Fleiri fréttir

Þing kemur saman

Alþingi kemur saman eftir hádegi í fyrsta skipti eftir að ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var mynduð. Umtalverðar breytingar verða gerðar á nefndarskipan og nýir formenn fastanefnda kjörnir. Þá er ráðgert að þingmenn kjósi nýjan forseta í stað Sturlu Böðvarsson. Þingfundur hefst klukkan hálf tvö.

Sterkefnaðir undir stýri

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvo ökumenn undir morgun, grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var líka ökuréttindalaus, eftir að hafa verið sviptur þeim, og á farþega í öðrum bílnum fundust þrjú grömm af amfetamíni og eitt gramm af hassi.

Lögregla upprætti umfangsmikla kannabisræktun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti stórfellda kannabisræktun í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði í gærkvöldi. Lögreglumenn réðust þar inn og fundu um það bil hundrað kannabisplöntur sem allar voru komnar á lokastig ræktunar.

Afsagnir voru forsenda trausts

„Ekki er deilt um það í þinginu að þessar afsagnir voru eins og mál voru komin algerlega nauðsynleg forsenda þess að skapa mætti traust og frið um bankann á nýjan leik.“

Davíð hefur ekki gefið Jóhönnu svar

Frumvarp um breytingar á Seðlabankanum verður lagt fram á þingi í vikunni. "Að sjálfsögðu styður maður góð mál,“ segir Pétur Blöndal alþingismaður. Forsætisráðherra telur ásættanlegt að semja um tólf mánaða starfslok bankastjóra.

Deilt um hvalveiðar í nýja meirihlutanum

Siv Friðleifsdóttir, formaður þingflokks framsóknarmanna, er ósátt við hugmyndir Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra um að breyta ákvörðun fyrrverandi ráðherra um að heimila hvalveiðar

Eygló vill leiða Framsókn í Suðurkjördæmi

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að sækjast eftir fyrsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum. Þetta tilkynnir hún á heimasíðu sinni í kvöld.

Fresta fundi til að fylgjast með Jóhönnu

Samfylkingarmenn í Reykjavík hyggjast fresta fyrirhuguðum félagsfundi sínum sem átti að fara fram á morgun vegna stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.

Bréfið sem Jóhanna sendi Davíð

„Ljóst er að traust manna á fjármálakerfi Íslendinga hefur beðið gífurlegan hnekki. Á það jafn við um fjármálafyrirtækin sem starfað hafa á markaðnum og opinbera aðila,

Leggja fram tilboð í Árvakur

Hópur sem kallar sig Almenningshlutafélag um Morgunblaðið hyggst gera Nýja Glitni tilboð í Árvakur hf. Samkvæmt áætlun bankans þurfa óskuldbindandi tilboð að berast í síðasta lagi síðdegis á morgun.

Könnunin ágætis vísbending

„Þetta er ágætis vísbending og gott að við erum að bæta við okkur," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, um nýjustu skoðanakönnun fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Könnunin sýndi að Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest

Kolbrún segist ráða - annað segir Jóhanna

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra segir að hún muni ráða, en ekki iðnaðarráðherra, þegar kemur að því að túlka ákvæði stjórnarsáttmálans um engin ný áform um álver. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir hins vegar að skilningur Össurar sé réttur.

Hvítá brúuð vestan Flúða

Ný stórbrú yfir Hvítá í uppsveitum Árnessýslu er meðal verkefna sem Vegagerðin býður út á næstu dögum til að skapa aukna atvinnu. Sérstök áhersla verður lögð á mannaflsfreka brúarsmíði sem og smærri verk sem henta minni verktökum.

Ekki strikað yfir skuldirnar

Ekki verður hægt að strika yfir hluta af skuldum almennings, segir nýskipaður viðskiptaráðherra. Slíkt myndi setja allt fjármálakerfið á annan endann.

Nýgræðingarnir sitja lengst frá forsætisráðherranum

Ríkisstjórnin hyggst koma fimmtán til tuttugu frumvörpum í gegnum Alþingi á næstu vikum til að verja heimilin og atvinnulífið frekari áföllum. Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur var í morgun.

Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn fengi flest atkvæði ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt niðurstöðu könnunar Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Tæp fjörutíu prósent kjósenda hafa þó ekki gert upp hug sinn. Könnun var gerð í gær en hringt var í 800 einstaklinga á landinu öllu.

Ný menntastefna borgarinnar verður mótuð

Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að skipa vinnuhóp sem á að móta nýja menntastefnu á grundvelli nýrra laga um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda.

Ræður sér óflokksbundinn aðstoðarmann

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur ráðið Sigtrygg Magnason rithöfund sem aðstoðarmann sinn. Sigtryggur hefur einnig starfað við blaðamennsku og markaðsmál.

Ný könnun: Mikið flökt á fylgi flokkanna

Í skoðanakönnun sem framkvæmd var fyrir fréttastofu kemur í ljós að tæp 40 prósent aðspurðra eru óákveðnir þegar þeir eru spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosið væri í dag. Mikið flökt virðist vera á fylgi flokkanna.

Flest allir hestarnir tryggðir

„Flest allir hestarnir voru tryggðir held ég," segir Rúnar Þór Guðbrandsson, deildarstjóri einstaklingsviðskipta hjá VÍS en hann var á vettvangi þegar um tíu hestar fóru ofan í Reykjavíkurtjörn eftir að ís gaf sig.

Fjölnir Þorgeirs bjargaði gæðingum

„Ísinn hrundi allt í einu niður," sagði Fjölnir Þorgeirssonar þegar blaðamaður náði tali af honum niður við Reykjavíkurtjörn eftir að sjö hestar fóru ofan í tjörnina.

Jón nýr þingflokksformaður VG

Jón Bjarnason var kjörinn nýr formaður þingflokks Vinstri grænna á þingflokksfundi fyrr í dag. Hann tekur við af Ögmundi Jónassyni, heilbrigðisráðherra, sem sem gegnt hefur embættinu allt frá því að fulltrúar flokksins tóku fyrst sæti á Alþingi árið 1999.

Myntsamstarf ólíkleg framtíðarlausn

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, telur myntsamstarf við Norðmenn ólíklega framtíðarlausn fyrir Íslendinga. Tveir norskir ráðherrar eru jákvæðir fyrir myntsamstarfi þjóðanna.

Gæðingar á þunnum ís

Betur fór en á horfðist þegar ísinn á Tjörninni í Reykjavík brast undan gæðingum sem þar voru komnir til þess að taka þá í hestasýningu. Fram fór kynning á Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum og stóð til að láta gæðingana tölta um ísilagða Tjörnina.

Ný stjórn FME skipuð í vikunni

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segist eiga von á því að ný stjórn Fjármálaeftirlitsins verði skipuð í vikunni. Á blaðamannafundi sem Gylfi hélt í ráðuneytinu kom fram að þótt stofnunin sé starfhæf eins og er sé ekki í lagi að hafa núverandi ástand til langframa. Hann segist ekki boða breytingar á lögum um stofnunina.

Baðst afsökunar á líkamsárás

Tvítugur piltur var handtekinn síðastliðna helgi en hann hafði lent í útistöðum við fólk á skemmtistað og síðan í átökum við dyraverði á staðnum. Pilturinn fékk að gista geymslur lögreglunnar þá nóttina.

Nokkur fíkniefnamál um helgina

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu segir að tæplega fertugur karl hafi verið stöðvaður í Kópavogi á föstudagskvöld en sá var með fíkniefni í fórum sínum. Fíkniefni fundust við húsleit í miðborginni um kvöldmatarleytið á sunnudag og á sama stað lagði lögreglan hald á peninga sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu.

Árni Páll vill varaformannsembættið

Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að gefa kost á sér í kjöri til varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður í næsta mánuði.

Vitni að ákeyrslu: Hummerinn hægði aldrei á sér

„Þetta var bara hræðilegt, ótrúlega ljótt," segir vitni sem sá þegar Hummer-bifreið ók á mann á þrítugsaldri fyrir tveimur helgum. Atvikið átti sér stað á Laugaveginum um klukkan hálf fjögur um nóttina.Ökumaður bílsins flúði af vettvangi eftir að hafa ekið manninn niður.

Kom til Seyðisfjarðar í fyrsta sinn á árinu

Ferjan Norræna kom til Seyðisfjarðar í morgun í fyrstu ferð sína á þessu ári. Sárafáir farþegar voru með henni en talsvert af vörum. Ferjan siglir samkvæmt vetraráætlun til Seyðisfjarðar á þriðjudögum og fer þaðan aftur á miðvikudagskvöldum til Færeyja og Esbjerg í Danmörku. Ekki er siglt til Noregs eða Skotlands. Sumaráætlun hefst 13. júní.

Engin frekari leit gerð á Breiðafirði

Ekkert verður leiltað frekar á Breiðafirði í dag nema að nýjar upplýsingar gefi tilefni til. Víðtæk leit var gerð á filrðinum í nótt, eftir að að þar sáust tvö neyðarblys á lofti laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi.

Framsókn styður líklega Seðlabankafrumvarp

Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telur líklegt að framsóknarmenn muni styðja frumvarp ríkisstjórnarinnar um skipulagsbreytingar í Seðlabankanum miðað við það sem komið hefur fram í fjölmiðlum um innihald þess. Hún bendir á að framsóknarmenn hafi áður lagt fram svipað frumvarp. Siv segir að ekki sé um pólitískar ofsóknir að ræða.

Ákvörðun Einars um hvalveiðar hugsanlega breytt

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði á fundi með blaðamönnum að ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar um hvalveiðar í stórum stíl verði hugsanlega snúið við. Steingrímur sagði að málið væri kominn í tiltekinn farveg. Umhverfisráðuneytið og Ferðamálastofa koma að þeirri vinnu.

Fjórtán stútar teknir um helgina

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu frá lögreglu segir að einn ökumaður hafi verið stöðvaður á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.

Banaslys af völdum svefns við akstur

Umferðarstofa vill ítreka þau skilaboð sem fram komu í auglýsingaherferðinni 15 sem sýnd var í fyrra, en nafn herferðarinnar vísar til þess að ekki þarf nema 15 mínútna svefn til að koma í veg fyrir slys af völdum svefns og þreytu. Talið er að svefn og þreyta sé fjórða algengasta örsök alvarlegra umferðarslysa á Íslandi.

Heimdallur ósáttur með ríkisstjórn Jóhönnu

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, lýsir yfir vonbrigðum með nýja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Félagið telur ríkisstjórnina ekki vera þjóðinni til heilla.

Nýr ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytið

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir verið sett ráðuneytisstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu eftir að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, setti Ragnhildi Arnljótsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu til 30. apríl næstkomandi.

Sjá næstu 50 fréttir