja til hliðar og skapa með því svigrúm til mannabreytinga. 11.2.2009 15:41
Ökufantur bar við minnisleysi þegar hann ók á par Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, en fresta skal fullnustu refsingar í tvö ár frá niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Maðurinn var dæmdur fyrir að aka undir áhrifum þunglyndis- og svefnlyfja auk áfengis, yfir á öfugan vegarhelming við Straum við Bröndukvísl, þar sem hann ók beint framan á bifreið pars sem þar átti leið hjá. 11.2.2009 15:23
Bergþór sækist eftir öðru sæti í Norðvestur-kjördæmi Bergþór Ólason, fyrrverandi aðstoðarmaður samgönguráðherra, hefur ákveðið að bjóða sig fram til 2. sætis í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Bergþór tilkynnti þessa ákvörðun sína á kjördæmisráðsþingi Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið var í Borgarnesi sl. laugardag. 11.2.2009 15:15
Gróflega snúið út úr ummælum forsetans Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að snúið hafi verið út úr orðum forseta Íslands í þýskum fjölmiðlum. Forsetinn hafi ekki farið út fyrir valdsvið sitt enda hafi hann skýrt það mál sitt mjög vel. Rætt var um ummæli forseta á Alþingi í dag en Björgvin sagði forsetann hafa staðið sig framúrskarandi vel og þvert á móti hafi verið snúið gróflega út úr ummælum hans. 11.2.2009 14:00
Björgvin formaður efnahags- og skattanefndar Við upphaf þingfundar í dag var tilkynnt um hvaða þingmenn hafa tekið við formennsku og varaformennsku í fastanefndum Alþingis. Formennsku í efnahags- og skattanefnd mun Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra gegna en Árni Þór Sigurðsson verður varaformaður. 11.2.2009 13:39
Ólafur Jóhannesson stefnir á toppsætið hjá VG Ólafur Sveinn Jóhannesson, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1.–2. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. 11.2.2009 13:09
Hundaræktandi á Dalsmynni sigrar í meiðyrðamáli Húsfreyjan á hundaræktunarbúinu Dalsmynni, Ásta Sigurðardóttir, sigraði meiðyrðamál gegn Hrafnhildi Jónu Þórisdóttur, en ummælin höfðu verið skrifuð á bloggsíðu í umsjá Hrafnhildar. Um er að ræða fjögur ummæli af sjö sem voru dæmd ómerk. 11.2.2009 13:09
Uppgjör fanga leiddi til íkveikju Aðstandendur fanga á Litla Hrauni reyndu að fá upplýsingar um fanga fram til þrjú um nóttina að sögn Páls Winkels, fangelsismálastjóra, en hann gagnrýnir fréttaflutning dv.is harðlega. Þar var sagt frá því að kveikt hefði verið eldur í fjórum fangaklefum og að uppreisnástand ríkti á Litla Hrauni. Þetta segir Páll alrangt, einn fangi hafi kveikt í ruslafötu og eldurinn slökktur stuttu síðar. Ástæðan var uppgjör tveggja fanga. 11.2.2009 12:49
Eiríkur hættir - Davíð einn eftir Eiríkur Guðnason einn þriggja bankastjóra Seðlabankans stefnir að því að láta af embætti bankastjóra þann 1.júní næstkomandi. Áður hefur Ingimundur Friðriksson gefið út að hann hyggist láta af embætti. Davíð Oddsson ætlar hinsvegar að sitja áfram. 11.2.2009 12:40
Dæmi um að fólk vilji borga með íbúðum sínum Fasteignasalar þekkja dæmi þess að fólk vilji borga með íbúðum sínum til að losna við skuldirnar. Ekki er þó vitað til þess að slíkir samningar hafi gengið í gegn. 11.2.2009 12:16
Bankastjórarnir bera ábyrgðina á hruninu Bankastjórar og eigendur gömlu bankanna geta ekki vikið sér undan því að þeir, og þeir einir, bera ábyrgð á því hvernig fór fyrir bönkunum, segir Mats Josefsson, sérfræðingur ríkisstjórnarinnar við endurreisn fjármálakerfisins. Hann segir ríkisstjórnina þurfa að koma með ákveðnari hætti að rekstri nýju bankanna og að stjórnendur þeirra þurfi að átta sig á breyttum aðstæðum. 11.2.2009 12:13
Lögreglan leitar að Rolls Royce Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að Rolls Royce bifreið sem stolið var í Hafnarfirði en tilkynnt var um nytjastuldinn í síðasta mánuði. Eigandi bílsins var erlendis í nokkrar vikur en þjófnaðurinn uppgötvaðist þegar hann kom til baka. 11.2.2009 11:31
Endurreisnarnefndin kynnir skýrslu sína Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins birti fyrstu skýrslu sína á fundi með blaðamönnum sem haldin var í mogun í Þjóðmenningarhúsinu. Mats Josefsson, sænskur bankasérfræðingur sem leiðir nefndina, kynnti vinnu hennar, áherslur og þau verkefni sem fram undan eru. Jafnframt var lögð fram starfsáætlun nefndarinnar og grein gerð fyrir þeim þáttum sem hún vinnur að. 11.2.2009 10:55
Of mikil læti í Sturlu vörubílstjóra Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir að einum mótmælanda við Seðlabankann hafi verið kynnt lögreglusamþykkt reykjavíkurborgar vegna hávaða sem hann myndaði með mikilli lúðraþeytingu. Um er að ræða Sturlu Jónsson vörubílstjóra sem mótmælt hefur með mjög stórum gaslúðri síðustu daga. Um tuttugu manns mótmæla við Seðlabankann að sögn yfirlögregluþjóns. 11.2.2009 10:27
Ragna ræður Ásu sem aðstoðarmann Ása Ólafsdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Rögnu Árnadóttur dóms- og kirkjumálaráðherra. 11.2.2009 10:19