Viðráðanlegt ójafnvægi 16. maí 2006 12:45 MYND/E.Ól.
Vaxandi ójafnvægi í íslenska hagkerfinu er áhyggjuefni. Efnahagshorfur eru þó góðar og ríkisstjórnin ætti að vera í stakk búin að takast á við sveiflur í efnahagsmálum að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur síðastliðna viku kynnt sér íslensk efnahagsmál. Á fundi í morgun voru niðurstöður nefndarinnar kynntar. Sendinefndin segir efnahagshorfur á Íslandi öfundsverðar. Stofnanir séu sterkar og markaði opnir og sveigjanlegir. Auk þess hafi faglega verið staðið að stjórnun á náttúruauðlinda hér á landi og frumkvöðlakraftur sé mikill. Árangur í efnahagslífinu sé meiri en búast megi við í svo litlu hagkerfi. Það ójafnvægi sem sé í hagkerfinu um þessar mundir er hins vegar áhyggjuefni. Umframeftirspurn sé mikil, verðbólga vaxandi, viðskiptarhallinn mikill og heimili og fyrirtæki, einkum bankarnir, mjög skuldsett. Æskilegt hefði verið að bregðast við þessu ójafnvægi með betur samhæfðum aðgerðum, auknu aðhaldi í ríkisfjármálum og breytingu á Íbúðalánasjóði. En sendinefndin telur að breyta þurfi Íbúðalánasjóð hið fyrsta þar sem núverandi fyrirkomulag ógni meðal annars fjármálastöðugleika. Þrátt fyrir sveiflur í efnahagsmálum telur telur nefndin stöðuna ekki slæma. Ríkisstjórnin hafi áður sýnt að hún hafi góða stjórn á efnahagsmálum og ætti að vera í stakk búin að takast á við þessar sveiflur. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur að Seðlabanki Íslands verði að hækka stýrivexti til að slá á verðbólguvæntingar. Búast megi við talsverðum verðbólguþrýstingi út árið vegna ört hækkandi launa, mikilla umsvifa á húsnæðismarkaði auk lægra gengi krónunnar. Ef kjarasamningar breytast ekki talsvert í haust má gera ráð fyrir að verðbólga lækki á næsta ári. Í skýrslu nefndarinnar er gert ráð fyrir 4% hagvexti á þessu ári og um eitt prósent á næsta ári. Einnig er búist við því að viðskiptahallinn dragist lítillega saman á næsta ári. Í heildina séð er skýrslan nokkuð jákvæði í garð stöðunnar í íslenskum efnahagsmálum. Lítil og minnkandi skuldastaða hins opinbera beri vitni um ábyrga stjórn ríkisfjármála og er lykilþáttur í jákvæðum horfum íslensks þjóðarbúskapar til lengri tíma litið.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira