Ráðuneyti getur ekki stöðvað framkvæmdir í Helguvík 16. mars 2008 12:10
Umhverfisráðuneytið getur ekki stöðvað byggingu fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Framkvæmdirnar geta hægt á stýrilækkunarferli Seðlabankans, en fjármálaráðherra segir þær nauðsynlega innspýtingu í efnahagslífið. Bæjarstjórnir Reykjanesbæjar og Garðs veittu í gær Norðuráli leyfi til að hefja framkvæmdir við álverið í Helguvík og stefna menn suður frá á að hefja framkvæmdir á næstu vikum, þrátt fyrir að enn eigi eftir að ganga frá lausum endum í undirbúningi framkvæmdarinnar. Umhverfisráðherra lýsti í gær furðu sinni á leyfisveitingunni og efaðist um réttmæti hennar þar sem málið er enn til umfjöllunar í ráðuneytinu. Umhverfisráðuneytið hefur þó ekki heimild til að koma í veg fyrir að framkvæmdir verði hafnar og samkvæmt heimildum fréttastofu getur kæra Landverndar sem liggur á borði ráðherra einungis frestað framkvæmdum, en ekki stöðvað þær. En það eru fleiri sjónarmið en tæknilegar útfærslur framkvæmdarinnar og það eru efnahagsmálin. Fjármálaráðherra segist spenntur fyrir byggingu álversins og telur að hún komi til með að hafa góð áhrif á efnhag þjóðarinnar sem er í mikilli niðursveiflu. Árni hefur ekki áhyggjur af því að bygging álversins haldi uppi stýrivöxtum hér á landi og segir að þeir fari lækkandi á næstu misserum. Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur hjá ASÍ, er þó ekki sammála fjármálaráðherra. Hann segir að álversframkvæmdir séu ekki lausn á skammtímavandamáli og séu ekki til þess fallnar að flýta fyrir stýrivaxtalækkun. Ólafur Darri segir að álver geti eflaust komið þjóðarbúinu vel til lengri tíma litið, en sé ekki hugað vel að tímasetningu framkvæmdanna geti þær gert illt verra.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira