Innlent

Búið að rífa gömlu Nestis-bensínstöðina

Gamla Nestisbensínstöðin norðan megin við Ártúnsbrekkuna í Reykjavík hefur verið rifin. Stöðin hefur staðið þar í yfir hálfa öld. Þar á að reisa 500 fermetra bensínstöð með skyndibitastöðum og verður hún svipuð bensínstöðinni sem nú er hinu megin við götuna.

Nýja stöðin á að opna 1. júlí og veður opin allan sólarhringinn. Einnig verður þar reist um 300 fermetra hús þar sem hjólbarða og smurþjónusta verður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×