Fleiri fréttir

Sjálfstæðisflokkur var oftast í fréttum

Sjálfstæðisflokkurinn var oftast tilgreindur í fréttum á síðasta ári, eða 12.799 sinnum. Þetta kemur fram í niðurstöðum Creditinfo - Fjölmiðlavaktinni á greiningu á 118.036 fréttum síðasta árs. Samfylking kemur þar á eftir og var nefnd nefnd 9.740 sinnum í vöktuðum fréttatímum eða í fréttagreinum dagblaðanna. Reykjavíkurborg var í þriðja sæti og tilgreind 7.242 sinnum.

Hindrunum rutt úr vegi

„Þetta er ágætis árangur á 80 dögum,“ segir Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, um stefnu nýrrar ríkisstjórnar um Evrópusambandið. „Við höfum rutt úr vegi erfiðri hindrun í átt að fullri aðild,“ segir hann og vísar til sáttar um stjórnarskrárbreytingar sem þarf að fara í áður en aðild að Evrópusambandinu væri samþykkt.

Segir stöðuna gjörbreytta

„Þetta er ekkert annað en uppgjöf hjá mbl.is. Þessi gjaldtaka á eftir að lenda á neytendum og fólkið mun fljótlega uppgötva að í raun er fátt að sækja inn á fasteignavef mbl.is eftir þessar breytingar,“ segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.

Ódýrari tjöruhreinsir og rúðupiss

Það er sama hvað maður reynir, bíllinn verður drulluskítugur eins og skot í þessari tíð. Tjöruhreinsirinn er ekki gefinn, búast má við að þurfa að borga yfir þúsundkall fyrir lítrann. Bílaspekingurinn Leó M. Jónsson (leoemm.com) segir að heimalagaðan

Nýr ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytið

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sett Ragnhildi Arnljótsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu til 30. apríl nk. Bolli Þór Bollason hefur fengið leyfi frá störfum ráðuneytisstjóra á sama tímabili og mun sinna sérverkefnum.

Þrjár milljónir hafa safnast vegna Gaza

Rúmlega þrjár milljónir hafa safnast í Neyðarsöfnun fyrir Gaza, sérstöku átaki sem félagið Ísland-Palestína hefur staðið fyrir, allt frá fyrstu dögum árásarinnar á Gaza.

Nýr aðstoðarrektor í HÍ

Miðlægri stjórnsýslu Háskóla Íslands var skipt í tvo hluta í gær. Annars vegar í málefni vísinda og kennslu og hins vegar í málefni fjármála og reksturs.

Ákvörðun um hvalveiðar standi

Oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og verðandi forseti Alþingis, Guðbjartur Hannesson, vill að ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um að leyfa hvalveiðar verði látin standa.

Afturkallar ákvörðun um innritunargjöld á sjúkrahús

Ögmundur Jónasson, nýskipaður heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að afturkalla ákvörðun fyrrverandi ráðherra um innritunargjöld á sjúkrahús. Þá kemur einnig til greina að falla frá fyrri ákvörðun um endurskipulagningu Sankti Jósefsspítala.

Síbrotamaður dæmdur í 18 mánaða fangelsi

Karlmaður á 28. aldursári var dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir ítrekuð brot, til að mynda tékkafölsun, þjófnað og vörslu fíkniefna. Brotin sem hann var ákærður fyrir voru alls 43 talsins og voru þau öll framin á síðasta ári.

Jóhanna á forsíðu Wikipedia

Forsætisráðherra Íslands, Jóhanna Sigurðardóttir, er á forsíðu rafræna alfræðisafnsins Wikipedia.org. Hún er undir liðnum fréttir á vefnum og trónir þar á toppnum ásamt úrslitum Superbowl keppninnar sem var haldin síðustu nótt.

Útborgun atvinnuleysisbóta gengur hægt

Útborgun atvinnuleysisbóta gengur hægt og hafa fjölmargir haft samband við fréttastofu vegna þessa. Vinnumálastofnun greiðir út atvinnuleysistryggingar í dag til um 9500 einstaklinga fyrir tímabilið 20. desember til 19. janúar.

Atvinnulausum heldur áfram að fjölga

Atvinnulausum heldur áfram að fjölga á nýju ári og á vef Vinnumálastofnunnar eru nú 13.280 skráðir atvinnulausir. Í lok síðasta árs voru 8.982 skráðir án atvinnu og hefur þeim því fjölgað um 4300 á rúmum mánuði.

Samtök grasrótarhreyfinga stofnuð

Stofnfundur samtaka grasrótarhreyfinga var haldinn í Iðusölum í Reykjavík í gær en hreyfingin eru samráðsvettvangur grasrótarfélaga á Íslandi sem vinna að lýðræðisumbótum og stjórnkerfisbreytingum og stefna að framboði í næstu alþingiskosningum í öllum kjördæmum. Framhaldsstofnfundur verður haldinn næstkomandi sunnudag 8. febrúar. Að honum loknum verða helstu stefnumál kynnt og nafn hreyfingarinnar.

Aðgerð Geirs heppnaðist vel

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, gekkst í dag undir speglunaraðgerð á Háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam þar sem fjarlægt var illkynja mein í vélinda. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að aðgerðin hafi heppnaðist vel að mati lækna.

Eyþór íhugar þingframboð

Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í Árborg, íhugar að gefa kost á sér á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir kosningarnar í apríl. Eyþór segir að hann taki ákvörðun á næstu dögum. „Það hefur ekki verið rætt um ákveðið sæti en í rauninni er allt opið.“ Eyþór bendir þó á að kjördæmisráð flokksins hafi ekki ákveðið hvaða leið verði farin við val á framboðslista flokksins.

Guðlaugur í formannsslag

Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, hyggst bjóða sig fram til formanns í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi flokksins sem fram fer dagana 26. til 29. mars í Laugardalshöll. Guðlaugur mun tilkynna um framboð sitt á morgun, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Kragh krefst frávísunar

Athafnamaðurinn Þorsteinn Kragh, sem er ákærður fyrir stærsta fíkniefnasmygl Íslandssögunnar, hefur krafist frávísunar á dómsmálinu og sakar lögregluna um að hafa þverbrotið á réttindum sínum.

Femínistar fagna ríkisstjórn Jóhönnu

Femínistafélag Íslands fagnar nýrri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem tók við völdum í gær. „Í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins er kona skipuð forsætisráðherra og í fyrsta sinn er jafnt kynjahlutfall ráðherra á Alþingi,“ eins og segir í ályktun félagsins.

Hraðahindrun ölvuðum ökumanni ofviða

Lögreglumenn komu að ökumanni sem átti í erfiðleikum með að komast yfir hraðahindrun á Selfossi nú um helgina. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki hafi komið til þess að lögreglumenn þyrftu að aðstoða manninn því hann reyndist vera undir talsverðum áfengisáhrifum og án ökuréttinda.

Þingmenn VG skipta með sér verkum

Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman í fyrsta sinn eftir stjórnarskiptin klukkan 18 í kvöld og skiptir með sér verkum. Fyrir liggur að kjörinn verður nýr þingflokksformaður. Ögmundur Jónasson sem gegnt hefur embættinu allt frá því að fulltrúar flokksins tóku fyrst sæti á Alþingi árið 1999 lætur af störfum í kjölfar þess að hann var skipaður heilbrigðisráðherra í gær.

Ólafur í Mjólku: Hyggur á framboð í Kraganum

Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, hyggst bjóða sig fram gegn Siv Friðleifsdóttur í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. „Ég hef ákveðið að taka slaginn,“ segir Ólafur aðspurður um framboð.

Harma breytingar á heilsugæslu

Stjórn Fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að fækka stöðugildum hjúkrunarfræðinga um 12, sem og að gjörbylta starfsemi Miðstöðvar heilsuverndar barna og Miðstöðvar mæðraverndar sem báðar verða lagðar niður.

Össur kominn með lyklavöld í utanríkisráðuneytinu

Össur Skarphéðinsson tók við embætti utanríkisráðherra í gær af svilkonu sinni Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar. Formleg lyklavöld fékk hann í morgun þegar Ingibjörg afhenti honum lykla af ráðuneytinu.

Kaldrifjaður forstöðumaður skattasviðs

Fyrrverandi ríkisskattstjóri, Indriði Þorláksson, telur það heldur kaldrifjað að fyrrum forstöðumaður skattasviðs Landsbankans, Kristján Gunnar Valdimarsson, hafi farið með umsjón fjögurra eignarhaldsfélaga sem öll eru skrásett á karabísku eyjunni Tortola.

Þing kemur saman á morgun

Samkomulag nýju ríkisstjórnarflokkanna felur meðal annars í sér að Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, verði forseti Alþingis. Guðbjartur telur líklegt að þing komi saman á morgun í fyrsta skipti eftir stjórnarskiptin. Á þeim tímamótum lætur Sturla Böðvarsson af embætti forseta en gera má ráð fyrir umtalsverðum breytingum á nefndarskipan og ljóst er að nýir nefndarmenn verða kjörnir.

Ásdís Halla íhugar forystuframboð í Reykjavík

Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrum bæjarstjóri í Garðabæ, íhugar framboð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi þingkosningar. Samkvæmt heimildum Vísis stefnir hún á að leiða lista í öðru Reykjavíkurkjördæmanna.

Missti stjórn á bíl og hafnaði á grindverki

Ökumaður slapp ómeiddur þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Hringbrautinni í Reykjavík um tvöleytið í nótt og lenti á grindverki á milli akbrautanna, rétt austan við Umferðarmiðstöðina.

Eldur í vörubrettastæðu og rusli

Eldur var kveiktur í vörubrettastæðu á athafnasvæði Bykó í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi og náði hann að læsa sig í vörugám, þannig að eldur kviknaði í innihaldi hans. Slökkviliðinu tókst að hindra að eldurinn breiddist í nálægar byggingar, en töluverðan tíma tók að slökkva í innihaldi gámsins og varð að taka allt út úr honum til að slökkva örugglega í glæðum.

Brenndist á fæti í hver

Maður brenndist á fæti þegar jörðin gaf sig skyndilega undan honum þar sem hann var á göngu skammt ofan við Gufudal við Hveragerði í gærkvöldi. Annar fótur hans sökk upp að hné en mikill jarðhiti var undir yfirborðinu.

Hátt í tíu handteknir vegna hraðbankaþjófnaðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur frá því í gærkvöldi handtekið hátt í tíu manns, grunaða um að hafa tekið þátt í að að stela heilum 500 kílóa hraðbanka úr anddyri verslunarmiðstöðvarinnar Sunnumarkar í Hveragerði í fyrrinótt.

Ólýðræðisleg skipun ráðherra

"Þarna er verið að styrkja sérfræðiþekkingu innan ríkisstjórnarinnar, en þessar skipanir eru ekki mjög lýðræðislegar. Þessir nýju ráðherrar eru ekki kosnir til þings og hafa því ekki lýðræðislegt umboð þjóðarinnar. Maður veltir því fyrir sér hvort stjórnarflokkarnir búi ekki yfir nógu öflugu fólki á þessum sviðum til að taka þessi ráðherraembætti að sér,“ segir Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor um skipun utanþingsráðherra í nýrri ríkisstjórn sem kynnt var í gær.

Stjórnendur kallaðir til vitnis

Lögmenn Hafnarfjarðarbæjar ætla að kalla hluta stjórnenda Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Bjarna Ármannsson, fyrrverandi stjórnarformann Reykjavik Energy Invest (REI), sem vitni í dómsmáli vegna sölu á hlut í Hitaveitu Suðurnesja (HS).

Brýnt að hraða uppgjöri banka

Nýr viðskiptaráðherra í stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, Gylfi Magnússon, segir sín fyrstu verk í starfi óhjákvæmilega verða tengd fjármálamarkaðinum enda vandamálin á þeim vettvangi fjölmörg. „Fyrst og fremst þarf að manna Fjármálaeftirlitið,“ segir Gylfi. „Þá þarf að hraða vinnu við að gera upp gömlu bankana og skilja milli þeirra og þeirra nýju, svo nýju bankarnir verði starfhæfir.“ Að auki þurfi að leysa úr vandamálum ýmissa smærri fjármálastofnana, sem séu í nokkru uppnámi. - hhs

Ánægður með lækkun vaxta

„Það sem ég sakna helst í verkefnaskránni er ákvörðun um að hverfa frá ríkisbankafyrirkomulaginu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins um verkefnalista nýrrar ríkisstjórnar. „Það þarf að virkja erlenda kröfuhafa til að koma að eignarhaldi bankanna. Ég hefði viljað sjá nýja ríkisstjórn gefa merki um að það verði gert og að ekki verði byggt hér upp nýtt ríkisbankakerfi.“

Ánægður með nýjar áherslur

„Ég fagna því sérstaklega að það standi til að gera veigamiklar breytingar á gjaldþrotalöggjöfinni og varðandi greiðsluaðlögun heimila,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Áhersluatriði nýrrar stjórnar fara vel saman við það sem við hjá Alþýðusambandinu höfum lagt áherslu á á undanförnum vikum. En ríkisstjórnin hefur skamman tíma til stefnu. Því ríður á að fulltrúar ríkisstjórnar og aðilar vinnumarkaðar snúi bökum saman og finni leiðir út úr því skelfilega ástandi sem ríkir í atvinnumálum landsmanna.“ - hhs

Fólk í kröggum fær sparnað greiddan út

Nýmynduð ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hyggst setja lög um séreignarsparnað svo sjóðsfélagar sem komnir eru í fjárhagskröggur geti fengið fyrirgreiðslu úr honum tímabundið til þess að borga skuldir sínar.

GSM-endurvinnsla í Grafarvogi

Gylfi Gylfason í Símabæ í Hverafold hefur sett á fót GSM-endurvinnslu í búðinni. Endurvinnslan hefur tekið mikinn kipp í kreppunni. „Það er bara svo mikil taktbreyting í þjóðfélaginu núna. Farsímasnobbið er að deyja út,“ segir hann.

Þykir vænt um Geir

Jóhanna Sigurðardóttir sagði að sér þætti vænt um Geir H. Haarde fráfarandi forsætisráðherra þegar hún tók við lyklum af forsætisráðuneytinu úr höndum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í kvöld. Hún sagði Geir gæddann mörgum mannkostum og bað Þorgerði að skila kveðju til formannsins.

Segir Jóhönnu ekki fara vel af stað

Björn Bjarnason fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra segir Jóhönnu Sigurðardóttur ekki hafa farið vel af stað á blaðamannafundi þar sem ríkisstjórnin var kynnt. Þar segir Björn að hún hafi sakað sig um að vera sveifaseinn sem ráðherra og vísaði þar til frumvarps um skuldaaðlögun.

Sjá næstu 50 fréttir