Innlent

Fjögur líkamsárásarmál í Reykjavík

Fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík voru yfirfullar í nótt.
Fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík voru yfirfullar í nótt. MYND/Getty Images

Nokkuð var um slagsmál í miðborginni í nótt og komu fjögur líkamsárásarmál til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ekki hefur þó verið kært vegna þeirra. Fangageymslur í Reykjavík voru yfirfullar svo notast þurfti við fangageymslur í Hafnarfirði líka. Þannig gistu 15 manns fangageymslur, langflestir vegna ölvunar eða óspekta.

Tveir ökumenn voru teknir vegna gruns um ölvun við akstur og aðrir tveir vegna gruns um að aka undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×