Davíð vonar að aðstoð IMF feli ekki í sér niðurlægingu 23. október 2008 22:48
Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir í samtali við breska blaðið Financial Times að hann telji að sú ákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna, Evrópu og Englands að neita Seðlabanka Íslands um fjárhagsaðstoð hafi átt sinn þátt í falli íslensku bankanna. ,,Ef við hefðum haft meira fjármagn þá hefðum við verið í betri stöðu til að þrýsta á bankana að minnka umsvif sín," segir Davíð. Þá hefur hann efasemdir um aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og segist vona að hún feli ekki í sér niðurlægingu. Davíð fer yfir þróun mála í samtali við Financial Times. Þar segist hann ítrekað hafa varað stjórnendur bankanna við því að þeir væru í hættu en slíkar viðvaranir hafi verið hunsaðar. Reynt hafi verið að fá stjórnendur bankanna til þess að minnka umsvif þeirra. ,,Við sögðum þeim að við teldum ekki að fjármögnun með töku innistæðna í Evrópu væri langtímafjármögnun. En þeir töldu okkur of svartsýna," segir Davíð um stjórnendur bankanna. Segir breska blaðið að orð seðlabankastjóra ýti undir þá skoðun að íslensku bankarnir hafi verið svo sterkir bæði efnhagslega og pólitískt að þeir hafi getað hunsað viðvaranir Seðlabankans. Þá segir Financial Times að meðal helstu skilyrða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir aðstoð við Ísland verði betri yfirsýn og sterkara regluverk í kringum bankakerfið. Hugsanlega sé von á tilkynningu um aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á morgun sem studd verði af seðlabönkum ýmissa landa.
Mest lesið Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Innlent Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Fleiri fréttir Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað Sjá meira