Fleiri fréttir

Ökumenn skafi bílrúðurnar

Nokkuð hefur borið á því undanfarið að ökumenn hirði ekki um að skafa snjó af rúðum bíla sinna en með slíku háttalagi setja ökumenn sjálfa sig og aðra vegfarendur í talsverða hættu.

Bent á að fá sér aðra ruslatunnu

„Mér var bara sagt að ég skyldi breyta innkaupunum,“ segir Þór Björnsson íbúi í Grindavík, sem er ekki sáttur við tíðni sorphirðu í bænum. Þar eru sorptunnur losaðar á tíu daga fresti en ekki vikulega eins og víða annars staðar.

Árni skiptir um skoðun á ESB

Árni Mathiesen vill að þjóðin fái að kjósa um aðild að Evrópusambandinu. Þetta sagði hann í þættinum Mannamál í kvöld. Árni sagði að sér hefði snúist hugur. Honum hefði hingað til ekki hugnast aðild að bandalaginu í vegna sjávarútvegsins og auðlindastjórnunar. Nú væri hann hinsvegar þeirrar skoðunar að skoða ætti af fullri alvöru aðild að ESB.

Börnin seld

Límdur hefur verið borði yfir hvert einasta barn sem mynd er af á Barnaveggnum svo kallaða, á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Á límmiðanum stendur skrifuð upphæð sem gerendur virðast telja að hvert mannsbarn í landinu hafi verið skuldsett fyrir vegna bankahrunsins. Yfir borðann hefur verið stimplað orðið SELT.

Óttast að foreldrar eigi ekki fyrir skólamáltíðum

Skólastjóri Austurbæjarskóla vill að stjórnvöld taki ákvörðun um að hætta gjaldtöku fyrir heitan mat í skólum. Óttast er að æ fleiri foreldrar geti ekki greitt fyrir skólamáltíðir barna sinna.

Ekkert öfugsnúið við hækkanir

Fjármálaráðherra segir ekkert öfugsnúið við það að verðtryggð fasteignalán heimilanna hækki um tvöfalda þá upphæð sem ríkið fær í kassann af hækkun gjalda á bensín, áfengi og tóbak. Flestar ef ekki allar leiðir ríkisins til að auka tekjur hækki vísitölu og þar með skuldir heimilanna.

Selur leitar öryggis hjá sýslumanni

Ungur landselur gerði sig heimakominn á Lóninu í Seyðisfirði fyrr í dag. Hann hélt sig á ísskör neðan við sýsluskrifstofuna, sennilega í öryggisskyni, en frændi hans var drepinn af stangveiðimönnum í sumar í Fjarðará sem rennur í þetta sama Lón.

Fast skotið á Gísla Martein

Hress borgarstarfsmaður hefur auglýst eftir vel launuðu starfi sem krefst mjög lítils vinnuframlags.

Stúdentar æfir yfir niðurskurði

Stúdentaráð Háskóla Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við þá tillögu ríkisstjórnar að skerða framlög til Lánasjóðs íslenskra námsmanna og Háskóla Íslands.

Vilja að tillögur að Landsbankahöfuðstöðvum verði sýndar

Arkitektar vilja að leynd verði aflétt af tillögum í samkeppni upp á hundruð milljóna um höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjavíkurhöfn. Bankinn treystir sér ekki til að birta niðurstöðurnar. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.

Segir félag Kristjáns ekki fá sérmeðferð

Eignarhaldsfélag eiginmanns menntamálaráðherra um hlut hans í gamla Kaupþingi fær enga sérmeðferð og farið verður með það eins og öll önnur félög á Íslandi, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.

Hnífsstungufórnarlamb komið af gjörgæslu

Drengurinn sem var stunginn á Hverfisgötunni í gærmorgun er kominn af gjörgæsludeild. Pilturinn var stunginn vinstra megin í brjósthol, og voru áverkarnir mjög alvarlegir. Líðan hans er eftir atvikum.

Skíðasvæðin á Norðurlandi opin í dag

Skíðasvæði Norðanlands eru opin í dag. Í Hlíðarfjalli á Akureyri verður opið til klukkan fjögur og einnig skíðasvæðið í Tindastól við Sauðárkrók. Nú er fimm gráðu frost, vindur mælist fjórir metrar á sekúndu og það er mikill og góður snjór í Tindastólnum. Sömu sögu er að segja af skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði. Þar er harðpakkaður troðinn snjór, gott veður og færi fyrir alla. Þar verður opið til fimm.

Geir óttast ekki klofning vegna Evrópustefnu

Geir H. Haarde forsætisráðherra óttast ekki að Sjálfstæðisflokkurinn klofni þegar Evrópumálin verða gerð upp á landsfundi flokksins í janúar. Geir er í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið í dag. Þar er hann spurður hvort hann óttist klofning við uppgjörið.

Keyrðu undir áhrifum fíkniefna

Tveir ökumenn voru teknir í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í nótt grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna. Tekin var skýrsla af mönnunum og þeim síðan sleppt, en þeir mega búast við kæru.

Einn gisti fangageymslur

Nokkur erill var í miðbænum í Reykjavík fram eftir nóttu. Einn var handtekinn á lækjartorgi vegna minniháttar líkamsárásar. Árásarmaðurinn var ölvaður. Sá gistir fangageymslur, en tekin verður af honum skýrsla þegar rennur af honum.

Eldur á Players

Eldur kom upp á skemmtistaðnum Players í Kópavogi um áttaleitið í morgun, þegar kviknaði í gardínu. Starfsmaður sem var við vinnu á staðnum náði að slökkva eldinn. Slökkvilið var kallað til og reykræsti staðinn. Ekki er talið að skemmdir séu miklar. Þá kviknaði í fólksbíl við Baugakór í Kópavogi í nótt. Ekki er talið að um íkveikju sé að ræða, en bíllinn er óökufær.

Fjöldi húsa stendur auður á Austurlandi

Mörg hús standa auð á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Þar var fjöldi húsa byggður vegna framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun. Samdráttur hefur áhrif á fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna og erfiðlega gengur að ljúka þeim.

Leitar allra leiða til að forðast uppsagnir

Markmið forstjóra Landspítalans er að forðast uppsagnir starfsfólks þrátt fyrir kröfu um mikinn niðurskurð. Kjarnastarfsemi spítalans verður ekki skert við niðurskurð. Verkefni sem falla utan hennar gætu verið boðin út á næstunni.

Hnífamaður áfram inni

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Sævari Sævarssyni, til fimmtudagsins 26. mars. Sævar var nýlega dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann réðst á mann á Hverfisgötu og stakk hann með hnífi í bak og vinstri framhandlegg. Fórnarlambið hlaut stungusár í brjóstholi og lunga, með loftbrjósti og blæðingu í brjóstholi, auk fleiri áverka. Dómnum var áfrýjað til Hæstaréttar og situr maðurinn í gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur þar.- jss

Lögreglan gaf fólki kakóbolla

Um eitt þúsund manns söfnuðust saman á Austurvelli í gær þar sem ríkisstjórn landsins og efnahagsástandinu var mótmælt. Í þetta sinn sýndi fólk samstöðu sína með sautján mínútna þögn í stað þess að hlusta á ræður. Á Akureyri gengu um 150 manns frá Samkomuhúsinu og niður á Ráðhústorg í vikulegu mótmælunum þar í bæ sem bera yfirskriftina Virkjum lýðræðið. Lögreglan á Akureyri lét ekki sitt eftir liggja og gaf almenningi kakóbolla í kuldanum á Ráðhústorginu. Guðmundur Ármann listamálari, Þorsteinn Pétursson lögreglumaður og Guðrún Þórs myndlistarnemi tóku til máls á fundinum. Framhald verður á mótmælum næstu laugardaga. - fb

Sveitarfélögin skoða ESB-aðild

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í gær að framkvæmdastjóri samtakanna hefði forystu um að kanna hagsmuni sveitarfélaga af inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þátttöku í Evrópusamvinnu á vettvangi þess.

Ekið á hreindýr

Fólksbíl var ekið á hreindýr í gærmorgun á hringveginum á Möðrudalsöræfum. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum skemmdist bíllinn lítilsháttar og aflífa þurfti hreindýrið.

Þrír slógust í fjölbýlishúsi

Einn maður fékk skurð á höfuð eftir slagsmál við tvo aðra menn í fjölbýlishúsi í Þorlákshöfn um hálfníu leytið í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar á Selfossi litu meiðsli mannsins alvarlega út í fyrstu en þau reyndust vera minni þegar upp var staðið.

Piltur stunginn með hnífi

Átján ára piltur var stunginn með hnífi í brjóstholið fyrir utan skemmtistað á Hverfisgötu í Reykjavík snemma í gærmorgun. Árásarmaðurinn, piltur á svipuðum aldri, fór af vettvangi en var handtekinn nokkru síðar.

Útilokar ekki framboð

Gunnar Bragi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði, útilokar ekki að bjóða sig fram til formanns Framsóknarflokksins á næsta ári. Í samtali við héraðsfréttablaðið Feykir.is segir hann að einnig komi til greina framboð í einhver af æðri embættum flokksins.

Árásarmaðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald

Maður um tvítugt sem stakk jafnaldra sinn fyrir utan skemmtistað við Hverfisgötu snemma í morgun hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 18 desember. Mennirnir þekktust, en ekki er vitað nánar hvaða tengsl voru þeirra á milli. Maðurinn var stunginn vinstra megin í brjósthol og voru áverkarnir lífshættulegir. Líðan hans er þó stöðug.

Þorgerður ætlar ekki í formannsslag

Sterkur orðrómur er á kreiki um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins fái mótframboð á landsfundi flokksins eftir áramót. Hún ætlar ekki í formannsslag við Geir H. Haarde og segir að þeir sem renni hýru augu til formannsstólsins ofmeti eigið ágæti.

Einn á móti eldsneytishækkunum

Ekki greiddu allir alþingismenn atkvæði með frumvarpi um eldsneytishækkir sem afgreitt var á mettíma úr þinginu í fyrradag. Það gerði Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslyndra ekki, einn þingmanna.

Valdabarátta í Valhöll

Mikið valdatafl er komið upp í Valhöll í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins í janúar. Þetta staðfesti Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður og náinn stuðningsmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra í viðtali við Björn Inga í Markaðnum í morgun.

Allt bendir til kosninga áður en kjörtímabilið er á enda

Ef landsfundur Sjálfstæðismanna samþykkir ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu er mjög líklegt að þurfi að ganga til kosninga. Þetta sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra í þættinum vikulokin á Rás 1 í morgun.

Unglingspiltur alvarlega særður eftir hnífsstungu

Átján ára piltur var stunginn með hnífi við Hverfisgötu í Reykjavík snemma í morgun. Árásarmaðurinn, piltur á svipuðum aldri, fór af vettvangi en var handtekinn nokkru síðar. Áverkar þolandans eru alvarlegir og mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leggja fram kröfu um gæsluvarðhald yfir árásarmanninum síðar í dag.

HR í nýsköpunarsamstarfi

Háskólanum í Reykjavík hefur verið boðið að verða einn af hornsteinum Global Entrepreneurship Monitor rannsóknarinnar, sem er ein umfangsmesta alþjóðlega rannsókn á frumkvöðlasamstarfi í heiminum.

Segja sérfræðiteymið dulbúinn niðurskurð

Stofnun svokallaðs sérfræðiteymis í málefnum unglinga, sem velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í gær, er dulbúinn niðurskurður fullyrða fulltrúar minnihlutans.

Fleiri styðja aðildarviðræður við ESB

Heldur fleiri aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins styðja aðildarviðræður að Evrópusambandinu en eru gegn því, samkvæmt könnun sem samtökin gerðu og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra greinir frá á heimasíðu sinni.

Mögulega fleiri í formannsslaginn í Framsókn

Enn bætist í hóp þeirra sem gætu mögulega boðið sig fram til formannsembættis Framsóknarflokksins. Gunnar Bragi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði og formaður SSNV, segist í samtali við héraðsfréttablaðið Feykir.is ekki útiloka formannsframboð eða framboð í einhver að æðri embættum flokksins.

Ísland átti að segja sig úr NATÓ

Ísland átti að segja sig úr NATÓ og jafnvel hefði átt að vísa breska sendiherranum úr landi eftir að Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn íslensku bönkunum. Þetta segir Guðni Ágústsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann segir að með þessu hefðu aðrar þjóðir áttað sig á að verið væri að fremja á okkur þjóðarmorð. Íslendingar hefðu aldrei farið gegn öðrum þjóðum með ófriði eða vopnavaldi.

Bjarni og Illugi vilja aðildarviðræður við ESB

Tveir frammámenn Sjálfstæðisflokksins á þingi, Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, lýsa því yfir í Fréttablaðinu í dag að þeir vilji að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið og að innganga í sambandið verði borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þögn í stað mótmæla í dag

Ræðuhöld víkja fyrir kyrrðar- og friðarstund á Austurvelli í dag. Breiðfylking gegn ástandinu segir í tilkynningu að í undanfara jólanna hafi skiljanlega dregið úr aðsókn á fundina. Mæður og feður vilji búa börnum sínum gleðileg og friðsæl jól.

Tíu drukknir undir stýri í höfuðborginni

Tíu ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvunarakstur í Reykjavík í nótt. Mikið snjóaði í höfuðborginni, og urðu tólf minniháttar umferðaróhöpp sem rekja má til færðarinnar. Engin meiðsl urðu á fólki, en þrír ökumannanna eru grunaðir um ölvun við akstur. Á Akureyri endaði för eins ökumanns á ljósastaur. Hann sakaði ekki, en reyndist undir áhrifum áfengis.

Skiptar skoðanir innan SA um inngöngu í ESB

Afstaða félagsmanna Samtaka atvinnulífsins til inngöngu í Evrópusambandið skiptist nokkuð jafnt. Um 43% eru hlynntir inngöngu, um 40% andvígir og 17% óvissir, ef marka má upplýsingar sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra birtir á heimasíðu sinni í kvöld.

Kostnaðurinn eykst um 20 þúsund krónur

Kostnaðaraukinn á hvern bíl vegna hækkunar opinberra gjalda á eldsneyti annarsvegar og hækkunar á bifreiðargjalda er samtals um 20 þúsund krónur ári.

Vona að alþingismenn muni það sem skiptir máli

Við vonum að kreppan verði ekki til þess að Alþingi gleymi því sem skiptir máli, segja foreldrar mjög sjónskerts fjögurra mánaða drengs. Þau bíða þess að Alþingi afgreiði frumvarp sem tryggir að drengurinn þeirra fái viðeigandi meðferð.

Sjá næstu 50 fréttir