Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Deilt um hugmyndir um gjaldskyldu Samfylkingin boðar gjaldskyldu fyrir bílastæði við leik- og grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla í Reykjavík á næsta kjörtímabili. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins og sagt að þessar hugmyndir séu komnar í framkvæmdaáætlun um samgöngustefnu. Í fréttatilkynningunni var því einnig lýst yfir að Sjálfstæðismenn séu algerlega andvígir slíkri gjaldtöku. 16.5.2006 17:09
Treyja Ronaldinhos seldist á rúmlega milljón Rúmlega ein milljón króna safnaðist í uppboði á treyju Ronaldinhos, fótboltakappa í Barcelona, á vegum Glitnis. Uppboðið var til styrktar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og fór fram á sjávarútvegssýningunni í Brussel. 16.5.2006 16:59
Leitað á ákveðnum svæðum Dregið hefur verið úr umfangi leitarinnar að Pétri Þorvarðarsyni sem ekkert hefur spurst til síðan aðfaranótt sunnudags. Byrjað er að kalla björgunarsveitarmenn heim en leit verður haldið áfram á ákveðnum svæðum. 16.5.2006 16:55
Lögregla óskar eftir gæsluvarðhaldi Lögreglan í Kópavogi óskaði í dag í Héraðsdómi Reykjaness eftir gæsluvarðhaldi yfir þremur ungum mönnum sem grunaðir eru um líkamsárás og mannrán í Garðabæ á laugardagskvöld. Héraðsdómari er þessa stundina að taka afstöðu til gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar. Þeir grunuðu gáfu sig allir fram við lögregluna í Kópavogi í dag. Sá fyrsti ffyrir hádegi. Lögreglan hafði símasamband við hina tvo sem síðan gáfu sig fram í sitthvoru lagi, annar um hádegið og hinn um klukkan tvö. Mennirnir hafa verið í yfirheyrslu hjá lögreglunni í dag. En þeir eru runaðir um að hafa numið mann á brott af heimili hans í Garðabæ á laugardagskvöld, ekið með hann upp í Heiðmörk og gengið í skrokk á honum. Allir hinir grunuðu eru innan við tvítugt og hafa allir komið við sögu lögreglunnar áður. Sá sem fyrir árásinni varð, liggur á sjúkrahúsi og mun ekki enn vera úr allri lífshættu. 16.5.2006 16:15
Dregið úr umfangi leitarinnar Byrjað er að kalla þá björgunarsveitarmenn heim sem hafa leitað að Pétri Þorvarðarsyni sem hvarf á Grímsstöðum á Fjöllum aðfaranótt laugardags. Mikill fjöldi björgunarsveitarmanna hefur verið við leit en nú verður dregið verulega úr umfangi leitarinnar. 16.5.2006 16:11
Rúmlega þúsund söfnuðust við Stóriðjulausum Vestfjörðum Um það bil ellefu hundrað undirskriftir söfnuðust við stuðningsyfirlýsingu um stóriðjulausa Vestfirði á sýningunni Perlan Vestfirðir, sem haldin var fyrstu helgi þessa mánaðar. 16.5.2006 14:57
Allir í haldi lögreglunnar Þriðji maðurinn sem grunaður er um líkamsárás í Heiðmörk um helgina er nú í haldi lögreglunnar í Kópavogi. Hann gaf sig fram nú fyrir stundu. Hinir tveir gáfu sig fram fyrr í dag. 16.5.2006 14:40
Gorbatsjof vinsæll Um fimm hundruð miðar hafa selst á fyrirlestur Mikhail Gorbatsjofs, síðasta leiðtoga Sovétríkjanna, sem kemur til landsins í október en þá verða tuttugu liðin frá leiðtogafundi hans og Ronald Reagans, Bandaríkjaforseta, í Höfða. 16.5.2006 14:30
Tveir árásarmannanna í gæsluvarðhaldi Tveir menn eru í haldi lögreglunnar í Kópavogi vegna gruns um að hafa tekið þátt í líkamsárás ásamt einum til viðbótar á laugardagskvöldið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi er búist við því að þriðji maðurinn gefi sig fram nú um tvö leytið. 16.5.2006 14:15
Stjórnvöld hafa ekki sinnt málefnum aldraðra Samtök eldri borgara boða til þjóðfundar um málefni sín í Háskólabíói í kvöld. Stefán Ólafsson, prófessor, mun birta niðurstöður rannsóknar sem sýnir að eldri borgarar hafa dregist aftur úr í kjörum og einnig verður gerður samanburður við kjör eldri borgara á Norðurlöndunum. 16.5.2006 14:00
Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir í sókn á Akranesi Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri grænir eru í verulegri sókn á Akranesi en fylgi við Samfylkinguna minnkar frá síðustu kosningum og Framsóknarflokkur tapar helmingi fyrra fylgis síns, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 16.5.2006 13:45
Þjóðmálafundur NFS í Hafnarfirði í kvöld Sjöundi þjóðmálafundur NFS í beinni útsendingu, vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, verður haldinn í Hafnarfirði í kvöld. Þar er Samfylkingin með hreinan meirihluta eftir síðustu kosningar, en kl. 17 í dag birtum við fyrstu niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar, sem sýnir hvort breyting er að verða á því. 16.5.2006 13:30
Viðbúnaður við Sundahöfn Lögregla og kafarar eru nú við störf í Sundahöfn í Reykjavík. Um er að ræða eftirgrennslan eftir manni en bíll hans fannst á svæðinu í dag. Ekki er talið að um saknæmt athæfi sé að ræða. 16.5.2006 13:21
Eimskip kaupir í bresku fyrirtæki Eimskip hefur gengið frá kaupum á 55% hlut í breska fyrirtækinu Innovate, sem sérhæfir sig í geymslu og dreifingu á kældum og frystum afurðum. Kaupverð er trúnaðarmál. Í tilkynningu Eimskips segir að með kaupunum á hollenska frystigeymslufyrirtækinu Daalimpex fyrr á árinu og Innovate nú sé Eimskip orðið ráðandi aðili í Evrópu þegar kemur að geymslu á hitastýrðum matvælum. 16.5.2006 13:15
Lítið upp í skaðann af virkjun Tuttugu milljóna króna styrkur Alcoa vegna þjóðgarða vegur lítið til móts við þann skaða sem verður af Kárahnjúkavirkjun segir formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann telur styrkinn frekar til marks um sýndarmennsku en að fyrirtækið standi sig vel í umhverfismálum. 16.5.2006 13:00
Viðráðanlegt ójafnvægi Vaxandi ójafnvægi í íslenska hagkerfinu er áhyggjuefni. Efnahagshorfur eru þó góðar og ríkisstjórnin ætti að vera í stakk búin að takast á við sveiflur í efnahagsmálum að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 16.5.2006 12:45
Segist iðrast gjörða sinna Eyþór Arnalds segir áhugann á stjórnmálum sinn óbreyttann en framtíðin muni skera út um pólistískan frama hans. Hann segist iðrast gjörða sinna sem hann segir óafsakanlegar. 16.5.2006 12:30
ESSO lækkar bensínverðið ESSO lækkar verðið á bensínlítranum um eina krónu í dag og er algengt verð í sjálfsafgreiðslu 124,40 krónur. Lítrinn af dísilolíu og gasi lækkar einnig um eina krónu. 16.5.2006 12:26
Leit stendur enn Leit stendur enn að Pétri Þorvarðarsyni, sem fór fótgangandi frá Grímsstöðum á Fjöllum aðfaranótt sunnudags. Búið er að leita vandlega á 500 ferkílómetra landsvæði án þess að nokkur vísbending hafi fundist um ferðir Péturs. 16.5.2006 12:20
Óflughæfar nær fimmta hvern dag frá áramótum Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið óflughæfar samtímis nær fimmta hvern dag frá áramótum. Þá daga hefur þurft að treysta alfarið á aðstoð frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli eða danska varðskipinu Triton ef þyrlu hefur þurft til björgunarstarfa. 16.5.2006 12:08
Milljóna samningur um boranir Jarðboranir hafa gert samning við orkufyrirtæki á Asoreyjum, sem tilheyra Portúgal, um borun á rannsókna- og vinnsluholum, til undirbúnings háhitavirkjunar á eyjunum. Samningurinn er upp á 500 til 700 milljónir króna og er sá stærsti sem Jarðboranir hafa gert í útlöndum. 16.5.2006 11:45
Fjórðungur Skagamanna nýtir sér strætó Rúmlega fjóðrungur Skagamanna hefur nýtt sér þjónustu Strætó á milli Akraness og Reykjavíkur, sem líklega er talsvert hærra hlutfall en á höfuðborgarsvæðinu sjálfu. 16.5.2006 11:15
Sinueldar í skógræktarsvæði Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögreglan börðust í gær við þó nokkurn sinueld á skógræktarsvæði við Rósaselstjarnir ofan við byggðina í Keflavík. Varðeldur hafði verið kveiktur í skógræktinni og af ummerkjum að ráða hafði verið gerð tilraun til að poppa poppkorn á eldinum sem síðan barst í skógræktina. Nokkuð af trjám varð eldinum að bráð og einnig logaði glatt í sinu og mosa á svæðinu. 16.5.2006 11:00
Varnaraðgerðum aflétt Tímabundnum varnaraðgerðum til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla hér á landi, hefur verið aflétt. Þetta er gert í ljósi þess að langflestir farfuglar eru nú komnir til Íslands þetta árið en engin tilfelli sjúkdómsins hafa greinst hér á landi, og fjöldi neikvæðra sýna frá Bretlandseyjum gefa til kynna að sjúkdómurinn hafi ekki náð þar fótfestu þrátt fyrir einangruð tilvik. 16.5.2006 10:45
2 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann á fimmtugsaldri í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm stúlkum. Stúlkurnar voru á aldrinum þriggja til tólf ára þegar brotin áttu sér stað. 16.5.2006 10:30
120 störf í hættu í Noregi Á næstunni verður tekin ákvörðun um að bæta við framleiðslu Íslenska járnblendifélagsins, en norska ríkisútvarpið segir að 120 störf séu í hættu vegna þessa í Noregi. 16.5.2006 10:15
Brotist inn í íbúð á Rauðarárstíg Brotist var inn í íbúð við Rauðarárstíg í Reykjavík í nótt og þaðan meðal annars stolið þremur málverkum og fartölvu. 16.5.2006 10:00
Slapp við reykeitrun Kona var flutt á Slysadeild Landsspítalans undir morgun vegna gruns um að hún hafi fengið reykeitrun, eftir að íbúð við Bergþórugötu fylltist af reyk. 16.5.2006 09:45
Fara enn huldu höfði Ungu mennirnir þrír, sem lögreglan hefur lýst eftir um allt land eftir að þeir numu ungan mann af heimili hans í Garðabæ á laugardagsvköldið og misþyrmdu uppi í Heiðmörk, fara enn huldu höfði. 16.5.2006 09:30
Pétur Þorvarðarson enn ófundinn Leit stendur enn að Pétri Þorvarðarsyni, sem fór fótgangandi frá Grímsstöðum á Fjöllum aðfararnótt sunnudags. Engar vísbendingar hafa fundist um afdrif Péturs. 16.5.2006 09:15
Íslensk börn fá þriðjung orku sinnar úr næringarlausu fæði Íslensk börn fá allt að þriðjung orku sinnar úr sælgæti, kexi og öðrum neysluvörum sem innihalda litla sem enga næringu. Engin önnur börn í Evópu neyta jafn lítils magns af ávöxtum og grænmeti. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrra rannsókna á mataræði skólabarna á aldrinum 9-15 ára. 15.5.2006 21:48
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm stúlkum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann á fimmtugsaldri í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm stúlkum. Stúlkurnar voru á aldrinum þriggja til tólf ára þegar brotin áttu sér stað. 15.5.2006 21:40
Eftirlýstir af lögreglunni í Kópavogi Þrír menn eru eftirlýstir af lögreglu vegna alvarlegrar líkamsárásar á laugardagskvöld. Mennirnir rændu fórnarlambinu af heimili þess og liggur það nú þungt haldið á spítala. Mennirnir þrír eru þekktir í undirheimum Garðabæjar og hafa allir komið marg oft við sögu lögreglu. Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að í það minnsta einn þeirra sé viðriðinn sveðjuárás í Garðabæ í fyrra og að hinir tveir séu á skilorði. 15.5.2006 21:03
Leitin að Pétri Þorvarðarsyni hefur engan árangur borið Leitin að Pétri Þorvarðarsyni sem saknað hefur verið frá Grímsstöðum á Fjöllum síðan í fyrrinótt hefur engan árangur borið. Á þriðja hundrað björgunarmanna og nokkrir sporhundar taka nú þátt í leitinni, en þyrla varnarliðsins er hætt leit í dag og ekki hefur verið ákveðið hvenar leit hefst aftur á morgun. 15.5.2006 21:02
Varðeldur kveiktur í skógrækt við Rósaselstjarnir Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögreglan börðust síðdegis við þó nokkurn sinueld á skógræktarsvæði við Rósaselstjarnir ofan við byggðina í Keflavík. Varðeldur hafði verið kveiktur í skógræktinni og af ummerkjum að ráða hafði verið gerð tilraun til að poppa poppkorn á eldinum sem síðan barst í skógræktina. 15.5.2006 20:36
Járnblendistörf kunna að flytjast til Íslands Á næstunni verður tekin ákvörðun um að bæta við framleiðslu Íslenska járnblendifélagsins, sem kann að hafa í för með sér 30 - 40 viðbótarstörf við járnblendið á Grundartanga. Norska ríkisútvarpið segir að 120 störf séu í hættu í Aalvik í Harðangri ef svo fer sem horfir að framleiðsla á magnesíum kísiljárni flytjist frá Noregi til Íslands. 15.5.2006 20:00
Vilja tómstundastarf á vinnutíma Tómstundastarf barna á skólaaldri er frambjóðendum í Reykjavík ofarlega í huga og vilja þeir tvinna það við skólastarfið svo því verði lokið innan hefðbundins vinnutíma. Skiptari skoðanir eru um skólabúninga, fríar máltíðir í skólum og gjaldfrjálsa leikskóla 15.5.2006 18:42
Viðbrögð við Fuglaflensu á áhættustig 1 Þar sem ekki hefur verið staðfest tilvik fuglaflensu (Avian Influensu af H5N1 stofni) á Íslandi hefur landbúnaðarráðherra, að fengnum tillögum Landbúnaðarstofnunar, ákveðið að aflétta þeim ráðstöfunum sem mælt var fyrir um tímabundnar varnaðaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglaflensa eða Avian Influensa berist í alifugla. 15.5.2006 17:43
Sala á greiningarlyfjum gæti skapað tekjur innan skamms Íslensk erfðagreining og bandaríska fyrirtækið Illumina, sem sérhæfir sig í þróun tækja sem notuð er til erfðarannsókna, greindu frá því í dag að þau hafi tekið upp samstarf um að þróa og markaðssetja DNA-greiningarpróf fyrir algenga sjúkdóma. 15.5.2006 17:25
Vilja ekki stækkun álversins Vinstri-grænir í Hafnarfirði eru andvígir stækkun álversins í Straumsvík og hyggjast beita sér gegn henni í bæjarstjórn nái þeir til þess kjöri. Þeir vilja auk þess auka vægi íbúa Hafnarfjarðar í ákvarðanatöku um mál sem snerta þá. 15.5.2006 16:47
Málþing hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands Mannréttindaskrifstofa Íslands og Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, standa að málþingi sem ber yfirskriftina Trúfrelsi og lífsskoðanafélög. Lífsskoðanafélög eru félög sem fjalla um siðferði og lífsskoðanir og sjá meðlimum fyrir félagslegum athöfnum eins og nafngift, fermingu, giftingu og greftrun (dæmi Siðmennt á Íslandi og Human Etisk Forbund í Noregi) en tilgangur málþingsins er að fjalla um jafnræði trúfélaga, skráningu lífsskoðanafélaga og trúfrelsi á Íslandi. 15.5.2006 16:00
Ekkert verður af setuverkfalli Ekkert verður af setuverkfalli stuðningsfulltrúa hjá svæðisskrifstofum fatlaðra sem átti að hefjast í kvöld. Trúnaðarmenn starfsmanna samþykktu nýgerðan stofnanasamning á fundi í hádeginu og var hann undirritaður klukkan þrjú. 15.5.2006 15:56
Þyrla Varnarliðsins aðstoðar við leit Þyrla varnarliðsins er farin í loftið til að aðstoða við leit að Pétri Þorvarðarsyni 17 ára pilti, sem saknað er frá Grímsstöðum á Fjöllum síðan í fyrrinótt. Á þriðja hundrað björgunarmanna og nokkrir sporhundar taka nú þátt í leitinni og er búið er að kalla út björgunarsveitir frá svæði 9 og 10, einnig er verið að kalla út menn af höfuðborgarsvæðinu sem fara flugleiðis með flugvél Lanhelgisgæslurnar kl.17:00. 15.5.2006 15:32
Bjarni Ármannsson nýr formaður stjórnar SBV Bjarni Ármannsson var kjörinn formaður stjórnar Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja á stjórnarfundi SBV sem haldin var í dag, 15. maí. Bjarni var kjörinn formaður til næstu tveggja ára, en ný stjórn var kjörin á aðalfundi SBV 27. apríl sl. 15.5.2006 15:23
Lækkun fasteignaskatts samþykkt Bæjarráð Akraness hefur samþykkt tillögur gjaldskrárnefndar sveitarfélagsins um reglur er varða lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. 15.5.2006 14:32