Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fámennt við þinghúsið í gær Fámennur hópur mótmælenda kom saman við Alþingishúsið um kvöldmatarleytið í gær. Fólkið barði trommur og potta. Allt var með friði og spekt. Margir klæddust appelsínugulum flíkum til marks um að mótmælin væru friðsamleg. 24.1.2009 10:06
Hálka víða um land Vegagerðin varar ökumenn við hálku á þjóðvegum víða um land, einkum á fáfarnari leiðum og á fjallvegum. Þannig er flughált í kringum Þingvallavatn og á Bláfjalla- og Krýsuvíkurleið. Sömuleiðis er flughált á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og á Vatnsskarði eystra. 24.1.2009 10:03
Opið í Hlíðarfjalli og Siglufirði Skíðasvæðið á Siglufirði verðu opið í dag á milli klukkan 12 og 17. Að sögn Egils Rögnvaldssonar, umsjónarmanns svæðisins, er skíðafæri gott og nægur snjór. ,,Við höfum verið að fá 150 til 200 manns á góðum dögum. Aðkomufólk er mjög duglegt að heimsækja okkur sem er mjög ánægjulegt," segir Egill. 24.1.2009 09:53
Rólegt hjá lögreglu víðs vegar um landið Nóttin var víðast hvar tíðindalítil, að sögn lögreglu. Talsverður erill var þó hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og voru þrír teknir grunaðir um ölvunarakstur og aðrir þrír grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá hafði lögreglan í Borgarnesi afskipti af tveimur ökumönnum vegna fíkniefnaaksturs. 24.1.2009 09:38
Stakk af eftir að hafa ekið á vegfaranda Lögreglan leitar manns sem ók á ungan mann á mótum Laugavegar og Smiðjustígs um klukkan hálf fjögur í nótt. Maðurinn var fluttur með höfuðáverka á slysadeild og sögn lögreglu er hann lífshættulega slasaður. 24.1.2009 09:10
Fáir styðja núverandi stjórn Núverandi ríkisstjórn er mjög óvinsæl, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Bæði er það að ríkisstjórnarflokkarnir tveir, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking, eru að tapa fylgi hvort sem litið er til síðustu könnunar eða síðustu alþingiskosninga. Hins vegar segjast einungis 20,3 prósent styðja núverandi ríkisstjórn, en stuðningur við ríkisstjórnina var 71,9 prósent í febrúar fyrir tæpu ári. 24.1.2009 08:00
AGS styður stefnu en ekki flokka „Mörg ríki hafa farið í gegnum kosningar og sum hafa jafnvel skipt um ríkisstjórn á meðan unnið er eftir áætlun Sjóðsins, án þess að áætlunin truflist mikið,“ segir Mark Flanagan, yfirmaður áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi, í tölvupósti til Fréttablaðsins, aðspurður hvort kosningar eða breytt ríkisstjórn myndi hafa áhrif á samstarfið við sjóðinn. 24.1.2009 07:30
Samstarfið í óvissu Tillaga Sjálfstæðisflokksins um kosningar í maí dugar ekki ein og sér til að halda stjórnarsamstarfinu áfram. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ótímabært að fullyrða nokkuð um samstarfið fyrr en hún hefur hitt Geir H. Haarde. Þau munu ræða saman í dag og fara yfir stöðuna. 24.1.2009 07:00
Pálína kann vel við sig á Gasasvæðinu „Yfirleitt líður mér óskaplega vel inni á Gasa og fólkið þar er gott,“ segir Pálína Ásgeirsdóttir, sendifulltrúi Alþjóða Rauða krossins í Palestínu. Mikil samkennd sé meðal Gasabúa, sem taki erlendum hjálparstarfsmönnum fagnandi. 24.1.2009 06:30
Fjögurra flokka stjórn erfið Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að í ljósi allra aðstæðna hafi frestun landsfundar og tillaga um kosningar 9. maí verið það eina rétta. 24.1.2009 06:00
Stjórnarslit voru tíð „Það var mun eðlilegra áður fyrr að stjórnir sætu ekki út kjörtímabilið. Fyrir 1988 er það eiginlega bara Viðreisnarstjórnin sem svo gerir," segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. 24.1.2009 05:30
Fylgi Samfylkingar hrynur Fylgi Samfylkingar hrynur í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Einungis 19,2 prósent segjast styðja flokkinn og hefur fylgið ekki verið minna í tvö ár. 24.1.2009 05:30
Þrjú hundruð verið tilnefnd Hátt í þrjú hundruð tilnefningar hafa borist vegna samfélagsverðlauna Fréttablaðsins sem veitt verða þann 5. mars. 24.1.2009 05:15
Ný slökkvistöð sé í Seljahverfi Hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er nú til skoðunar ný lóð fyrir slökkvistöð í stað umdeildrar staðsetningar við Stekkjarbakka í Elliðaárdal. Stekkjarbakki er talinn ákjósanlegur fyrir byggingu nýrrar slökkvistöðvar en þessari hugmynd mótmæla þó bæði íbúar í næsta nágrenni og aðrir unnendur útvistarsvæðisins í Elliðaárdal. 24.1.2009 05:00
Spyr um þinghald „Ég tel þörf á því að forystumenn allra flokka verði nú kallaðir saman hið fyrsta,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. „Það þarf að ákveða hvaða mál á að fara með í gegnum þingið áður en því verður slitið og menn hefja sína kosningabaráttu. 24.1.2009 04:00
Kosningar geta lengt kreppuna um tvö ár Eins og öðrum var Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra og varaformanni Sjálfstæðisflokksins, brugðið eftir tíðindin sem Geir H. Haarde færði samflokksmönnum sínum í Valhöll í gær. „Ég er slegin yfir þessum tíðindum og get ekki hugsað um annað að svo stöddu,“ sagði Þorgerður við fréttamenn í Valhöll í gær. 24.1.2009 03:45
Systkini skölluðu og bitu varðstjóra Systkini voru dæmd í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í gær fyrir að hafa ráðist á varðstjóra lögreglu á lögreglustöð. Fólkið skallaði og beit lögregluþjóninn. 24.1.2009 03:30
Mörg mál eru enn ókláruð „Kosningar voru svo sem komnar á sjónarsviðið með einum eða öðrum hætti. Aðalatriðið er að út úr því ferli öllu komi einhver vilji og geta til að taka framtíðar-ákvarðanir, sem skila þjóðinni áfram en ekki aftur á bak,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 24.1.2009 03:30
Ingólfur köttur enn ófundinn „Við höfum ekki enn fundið Ingólf, en höfum fengið fjöldann allan af vísbendingum frá fólki sem telur sig hafa séð hann,“ segir Phillip Krah, eigandi kattarins Ingólfs sem týndist þegar íbúð sem Phillip bjó í ásamt unnustu sinni og vini varð eldi að bráð í byrjun mánaðarins. 24.1.2009 03:00
Þriðjungur að eyða fóstri á ný Þriðjungur þeirra kvenna á Íslandi sem fór í fóstureyðingu á árinu 2007 hafði áður látið eyða fóstri. Þetta kemur fram í tölum frá Landlæknisembættinu. 24.1.2009 03:00
Vilja fresta endurskoðun Formenn aðildarfélaga ASÍ ræddu á fundi í gær að fresta endurskoðun kjarasamninga fram á vor. Vinnuveitendur vilja segja upp samningnum eða fresta hækkunum fram undir lok samningstímabilsins. Ákvörðun verður tekin í febrúar. 24.1.2009 02:45
Þyrla sækir slasaða konu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í kvöld til þess að sækja slasaða konu í sumarbústað austan við Gunnarsholt á Suðurlandi. Samkvæmt upplýsingum mun konan hafa hrasað með þeim afleiðingum að hún brotnaði á öxl og handlegg. Útkallið barst um klukkan hálfníu og er búist við þyrlunni til baka fyrir klukkan hálfellefu. 23.1.2009 21:48
Enn mótmælt á Austurvelli en á friðsamlegum nótum Um 40 manns eru nú saman komin á Austurvelli þar sem trommur og pottar eru barðir taktfast og kallað er eftir því að ríkisstjórnin fari frá. Allt er með friði og spekt og lögregla er hvergi sjáanleg. Skilaboð forystumanna ríkisstjórnar um að boða skuli til kosninga hafa því ekki dregið tennurnar úr mótmælendum sem ætla ekki að láta deigann síga og tromma sem aldrei fyrr við Alþingishúsið. 23.1.2009 19:34
Aldrei fleiri á skólabekk í HÍ Aldrei hafa fleiri nemendur verið við nám í Háskóla Íslands en nú um áramótin settust 1,410 nýir nemendur á skólabekk í hinum ýmsu deildum Háskólans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HÍ þar en 650 nemendur hefja grunnám og 760 hefja framhaldsnám. Allir þessir nemendur hafa staðfest nám sitt með greiðslu skráningargjalds. 23.1.2009 19:52
Raddir fólksins þagna ekki Raddir fólksins, sem staðið hafa fyrir mótmælum undanfarna laugardaga á Austurvelli láta ekki deigan síga þrátt fyrir að forystumenn ríkisstjórnarinnar hafi boðað kosningar í vor. Sextándi mótmælafundur Radda fólksins verður haldinn á Austurvelli laugardaginn 24. janúar næstkomandi og hefst hann klukkan þrjú. 23.1.2009 19:26
Ferill Geirs H. Haarde Geir H. Haarde er tuttugasti og sjötti maðurinn sem gengt hefur embætti forsætisráðherra og hefur setið í embætti í þrjátíu og einn mánuð. 23.1.2009 19:11
Fjórir stjórnmálaforingjar með krabbamein Það má heita furðuleg tilviljun að þeir stjórnmálaforingjar, sem mynduðu og leiddu tvær síðustu ríkisstjórnir, hafa allir greinst með æxli, ýmist góðkynja eða illkynja. 23.1.2009 19:07
Fimmtán tilfelli á ári Um fimmtán tilfelli greinast árlega hérlendis af krabbameini í vélinda en Geir Haarde tilkynnti í dag að hann væri með mein af því tagi. 23.1.2009 18:53
Ingibjörg vill ekkert fullyrða um stjórnarsamstarf fram að kosningum Það þarf að skoða hvort núverandi ríkisstjórn starfar áfram fram á vor, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra í samtali við fjölmiðla í Leifsstöð. 23.1.2009 16:59
Mótmælin auka ekki ferðamannastraum til Íslands Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins bendir á að á síðustu sex árum hafa fjórir formenn stjórnmálaflokka á Íslandi greinst með krabbamein. Það eru þau Halldór Ásgrímsson, Davíð Oddsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde. Þetta kemur fram á bloggsíða Gísla sem segir þetta ótrúlega háa hlutfall segja sína sögu um álagið sem þetta fólk er undir. 23.1.2009 16:29
Þorgerður harmi slegin Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, var harmi sleginn þegar að fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis náði tali af henni eftir fund miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðisflokksins í dag. Hún sagðist vera slegin yfir tíðindum af veikindum Geirs og að hugur hennar væri hjá honum þessa stundinda. Aðspurð sagðist hún ekki útiloka framboð til formanns flokksins á landsfundi í mars. 23.1.2009 16:07
Sjálfstæðisflokkurinn styður aðgerðir lögreglunnar Sameiginlegur fundur miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðisflokks harmar að ofbeldishópar hafi reynt að eyðileggja og sundra friðsömum mótmælaaðgerðum almennings. 23.1.2009 15:46
Tilboð um minnihlutastjórn stendur ennþá Við erum mjög miður okkar yfir tíðindum af Geir og mjög brugðið, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. 23.1.2009 15:41
Tekur á móti Ingibjörgu Sólrúnu Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar er nú á leið til Keflavíkur til þess að taka á móti formanni sínum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem verið hefur í læknismeðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi undanfarið, mun lenda á Leifsstöð klukkan fjögur í dag. 23.1.2009 15:33
Margir gæla við formannsframboð Guðlaugur Þór Þórðarson, Bjarni Benediktsson og Kristján Þór Júlíusson segjast ekki útiloka framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi sem haldinn verður í lok mars. 23.1.2009 15:23
Árni situr áfram Árni Mathiesen fjármálaráðherra hyggst sitja áfram í ráðuneytinu fram að kosningum. Þetta sagði Árni í samtali við fréttamenn Stöðvar 2 og Vísis í Valhöll i dag. 23.1.2009 14:19
Skelfileg staða stjórnarflokkanna Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir aðstæðurnar sem komnar eru upp í íslenskri pólitík skefilegar. Hann skilur niðurstöðu Geirs Haarde og telur brýnt að Alþingi reyni að draga úr aðgerðum sem þrengja að heimilinum í landinu. Hann vill að menn taki afstöðu til aðildar að ESB fyrir kosningar svo ekki þurfi að kjósa aftur til þess að breyta stjórnarskránni. 23.1.2009 14:19
Eldri borgarar í hættu í hálkunni Nokkuð var um að fólk ætti erfitt með að fóta sig í hálkunni í gær, ekki síst eldri borgarar. 23.1.2009 14:09
Kristján Þór kannar stuðning við formannsframboð Kristján Þór Júlíusson fyrrum bæjarstjóri á Akureyri og núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins íhugar að bjóða sig fram til formanns í flokknum á komandi landsfundi. Þetta herma heimildir fréttastofu en stuðningsmenn Kristjáns hafa látið framkvæma símakönnun þar sem afstaða fólks til þingmannsins er könnuð. 23.1.2009 13:43
Formenn flokkanna hittist og fari yfir stöðuna Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins segir tíðindi dagsins setja málin í þjóðfélaginu í enn meiri hnút. Hann vill að forystumenn stjórnmálaflokkanna hittist sem fyrst og fari yfir stöðu mála. 23.1.2009 13:29
Geir situr í embættum sínum fram á vor Geir Haarde forsætisráðherra mun sitja áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins fram að landsfundi og verður jafnframt forsætisráðherra fram á vor að öllu óbreyttu. Þetta sagði Árni Mathiesen fjármálaráðherra í samtali við fréttamenn Stöðvar 2 og Vísis í Valhöll í dag. 23.1.2009 13:24
Geir Haarde með illkynja æxli og hættir formennsku - vill kosningar 9. maí Geir Haarde forsætisráðherra ætlar ekki að sækjast eftir áframhaldandi umboði til þess að 23.1.2009 12:33
Hefði viljað kjósa fyrr Því fyrr sem verður kosið því betra að mati Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinstri grænna. Hann segir Vinstri græn helst hefðu viljað sjá kosningar síðasta laugardag fyrir páska, sem er í byrjun apríl. 23.1.2009 12:31
Hæpið að skila láninu frá AGS Hugmyndir um að skila láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eru mjög hæpnar, að mati Þorvalds Gylfasonar hagfræðiprófessors við Háskóla Íslands. En þessa hugmynd hafa forystumenn Vinstri grænna viðrað að undanförnu. 23.1.2009 12:10
Kemur heim í dag - æxlið góðkynja Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra snýr heim frá Stokkhólmi í dag en hún hefur verið þar í rúma viku í meðferð vegna höfuðmeins. Læknar á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi staðfestu í morgun að um góðkynja æxli sé að ræða en mestur hluti þess fjarlægður í aðgerð í síðustu viku. 23.1.2009 11:59