Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ingibjörg liggur undir feldi Ingibjörg Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verzlunarmanna og varaforseti ASÍ, íhugar nú stöðu sína vegna komandi formannskjörs í ASÍ. Nýr formaður verður kosinn á ársfundi sambandsins í október. Stjórnir VR og LÍV skoruðu í dag á Ingibjörgu að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. 2.9.2008 17:38
Öryggi verður tryggt komi til verkfalls ljósmæðra Mönnun á fæðinga- og sængurlegudeild Landspítala verður með eðlilegum hætti komi til aðgerða ljósmæðra og neyðarþjónusta yrði veitt í heimabyggð svo sem lög kveða á um. Þetta kemur fram í tilkynningu sem heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér fyrir stundu. 2.9.2008 17:31
Grunuðum kynferðisbrotamanni sleppt Þrjátíu og þriggja ára gömlum karlmanni, sem handtekinn var í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um kynferðisbrot gegn fósturdóttur sinni, hefur verið sleppt. 2.9.2008 17:24
Nær jafnmargir með og á móti umhverfismati Bakkaálvers Capacent kannaði í síðasta mánuði afstöðu almennings til uppbyggingar álvera, orkufreks iðnaðar og ákvörðunar Þórunnar Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, að framkvæmdir við fyrirhugað álver Bakka við Húsavík fari í sameiginlegt umhverfismat. 2.9.2008 16:55
Tíu stútar teknir um helgina Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, fimm á laugardag og fjórir á sunnudag. 2.9.2008 16:44
Flensan komin til landsins? Inflúensa af B-stofni greindist í eins árs gamalli stúlku frá Hafnarfirði í lok nýliðins ágústmánaðar. 2.9.2008 16:38
Samfylkingarkonur skora á ríkisstjórnina vegna kjaradeilu Kvennahreyfing Samfylkingarinnar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna kjaradeilu ríkisins og ljósmæðra. Einnig lýsir hreyfingin yfir þungum áhyggjum af öryggi fæðandi kvenna og nýbura. 2.9.2008 16:22
Tíu Íslendingar sýktust af salmonellu á hóteli á Ródos Tíu manns greindust með salmonellu hér á landi seinni hluta ágústmánaðar eftir að hafa dvalið á sama hótelinu á grísku eyjunni Ródos í lok júlí og í fyrri hluta ágúst. 2.9.2008 16:11
Reyna að tryggja fæðingarhjálp á Suðurlandi Reynt verður að tryggja fæðingarhjálp á fæðingardeildinni á Selfossi þrátt fyrir boðað verkfall ljósmæðra 4. og 5. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Magnúsi Skúlssyni, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. 2.9.2008 16:05
AFL kærir þýska vertinn AFL starfsgreinafélag hefur kært árás vertsins á Cafe Margret á Breiðdalsvík, Horst Muller, á Sverri Má Albertsson framkvæmdastjóra félagsins. Í frétt í 24 stundum á dögunum greint frá því að veitingamaðurinn borgi veitingastúlkum sínum lág laun auk þess sem þau séu ekki gefin upp til skatts. Í fréttinni var vitnað í Sverri og sárnaði Horst það svo mjög að hann lagði á sig 160 kílómetra ökuferð til þess eins að ráðast á hann. 2.9.2008 15:21
Ingibjörg: „Lítið hald í hávaðanum“ Inbibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar sagði í sinni ræðu á Alþingi í dag að það væri „lítið hald í hávaðanum“ og átti þar við ræðu Steingríms J. Sigfússonar sem talaði á undan henni. Hún gagnrýndi stjórnarandstöðuna og sagði að í þeirra málatilbúnaði væri meira um upphrópanir og fátt um lausnir. 2.9.2008 14:46
Guðni: Lýsir fullri ábyrgð á hendur Sjálfstæðisflokki Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi áðan lýsa fullri ábyrð á hendur Sjálfstæðisflokknum vegna stöðunnar í efnahagsmálum. „Ég þekki ekki Sjálfstæðisflokkinn fyrir þann flokk sem ég vann með," sagði Guðni og bætti við að þá þorði flokkurinn á takast á við mál. 2.9.2008 14:43
Ólafur jós svívirðingum yfir Vilhjálm á borgarstjórnarfundi Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarstjóri jós svívirðingum yfir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson forseta borgarstjórnar úr ræðustól í ráðhúsi Reykjavíkur í dag. 2.9.2008 14:33
Steingrímur: Geir boðar kjaraskerðingu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, boði kjaraskerðingu og svo virðist sem að launamenn eigi að taka efnahagsvandann alfarið á sig. Hann segir að launamenn fái enga kauphækkun á móti 14,5 prósent verðbólgu. Þetta kom fram í ræðu Steingríms á Alþingi áðan í umræðum um skýrslu forsætisráðherrra um efnahagsmál. 2.9.2008 14:19
Gjaldeyrisvaraforðinn styrktur um 30,5 milljarða Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að yfirvegaðar aðgerðir séu mikilvægari en upphrópanir. Alþingi koman saman að nýju í dag eftir að því var frestað í maílok. Skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál var eina málið á dagskrá. Í ræðunni tilkynnti Geir að ríkisstjórnin hyggist taka 250 milljóna evru lán til þess að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. 2.9.2008 14:05
Forseti borgarstjórnar verið með bílstjóra í áratugi Það er ekki nýtilkomið að forseti borgarstjórnar skuli hafa aðgang að bifreið og bílstjóra, að sögn skrifstofustjóra borgarstjórnar. Nokkur umræða hefur spunnist um einkabílstjóra borgarstjórnar undanfarið en Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar segir að þetta fyrirkomulag hafi tíðkast í fjöldamörg ár eða áratugi. 2.9.2008 13:21
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn heyrnarskertri konu Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag sýknaður af ákærum um að hafa nýtt sér ölvunarástand heyrnarskertrar konu til þess að hafa samfarir við hana. 2.9.2008 13:10
Umferð dregst saman fimmta mánuðinn í röð Fimmta mánuðin í röð dregst umferð saman. Þó dró örlítið minna úr umferð í ágústmánuði en mánuðina á undan þegar umferðin dróst saman um allt að 5,6 prósent í júní sé miðað við mánuðina á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar. 2.9.2008 12:59
Þingmenn og ráðherrar verði skyldaðir til að opinbera fjárhagsleg tengsl Mikilvægt er að þingmenn og ráðherrar séu skyldaðir til að gera opinber öll fjárhagsleg tengsl til að auka trúverðugleika stjórnmálamanna að mati varaformanns Vinstri grænna. Samfylkingin útilokar ekki að slíkt verði gert að skyldu en sjálfstæðismenn eiga enn eftir að taka afstöðu til málsins. 2.9.2008 12:30
Hátt í fjórðungi félagsmanna í FÍA verið sagt upp Flugfélag Íslands sagði upp fjórum flugmönnum um mánaðamótin og hefur þá samtals sagt upp fimmtán flugmönnum á árinu. 2.9.2008 12:15
Búið að sprengja 80 prósent af Héðinsfjarðargöngum Búið er að sprengja tæp 80% af Héðinsfjarðargöngum. Göngin verða dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir en óljóst er hvort aukakostnaður skellur á ríkinu eða verktökum. 2.9.2008 12:09
Tveir yfirheyrðir vegna mannsláts á Skúlagötu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu yfirheyrir nú tvo menn vegna rannsóknar á andláti manns, sem fannst látinn á heimili sínu við Skúlagötu í Reykjavík í gærkvöldi,- með höfuðáverka. 2.9.2008 12:03
Vill láta kjósa um framtíð flugvallar í mars á næsta ári Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins og fyrrverandi borgarstjóri, vill að kosið verði á ný í mars á næsta ári um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Þá vill hann að allar upplýsingar um kostnað vegna kjörinna fulltrúa og embættismanna Reykjavíkurborgar og fyrirtækja í hennar eigu verði lagðar fram. 2.9.2008 11:53
Össur atast í stjórnarandstöðunni Iðnaðarráðherra sendir forystumönnum stjórnarandstöðuflokkanna tóninn í nýjum pistli á heimasíðu sinni. Þing hefst í dag að nýju eftir að því var frestað í maílok. Skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál er eina málið á dagskrá. 2.9.2008 11:49
Frávísunarmálflutningi í máli á hendur Jóni Ólafssyni frestað Ákveðið var að fresta frávísunarmálflutningi í máli Ríkislögreglustjóra á hendur Jóni Ólafssyni athafnamanni og þremur öðrum þegar fyrirtaka var í málinu í dag. 2.9.2008 11:25
Nafnleynd umsækjenda ámælisverð Álfheiður Ingadóttir segir ámælisvert að umsækjendum um forstjórastöður opinbera fyrirtækja sé heitið nafnleynd. ,,Stjórnsýslan á að vera gagnsæ í orkufyrirtækjum í eigu almennings. Það eiga ekki að vera neinar undantekningar þar." 2.9.2008 11:16
Bjargað úr brennandi báti á Skjálfanda Mannbjörg varð í morgun þegar tveimur skipverjum af fiskibátnum Sigurpáli ÞH-130 var bjargað af brennandi báti á Skjálfanda. 2.9.2008 11:10
Forsetinn fundaði með Jórdaníukonungi Orkumál og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna var meðal þess sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Abdullah annar Jórdaníukonungur ræddu á fundi sínum nýverið. 2.9.2008 10:18
Björgvin fundar með Darling í London Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fundar með Alistair Darling fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands í London í dag. 2.9.2008 10:07
Hafði verið saknað í þrjá daga Maðurinn sem fannst látinn í íbúð sinni við Skúlagötu í gærkvöld fannst ekki fyrr en vinir hans voru farnir að hafa áhyggjur af honum. Þeir höfðu þá ekki heyrt í manninum í þrjá daga. Þetta segir nágranni mannsins sem Vísir ræddi við í morgun. 2.9.2008 10:06
Flókið að setja nætursjónauka í þyrlur Gæslunnar Aðeins er nætursjónauki í einni af þrem þyrlum Landhelgisgæslunnar. Hafinn er undirbúningur þess að setja sjónauka í aðra þyrlu, en ekki er til fé fyrir þá þriðju eins og málin standa nú. 2.9.2008 09:57
Nærri fimm þúsund fleiri fluttu til landsins en frá því Ríflega 4700 fleiri fluttu til landsins en frá því á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Nema aðfluttir umfram brottflutta á þessum tíma um einu og hálfu prósenti af íbúafjölda landsins. 2.9.2008 09:06
Botninn er dottinn úr síldar- og makrílveiðunum Botninn er dottinn úr síldar- og makrílveiðunum og eru veiðiskipin nær öll á landleið. 2.9.2008 07:55
Leitað að þjófi sem rændi N1 í Kópavogi Þjófur laumaðist í peningakassann í verslun N- eins við Stóra Hjalla í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi og komst á brott með tugi þúsunda króna. 2.9.2008 07:54
Fjórar verðandi mæður fluttar með sjúkrabílum í nótt Fjórum nýjum þjóðfélagsþegnum lá svo á í heiminn á höfuðborgarsvæðinu í nótt að hringt var á sjúkrabíla til að flytja mæðurnar á fæðingardeildina. 2.9.2008 07:27
Lögreglan rannsakar andlát við Skúlagötuna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort áverkar á höfði manns, sem fannst látinn í íbúð sinni við Skúlagötu í Reykjavík um kvöldmatarleitið í gær, kunni að vera af manna völdum. 2.9.2008 07:21
Efnahags- og atvinnumál verða áberandi á haustþingi Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir að alvarleg staða í atvinnumálum þjóðarinnar og bágborið efnahagsástand verði megin umræðuefnið á þingfundum sem fram fara næstu tvær vikurnar. 1.9.2008 22:03
Hanna Birna: Tíminn vinnur með okkur „Þetta er allt á réttri leið og augljóst að tíminn vinnur með okkur. Ég átti alltaf von á því að það tæki tíma að vinna fylgið aftur," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir um nýja skoðanakönnun á fylgi við meirihluta Sjálfstæðisflokks og framsóknarmanna í borgarstjórn. 1.9.2008 20:54
Einhugur á félagsfundi ljósmæðra Ljósmæður sjá fram á að þurfa að beita þeim neyðarrétti sem verkfallsaðgerðir eru en vilji ljósmæðra er eftir sem áður að semja sem fyrst. Þetta segir í ályktun sem samþykkt var við dynjandi lófatak á félagsfundi Ljósmæðrafélagsins nú undir kvöld. 1.9.2008 21:45
Bílvelta á Skógarstrandavegi Smábíll velti á Skógarstrandavegi, í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi, um klukkan hálffjögur í dag. Einn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi en ekki er ljóst hversu mikil meiðsl hans voru. 1.9.2008 22:27
Samfylkingin mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin nýtur meira fylgis en Sjálfstæðisflokkurinn á landsvísu. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem Ríkisútvarpið sagði frá. 1.9.2008 18:13
Sviku fé út af kortum Skagfirðinga Lögreglan á Sauðárkróki rannsakar ásamt lögreglunni á Akureyri hvernig glæpamönnum tókst að svíkja um tvær milljónir króna út af kreditkortum. Svo virðist sem að þeir hafi komist yfir kreditkortanúmerin í Skagafirði og notað þau svo til að kaupa vörur í Bandaríkjunum. 1.9.2008 18:30
Helmingur ökumanna ók of hratt í skólahverfi Þrjátíu og þrír ökumenn óku of hratt í Breiðumýri á Álftanesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðumýri í suðurátt, á móts við Álftanesskóla í eina klukkustund eftir hádegi. 1.9.2008 17:46
Mikill áhugi í Afríku á samstarfi við Ísland í orkumálum Mikill áhugi er í Afríku á samstarfi við Ísland í orkumálum og kom sá áhugi skýrt fram ráðstefnu um þróun vistvænnar orku í álfunni sem haldin var í dag í höfuðstöðvum Afríkusambandsins í Addis Ababa. 1.9.2008 16:47
Indverskur gúru vill messa við setningu Alþingis Indverskur trúarleiðtogi, Rajan Zed að nafni, hefur óskað eftir því að hann fái að fara með bænir úr fornum trúarritum hindúa fyrir setningu Alþingis þann 1. október næstkomandi. Frá þessu er greint á vefmiðlinum merinews.com. Þar er sagt frá því að Zed hafi borist svar við fyrirspurn sinni frá Þorsteini Magnússyni, aðstoðarskrifstofustjóra Alþingis, þar sem beiðninni er hafnað. 1.9.2008 16:41