Fleiri fréttir

Björgunarleiðangur á Öxnadalsheiði í gærkvöldi

Vegagerðin á Akureyri sendi björgunarleiðangur upp á Öxnadalsheiði í gærkvöldi til að aðstoða vegfarendur, sem þar höfðu lent í vandræðum vegna óveðurs. Þar höfðu meðal annars fjórir bílar farið út af en engan í þeim sakaði.

Brotist inn í raftækjaverslun við Skútuvog

Brotist var inn í raftækjaverslun við Skútuvog í Reykjavík í nótt og þaðan meðal annars stolið stóru plasma-sjónvarpstæki. Þjófurinn komst undan og er hann ófundinn. Annars hefur verið lítið um innbrot á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar nætur.

Stjórnin reynir að þrauka

Furðu gætir innan þingliðs Samfylkingar með yfirlýsingu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra um að ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn verði haldið áfram. „Við stöndum saman meðan stætt er,“ sagði Ingibjörg Sólrún í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi.

Ísland fær ræðismann í Tógó

Íslensk ræðismannsskrifstofa verður opnuð í Afríkuríkinu Tógó hinn 11. febrúar. Kjörræðismaður verður Claude Gbedey, fjármálastjóri barnaþorps SPES frá stofnun þess. Embætti kjörræðismanns er ólaunað. Hlutverk hans er að gæta hagsmuna íslenskra ríkisborgara og styðja við stjórnmála-, viðskipta- og menningarsamstarf.

ASÍ gefst upp á ríkisstjórninni

Formenn aðildarfélaga ASÍ taka í dag afstöðu til tillögu atvinnurekenda um að fresta framlengingu kjarasamninga fram í júní. Upphaflega var stefnt að nokkurs konar þjóðarsátt með aðkomu ASÍ, SA, hins opinbera og ríkisstjórnarinnar en nú er lagt til að endurskoðun verði frestað og hefur miðstjórn ASÍ hvatt ríkisstjórnina til að boða til kosninga í vor. „Söguleg tíðindi,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, SGS.

Bauðst að tala en gerði ekki

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, var ekki meðal ræðumanna flokksins í umræðunum um efnahagsmál í gær. Í umræðunum, sem skiptust í fjórar umferðir, talaði Guðjón A. Kristjánsson formaður í tvígang.

Ríkisstjórn á bekk spilltra

„Margir voru hneykslaðir á því að vera settir á lista með al Kaída. En ríkisstjórnin sjálf skipar sér á bekk með spilltum og vanþróuðum þjóðum sem ættu að standa íslensku þjóðinni langt að baki,“ sagði Helga Sigrún Harðardóttir Framsóknarflokki.

Harmar ályktun Reykvíkinga

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, hafnar því að Kópavogsfélagið í heild standi á bak við stuðningsyfirlýsingu við reykvíska flokksbræður sem krefjast stjórnarslita. Þetta kemur fram í bréfi sem Guðríður sendi til nokkurra samfylkingarmanna í Kópavogi.

Skulda þrefaldar árstekjur

Heildarskuldir sjávarútvegs í ríkisbönkunum eru um 427 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar. Mestar eru skuldirnar í Nýja Landsbankanum, eða 1.300 milljónir evra. Það eru tæpir 168 milljarðar króna. Skuldir greinarinnar í Nýja Glitni eru 125 milljarðar króna og í Nýja Kaupþingi 85,5 milljarðar.

ESB grundvöllur endurreisnar

Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði aðkallandi að sækja um aðild að Evrópu­sambandinu. Það væri grundvöllur endurreisnar íslensks atvinnulífs.

Verðlaunin vega þyngra nú

Nú líður að því að tilnefningafrestur til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins renni út. Hildur Petersen, stjórnarformaður Kaffitárs og Pfaff, situr nú í dómnefnd um Samfélagsverðlaunin í þriðja sinn.

Auðmenn í íslenskri þotu um allan heim

„Þetta er draumur fyrir hverja manneskju,“ segir Auður Pálmadóttir, hjá Loftleiðum Icelandic, um lúxusferðir sem farnar eru á þotu Icelandair með bandaríska auðkýfinga.

Vilja ekki segja upp áætlun og láni AGS

Varaformenn Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins taka ekki undir hugmyndir Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna, um að til álita komi að segja upp efnahagsáætluninni við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) og afþakka lánafyrirgreiðslu úr þeirri átt. Hagfræðingur við Háskóla Íslands telur að slík ákvörðun væri hreint glapræði.

Óvenju margir nemendur á Eiðum

Óvenjumargir nemendur stunda nú nám á Eiðum. Það er þó aðeins tímabundið meðan skólabyggingarnar eru til bráðabirgða nýttar fyrir yngri bekki Egilsstaðaskóla. Heimamenn í Eiðaþinghá óttast að eftir þennan vetur muni húsakynnin grotna niður.

Ofbeldismenn verða dregnir til ábyrgðar

Árás mótmælenda á lögreglumenn í nótt er litin gríðarlega alvarlegum augum og verða ofbeldismenn dregnir til ábyrgðar. Lögreglan hefur fengið ýmsar hótanir og eru hún við öllu búin.

Ekkert annað en táragas í stöðunni

Pokar með saur og þvagi var meðal þess sem reynt var að kasta að lögreglumönnum í nótt. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðiðsins segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að beita táragasi en til þess hefur ekki verið gripið í 60 ár.

Breskir fjölmiðlar þakka lopapeysurnar

Breskir fjölmiðlar fara hlýjum orðum um staurblanka Íslendinga sem hafi sent heilan gám af lopapeysum, treflum, leistum og húfum til aldraðra Breta sem hrynji niður af kulda.

Rassskellir sýknaður í Hæstarétti

Hæstiréttur hefur sýknað karlmann fyrir að hafa tvisvar til þrisvar sinnum rassskellt drengi á aldrinum 6 ára og 4 ára á beran rassinn með þeim afleiðingum að þeir hlutu roða á rassinn og fyrir að hafa að því loknu borið olíu á rassinn á þeim.

Samfylkingin frestar fundi vegna óvissu

Samfylkingin hefur ákveðið að fresta framtíðarþingi sem átti að fara fram á laugardaginn vegna stjórnmálaástandsins, að fram kemur í tilkynningu til flokksmanna. Fimm dagar eru síðan að flokkurinn boðaði til blaðamannafundar og greindi frá þinginu og að flokkurinn hygðist efna til opinna funda um land allt á næstu vikum um Evrópumál.

ÖBÍ mótmælir aðför að velferðarkerfinu

Aðalstjórn Öryrkjabandalagsins mótmælir harðlega aðför ríkisstjórnarinnar að lífeyrisþegum og langveikum og fer fram á að gripið verði til réttlátra aðgera í þeim efnahagsvanda sem við er að glíma.

Hvatti Ingibjörgu til að íhuga stjórnarslit með sms-i

Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, hvetur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar, til að íhuga stjórnarslit og skoða með opnum hug tilboð Framsóknarflokksins um að verja

Glundroði í stjórnarsamstarfinu

Alger glundroði er í samstarfi stjórnarflokkanna, sem standa hvorki saman inn á við né út á við, segir stjórnmálafræðiprófessor. Samfylkingin hagnast á því að flýta kosningum, Sjálfstæðisflokkur tapar.

Einnig húsleit hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur

Samkeppniseftirlitið hefur í dag framkvæmt húsleitir á skrifstofum Mjólkurfélags Reykjavíkur og Fóðurblöndunnar Til húsleitanna var aflað úrskurða frá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Guðlaugi afhent bænaskjal 70 prósent Hafnfirðinga

Velunnarar St. Jósefsspítala afhenda Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðisráðherra, tæplega 14 þúsund undirskriftir, eða 70% kosningabærra Hafnfirðinga, í kvöld vegna fyrirhugaðrar lokunar spítalans.

Enn mótmælt fyrir utan Alþingi

Enn er nokkur fjöldi mótmælenda fyrir framan Alþingishúsið á Austurvelli, en þar hafa þeir verið frá því klukkan tíu í morgun. Lögreglan segir að mótmælin séu friðsamleg á þessari stundu. Háreysti frá mótmælunum hafa heyrst inn í þinghúsið.

Samkeppniseftirlitið fór inn í Fóðurblönduna

Samkeppniseftirlitið gerði í morgun húsleit á skrifstofu Fóðurblöndunnar hf. í Reykjavík. Samkvæmt dómsúrskurði frá því í gær sem heimilaði húsleitina telur Samkeppniseftirlitið grun leika á að Fóðurblandan og Mjólkurfélag Reykjavíkur hafi viðhaft viðvarandi verðsamráð í andstöðu við samkeppnislög á fóðurmarkaði undanfarin þrjú ár.

Fordæma ofbeldisseggi

Landssamband lögreglumanna fordæmir framgöngu tiltekinna einstaklinga að beita lögreglumenn alvarlegu ofbeldi en stór hópur lögreglumanna er slasaður eftir atburði undanfarinna daga og einkum eftir nóttina.

Raddir fólksins: Lögreglan er ekki óvinur okkar

Raddir fólksins sem staðið hafa fyrir friðsömum mótmælafundum á Austurvelli undanfarna mánuði segja að sögulegur sigur lýðræðis í landinu sé í augsýn. ,,Lögreglan er ekki óvinur okkar. Beinum sjónum okkar að því að byggja upp nýtt Ísland, nýtt lýðveldi og nýja þjóð,” segir í tilkynningu frá samtökunum.

Geir rangtúlkar skilaboð frá Ingibjörgu Sólrúnu

Geir Haarde forsætisráðherra rangtúlkar skilaboð um framhald ríkisstjórnarsamstarfsins sem hann hefur fengið í samtölum við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra síðastliðna tvo daga. Þetta fullyrti Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarkona Ingibjargar, við nokkra samflokksmenn sína í gær.

Gangstéttarhellan sem rotaði lögreglumanninn var 3,5 kíló

Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir ekki standa til að taka harðar á mótmælendum eftir atburði gærdagsins. Lögreglan meti aðstæður hverju sinni og hingað til hafi hún sýnt þolinmæði. Breyting hafi hinsvegar orðið á því í gær. Lögregluþjónn rotaðist eftir að hafa fengið steinhnullung sem vó 3,5 kg í höfuðið. Áður hafði hann fengið 3 til 4 hnullunga í sig. Stefán segir að tekið verði á grjótkösturunum af fullri hörku.

Mótmælin í nótt - myndskeið

Mótmælum í miðborg Reykjavíkur lauk um þrjúleytið í nótt. Einn lögreglumaður slasaðist alvarlega eftir að múrsteinum var kastað í höfuð hans, en hjálmur sem hann bar á höfðinu, kom í veg fyrir að ekki fór verr. Alls voru sjö lögreglumenn fluttir á slysadeild, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki hafa fengist upplýsingar að svo stöddu um það hvers eðlis meiðsl þeirra eru.

Útboð um olíuleit á Drekasvæðinu hefst

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, mun í hádeginu opna vefsíðu vegna olíuleitar á Drekasvæði sem markar upphaf fyrsta útboðs vegna leyfa til rannsókna og vinnslu kolvetna á landgrunni Íslands.

Geir: Ýmislegt verið gert

Heimilin í landinu þurfa um síðir að greiða niður kostnað vegna halla ríkissjóðs og tvær leiðir eru til þess, sagði Geir Haarde forsætisráðherra á Alþingi í morgun. Annars vegar verður hæt að ganga á eign ríkisins hjá Seðlabankanum sem gæti leitt til aukinnar verðbólgu. Hin leiðin er útgáfa ríkisskuldabréfa sem myndi leiða til hækkun vaxta síðar. Geir frábað sér umræðu um það að stjórnvöld hefðu ekki gert neitt til að bregðast við fjármálakreppunni sem ríkir á landinu. Hann greindi frá ýmsum aðgerðum sem stjórnvöld hefðu unnið að og sem unnið verður að á næstu misserum.

Margt bendir til að lögregla hafi vísvitandi úðað á myndatökumenn

Blaðamannafélag Íslands lýsir undrun á því hversu margir fréttaljósmyndarar og tökumenn urðu fyrir piparúða við aðgerðir lögreglunnar í Alþingisgarðinum þann 20. janúar. Í ályktun frá félaginu segir að margar myndir af vettvangi sem og fjöldi þeirra sem varð fyrir úðanum bendi til þess að lögreglan hafi vísvitandi gripið til aðgerða gagnvart þessum hópi sem var einungis að sinna sínum störfum.

Lögreglan lýsir eftir Agnesi Lilju

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Agnesi Lilju Ingvarsdóttur. Agnes er 14 ára, grannvaxin um 160 sm. á hæð, dökkhærð. Hún gæti verið með síða hárlengingu sem taka má af þannig að eftir er mjög stutt hár. Ekki er vitað með klæðnað hennar.

Vilja að boðað verði til stjórnlagaþings

Síðar í dag verður hleypt af stokkunum undirskriftarsöfnun á vefsíðunni www.nyttlydveldi.is. Þar gefst þjóðinni kostur á að skora á Alþingi að samþykkja að boða til stjórnlagaþings, nýjan þjóðfund.

Mótmælt við þinghúsið

Mótmæli við Alþingi halda áfram þriðja daginn í röð. Á fjórða tug mótmælenda standa fyrir utan þinghúsið og heyrist hávaðinn vel inni í húsinu, að sögn fréttamanns sem er á staðnum. Lögreglumenn standa fyrir utan húsið og þá standa yfir þrif á þinghúsinu eftir mótmælin í gær og nótt.

Sjö ungmenni handtekin fyrir að stela torfæruhjóli

Lögreglan á Selfossi handtók sjö ungmenni í gær vegna innbrots og þjófnaðar í Laugarási í Biskupstungum. Að sögn lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar ferðir manna á jeppabifreið í gróðurhúsahverfi í Laugarási rétt fyrir miðnætti síðastliðinn þriðjudag. Lögreglumenn fóru þegar í stað á tveimur lögreglubifreiðum og fóru leiðir sem hugsanlegt væri að mennirnir gætu farið.

Sjá næstu 50 fréttir