Fleiri fréttir

Landssamtök landeigenda á Íslandi stofnuð

Ákveðið hefur verið að stofna Landssamtök landeigenda á Íslandi. Landssamtökunum er ætlað að berjast fyrir því að eignarréttur landeigenda að jörðum þeirra sé virtur í svokölluðu þjóðlendumáli, eins og kveðið er á um í stjórnarskrá Íslands og í Mannréttindasáttmála Evrópu, að því er segir í tilkynningu.

Mýrin orðin mest sótta íslenska myndin

Mýrin, kvikmynd Baltasars Kormáks sem byggð er á spennusögu Arnaldar Indriðasonar, er orðin mest sótta íslenska myndin frá því að mælingar hófust og sömuleiðis sú tekjuhæsta á Íslandi hvort sem horft er til íslenskra eða erlendra mynda. 82.500 manns hafa nú séð Mýrina.

Rúður sprengdar með flugeldum

Rúður voru sprengdar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær með flugeldum og hlaust af því nokkurt tjón. Vill lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minna á að aðeins má nota flugelda frá 28. desember til 6. janúar.

Enginn hjá Ríkislögreglustjóra hafi bíl til afnota

Embætti Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er fram að hvorki ríkislögreglustjóri né aðrir starfsmenn embættisins hafa bíla frá embættinu til afnota, hvað þá lúxusbíla, eins og gefið hafi verið til kynna í efnisþættinum „Frá degi til dags", í Fréttablaðinu mánudaginn 8. janúar.

Dæmdur fyrir árás á fyrrverandi eiginkonu

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, og til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni og barnsmóður 400 þúsund krónur í miskabætur vegna stórfelldrar líkamsárásar á hana í maí árið 2005.

Ísafjarðarvélin lenti í Keflavík

Flugmenn flugvélar á leið frá Reykjavík til Ísafjarðar í morgun urðu varir við bilun í bremsubúnaði og treystu sér ekki til að lenda á Ísafirði. Þeir sneru vélinni til Keflavíkur af öryggisástæðum. Vél var send frá Reykjavík til Keflavíkur til að sækja farþegana og fljúga með þá til Ísafjarðar.

Þess vegna eru karlmenn hamingjusamari

Menn hafa lengi velt því fyrir sér hvort kynið sé hamingjusamara, karlar eða konur. Nokkrir bandarískir hugsuðir hafa sett fram tuttugu ástæður fyrir því að karlar séu hamingjusamari. 1. Við höldum eftirnafninu okkar. 2. Brúðkaupsundirbúningurinn sér um sig sjálfur. 3. Bifvélavirkjar segja okkur sannleikann. 4. Sama vinna, hærri laun. 5. Hrukkur auka á karakter. 6. Brúðarkjóll 300 þúsund, smókingleiga 5000.

Argóarflísin gerir það gott í Danmörku

Argóarflísin, bók rithöfundarins SJÓN, sem kom út í fyrra, hefur fengið lofsamlega dóma í Danmörku og verið valin ein af bókum ársins í einu dagblaða landsins.

Handtekinn grunaður um vegabréfafölsun

Erlendur karlmaður var í gær handtekinn á Flugstöð Leifs Eiríkssonar en hann er grunaður um vegabréfafölsun. Víkurfréttir greina frá þessu og jafnframt að málið sé nokkuð umfagnsmikið.

Vilja að ákæru um samráð verði vísað frá

Verjendur forstjóra olíufélaganna þriggja sem sæta ákæru í samráðsmálinu á hendur olíufélögunum kröfðust þess í héraðsdómi í morgun að málinu yrði vísað frá. Allir þrír ákærðu voru viðstaddir þingfestingu í héraðsdómi í morgun.

Varað við barnaníðingi á Akureyri

Lögreglan á Akureyri leitar nú manns sem tvívegis hefur reynt að lokka átta og níu ára drengi upp í bíl sinn í grennd við Síðuskóla. Hvorugur piltanna þáði boð hans en þeir hafa gefið trúverðuga lýsingu á bílnum sem maðurinn var á en lýsing á manninum sjálfum er meira á reiki.

Vestfirðingum fækkaði fyrri hluta 2006

Alls fluttust 202 einstaklingar frá Vestfjörðum fyrstu 6 mánuði ársins 2006 en 163 fluttu til landsfjórðungsins á sama tíma. Fækkunin er því 39 manns. Flestir, sem fóru, fluttust til höfuðborgarsvæðisins, eða 123. Á sama tíma fluttust 163 til Vestfjarða, einnig flestir af höfuðborgarsvæðinu eða 59 einstaklingar. Sagt er frá þessu í blaðinu Bæjarins Besta í dag, en tölurnar koma frá Hagstofu Íslands.

Halastjarnan McNaught sást vel í morgun

Halastjarnan McNaught sást vel á austurhimninum í morgun enda heiðskír í höfuðborginni. McNaught, eða C/2006 P1, er á leið gegnum innri hluta sólkerfisins og þegar hún fer næst sólu verður hún helmingi nær sólu en Merkúr, sem er sú pláneta sólkerfisins, sem næst er sólu.

Fjarskiptaumferð um CANTAT-3 stöðvuð í á aðra viku

Öll fjarskiptaumferð um CANTAT-3 sæstrenginn stöðvast frá og með næstkomandi föstudegi til 22. janúar vegna viðgerðar. Þau fyrirtæki og stofnanir sem nota CANTAT-3 eingöngu gætu lent í vandræðum ef þau gera ekki ráðstafanir.

Starfsemi Borgarplasts í Borgarnesi lokað

Ákveðið hefur verið að flytja alla starfsemi framleiðslufyrirtækisins Borgarplasts í Mosfellsbæ. Þetta hefur þá þýðingu að starfsemi fyrirtækisins í Borgarnesi verður lokað. Öllum starfsmönnum fyrirtækisins í Borgarnesi var boðið starf í nýjum höfuðstöðvum í Mosfellsbæ en einungis hluti þeirra nýtti sér það.

Fögnuður undirbúinn á Akranesi

Bæjarráð Akraness hefur falið bæjarstjóranum, Gísla S. Einarssyni, að undirbúa þau tímamót þegar bæjarbúar verða sex þúsund. Fréttavefur Skessuhorns greinir frá þessu en talið er að þetta geti orðið síðar í þessum mánuði.

Kviknaði í út frá potti á Húsavík

Slökkvilið Húsavíkur var kallað að fjölbýlishúsi í bænum á áttunda tímanum í kvöld. Kviknað hafði í eldhúsinnréttingu út frá potti og var talsverður reykur. Lítill eldur reyndist vera í íbúðinni, en nokkrar skemmdir eru urðu vegna reyks og sóts. Sameign hússins slapp þó nær alveg við skemmdir.

Tveir dvergkafbátar seldir

Íslenska hátæknifyrirtækið Hafmynd hefur samið við tvo kaupendur um sölu á dvergkafbát sem fyrirtækið hefur framleitt. Samanlagt kaupverð er tæpar hundrað milljónir. Annar báturinn fer til Ástralíu en ekki fæst gefið upp að sinni hvert hinn fer. Vonast er til að fimm til átta kafbátar til viðbótar verði seldir síðar á árinu.

Icelandair tilnefnt til alþjóðlegra vefverðlauna

Icelandair hefur verið útnefnt til alþjóðlegu „Technology For Marketing“ verðlaunanna fyrir best hannaða vefsvæði ársins, eða „Best Website Design of the Year“ eins og það heitir á frummálinu. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í London þann 6. febrúar næstkomandi. Icelandair er eina íslenska fyrirtækið sem hlotið hefur útnefningu til verðlaunanna en keppt er í 12 flokkum. Icelandair keppir í sínum flokki við fyrirtækin Orange, Dabs, Odeon og Xchange Wales.

Bætur skertar eða felldar niður að óbreyttu

Lífeyrisbætur ríflega 2000 öryrkja eiga að falla niður eða lækka, að óbreyttu, um mánaðarmótin. Lífeyrissjóðir frestuðu þessum aðgerðum í október en sá frestur rennur út fyrsta febrúar. Í desember var því beint til fulltrúa fjórtán lífeyrissjóða, í stjórn Greiðslustofu lífeyrissjóðanna, að fresta skerðingum fram til sumarsins en niðurstaða liggur enn ekki fyrir. Öryrkjabandalagið telur hins vegar að félagsmenn þess þurfi ekkert að óttast.

Jólatrén hirt fram á föstudag

Hátt í áttatíu tonn af jólatrjám fara upp á pallbíla framkvæmdasviðs borgarinnar þessa vikuna. Starfsmenn borgarinnar verða að fram á föstudag við að fjarlægja jólatrén.

Áhætta í evrulaunum

Launþegar taka mikla áhættu með því að þiggja laun í evrum, segir aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann telur hverfandi líkur á að evran laumi sér bakdyramegin inn í íslenskt efnahagslíf. Hún verði aldrei tekin upp nema um það ríki pólitísk sátt.

Ekið á gangandi vegfaranda

Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Laugavegar og Nóatúns um klukkan fimm í dag. Lögregla og sjúkralið eru enn á vettvangi og ekki fást upplýsingar um líðan vegfarandans að svo stöddu.

Spilakassana í Örfirisey

Spilakössum í borginni hefur fjölgað um meira en helming á tveimur árum. Borgarstjóri vill að fólk spyrji sig hvar eðlilegt sé að slík tæki séu staðsett og stingur sjálfur upp á því að þeim verði fundinn staður í Örfirisey.

Hjartavernd tekur í notkun nýjan hjartarita

Hjartavernd hefur tekið í notkun nýjan og fullkominn hjartarita sem keyptur var fyrir áheitafé sem safnaðist í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ágúst síðastliðnum.

Bilun í aðveitustreng olli rafmagnsleysi á Akranesi

Skömmu eftir hádegi í gær varð bilun í aðveitustreng að dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur við Smiðjuvelli á Akranesi. Við það sló út rafmagni á öllu Akranesi um skamma stund. Á meðan starfsmenn Orkuveitunnar unnu við að komast fyrir bilunina, eða í um eina klukkustund, var hins vegar rafmagnslaust á neðri hluta Skagans. Skessuhorn skýrði frá þessu í dag.

Nær 80 tonn af jólatrjám falla til í ár

Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar áætlar að um 80 tonn af jólatrjám falli til á þessu ári en starfsmenn sviðsins hófu yfirreið sína yfir Reykjavík í dag.

Skrifað undir samkomulag vegna fatlaðra og geðfatlaðra

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag þriggja ára samning um málefni fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu. Samningsfjárhæð er rúmir 2,2 milljarðar króna. Ennfremur var skrifað undir samkomulag til eflingar búsetu, dagþjónustu og dagvist geðfatlaðra á Akureyri.

Hagar mega ekki heita Hagar

Neytendastofa hefur bannað Högum hf., sem reka bæði Bónus, Hagkaup og 10-11 ásamt fjölda fataverslana, að nota nafnið Hagar. Það var heildsalan Hagi ehf. sem kvartaði til stofnunarinnar og vísaði meðal annars til þess að Hagi hefði verið stofnað og skráð hjá fyrirtækjaskrá 1993 en Baugur Ísland hf. hefði breytt nafni sínu í Hagar hf. árið 2003

Rafmagn aftur komið á í Sala- og Kórahverfi

Rafmagn er aftur komið á í Sala- og Kórahverfi í Kópavogi en þar varð háspennubilun laust fyrir klukkan tvö með þeim afleiðingum að rafmagn fór af hluta hverfsins. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitur Reykjavíkur var háspennustrengur grafinn í sundur fyrir slysni.

Rafmagnslaust í hluta af Sala- og Kórahverfi

Rafmagnslaust er nú í hluta af Sala- og Kórahverfi í Kópavogi eftir háspennubilun sem varð laust fyrir klukkan tvö. Þær upplýsingar fengust hjá Orkuveitur Reykjavíkur að verið væri að leita að biluninni.

Sakfelldur fyrir ölvunarakstur á bílaplani

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til greiðslu 135 þúsund króna í sekt og var sviptur ökuskírteini í eitt ár fyrir að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis fyrir utan skemmtistað á Selfossi.

Nýr vegur milli Hafna og Sandgerðis

Nýr vegur á milli Hafna og Sandgerðis, svokallaður Ósabotnavegur, verður senn opnaður fyrir umferð, að því er fram kemur í Víkufréttum í dag. Framkvæmdum er að ljúka við þann áfanga sem Vegagerðin bauð út í sumar. Fyrst um sinn verður eingöngu um malarveg að ræða en óvíst er hvort eða hvenær slitlag verður lagt á veginn.

Brenndist á andliti að kvöldi þrettándans

Drengur á sjöunda ári brenndist í andliti að kvöldi þrettánda á Selfossi eftir að eldur kom í flíspeysu sem hann var í. Fram kemur í frétt lögureglunnar á Selfossi að faðir drengsins hafi útbúið lítinn bálköst sem hann hellti bensíni á úr brúsa.

200 milljónir fyrir dvergkafbát

Íslenska hátæknifyrirtækið Hafmynd hefur samið við tvo kaupendur um sölu á dvergkafbát sem fyrirtækið hefur framleitt. Samanlagt kaupverð er tæpar hundrað milljónir. Annar báturinn fer til Ástralíu en ekki fæst gefið upp að sinni hvert hinn fer.

Styrkir veittir til atvinnuleikhúsa fyrir árið 2007

Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör hlaut hæstan verkefnastyrk atvinnuleikhópa fyrir árið 2007 samkvæmt ákvörðun menntamálaráðherra að fenginni umsögn leiklistarráðs. Hafnarfjarðarleikhúsið fær 20 milljónir samkvæmt samstarfssamningi en þar á eftir koma Artbox, Evrópa kvikmyndir, Rakel Garðarsdóttir og fleiri sem fengu sjö milljónir til uppsetningar á leikritinu Faust.

Safnað fyrir fjölskyldu Nóna Sæs

Nóni Sær Ásgeirsson er átta ára drengur sem lamaðist fyrir neðan mitti í alvarlegu bílsslysi þar sem fimm ára systir hans, Svandís Þula, lét lífið. Nóni Sær hefur átt erfitt eftir slysið, meðal annars hefur hann hafnað næringu. Bergvin Oddsson, blindur maður úr Vestmanneyjum, hefur nú hafið söfnun fyrir fjölskyldu Nóna, til að létta af þeim fjárhagsáhyggjum í þeim hörmungum sem þau hafa orðið að þola.

Enn óvíst með rekstur þrotabús Ágústs og Flosa

Ekkert liggur enn fyrir um framtíð framkvæmda og starfsmanna byggingarfyrirtækisins Ágústs og Flosa á Ísafirði sem úrskurðað var gjaldþrota í Héraðsdómi Vestfjarða á föstudaginn var.

Brutust inn í Verkmenntaskólann á Akureyri

Lögreglan á Akureyri hafði morgun afskipti af pilti og stúlku sem brotist höfðu inn í Verkmenntaskólann í bænum. Lögregla fékk tilkynningu snemma í morgun um að þjófavarnarkerfi hefði farið í gang í Verkmenntaskólanum og þegar hún kom á vettvang kom í ljós að þar hafði verið brotist inn með þvi að brjóta rúðu en þjófarnir haft sig á brott þegar þjófavarnarkerfið fór í gang.

Halastjarna sést frá Íslandi

Ný halastjarna birtist óvænt á himni nú eftir áramótin og sést vel með berum augum frá Íslandi kvölds og morgna í dag og næstu daga. Halastjarnan, sem heitir McNaught (eða C/2006 P1), er á leið gegnum innri hluta sólkerfisins í fyrsta skipti. Búist er við því að hún verði álíka björt á himni og Venus. Ef himinn er heiðskír á hún að sjást fram til 14 janúar í rétt fyrir sólarupprás og rétt eftir sólsetur. Á morgnana sæist hún rétt suður af há-austri rétt yfir sjóndeildarhring. Á kvöldin er hún hins vegar rétt yfir sjóndeildarhreingnum í vesturátt.

Sjá næstu 50 fréttir