Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Magnaðar skjálftamyndir úr öryggismyndavél á Selfossi „Aðkoman var auðvitað ekki góð, það hafði hrunið úr hillum og aðeins úr loftunum,“ segir Guðmundur Elíasson stöðvarstjóri á þjónustustöð N1 á Selfossi. Vísir yfir undir höndum myndir úr öryggismyndavél stöðvarinnar þegar skjálftinn reið yfir. Starfsstúlka átti fótum sínum fjör að launa. 30.5.2008 17:11
Innilegt þakklæti til allra sem aðstoðað hafa bæjarbúa Á fundi bæjarstórnar Hveragerðis í dag var eftirfarandi bókun samþykkt. Bæjarstjórn Hveragerðis vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra björgunar- og viðbragðsaðila sem hafa aðstoðað bæjarbúa í þeim atburðum sem dunið hafa yfir undanfarinn sólarhring. 30.5.2008 18:44
Stærsti samningur OR frá upphafi Í dag var skrifað undir stærsta samning sem Orkuveita Reykjavíkur hefur gert frá upphafi. Samningurinn er gerður við fyrirtækin Mitsubishi og Balcke-Dürr um kaup á fimm vélasamstæðum fyrir gufuaflsvirkjanir á Hengilssvæðinu. 30.5.2008 18:25
Guðmundur: Sáttur við að bera ekki ábyrgð á núverandi þróun Guðmundur Þóroddsson er hættur sem forstjóri REI. Sú ákvörðun var tekin á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur í dag og staðfesti Guðmundur það í samtali við Vísi. 30.5.2008 16:12
Kraftaverkin gerast enn Þrátt fyrir að meirihluti frétta frá Suðurlandi undanfarinn sólarhring hafi verið fremur neikvæðar má einnig finna jákvæðar fréttir. Þannig hefur Vísi borist fregnir af heimili Hrafnhildar Ingibergsdóttur við Grundartjörn á Selfossi sem varð ekki fyrir einu einasta hnjaski í jarðskjálftanum. Þegar skjálftinn fór af stað hafði Hrafnhildur fimm mánaða gamlan son sinn í fanginu sem hún flýtti sér með út ásamt eldri syni sínum sem er fimm ára. 30.5.2008 17:23
Spyrja hvort Guðmundur Þóroddsson sæti pólitískri ábyrgð Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboð spyrja hvort fulltrúar sjálfstæðismanna í Orkuveitu Reykjavíkur séu að láta starfsmann Orkuveitunnar axla ábyrgð á eigin mistökum og innanflokksátökum. 30.5.2008 16:51
Trúir ekki að þetta sé tónninn í Ýmismönnum Undrun, segir Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, eru fyrstu viðbrögðin við afstöðu forsvarsmanna Siglingafélagsins Ýmis. 30.5.2008 16:09
VÍS með opið alla helgina vegna skjálftans VÍS hefur ákveðið að bregðast við miklu álagi og eftirspurn eftir þjónustu og ráðgjöf vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi í gær. Því verða skrifstofur félagsins á Selfossi og í Hveragerð og þjónustuver VÍS í síma 5605000 opin bæði laugardag og sunnudag frá klukkan 9-17. 30.5.2008 20:47
Fjölda gæludýra saknað í Hveragerði Linda Gísladóttir, sem búsett er í Hveragerði, hafði samband við Vísi og sagði frá því að fjölda gæludýra væri saknað í bænum. Styggð hafi komið að þeim í skjálftanum í gær og að til margra þeirra hefði ekki enn spurst. „Ég er með kött á heimilinu sem lét sig hverfa um leið og skjálftinn reið yfir,“ segir Linda. „Hann er einn af þessum köttum sem kemur til manns um leið og maður kallar en ég hef leitað hans síðan í gærkvöldi án árangurs.“ 30.5.2008 16:17
Skortur á skyri vegna skjálftans Starfsstöð Mjólkursamsölunnar á Selfossi varð fyrir barðinu á skjálftanum í gær. Þá féllu til tankar í svokallaðri skyrgerð og því má búast við skorti á skyri sem framleitt er á Selfossi á næstu dögum. Páll Vilhjálmsson framkvæmdarstjóri framleiðslusviðs Mjólkursamsölunnar segir fyrirtækið strax hafa farið í að koma upp öðrum tönkum. 30.5.2008 16:11
Guðmundur snýr ekki aftur í forstjórastól OR Guðmundur Þóroddsson, núverandi forstjóri REI, snýr ekki aftur í forstjórastól OR líkt og hugmyndir voru uppi þegar hann tók sér sjö mánaða leyfi sem forstjóri OR í byrjun september á síðasta ári til að sinna REI. 30.5.2008 15:58
Draga lærdóm af skjálftunum árið 2000 Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að aðgerðir viðbragðsaðila í tengslum við jarðskjálftanna í gær hafi heppnast mjög vel. Hann segir að fullt traust hafi ríkt á milli allra aðila sem komu að björgunarstarfi. 30.5.2008 15:32
Nýr meirihluti í Dalabyggð Meirihlutinn í Dalabyggð sprakk á fundi bæjarráðs í gær. Meirihlutinn hafði verið í höndum H-lista og N-lista frá 2006 en að sögn Þórðar Ingólfssonar, oddvita H-lista, náðist þá samkomulag um að oddviti N-lista, Gunnólfur Lárusson, myndi sinna starfi sveitarstjóra til tveggja ára. 30.5.2008 15:07
Konur í Frjálslyndaflokknum ætla að mótmæla á Sjómannadag Landsamband kvenna í Frjálslyndaflokknum hefur sent frá tilkynningu þar sem það boðar til mótmæla á sjómannadaginn gegn því sem þær kalla mannréttindabrot stjórnvalda í fiskveiðistjórnunarkerfinu. Er ætlun Landsambandsins að safnast saman fyrir framan Stjórnarráðið á sunnudag og ganga að hafnarbakkanum þar sem hátíðahöld sjómannadagsins fara fram. 30.5.2008 14:48
Eftirskjálftamyndbönd Íbúar í nágrenni skjálftans komu magir hverjir að heimilum sínum í rúst. Eyðileggingin er greinilega mikil og mikið verk er framundan hjá mörgum. 30.5.2008 13:56
Fjögurhundruð björgunarsveitamenn voru að störfum Um það bil tveimur tímum eftir skjálftann í gær var kominn mikill fjöldi björgunarsveitafólks á svæðið með ýmsan búnað. Þegar mest var voru um 400 björgunarsveitarmenn að störfum, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. 30.5.2008 13:49
Fræðslufundir í Hveragerði og á Selfossi voru haldnir í dag Áfallateyni Rauða krossins stóð fyrir fræðslufundum Í Hveragerði og á Selfossi fyrir þá sem lentu í skjálftanum í gær. Á fundina komu einnig fulltrúar bæjarfélagana til að ræða við íbúana. 30.5.2008 13:45
Eyjamenn leggja mikla áherslu á ferju í júlí 2010 „Við fögnum því auðvitað að það sé einhver niðurstaða að koma í þetta og þrátt fyrir að hafa verið bjóðendur í málinu ásamt Vinnslustöðinni höfum við alltaf litið á þetta sem tvö aðskilin mál 30.5.2008 13:27
Mikið álag á farsímakerfi Alls voru GSM símtöl hjá Vodafone um 260 þúsund talsins á fyrstu klukkustundinni eftir skjálftann. Álagið á GSM kerfið minnkaði eftir því sem leið á daginn og var notkunin að mestu komin í eðlilegt horf um kl. 19. GSM samband hélst á öllu skjálftasvæðinu, en tímabundnar truflanir á rekstri fáeinna senda ollu skertu GSM sambandi innanhúss um stund. Tímabundnar truflanir urðu hins vegar á fastlínuþjónustu á Selfossi, vegna rofs á ljósleiðara hjá Mílu hf. en viðgerð á honum gekk vel og var ljósleiðarinn komin í gagnið um kl. 20:30 í gær. 30.5.2008 13:10
Húðflúrstofa Ragnars fór í rúst Það fór allt um koll á húðflúrstofu Ragnars Haukssonar á Selfossi í skjálftanum í gær. „Þetta er rosalega skrýtin tilfinning maður. Það er allt farið, bara eins og hendi væri veifað," sagði Ragnar í samtali við Vísi. 30.5.2008 13:07
Rice: Engin mannréttindabrot framin í Guantanamo Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna hélt blaðamannafund í Höfða í kjölfar fundar hennar og Ingibjargar Sólrúnar utanríkisráðherra. Á fundinum var Rice meðal annars spurð út í fréttir þess efnis að utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hafi dregið til baka Fulbright styrki til handa palestínskum börnum á Gasa svæðinu. Frá þessu var greint í International Herald Tribune í dag. Rice sagðist ekki hafa heyrt af málinu og hét því að það yrði kannað ofan í kjölinn. 30.5.2008 12:45
Fallið frá hugmyndum um Vestmannaeyjaferju í einkaframkvæmd Ríkisstjórnin hefur að tillögu samgönguráðherra ákveðið að falla frá hugmyndum um smíði Vestmannaeyjaferju í einkaframkvæmd. 30.5.2008 12:17
Dýrin tóku skjálftanum misvel Oft er sagt að dýr hagi sér undarlega rétt fyrir stóra jarðskjálfta og að þau finni á sér að jarðhræringar séu væntanlegar. Nú þegar hafa fregnir borist af því að hestar hafi byrjað að stappa niður hófum sínum rétt áður en jarðskjálftinn reið yfir í gær. 30.5.2008 12:02
Eins og eftir loftárás „Allir vinna nú eins og einn maður að því að koma daglegu lífi í eðlilegt horf,“ segir Eyþór Arnalds, bæjarstjórnarfulltrúi Árborgar. Þegar Vísir náði tali af Eyþóri var hann að ganga út af fundi með bæjarstarfsmönnum þar sem farið var yfir stöðuna. 30.5.2008 11:59
Dóttirin varð næstum undir bókaskáp (Kúlumynd) Jóhann Karlsson íbúi í Hveragerði fékk símhringingu frá dóttur sinni laust fyrir klukkan fjögur í gærdag. Hann var þá staddur í Reykjavík, en dóttirin á heimili fjölskyldunnar að Kambahrauni 43 í Hveragerði. 30.5.2008 11:57
Áfallateymi Rauða krossins heldur fundi í Hveragerði og á Selfossi Áfallateymi Rauða krossins heldur fundi fyrir íbúa á Suðurlandi nú eftir hádegið. Á Selfossi hefst fundurinn kl. 12:30 í fjöldahjálparhjálparstöð Rauða krossins í Vallarskóla. Þar verða einnig fulltrúar frá bæjaryfirvöldum til að ræða við íbúana. 30.5.2008 11:51
Verulega ósáttir við aðstöðuleysi siglingafélags Forsvarsmenn Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi kveðast verulega óánægðir með að Kópavogsbær hafi svikið félagið um bráðabirgðaaðstöðu sem því hafi verið lofað þar til framkvæmdum lýkur við nýja aðstöðu félagsins Fossvogsmegin í Kópavoginum en hennar hefur verið beðið í sjö ár. 30.5.2008 11:26
Condoleezza komin í Höfða Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti Ingibjörgu Sólrúnu í Höfða fyrir stundu. Hún er hér í vinnuheimsókn og mun einnig ræða við Geir H. Haarde forsætisráðherra. 30.5.2008 11:13
Þjónustumiðstöð sett á laggirnar vegna jarðskjálftans Geir Haarde forsætisráðherra ræddi atburði gærdagsins að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. „Við fengum þrjá gesti á fundinn til að fara yfir stöðuna og nýjustu upplýsingar,“ sagði Geir. Ákveðið hefur verið að tillögu dómsmálaráðherra að setja á laggirnar tímabundna þjónustumiðstöð sem verður sá aðili sem allir geta leitað til og hafa mun á höndum miðlæga veitingu á upplýsingum og þjónustu. 30.5.2008 11:13
Sumarbústaðaeigendur varaðir við gasleka Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri til sumarbústaðaeigenda og annarra húseigenda á jarðskjálftasvæðinu: 30.5.2008 11:08
Aðgerð Norvikur gæti stangast á við samkeppnislög Ekkert ólögmætt þarf að vera við aðgerð Norvíkur ehf. þegar dótturfyriræki þess sendu bréf til birgja og þjónustuaðlila sinna þess efnis að fyrirtækin hefðu einhliða lengt greiðslufrest sinn til að tryggja skilvirkari greiðslu. Þetta er mat Sigurðar Líndal, lagaprófessors, sem þó telur að aðgerð Norvíkur gæti stangast á við samkeppnislög þar sem fyrirtækið sé að nýta sér markaðsráðandi stöðu. 30.5.2008 10:25
Glerverksmiðja á Hellu slapp vel Óhætt er að segja að betur hafi farið en á horfðist í Glerverksmiðjunni Samverki á Hellu í jarðskjálftanum í gær en þar brotnaði ekki neitt. 30.5.2008 10:23
Ingibjörg og Geir ætla austur í dag Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra er farin af ríkisstjórnarfundi sem nú stendur yfir. Hún segir að Ríkisstjórnin hafi fengið greinargóðar upplýsingar um stöðu mála fyrir austan fjall frá þeim sem farið hafa fyrir aðgerðum á svæðinu. 30.5.2008 10:11
Lokað í Vínbúðum á Selfossi og Hveragerði Lokað verður í dag í Vínbúðunum á Selfossi og í Hveragerði vegna rasks sem varð af völdum jarðskjálftans í gær. 30.5.2008 09:56
Metið hvort fólki sé óhætt að vera í húsum sínum Almannavarnanefnd Árborgar og nágrennis kom saman til fundar kl. 8:00 í morgun og tók eftirfarandi ákvörðun: 30.5.2008 09:32
Menningarsjóður styrkir íslenska hátíð í Vasa Norræni menningarsjóðurinn mun veita 3 milljón króna styrk til að halda íslenska menningarhátíð í Vasa í Finnlandi í apríl 2009. 30.5.2008 07:30
Hundrað sjálfboðaliðar Rauða krossins stóðu vaktina í nótt Rúmlega hundrað sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa staðið vaktina í fjöldahjálparstöðvum við íþróttamiðstöðina í Hveragerði og í Vallarskóla á Selfossi í alla nótt og veittu meðal annars áfallahjálp. 30.5.2008 06:42
Samtals slösuðust 28 í jarðskjálftanum Samtals slösuðust 28 í jarðskjálftanum þar af voru 21 með minniháttar meiðsl. 7 leituðu aðstoðar á slysadeild. 30.5.2008 05:36
Þriggja mánaða vanskil aukast „Þessar tölur bera augljóslega með sér að vanskil eru að aukast, en þetta er langt frá því versta sem við höfum séð,“ segir Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs. 30.5.2008 00:01
Nýr leirhver við Hveragerði Það er þekkt að við jarðskjálfta geta hverasvæði breyst og virkni þeirra ýmist aukist eða minnkað. Í jarðskjálftanum í dag hefur nýr leirhver myndast rétt norður af Garðyrkjuskólanum í Hveragerði. Gosið í leirhvernum hefur farið vaxandi og eru gos í allt að 10 - 12 metra hæð. Varasamt getur verið að fara of nálægt hvernum þar sem gosin i honum eru ekki regluleg og leir slettist í allar áttir. 29.5.2008 23:15
Fjöldahjálparstöðvar opnar í Hveragerði og á Selfossi í nótt Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins verða opnar í Hveragerði og á Selfossi í nótt. Lítil ásókn hefur verið í fjöldahjálparstöðvarnar í nágrannabæjunum, og hefur því verið ákveðið að loka á Hvolsvelli, Hellu, Þykkvabæ, Stokkseyri og Eyrarbakka fyrir miðnætti. 29.5.2008 22:23
Unnið að því að ná yfirsýn yfir stöðu mála Í Samhæfingarstöðinni er nú unnið að því að ná yfirsýn yfir stöðu mála á Suðurlandi. 29.5.2008 21:36
Geislafræðingar við það að semja Allt bendir til þess að geislafræðingar nái samkomulagi við stjórnendur Landspítalans í kvöld. Þeir höfðu hótað uppsögnum ef staðið yrði við fyrirhugaðar breytingar á vaktakerfi en Kristín Þórmundsdóttir sagði að samkoulag væri í burðarliðnum sam báðir aðilar gætu sætt sig við. 29.5.2008 21:23
Almannavarnarnefnd: Fólki heimilt að snúa aftur heim Að mati sérfræðinga eru minni líkur en meiri á því að eftirskjálftar af þeirri stærð þess sem gekk yfir í dag muni fylgja. 29.5.2008 20:36
Skjálftinn á Suðurlandi - Yfirlit Jarðskjálfti sem mældist 6.3 á Richter skók Suðurland í gær. Tæplega þrjátíu manns slösuðust, þó enginn alvarlega. Flestir þeirra sem meiddust hlutu skurði og skrámur en eitthvað var um beinbrot. 29.5.2008 23:03