Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Staðall um launajafnrétti Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðals sem notaður verði til að sannreyna hvort launa- og starfsmannastefna stofnana og fyrirtækja samræmist stefnu um launajafnrétti kynja og jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. 24.10.2008 15:47
Vill reka breska sendiherrann úr landi Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslynda flokksins vill slíta stjórnmálasamstarfinu við Bretland og reka breska sendiherrann úr landi. Hann segir bresk stjórnvöld gera ósanngjarnar kröfur á íslendinga og þeir ættu að skammast sín. 24.10.2008 15:42
IMF: Krefjast þess ekki að dregið verði úr fjárlagahalla Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins héldu blaðamannafund í Karphúsinu í framhaldi af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að óskað verði eftir aðstoð frá sjóðnum. Á ráðherrafundinum var sagt að ekki væri hægt að fara út í þau skilyrði sem sjóðurinn setji fyrir aðstoðinni en á fundinum í Karphúsinu var þó rætt um aðgerðirnar. Sjóðurinn mun ekki krefjast þess að fjárlög skili hagnaði, heldur sé beinlínis reiknað með miklum hallafjárlögum til að byrja með. 24.10.2008 15:14
IMF mun gera ráð fyrir kostnaði vegna Bretadeilu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, fullyrðir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) mun í áætlunum sínum fyrir Ísland gera ráð fyrir útgjöldum vegna deilunnar við Breta og Hollendinga. 24.10.2008 15:14
IMF lánið endurgreitt á árunum 2012-2015 Á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum fyrir stundu svöruðu Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir spurningum fréttamanna. Þar sagði Geir að nú væri formlega búið að óska eftir 2 milljarða dollara aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ferlið tæki hinsvegar um 10 daga og færi allt að óskum kæmu rúmar 800 milljónir bandaríkjadala strax í kjölfarið. Hann sagði að í dag hefði verið haft samband við aðra seðlabanka og hann mun sérstaklega ræða málin við norræna kollega sína á fundi í Helsinki á mánudaginn. 24.10.2008 15:12
Ekkert í skilyrðum sjóðsins sem ekki er hægt að ganga að Þau Geir Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kynntu rétt í þessu ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að óska eftir aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Greint hefur verið frá því að sjóðurinn leggi til tvo milljarða dollara en ekki verður að sinni sagt frá þeim efnahagslegu skilyrðum sem sjóðurinn gerir. 24.10.2008 14:36
Bankastjóri Nýja Glitnis með 1750 þúsund á mánuði Stjórn Nýja Glitnis, í samráði við framkvæmdastjórn bankans, hefur samþykkt launaramma fyrir stjórnendur og starfsmenn bankans. Í því felst að mánaðarlaun bankastjóra verða 1750 þúsund krónur. 24.10.2008 14:30
Óskað eftir IMF aðstoð: Sjóðurinn lánar tvo milljarða dollara Ríkisstjórnin hefur formlega óskað eftir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að koma á efnahagslegum stöðugleika á Íslandi. Viðræður á milli fulltrúa Íslands og sjóðsins um fyrirkomulag samstarfsins hafa staðið yfir um nokkurt skeið. Unnin hefur verið ítarleg efnahagsáætlun í samráði við fulltrúa sjóðsins með það að markmiði að koma á efnahagslegum stöðugleika á nýju. 24.10.2008 14:24
Sex milljarðar dollara í aðstoð Fréttastofa Reuters hefur það eftir heimildarmönnum sem tengjast viðræðum Íslendinga við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að Íslendingar fái samtals lánsloforð að upphæð 6 milljörðum dollara, rúmlega 720 milljarða íslenskra. Milljarður dollara er frá IMF en afgangurinn frá öðrum þjóðum, þar á meðal Norðurlandaþjóðunum. 24.10.2008 13:59
Siðareglur borgarfulltrúa að verða til Vinnu starfshóps sem skipaður var til að ljúka við gerð siðareglna borgarfulltrúa gengur vel, að sögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. 24.10.2008 13:46
Rauði krossinn opnar skrifstofu í Malaví Rauði kross Íslands hefur opnað skrifstofu í Lilongwe höfuðborg Malaví. Þar mun Hólmfríður Garðarsdóttir starfa sem heilbrigðisráðgjafi Rauða krossins og fylgist með heilbrigðisverkefnum sem Rauði krossinn rekur í landinu. 24.10.2008 13:29
Eitt dýrasta námskeið sögunnar Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að undanfarið hafi Íslendingar undanfarið sótt eitt dýra námskeið sögunnar. 24.10.2008 13:11
IMF boðar til blaðamannafundar í Karphúsinu Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur boðað til blaðamannafundar í Karphúsinu, Borgartúni 21, klukkan 15:00 í dag. Fundurinn er haldinn í kjölfarið á blaðamannafundi sem Ríkisstjórnin hefur boðað til í Ráðherrabústaðnum klukkan 14:15. 24.10.2008 12:45
Vel gengur að manna frístundaheimili borgarinnar Undanfarna daga og vikur hefur gengið vel að manna frístundaheimili Reykjavíkurborgar. ,,Fyrir tveimur vikum vantaði um 44 starfsmenn og er sú tala nú komin niður í 27," er haft eftir Soffíu Pálsdóttur, skrifstofustjóra hjá ÍTR, á heimasíðu borgarinnar. 24.10.2008 12:40
Líkt og meirihlutinn hafi eitthvað að fela Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn er neikvæður og tregur til að veita skýr svör þegar kemur að ýmsum útgjöldum borgarsjóðs, að mati Ólafs F. Magnúsonar borgarfulltrúa. 24.10.2008 12:34
42 þúsund hafa skrifað undir ávarp til Breta Fjöldi þeirra sem skráð hefur nafn sitt við þjóðarávarp til Breta á netsíðunni indefence.is er kominn upp í rúm fjörutíu og tvö þúsund. Síðunni var hleypt af stokkunum í fyrradag og hafa viðbrögðin því verið snögg og mikil. 24.10.2008 12:27
Nýjum forstjóra færð viðurkenning Kvenréttindafélag Íslands afhenti Huldu Gunnlaugsdóttur, nýjum forstjóra Landspítalans, viðurkenningu nýverið. Félagið hefur haft þann háttinn á undanfarin ár að vekja athygli landsmanna á því sérstaklega þegar kona velst til starfa á sviðum þar sem karlar hafa eingöngu gegnt forystu áður. 24.10.2008 12:25
Icelandair: Reynt að koma í veg fyrir frekari uppsagnir Icelandair hefur óskað eftir því við flugfreyjur og flugliða félagsins að þeir minnki við sig starfshlutfall eða fari í launalaust leyfi vegna samdráttar í flugi. Menn eru að reyna að koma í veg fyrir uppsagnir, segir Rannveig Eir Einarsdóttir forstöðumaður farþegaþjónustu. Flugfreyjur og flugliðar fengu tölvupóst með þessum óskum í gærkvöldi. 24.10.2008 12:14
Bein útsending frá blaðamannafundinum á Vísi Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14:15 í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni. 24.10.2008 11:45
Gylfi nýr forseti ASÍ Gylfi Arnbjörnsson hefur verið kjörinn forseti Alþýðusambands Íslands, ASÍ. Gylfi fékk 166 atkvæða og 60 prósent atkvæða í kosningunum sem fram fóru í dag á ársfundi sambandsins. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir hlaut 114 atkvæði og um 40 prósent atkvæða. 24.10.2008 11:25
VG vilja ekki að Bretarnir komi Þingmenn Vinstri grænna vilja ekki að breski herinn komi til landsins í desember og annist loftrýmiseftirlit og ætla þingmennirnir að leggja til í þingsályktunartillögu að fyrirhugað þeirra verði fellt niður. 24.10.2008 11:11
Stjórnarandstaðan boðuð á fund í Ráðherrabústaðnum Núna klukkan 11:00 voru forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna boðaðir á fund í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Nokkur fjöldi fréttamanna er staddur fyrir utan Ráðherrabústaðnum og eftir því sem þeir komast næst hefur verið fundað þar síðan um 8:00 í morgun. Ríkisstjórnarfundi var frestað í morgun. 24.10.2008 11:03
Seldu fimm og hálft tonn af kjöti á einum degi Bændadagar hófust í Skagfirðingabúð og er óhætt að fullyrða að Skagfirðingar hafi tekið vel við sér en alls seldist um fimm og hálft tonn af kjöti í gær. Búið að að fylla á alla kæla á nýjan leik og búast menn við öðru eins í dag. 24.10.2008 10:38
Starfsmenn Kaupþings fá laun á uppsagnarfresti Þeir starfsmenn Kaupþings sem ekki verður boðið starf hjá Nýja Kaupþingi fá laun sín greidd á uppsagnafresti í samræmi við kjarasamninga. Þetta kemur fram í tölvupósti sem starfsmönnum hefur verið sendur. 24.10.2008 10:19
FT segir símtalið veikja málstað Breta Breska dagblaðið Financial Times fjallar í dag um afrit af samtali Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, og Árna Mathiesen, fjármálaráðherra, 7. október. 24.10.2008 10:10
Viðbúnaði aflétt á Vestfjörðum Lögreglustjórinn á Vestfjörðum, að höfðu samráði við Veðurstofu Íslands, hefur ákveðið að aflétta viðbúnaði á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu í þéttbýli. 24.10.2008 09:54
Almenningur á ekki að borga skuldir bankanna ,,Þegar viðskiptabankarnir voru einkavæddir hætti ríkið að eiga þá," segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, í pistli á heimasíðu sinni og bætir við að þá hafi ríkið hætt að bera ábyrgð á skuldum bankanna, skuldbindingum og öðrum ákvörðunum. 24.10.2008 09:32
Hellisheiði lokuð - Súðavíkurhlíð enn lokuð Hellisheiði er lokuð og verður það eitthvað fram eftir morgni. Í tilkynningu frá Vegagerðinni eru þeir sem eiga yfirgefna bíla á Hellisheiðinni eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi. 24.10.2008 08:50
Mikil röskun á millilandaflugi vegna veðurs Mikil röskun vað á millilandaflugi í gærkvöldi eftir að ófært varð á Keflavíkurflugvelli vegna ofviðris. Tveimur vélum , sem voru að koma frá meginlandi Evrópu var beint til Akureyrar og öðrum þremur til Egilsstaða, þar sem þær eru enn. 24.10.2008 07:16
Fjöldi útkalla vegna fárviðris í nótt Hátt í 200 björgunarsveitarmenn allt frá norðanverðum Vestfjörðum og suður á Reykjanes sinntu fjölda útkalla vegna fárviðris, frá því snemma í gærkvöldi og fram undir klukkan fimm í morgun. 24.10.2008 07:08
Davíð vonar að aðstoð IMF feli ekki í sér niðurlægingu Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir í samtali við breska blaðið Financial Times að hann telji að sú ákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna, Evrópu og Englands að neita Seðlabanka Íslands um fjárhagsaðstoð hafi átt sinn þátt í falli íslensku bankanna. 23.10.2008 22:48
Björgvin og Darling ræddu um að breyta Icesave Á fundi Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, og Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, 2. september var meðal annars rætt um að breyta Icesave í dótturfélag þannig að íslensk stjórnvöld bæru ekki ábyrgð á starfsemi bankans. Það hefði leyst ríkið undan ábyrgð vegna reikninga í Icesave. 23.10.2008 22:03
Veginum um Súðavíkurhlíð lokað - Varað við miklu hvassviðri á Suðurnesjum Búið er að loka veginum um Súðavíkurhlíð. Vegagerðin varar vegfarendur við miklu hvassviðri á Reykjanesbraut og Suðurnesjum. 23.10.2008 21:33
Reykjanesbraut opnuð á ný eftir bílslys - Tveir fluttir á slysadeild Búið er að opna Reykjanesbraut til norðurs við Breiðholtsbraut að nýju eftir árekstur tveggja bifreiða skömmu fyrir klukkan 19. 23.10.2008 20:52
Darling: Orðspor Íslands mun bíða hræðilega hnekki - Samtalið við Árna ,,Þú verður að gera þér ljóst að orðspor þjóðar þinnar bíður hræðilega hnekki," sagði Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, í samtali við Árna Mathiesen, fjármálaráðherra, í síma 7. október. Kastljós birti í kvöld samtal þeirra en lesið var upp af afrit af símtali ráðherranna sem hafði verið þýtt yfir á íslensku. 23.10.2008 20:48
Sóley ósátt við Jóhönnu Sóley Tómasdóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur ritað Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, opið bréf vegna ákvörðunar félagsmálaráðuneytisins að fresta jafnréttisþingi fram í janúar á næsta ári. 23.10.2008 20:15
,,Auðvitað á ríkið að fara í mál" Jón Daníelsson, prófessor í fjármálum við London School of Economics, segir að íslensk stjórnvöld eigi að fara í mál við breska ríkið. 23.10.2008 20:14
Tveir á slysadeild eftir bílslys Tveir voru fluttir slysadeild eftir bílslys sem varð á Reykjanesbraut við verslun Garðheima við norðanverða Breiðholtsbraut fyrr í kvöld. Tvær biðreiðar skullu saman. Reykjanesbraut er enn lokuð til norðurs. 23.10.2008 19:55
Löggan með viðbragðsáætlun vegna kreppunnar Lögreglan hefur tilbúna viðbragðsáætlun komi til múgæsings eða annars ófriðar vegna efnahagsástandsins. Reiði í samfélaginu hefur orðið til þess að öryggisgæsla í kringum ráðamenn og einstaka menn í viðskipta- og bankaheiminum hefur verið efld. 23.10.2008 19:30
Akureyrarkirkja bíður upp á ókeypis lögmannaaðstoð Akureyrarkirkja hefur ákveðið að bjóða íbúum upp á ókeypis lögmannaaðstoð í kreppunni. Hluti sóknarbarna er kvíðinn og reiður og styttist í uppgjör, segir sóknarprestur. 23.10.2008 19:07
Reykjanesbraut lokuð norðan við Breiðholtsbraut Umferðarslys varð á Reykjanesbraut við Garðheima fyrir stundu. Lögreglan, sjúkrabifreiðar og tækjabíll slökkviliðsins eru komin á vettvang og er Reykjanesbraut norðan af Breiðholtsbraut lokuð. 23.10.2008 18:57
Bogi rannsakar fall bankanna Bogi Nilsson fyrrverandi ríkissaksóknari hefur verið ráðinn til að sinna undirbúningsrannsókn á falli bankanna. Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, gerði allsherjarnefnd Alþingis grein fyrir rannsókninni í dag. 23.10.2008 18:52
Bretar lýstu yfir stríði Bretar lýstu yfir stríði við Ísland þegar þeir frystu eignir íslenskra fyrirtækja úti. Þetta segir formaður Pétur H. Blöndal, efnahags- og skattanefndar Alþingis. Hann segir ekki hægt að skilja orð fulltrúa viðskiptalífsins á nýlegum nefndarfundi öðruvísi en að Bretar neyti aflsmunar til að fá bankakerfi erlendra ríkja til að mismuna Íslandi. 23.10.2008 18:42
Björgvin útilokar ekki eignaupptöku hafi auðmenn brotið lög Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, útilokar ekki hörku gegn íslenskum auðmönnum reynist þeir uppvísir að lögbrotum og að eignir þeirra verði sóttar til útlanda. 23.10.2008 18:38
Viðræðum við Breta ólokið Viðræðum sendinefndar breskra stjórnvalda og nefndar íslenskra stjórnvalda er ekki lokið og er gert ráð fyrir að þeim verði haldið áfram á næstunni. Nefndirnar reyna að leiða deiluna um innlán breskra ríkisborgara í íslenskum bönkum til lykta. 23.10.2008 18:20