Innlent

Lýst eftir manni frá Akranesi

Lögreglan á Akranesi lýsir eftir karlmanni á áttræðisaldri Hafsteini Erlendssyni. Hafsteinn ók heiman frá sér eftir hádegi í gær en hefur ekki sést síðan.

Hann er meðalmaður að hæð, grannvaxinn, gráhærður og með grátt alskegg. Hann var í bláum gallabuxum þegar hann fór að heiman og í svarfgrárri peysu. Númerið á bíl Hafsteins er NB 100 og bíllinn er blár af gerðinni Hyuandi Pony. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans vinsamlegast hafið samband við lögregluna á Akranesi í síma 431 1977.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×