Innlent

Tekinn á tvöföldum hámarkshraða

MYND/Hilmar

Karlmaður á fimmtugsaldri var tekinn á tvöföldum hámarkshraða í Borgarnesi í gærkvöldi þar sem hámarkshraði er 50 km. Maðurinn missir ekki prófið en fær 60 þúsund króna sekt og fjóra refsipunkta í ökuferilsskrá.

Í Borgarnesi var einn tekinn fyrir ölvun við akstur í nótt. Á Akranesi var ökumaður tekinn af sömu sökum, en þar voru einnig tveir teknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×