Fleiri fréttir

Samningar geti treyst stöðugleikann

Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra gerði kjarasamninga á næsta ári að umtalsefni í áramótaávarpi sínu, sem flutt var á Ríkissjónvarpinu, Stöð 2 og Vísi í kvöld. Hann sagði að kjarasamningarnir fælu í sér mikilvægar ákvarðanir í efnahagsmálum. En hann benti á að ábyrgt fólk væri í forystusveitum launamanna og atvinnurekenda sem hefðu skilning á því að samningar þyrftu að byggja á því að treysta stöðugleika.

Kryddsíld Stöðvar 2

Hin árlega Kryddsíld stöðvar 2 var send út frá Hótel Borg í dag. Vísir sýndi beint frá henni og geta lesendur Vísis nú horft á hana hér.

Engar áramótabrennur í kvöld

Rétt í þessu var tekin ákvörðun um að engar brennur verða á höfuðborgarsvæðinu í kvöld vegna veðurs.

Áramótaveður Stormsins sleppur til

"Mér sýnist að þetta sleppi til" segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur hjá 365 aðspurður um skoteldaveðrið í kvöld.

Mest lesnu fréttir Vísis á árinu 2007

Vísir hefur tekið saman lista yfir 20 mest lesnu fréttir á vefnum árið 2007. Vísir er einn allra vinsælasti vefur á Íslandi, samkvæmt samræmdri mælingu Modernus, og er vefurinn sífellt að styrkjast og eflast.

Annríki hjá björgunarsveitarmönnum á Austurlandi

Hundrað og tuttugu björgunarsveitarmenn voru að störfum í gærkvöldi og fram að miðnætti á Austurlandi vegna óveðurs sem þar gekk yfir. Þakplötur fuku víða og varð bæði tjón og húsum og bílum.

Passið ykkur á Miðnæturbombunni

Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur kallað inn svokallaða Minæturbombu sem félagið er með í sölu. Bomban er ekki að virka sem skildi og því hefur hún verið innkölluð.

Kviknaði í bæjarskrifstofunum í Vogum

Slökkviliðið á Suðurnesjum var kallað að bæjarskrifstofunum í Vogum á Vatnsleysuströnd um sex leytið í morgun eftir að nágranni tilkynnti að reykjalykt bærist þaðan.

Íslenskur prestur til Kenýa

Séra Jakob Á. Hjálmarsson, fyrrum dómkirkjuprestur, heldur á næstu dögum til Kenýa þar sem hann mun starfa sem sjálfboðaliði við fræðslusetur lúthersku kirkjunnar í Pókothéraði næstu þrjá mánuðina.

Útilokar ekki kynjakvóta

Viðskiptaráðherra útilokar ekki að beita kynjakvóta til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja á þessu kjörtímabili. Tveir dagar eru í að frestur norskra fyrirtækja til að uppfylla kynjakvóta í stjórn rennur út.

Á fjórða hundrað björgunarsveitamanna að störfum

Yfir 320 björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitum Slysavarafélagsins Landsbjargar, auk slökkviliðs og lögreglu, hafa í dag sinnt yfir 220 útköllum um land allt. Ástandið hefur verið verst á höfuðborgarsvæðinu þar sem beiðnir um aðstoð hafa verið um 120.

Vindasamt á gamlárskvöld

„Þetta hefur verið vindasamt í kortunum síðustu daga og verður vindasamt," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur hjá 365, um áramótaveðrið.

Tafir urðu á flugi í dag

Töluverðar seinkanir urðu á millilandaflugi í dag, enda lá flug niðri í allan morgun vegna vonskuveðurs. Þegar dró úr hvassviðri eftir hádegið fór flugvélar í loftið á ný.

Fjórir hafa „Vel að verki staðið “ þetta árið

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti fjórum aðilum viðurkenningu Alþjóðahúss í dag. Viðurkenningin, sem ber titilinn ,,Vel að verki staðið", er veitt fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi.

Tveimur bátum bjargað

Giftusamlega tókst að bjarga tveimur bátum sem voru í hættu við höfnina að Grandagarði í dag.

Rafmagnsleysi á Vesturlandi

Rafmagnslaust varð á Vesturlandi fyrri hluta dags þegar rafmagn fór af Mýralínu í morgun. Vinnuflokkur Rarik frá Borgarnesi fann bilunina fljótlega og lagfærði við erfiðar aðstæður.

Unnið sleitulaust vegna vatnselgs

Götum í Hafnarfirði var lokað í dag vegna þess að bæjarlækurinn flæddi yfir. Talsverðar skemmdir hafa orðið á húsum. Magnús Sigurðsson, hjá gröfuþjónustunni Síló, hefur staðið vaktina frá því klukkan fjögur í nótt. „Það er talsvert tjón í sumum húsum þar sem vatn hefur flætt inn. Hér hefur allt stíflast og vatn og klóak lekið um allt," segir hann. „Lagnirnar bera einfaldlega ekki svona mikið vatn," bætir Magnús við.

Bátur að sökkva í Reykjavíkurhöfn

Lítill trébátur seig á hliðina í höfninni við Granda um þrjúleytið þegar leiki kom að bátnum. Að sögn slökkviliðsins er ekki vitað á þessari stundu hversu mikið báturinn er skemmdur.

Ferðalangarnir á Langjökli hólpnir

Ferðalangarnir sem höfðu setið fastir í bílum sínum við Langjökul frá því í gær eru nú allir komnir heilu og höldnu um borð í snjóbíla björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

Sinna 70 útköllum á höfuðborgarsvæðinu

Mikið annríki hefur verið hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í morgun. Um 100 björgunarsveitarmenn sinna nú um 70 útköllum sem borist hafa á höfuðborgarsvæðinu. Einnig hefur verið töluvert um útköll á Suðurnesjum, Akranesi, Borgarnesi, Blönduósi og Selfossi. Útköllin hafa verið af ýmsum toga en mest hefur verið um fok á þakplötum og lausamunum og mikið um vatnstjón.

Björgunarsveitamenn að nálgast Langjökul

Björgunarsveitir eru nú að koma að ferðalöngum sem hafa setið fastir í bílum sínum við Langjökul frá því í gær. Ferð sveitanna hefur tekið um átta klukkustundir enda færðin afar slæm og veður afleitt. Mælst hafa vindhviður sem eru yfir 70 metrar á sekúndu á leiðinni. Auk sérútbúinna jeppabifreiða eru þrír snjóbílar notaðir til að sækja fólkið.

Útlit fyrir að kveikt verði í brennum

Útlit er fyrir að hægt verði að kveikja í flestum brennum á landinu þrátt fyrir vonskuveðrið sem spáð er að bresti á síðla gamlárskvölds.

Tónleikum til styrktar krabbameinssjúkra frestað vegna veðurs

Tónleikum sem halda átti í dag til styrktar krabbameinssjúkra barna hefur verið frestað vegna veðurs. „Okkur þykir þetta mjög leitt, en það þótti bara algert óráð að halda tónleikana í þessu veðri," sagði Einar Bárðarson, skipuleggjandi tónleikana, í samtali við Vísi.

Fjörutíu útköll í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið í 40 útköll það sem af er morgninum vegna óveðurs. Flest hefur fokið sem mögulega getur fokið, þar á meðal tré, þakjárnsplötur, gervihnattadiskar og jafnvel bílar. Lögreglan vinnur verkefnin í samstarfi við slökkviliðið og björgunarsveitir og ljóst er að útköllum mun fjölga þegar líður á daginn.

Öllu innanlandsflugi aflýst í dag

Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag vegna óveðursins sem gengur yfir landið. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu hefur mikið verið um minniháttar útköll hjá björgunarsveitum, m.a. í Vestmannaeyjum, Borgarnesi, Sandgerði og Suðurnesjum.

Ók á umferðarstólpa

Bifreið var ekið harkalega á steyptan umferðarstólpa á Reykjanesbrautinni rétt austan við Grindavíkurveg um eittleytið í gær og hentist bifreiðin yfir stólpann og hafnaði á hliðinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum sakaði ökumann ekki við óhappið en bifreiðin var mikið skemmd og var fjarlægð af vettvangi með kranabifreið.

Ellefu menn fastir á Langjökli

Björgunarsveitarmenn eru á leið upp að Langjökli til að sækja þangað ellefu manna hóp sem hefur ekki komist lönd né strönd vegna veðurs og færðar.

Aurskriða féll á veginn við Dalsmynni

Aurskriða féll á veginn við Dalsmynni á Kjalarnesi á tíunda tímanum í morgun. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið en lögreglan er á leið á staðinn til að kanna aðstæður.

Ræninginn ekki enn fundinn

Lögreglan hefur enn ekki fundið mann sem framdi vopnað rán í verslun Ellefu - ellefu við Grensásvegi á níunda tímanum í gærkvöld, vopnaður veiðihnífi. Þrír starfsmenn voru inni í versluninni og ógnaði maðurinn einni þeirra með hnífnum. Hann hirti af henni lítilræði af reiðufé, eða um 10 þúsund krónur að talið er.

Vopnað rán á Grensásvegi

Karlmaður vatt sér inn í 11/11 verslun á Grensásvegi á níunda tímanum í kvöld, vopnaður hnífi og ógnaði starfsstúlku. Hann hirti af henni peninga, en ekki er vitað hve mikla. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að enginn hafi slasast. Fjöldi lögreglumanna leiti mannanna í hverfinu og tæknideild sé á vettvangi.

Ný lögreglustöð verður reist

Til stendur að reisa nýja lögreglustöð í stað þeirrar sem stendur á Hverfisgötu. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra gerir þetta að umtalsefni á vefsíðu sinni í dag. „Á mínu borði er næsta stórverkefni að finna stað fyrir nýja lögreglustöð á höfuðborgarsvæðinu og vinna að því, að hafist verði handa við að reisa hana," segir Björn.

Engar reglur um gjafir til stjórnmálamanna

Engar reglur eru til um gjafir fyrirtækja til ráðherra og þingmanna og því treyst á hyggjuvit og smekkvísi bæði gefenda og þiggjenda. Landsbankinn færði ráðherrum ríkisstjórnarinnar rauðvínsflösku að gjöf fyrir jólin, sem viðskiptaráðherra segir óheppilegt.

Fjöldi sakamála óleyst

Fjöldi alvarlegra sakamála sem komu upp á árinu eru enn óleyst eða hafa ekki enn verið send saksóknara til meðferðar. Þeirra á meðal eru gróf nauðgunarmál í Reykjavík og á Selfossi.

Löng hefð fyrir því að Landsbankinn gefi jólagjafir

Talsmenn Landsbankans segja langa hefð fyrir því að bankinn sendi tilteknum aðilum jólagjafir. Þetta geti verið viðskiptaaðilar, stofnanir, eða einstaklingar sem bankinn á í einhverjum samskiptum við. Þessar gjafir hafi verið með ýmsum hætti undanfarin ár.

E-töflur vinsælar á þessum árstíma

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir þau e-pillumál sem hafa komið upp að undanförnu ekki koma sér á óvart. Hins vegar sé það óvænt hve mikið magn hafi fundist í Leifsstöð.

Landsbankinn gaf ráðherrum rauðvín í jólagjöf

Landsbankinn gaf ráðherrum ríkisstjórnarinnar rauðvín í jólagjöf. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagðist í samtali við RÚV telja útilokað að ráðherrar láti slíkt hafa áhrif á ákvarðanatöku sína. Í einhverjum tilvikum séu jólagjafir fyrirtækja mögulega á gráu svæði. Hún segist ekki hafa opnað jólagjöfina sína.

Samið um þjónustu fyrir aldraða og fanga

Heilbrigðisráðherra og bæjarstjórinn á Akureyri undirrituðu í morgun þjónustusamning um rekstur Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri og stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

Vill bæta hag langveikra barna

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur skipað sérstakan starfshóp sem hefur það hlutverk að fara yfir þau þjónustuúrræði sem standa langveikum börnum og fjölskyldum þeirra til boða.

Þrjár líkamsárásir í Reykjavík

Nokkur erill var hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þrjár minniháttar líkamsárásir komu til kasta lögreglu og þrír voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur. Þá komu upp fimm mál sem vörðuðu brot á lögreglusamþykktum.

Víða hægt að skíða

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið dag frá klukkan tíu til fimm í dag. Núna í morgun var nánast logn í fjallinu og fimm til átta gráðu frost. Harðpakkaður snjór er á skíðasvæðinu en enn er aðeins hægt að skíða þar sem búið er að framleiða snjó.

Sjá næstu 50 fréttir