Fleiri fréttir

Utanríkisráðuneytið auglýsir tímabundnar stöður

Í utanríkisráðuneytinu eru níu starfsmenn með tímabundna ráðningu. Allir þessir starfsmenn voru ráðnir á grundvelli auglýsingar. Þetta kemur fram í orðsendingu frá Urði Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa í utanríkisráðuneytinu, vegna skrifa Valgerðar Sverrisdóttur alþingismanns á heimasíðu hennar, sem Vísir vitnaði til í dag.

Fangi dæmdur fyrir vörslu fíkniefna

Piltur sem nú afplánar dóm í fangelsinu á Litla-Hrauni var í dag dæmdur í 250.000 króna sekt fyrir að hafa í fórum sínum fíkniefni. Fangaverðir fundu í fjögur skipti hass og amfetamín í fangaklefa piltsins.

Lög um rannsóknarnefnd hugsanlega samþykkt í kvöld

Allsherjarnefnd Alþingis lauk í dag umfjöllun sinni um frumvarp um sérstaka rannsóknarnefnd vegna bankahrunsins. Samstaða var í nefndinni um breytingartillögur og er frumvarpið nú til umræðu á þingfundi. Frumvarpið verður að öllum líkindum að lögum í kvöld.

Herra Rokk kvaddur í Keflavíkurkirkju

Fjölmenni var við útför Rúnars Júlíussonar sem fór fram frá Keflavíkurkirkju klukkan 14:00 í dag. Útförinni var einnig sjónvarpað í Fríkirkjuna í Reykjavík og á Vísi. Margir tónlistarmenn sem tengjast Rúnari stigu á stokk.

Rannsókn lokið í húsbílahassmálinu

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kom upp á Seyðisfirði í júní er lokið og hefur það verið sent embætti ríkissaksóknara til meðferðar.

ASÍ segir Geir fara með rangt mál

Alþýðusambands Íslands segir rangt hjá Geir H. Haarde forsætisráðherra að hækkun á áfengis- og tóbaksgjaldi og olíugjaldi hækki ekki verðbólgu. Geir hélt þessu fram í hádegisfréttum RÚV.

SkjárEinn heldur áfram og flestir starfsmenn endurráðnir

Sjónvarpsstöðin SkjárEinn mun halda áfram útsendingum og flestir starfsmenn stöðvarinnar verða endurráðnir. Þessi ákvörðun er tekin að því gefnu að umsvif Ríkisútvarpins á auglýsingamarkaði verði takmörkuð en frumvarp þess efnis er nú til umfjöllunar á Alþingi. Öllum starfsmönnum stöðvarinnar var sagt upp á dögunum og var ráðgert að hætta útsendingum að óbreyttu eftir áramót.

Týndir hvolpar í Grindavík

Tveir Labrador blendingar hurfu úr garði á heimili í Grindavík í dag. Um er að ræða þriggja mánaða hvolpa sem hurfu á milli klukkan 13 og 14 í dag. Eigandi hundanna segist hafa átt þá í tæpan hálfan mánuð.

Mótmæla harðlega skattahækkunum

Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega þeim skattahækkunum sem Alþingi samþykkti í gær en olíugjald og áfengisgjald hækkuðu um 12%.

Neitar ekki ummælum um borgarráð og andlega ruslakistu

Óskar Bergsson formaður borgarráðs neitar ekki að hafa sagt við Ólaf F. Magnússon á fundi ráðsins fyrir viku að borgarráð væri ekki ruslakista fyrir andlegt rusl úr Ólafi. Ekki hefur náðst í Óskar varðandi málið fyrr en nú.

Ekki búið að taka ákvörðun um ólátabelgi

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er ekki búið að taka ákvörðun um hvort þeir sem handteknir voru vegna óláta í Alþingishúsinu á mánudaginn verði ákærðir.

Dráttarvextir lækki um fjögur prósent

Lagt hefur verið fyrir Alþingi frumavrp um breytingar á lögum um vexti og verðtryggingu. Breytingarnar eru liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar í þágu heimilanna sem kynnt var í síðasta mánuði. Breytingunum er ætlað að lækka dráttarvexti og munu vextirnir lækka um fjögur prósent ef marka má athugasemdir við frumvarpið.

Aðstoðarmaður Jóhönnu gagnrýnir forseta ASÍ

Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra, gagnrýnir Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ og segir hann ekki spara stóryrðinn í umfjöllun sinni um fjárlögin.

Fréttaskýring: Það sem Björgvin vissi ekki

Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- og bankamálaráðherra þjóðarinnar hefur á undanförnum tveimur mánuðum tekist á við alvarlegustu bankakrísu sem ríkt hefur hér á landi. Raddirnar um að hann víki sem ráðherra hafa hinsvegar heyrst úr ýmsum áttum en Björgvin segist þó ekki hafa gert nein mistök sem hægt sé að benda á, á sama tíma og aðrir tala um pólitíska ábyrgð. Frá því að ákvörðun var tekin um þjóðnýtingu Glitnis er ansi margt sem Björgvin hefur ekki vitað um. Vísir hefur tekið til það helsta.

Þorskstofninn styrkist

Ákveðnar og jákvæðar vísbendingar gefa til kynna að þorskstofninn sé að styrkjast, að sögn Jóhanns Sigurjónssonar forstjóra Hafrannsóknunarstofnunar.

Gera athugasemd við að afnema eigi þagnarskyldu

Stjórn Lögmannafélags Íslands lýsir yfir fyllsta stuðningi við umsögn laganefndar Lögmannafélagsins sem snýr að frumvarpi til laga um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna og tengdra atburða.

Embætti sérstaks saksóknara auglýst

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti sérstaks saksóknara. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að hann muni veita forstöðu rannsóknar- og saksóknaraembætti samkvæmt lögum sem taka gildi í dag. Umsóknarfrestur er til 29. desember nk. og mun dóms- og kirkjumálaráðherra skipa í embættið frá og með 1. janúar 2009, eða svo fljótt sem verða má.

Bjarni: Stjórnvöld of hikandi varðandi málshöfðun

Þingmenn ræddu lögsóknir gegn Bretum í umræðu um störf þingsins í dag. Þar kom fram gagnrýni á þann seinagang sem mörgum finnst vera í málinu en frestur til málsókna rennur út í janúar. Bjarni Benediktsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði að nefndin leggi á það gríðarlega áherslu að gætt verði að hagsmunum Íslendinga til þess ítrasta. Bjarni tók að hluta undir með stjórnarandstöðunni sem talaði um seinagang og aðgerðarleysi. Að hans mati hafa stjórnvöld verið of hikandi í málinu.

Lögreglan lýsir eftir klósettnauðgara

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Robert Dariusz Sobiecki. Hæstiréttur staðfesti 4. desember þriggja ára fangelsisdóm héraðsdóms yfir Roberti sem ákærður var fyrir að nauðga konu inni á kvennasalerni á Hótel Sögu í mars árið 2007.

Þjóðarskútan afhent

Þjóðarskútan hefur verið í smíðum undanfarna daga og er hún sparibaukur af stærri gerðinni. Í kjölfar hruns í fjármálaheiminum og vegna kreppunnar á Ísland ákváðu starfsmenn Víkurvagna að bregðast við með smíði nýrrar þjóðarskútu.

Bensínlítrinn hækkar um átta krónur í dag

Bensínlítrinn hækkar um hátt í átta krónur og dísellítrinn um röskar sex krónur í dag, eftir að Alþingi samþykkti í gærkvöldi lög um margvíslegar hækkanir gjalda.

Áfengisverð hækkar ekki á morgun

Áfengisverð mun ekki breytast á morgun, eftir því sem Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir í samtali við Vísi.

Forseti borgarstjórnar leggst gegn útsvarshækkun

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, leggst gegn því að borgarstjórn hækki útsvar þrátt fyrir að stjórnvöld heimili sveitarfélögum slíkar hækkanir. Fram kom í fréttum í dag að sveitarfélög fá heimild til að hækka útsvar um 0,5% til að mæta aðsteðjandi vanda í efnahagslífinu.

Um 130 aðstoðarbeiðnir vegna óveðurs

Um 130 beiðnir um aðstoð bárust samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð vegna óveðursins í kvöld. Ekki bárust tilkynningar slys á fólki en nokkuð var um tjón í stærri kantinum eins og skemmdir á þökum og bifreiðum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Almannavörnum.

Tugir björgunarsveitamanna sinna óveðursútköllum

Um 85 björgunarsveitamenn sinna útköllum á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi vegna óveðurs sem gengur yfir landið og hefur samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð verið virkjuð.

Samtök iðnaðarins mótmæla lögum um hækkun áfengisgjalds

Samtök iðnaðarins mótmæla harðlega lögum Alþingis um hækkun áfengisgjalds, sem felur í sér tæplega 39% hækkun álagningar á bjór. Samtökin telja að þetta gangi í berhögg við þá stefnumörkun að örva íslenska framleiðslu.

Vegurinn undir Hafnarfjalli lokaður

Vegurinn undir Hafnarfjalli er lokaður frá Hvalfjarðargöngum og í Borgarnes. Þar er vindhraðinn 55 m/sek í hviðum. Vegfarendur eru hvattir til þess að fara varlega og bíða af sér mesta veðurhaminn. Reiknað er með að veðrinu sloti á þessu svæði í kring um miðnættið.

Sakar Davíð um að grafa undan forystu Sjálfstæðisflokksins

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, hefur með ummælum sínum grafið undan forystu Sjálfstæðisflokksins að mati þingmanns flokksins. Menntamálaráðherra segir eðlilegt að meintar hljóðupptökur af samræðum Davíðs við ráðherra ríkistjórnarinnar verði gerðar opinberar.

Mun sakna Bjarna Ben úr stóli stjórnarformanns

Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segist eiga eftir að sakna Bjarna Benediktssonar úr stóli stjórnarformanns fyrirtækisins. „Við erum búnir að vinna náið saman í níu ár og það er sjónarsviptur af honum úr stjórninni," segir Bjarni.

Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í febrúar yfir manni sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku sem gætti barna hans á kosninganótt aðfaranótt 13. maí 2007. Maðurinn skal sæta fangelsi í tvö ár auk þess sem hann skal griða stúlkunni 750 þúsund krónur í miskabætur.

Hæstiréttur staðfestir dauð og ómerk ummæli um Magnús

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms í meiðyrðarmáli Magnúsar Ragnarssonar fyrrum sjónvarpsstjóra Skjás eins gegn 365 miðlum ehf. Ummælin birtust í tveimur blöðum félagsins, DV og Fréttablaðinu undir fyrirsögnunum „Maggi glæpur“ og „Geðþekkur geðsjúklingur“.

18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fatlaðri stúlku

Hæstiréttur dæmdi í dag Sveinbjörn R. Auðunsson í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart sautján ára fatlaðri stúlku. Hann var ákærður fyrir að hafa notfært sér að hún gat ekki spornað gegn verknaðinum sökum andlegra annmarka og líkamlegrar fötlunar.

Segir nýja fjárlagafrumvarpið djarft

Valgerður Sverrisdóttir formaður framsóknarflokksins segir nýtt fjárlagafrumvarp ríkissjórnarinnar vera djarft. Hún segir greinilegt að eitthvað meira sé í pípunum og nefnir orðróm um að fara eigi inn í búvörulögin og lækka laun bænda. Hún segir alvarlegast að verið sé að auka álögur á launafólk.

Útför Rúnars Júlíussonar í beinni útsendingu á Vísi

Útför Rúnars Júlíussonar tónlistarmanns fer fram frá Keflavíkurkirkju á morgun. Sýnt verður frá útförinni í beinni útsendingu á Vísi. Eins og fram hefur komið verður einnig sýnt beint frá athöfninni í Fríkirkjunni í Reykjavík og í Duus-húsum í Keflavík.

Slippgata mun liggja frá Geirsgötu að Seljavegi

Borgarráð hefur samþykkt tillögu nafnanefndar Reykjavíkurborgar um nafngiftir nýrra gatna á slippasvæðinu. Tillagan gerir ráð fyrir að svonefnd Slippagata liggi frá Geirsgötu að Seljavegi.

Gefur til góðgerðamála í stað þess að senda jólakort

Þeir sem búast við jólakorti frá umhverfisráðuneytinu verða fyrir vonbrigðum þetta árið. Ráðuneytið hefur ákveðið að verja andvirði jólakortanna til góðgerðarmála og hefur Þórunn Sveinbjarnardóttir, ráðherra, þegar afhent forsvarsmönnum Hugarafls og Geysi peningagjafir og fékk hvort félag hundrað þúsund krónur að gjöf.

Snörpum vindhviðum og mikilli úrkomu spáð

Veðurstofa Íslands spáir slæmu veðri seinni hluta dagsins með snörpum vindhviðum fram eftir kvöldi. Búast má við að vindur færist í aukana upp úr klukkan 15 í Vestmannaeyjum og færist svo hratt suðvestur og vestur yfir landið með mikilli úrkomu, fyrst rigningu og síðar snjókomu.

Sjá næstu 50 fréttir