Innlent

Eldur í tjaldi útigangsmanns í Laugardal

Frá tjaldstæðinu í Laugardal.
Frá tjaldstæðinu í Laugardal. MYND/Teitur Jónasson

Nú fyrir stundu var tilkynnt um eld í tjaldi á tjaldstæðunum í Laugardal. Lögregla og Slökkvilið eru á leið á staðinn. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er um að ræða tjald útigangsmanns.

Íbúi tjaldsins sem hefur búið þarna í vetur var ekki sjáanlegur, en tjaldið var brunnið til kaldra kola þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang. Talið er að kviknað hafi í útfrá gashellu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×