Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki ólíklegt að Sjálfstæðisflokkur klofnaði vegna ESB Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir ekki ólíklegt að Sjálfstæðisflokkurinn myndi klofna ef kæmi til umræðu um aðild að Evrópusambandinu. Málið gangi þvert á alla flokka og þjóðin myndi skiptast í fylkingar. Þetta sagði ráðherra í viðtali við Sigmund Erni Rúnarsson í Mannamáli í kvöld. Björn segir gallann á umræðunni um ESB vera þann að vegvísi vanti eins og notast sé við þegar leysa eigi alþjóðadeilur. 16.3.2008 19:36
Grunur um íkveikju í fjölbýlishúsi í Breiðholtinu Grunur leikur að kveikt hafi verið í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í morgun þar sem hátt í tvö hundruð manns búa. Engum varð meint af en íbúar í húsinu hafa farið fram á að íbúðin verði seld þar sem óregla sé á leigjendum þar. 16.3.2008 18:53
Stúlkan frá Bitrufirði ekki alvarlega slösuð Átta ára gömul stúlka sem flutt var á með þyrlu á slysadeild Landspítalans í Fossvogi frá Bitrufirði eftir slys í dag reyndist ekki alvarlega slösuð. Stúlkan og maður skullu saman þar sem þau voru að renna sér á plastpokum. Manninn sakaði ekki en grunur lék á áverkum á hálsi, höfði og brjóstkassa stúlkunnar samkvæmt upplýsingum sjúkraflutningamanna á Hólmavík. 16.3.2008 15:11
Ný flugstöð útilokar samgöngumiðstöð Unnt er að hefja smíði samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli innan fárra mánaða. Hún er hins vegar úr myndinni ef ráðist verður í smíði flugstöðvar við gömlu Flugfélagsafgreiðsluna, að mati stjórnarformanns Flugstoða, sem segir menn verða að velja þar á milli. 16.3.2008 19:23
Skattleysismörk helmingi hærri ef persónuafsláttur hefði fylgt launavísitölu Skattleysismörk væru nærri helmingi hærri í dag ef persónuafsláttur hefði fylgt launavísitölu síðastliðin tólf ár samkvæmt útreikningum ASÍ. 16.3.2008 19:15
Fermingarbörnin vonast eftir tölvum Að muna trúarjátninguna var mesta áhyggjuefni hjá fermingarbörnum í Háteigskirkju í dag og flest vonuðust þau eftir tölvum í fermingargjöf. 16.3.2008 19:04
Aflaverðmæti upp á 250 milljónir króna Frystitogarinn Venus kom til hafnar í Reykajvík í dag með afla að verðmæti 250 milljónum króna. Hásetahluturinn einn nemur tveimur og hálfri milljón króna. 16.3.2008 19:00
Engin vörubretti þrátt fyrir fjárstyrk Enn hafa engin vörubretti verið framleidd í Mývatnssveit. Hratt gengur á opinbert fé sem fékkst til framleiðslunnar og lýsa heimamenn vonbrigðum. 16.3.2008 17:00
Skoskir bændur hægðu á netsambandi frá landinu Vorverk skoskra bænda orsökuðu bilun til á ljósleiðara sem olli töfum á netumferð til og frá landinu um FARICE-1 sæstrenginn frá Skotlandi. Í tilkynningu frá FARICE segir að girðingarvinna bændanna hafi orsakað bilunina. 16.3.2008 16:44
Loðnuskip kasta í einum hnapp Sex loðnuskip eru nú að veiðum nánast á sama punktinum við Vestmannaeyjar. 16.3.2008 16:35
Stúlka meiddist í Bláfjöllum Níu ára gömul stúlka datt á skíðum í Bláfjöllum á öðrum tímanum í dag og meiddi sig á hálsi. Sjúkralið var kallað á vettvang. Meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg að sögn Einars Bjarnasonar verkstjóra Skíðasvæðisins í Bláfjöllum. Hann segir að stúlkan hafi verið með meðvitund og getað hreyft útlimi. Hún væri í lagi að öðru leiti en því að hún fyndi fyrir höfuðverk. Ávallt væri þó sent eftir sjúkraliði í tilfellum sem þessum. 16.3.2008 14:22
Greiðlega gekk að slökkva eld á Eiðistorgi Allt tiltækt lið Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag vegna elds á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi. Eldur logaði í þaki og þurfti að rífa það frá til að komast að eldinum. Greiðlega gekk að slökkva hann en ekki er á þessari stundu ljóst með tjón. 16.3.2008 13:58
Ekið á bifhjólamann á Miklubraut Tveir menn voru fluttir á slysadeild eftir að bifreið ók á bifhjól á Miklubraut til móts við Réttarholtsveg á öðrum tímanum í dag. Hluta Miklubrautar var lokað vegna slyssins á meðan lögregla og sjúkralið unnu á staðnum. Mennirnir eru ekki alvarlega slasaðir samkvæmt heimildum vakthafandi læknis á slysadeild. 16.3.2008 13:26
Maðurinn kominn í leitirnar Maðurinn sem Lögreglan á Akranesi lýsti eftir fyrr í morgun er kominn í leitirnar. Maðurinn Hafsteinn Erlendsson fannst á bíl sínum á Sandskeiði samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hafði ekið heiman frá sér eftir hádegi í gær en ekki sést síðan. 16.3.2008 12:54
Viðgerð stendur yfir á ljósleiðara Enn stendur yfir viðgerð á ljósleiðara fyrir sambönd FARICE í Skotlandi og er ekki búist við að viðgerð ljúki fyrr en síðdegis í dag. Bilunin hefur m.a. haft þau áhrif að öll netumferð frá Íslandi og Færeyjum er hægvirkari en ella. 16.3.2008 12:23
Ráðuneyti getur ekki stöðvað framkvæmdir í Helguvík Umhverfisráðuneytið getur ekki stöðvað byggingu fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Framkvæmdirnar geta hægt á stýrilækkunarferli Seðlabankans, en fjármálaráðherra segir þær nauðsynlega innspýtingu í efnahagslífið. 16.3.2008 12:10
Lýst eftir manni frá Akranesi Lögreglan á Akranesi lýsir eftir karlmanni á áttræðisaldri Hafsteini Erlendssyni. Hafsteinn ók heiman frá sér eftir hádegi í gær en hefur ekki sést síðan. 16.3.2008 11:35
„Austurríki ekkert miðað við Bláfjöll um helgina“ Frábær mæting var á skíðasvæðið í Bláfjöllum í gær. Þá mættu milli sjö og níu þúsund manns; „Í algjörri bongóblíðu og færi eins og það gerist best,“ segir Einar Bjarnason verkstjóri. Þrátt fyrir fjöldann mynduðust ekki miklar biðraðir, mestur var biðtíminn um fimm mínútur í nýju stólalyftunni í Kóngsgili. 16.3.2008 11:21
Eldsvoði í Hrafnhólum Eldur kviknaði í íbúð á annarri hæð í átta hæða fjölbýlishúsi í Hrafnhólum í Breiðholti í morgun. Allt tiltækt lið Slökkviliðsins var kallað út rétt eftir klukkan tíu og hefur þegar slökkt eldinn í íbúðinni sem var mannlaus. Mikinn reyk lagði frá íbúðinni og reykinn lagði einnig inn í stigahúsið. 16.3.2008 10:33
Ökumaður með 50 E-töflur innanklæða Fimmtíu E-töflur fundust á karlmanni á lögreglustöðinni á Akranesi eftir að hann var stöðvaður við hefðbundið umferðareftirlit seinnipartinn á föstudag. Þá vaknaði grunur hjá lögreglumönnum um fíkniefni og var maðurinn fluttur á lögreglustöðina. Eftir yfirheyrslu var manninum síðan sleppt. Málið er í rannsókn. 16.3.2008 10:22
Brotist inn í Lyfju og félagsmiðstöð á Skagaströnd Miklar skemmdir voru unnar í Lyfju á Skagaströnd í nótt og mikið magn lyfja tekið þegar brotist var þangað inn. Lögreglu var gert viðvart eftir að viðvörunarkerfi apóteksins fór af stað. Samkvæmt heimildum Lögreglunnar á Blönduósi var brotist inn í apótekið bakdyramegin. Innbrotsþjófurinn fór í gegnum glugga inn á gang þar sem hann braut sér leið inn um bakdyr apóteksins. 16.3.2008 10:13
Enn leitað að loðnu við Vestmannaeyjar Fimm loðnuskip eru enn við loðnuleit við Vestmannaeyjar en ekkert hefur sést í morgun, að sögn Sturlu Þórðarsonar, skipstjóra á Berki NK. Veiðin í gær út af Eyjafjöllum var nánast engin og telur Sturla að loðnuveiðin sé búin að þessu sinni, svo fremi sem ekki komi vesturganga. 16.3.2008 10:09
Tekinn á tvöföldum hámarkshraða Karlmaður á fimmtugsaldri var tekinn á tvöföldum hámarkshraða í Borgarnesi í gærkvöldi þar sem hámarkshraði er 50 km. Maðurinn missir ekki prófið en fær 60 þúsund króna sekt og fjóra refsipunkta í ökuferilsskrá. 16.3.2008 09:56
Fjögur líkamsárásarmál í Reykjavík Nokkuð var um slagsmál í miðborginni í nótt og komu fjögur líkamsárásarmál til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ekki hefur þó verið kært vegna þeirra. Fangageymslur í Reykjavík voru yfirfullar svo notast þurfti við fangageymslur í Hafnarfirði líka. Þannig gistu 15 manns fangageymslur, langflestir vegna ölvunar eða óspekta. 16.3.2008 09:49
Búið að rífa gömlu Nestis-bensínstöðina Gamla Nestisbensínstöðin norðan megin við Ártúnsbrekkuna í Reykjavík hefur verið rifin. Stöðin hefur staðið þar í yfir hálfa öld. Þar á að reisa 500 fermetra bensínstöð með skyndibitastöðum og verður hún svipuð bensínstöðinni sem nú er hinu megin við götuna. 16.3.2008 12:59
Eldur í tjaldi útigangsmanns í Laugardal Nú fyrir stundu var tilkynnt um eld í tjaldi á tjaldstæðunum í Laugardal. Lögregla og Slökkvilið eru á leið á staðinn. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er um að ræða tjald útigangsmanns. Ekki er ljóst hversu eldurinn er mikill á þessari stundu. 15.3.2008 19:37
Suðurstrandarvegur allur boðinn út Margsvikið kosningaloforð um Suðurstrandarveg kann loks að verða efnt. Samgönguráðherra lofar nú að vegagerðin í heild verði öll komin í útboð fyrir mitt þetta ár. 15.3.2008 18:58
Biðröð eftir notuðum hlutum Starfsfólk Góða hirðisins sér engin merki þess að farið sé að kreppa að í þjóðfélaginu enda berst þangað á hverjum degi mikið af veglegum hlutum. Viðskiptavinirnir bíða í röðum þegar verslunin er opnuð í von um að finna eitthvað einstakt. 15.3.2008 18:23
Stúlka féll sex metra úr rúllustiga Fjögurra ára gömul stúlka slasaðist þegar hún féll um sex metra niður úr rúllustiga í nýrri verslun Rúmfatalagersins á Glerártorgi á Akureyri í dag. Stúlkan var í fylgd ættingja þegar slysið varð. Hún var flutt á slysadeild í sjúkrabíl. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um líðan stúlkunnar en hún féll niður á teppalagt gólf. 15.3.2008 16:28
PFS greiðir almannatengslaráðgjöf Hrafnkels Hrafnkell Gíslason forstjóri Póst- og fjarkskiptastofnunar leitaði til almannatengils til að fá ráðgjöf með hvernig hann ætti að höndla umræðu um eineltismál á stofnuninni. Samkvæmt heimildum Vísis leitaði hann til Gunnars Steins Pálssonar almannatengils til að fá ráðgjöf um hvernig hann ætti að snúa sér varðandi það fjaðrafok sem málið hefur vakið í fjölmiðlum. 15.3.2008 15:29
Loðnuvertíðinni hugsanlega lokið Loðnuvertíðinni í ár er hugsanlega lokið. Tíu skip hafa í allan dag leitað í örvæntingu að loðnu undan Eyjafjöllum og fundið sáralítið. Torfa sem fannst síðdegis í gær við Vestmannaeyjar gaf smá von og fengu tvö skip, Álfsey og Huginn, ágætis afla eða um 400 tonna köst og þrjú önnur skip fengu reiting þar í gærkvöldi. Þetta varð til þess að loðnuflotinn færði sig af Faxaflóa yfir að suðurströndinni. 15.3.2008 18:41
Bilun í ljósleiðara hægir á netumferð Hægst hefur verulega á allri netumferð til og frá Íslandi vegna bilunar í ljósleiðara í Skotlandi nú síðdegis. Afkastageta sæstrengs er því aðeins um þriðjungur af því sem venjulegt er. Í tilkynningu frá Farice segir að bilunar sé leitað og upplýst verði síðar hve langan tíma viðgerð muni taka. 15.3.2008 18:36
Ólöglegt niðurhal kemur tón-og textahöfundum í uppnám Ólöglegt niðurhal af netinu hefur sett tónlistargeirann í uppnám, að mati formanns Félags tónskálda og textahöfunda, sem telur brýnt að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að slíkt sé stuldur, rétt eins og að stela úr verslunum. 15.3.2008 12:44
Vaðlaheiðargöng gera Norðurland að einu atvinnusvæði Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur segir að Vaðlaheiðargöng muni greiða fyrir álveri og gera Norðurland allt að einu atvinnusvæði. 15.3.2008 12:40
Ráðherra hrakti stjórnendur spítalans úr starfi Heilbrigðisráðherra hrakti lykilstjórnendur Landspítalans úr starfi til að koma einkavæðingaráformum sínum í framkvæmd. Þetta kemur fram í ályktun þingflokks vinstri grænna. Ráðherra hefur sýnt óeðlileg vinnubrögð og ljóta framkomu gagnvart virtum embættismanni að mati Valgerðar Sverrisdóttur. 15.3.2008 12:30
Harður árekstur við Súðarvog Harður árekstur varð nú réttt fyrir hádegi við Súðarvog og Sæbraut. Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru lögreglubílar og sjúkralið send á vettvang. Óskað hefur veirð eftir aðstoð tækjabíls. Fólksbíll og jeppi lentu saman. Ökumaður fólksbílsins var fluttur á börum í sjúkrabíl og færður á slysadeild. Lögregla er á staðnum og yfirheyrir vitni. 15.3.2008 12:19
Erfitt að meta hvort krónan haldi áfram að veikjast Sérfræðingar segja erfitt að segja til um hvort gengi krónunnar haldi áfram að veikjast eftir helgi en krónan hefur ekki verið veikari í sex ár. 15.3.2008 12:15
Telur ákvörðun um framkvæmdir í Helguvík sérkennilegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ákvörðun Norðuráls að hefja framkvæmdir við álver í Helguvík sérkennilega. Hún segir það sérstakt þegar ríkið og sveitarfélög ganga ekki í takt í svo veigamiklu máli. 15.3.2008 12:10
Kappakstur á Granda - tvö ungmenni misstu prófið Tvö ungmenni voru svipt ökuréttindum á staðnum í gær og í nótt eftir að hafa mælst á hundrað og tíu kílómetra hraða á Grandanum í Reykjavík. Annað þeirra var í kappakstri við aðra bifreið. 15.3.2008 12:03
Loðna veiddist í gær Þrátt fyrir að sjómenn hafi nánast verið búnir að afskrifa að meira veiddist af loðnu á þessari vertíð fannst loðna austan við Vestmannaeyjar seinnipartinn í gær. Sturla Þórðarson skipstjóri á Berki NK hefur verið á veiðum frá í fyrradag eftir að báturinn landaði í Helguvík. Hann segir að veiðin í gær hafi verið lítil og ekkert hafi veiðst í dag. 15.3.2008 10:33
Viðamikil snjóflóðaæfing björgunarsveita Viðamikil björgunaræfing fer fram ofan Sandskeiðs í dag og verða meðal annars tvær þyrlur á æfingunni, sem hefst upp úr klukkan tíu og stendur fram til klukkan tvö. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Landhelgisgæslan og greiningasveit Landspítala háskólasjúkrahúss æfa viðbrögð við snjóflóði og verður notast við búnað sem sérhannaður er til snjóflóðaleitar úr þyrlum en Landsbjörg færði Landhelgisgæslunni slíkan búnað að gjöf fyrir skömmu. 15.3.2008 10:13
Ekki á leið á Landspítalann Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ og fyrrverandi forstjóri Byko, þvertekur fyrir það að hún muni taka við starfi forstjóra Landspítalans. Eins og Fréttablaðið greinir frá í morgun hefur nafn Ásdísar Höllu ítrekað verið nefnt innan spítalans í umræðum um hver næsti stjórnandi spítalans verði. Þegar blaðamaður Vísis náði tali af henni í gærmorgun sagði slíkar vangaveltur ekki á rökum reistar. 15.3.2008 09:53
Flest skíðasvæði opin í dag Öll helstu skíðasvæði landsins eru opin í dag. Í Bláfjöllum og Skálafelli verður opið til klukkan sex en þar er um þriggja stiga frost og aðstæður til skíðaiðkunar með besta móti. 15.3.2008 09:50
Sveitarfélög á Suðurnesjum hafa áhyggjur af málum lögreglunnar Stjórn Samands sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur bæst í hóp fjölmargra aðila á Suðurnesjum sem lýsa yfir þungum áhyggjum vegna fjárhagsvanda sem blasir við embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum. 14.3.2008 19:58
Magnús fer vegna samskiptaörðugleika Samstarfsörðugleikar hafa verið á milli Magnúsar Péturssonar, fráfarandi forstjóra Landspítalans, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra, samkvæmt heimildum Vísis. 14.3.2008 19:45