Fleiri fréttir

Magnus Carlsen efstur

Norðmaðurinn Magnus Carlsen er efstur á Reykjavíkurskákmótinu sem stendur. Hann er með þrjá vinninga þegar flestum skákum þriðju umferðar er lokið en Þröstur Þórhallsson sem vann tvær fyrstu skákir sínar situr enn að tafli gegn franska stórmeistaranum Igor-Alexander Nataf.

Mjög hefur dregið úr fasteignasölu

Sala á íbúðum í fjölbýli hefur dregist saman um 26 prósent milli ára að því er fram kemur í tölum frá Fasteignamati ríkisins. Á sama tíma hefur sala á einbýlishúsum aukist um fimmtán prósent.

Bakarar mótmæla raforkuverði

Bakarameistarar eru afar ósáttir við miklar verðhækkanir á raforku síðan ný orkulög tóku gildi. Fyrri samningi þeirra um lágt raforkuverð að næturlagi var rift og við það hækkaði rafmagnsverð til bakaría um allt að 50 prósent.

Mótmæla styttingu náms

Framhaldsskólanemendur deildu við menntamálaráðherra inni á Alþingi í dag um fyrirhugaða styttingu náms. Fyrr um daginn mótmælti fjöldi nemenda við Austurvöll. Nemendur telja að stytting skerði nám þeirra og segja kennara sína hvetja sig áfram í baráttunni.

Stefnum að hvalveiðum í atvinnuskyni

Íslendingar stefna að því að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni. Enn á eftir að ákveða hvenær veiðar hefjast sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, á Alþingi í dag.

Stjörnuryk

Hollywood gefur Íslandi augljóslega auknar gætur því í bígerð er að taka upp stórmynd hér á landi innan tíðar. Myndin mun bera titilinn Stjörnuryk og skarta stjörnum á borð við Robert De Niro, Michelle Pfeiffer, Claire Danes og Charlie Cox.

Nauðsynlegt er að þýða kjarasamninga

Verkalýðshreyfingin vill fjárstyrk frá félagsmálaráðuneytinu til að þýða meginefni kjarasamninga á erlend tungumál, en fær ekkert svar. Þetta kom fram á stórri kvennaráðstefnu í dag.

Valgerður vill evru!

Ísland gæti hæglega tekið upp evruna og gengið í myntbandalag Evrópu, án þess að ganga í Evrópusambandið, segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra í pistli á heimasíðu sinni. Óraunhæft, segir Tryggvi Þór Herbertsson forstöðumaður Hagfræðistofnunnar Háskóla Íslands.

Mótmæltu kvöldfundi um vatnalög

Stjórnarandstæðingar mótmæltu því við upphaf þingfundar klukkan sex að haldinn væri kvöldfundur til að fjalla um vatnalög, eitt umdeildasta frumvarpið sem liggur fyrir Alþingi.

Tilkynn um eld á Meistaravöllum

Tilkynnt var um eld í íbúð á Meistaravöllum nú rétt eftir klukkan fimm og var allt lið slökkviliðsins sent á staðinn. Reyndist einungis um pott á eldavélahellu að ræða og því var öllum bílunum snúið við nema einum dælubíl sem er enn að störfum við reykræstingu.

Vélstjórar ræða kjarasamning við LÍÚ

Forystumenn Vélstjórafélags Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna ræddu nýjan kjarasamning á fundi í dag. Vélstjórar hafa verið samningslausir frá áramótum.

Frumvarp um æskulýðslög lyktar af lögregluríki og ofsóknaræði

Nýtt frumvarp um æskulýðslög lyktar af lögregluríki og ofsóknaræði, segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar. Í frumvarpinu er lagt til að allir þeir, sem sæki um vinnu sem varði æskulýðsmál, verði skylt að leggja fram sakavottorð.

Veittu styrki til velferðarmála barna

381 þúsund krónur voru veittar til þriggja verkefna sem eiga að hlúa að velferð og hagsmunamálum barna í Hafnarfirði við fyrstu úthlutun úr minningarsjóði hjónanna Helgu Jónasdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar læknis í dag.

Viðgerðir á Þjóðleikhúsi næstar í röðinni

Það myndi kosta 1,6 milljarða króna að gera þær viðgerðir á Þjóðleikhúsinu sem þörf krefur, sagði menntamálaráðherra á Alþingi í dag og setti viðgerðir á Þjóðleikhúsinu efstar á forgangslista þegar kemur að menningarstofnunum.

Síminn fái greiðslu úr jöfnunarsjóði

Síminn á rétt á greiðslu úr jöfnunarsjóði fjarskipta vegna þeirrar skyldu sem stjórnvöld hafa lagt á fyrirtækið um alþjónustu við alla landsmenn, svo sem að tryggja gagnaflutningsþjónustu allt að 128 Kb á sekúndu.

Sigurður fær Ásprestakall

Séra Sigurður Jónsson verður sóknarprestur í Ásprestakalli. Valnefnd í prestakallinu ákvað á fundi sínum í gær að legja til við dóms- og kirkjumálaráðherra að hann skipaði Sigurð í embættið.

Erlend matsfyrirtæki gagnrýnd

Greiningardeild Merrill Lynch, eins stærsta verðbréfafyrirtækis í heimi, gagnrýnir erlend matsfyrirtæki og segir að þau hefðu átt að gefa íslensku bönkunum lakara lánshæfismat en þau hafa gefið þeim.

Marel frekar í Slóvakíu en á Íslandi

Frekari uppbygging hátæknifyrirtækisins Marels verður í Slóvakíu en ekki á Íslandi, vegna óviðunandi skilyrða útflutningsfyrirtækja hér á landi, að sögn forstjóra Marels.

Pólitík réð því ekki að Byko fékk lóð í Garðabæ

Urriðaholt hafnar því með öllu að pólitísk áhrif hafi orðið til þess að Byko fékk lóð í Garðabæ, en ekki Bauhaus. Viðræður við Bauhaus hafi hafist mánuði eftir að ljóst var orðið að Ásdís Halla Bragadóttir myndi taka við forstjórastarfi hjá Byko.

Krónan veikist

Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað um 3% í morgun sem er töluverð breyting á svo skömmum tíma. Telja sérfræðingar að þar valdi að viðskipthallinn hafi reynst meiri en búist var við.

Kært fyrir einkadans í lokuðu rými

Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi nektardansstaðarins Goldfinger í Kópavogi, og tvær erlendar dansmeyjar hafa verið ákærðar fyrir að standa fyrir og sýna einkadans í lokuðu rými á staðnum í október í fyrra. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í gær.

Tveir ökumenn sluppu ómeiddir

Ökumenn tveggja bíla sem ultu seint í gærkvöldi vegn óvæntrar hálku, sluppu ómeiddir en bílarnir eru hins vegar báðir stór skemmdir.

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir styrkt um 5 milljónir í 4 ár

Fjárfestingabankinn Straumur-Burðarás og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum skrifuðu í morgun undir samning um árlegn 5 milljóna króna styrk til næstu 4 ára. Fénu verður varið til þeirra verkefna sem stofnunin sinnir og til að efla hana með markvissum hætti.

Mun fleiri fá ríkisborgararétt árlega nú en fyrir 15 árum

Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta skipti á vef sínum upplýsingar um veitingu íslensks ríkisfangs. Tölurnar byggja á upplýsingum úr þjóðskrá og sýna fjölda einstaklinga sem fengu íslenskt ríkisfang samkvæmt lögum á árunum 1991 til 2005. Einstaklingum sem hafa fengið íslenskt ríkisfang hefur fjölgað mjög ört á síðustu árum. Árið 2005 voru þeir 726 samborið við 161 árið 1991.

Hátt í 22 milljónir lítra af áfengi seldir í fyrra

Áfengissala hér á landi jókst um tæp 7% milli áranna 2004 og 2005. Um 5% aukningu er að ræða á hvern íbúa 15 ára og eldri sem er með því mesta sem verið hefur á síðustu árum. Seldir voru hátt í 22 milljón lítrar af áfengi á síðasta ári samanborið við rúma 20 árið áður.

Kæran jafnast á við skopmyndabirtingu

Forstöðumaður Krossins segir að kæra Samtakanna 78 gegn sér jafnist á við lætin útaf birtingu Jótlandspóstsins á skopmyndum af Múhammeð spámanni. Hann áréttar skoðun sína um að samkynhneigðir eigi ekki að ala upp börn.

Óánægja með nýtt vaktakerfi

Trúnaðarmaður vagnstjóra hjá Strætó lýsir óánægju með nýtt vaktakerfi sem Ásgeir Eiríksson, forstjóri fyrirtækisins kynnti í gær. Vaktakerfið tekur að óbreyttu gildi 9. apríl.

Nefnd um olíuleit

Olíuleit á íslenska hluta Jan Myen hryggisns, norðaustur af landinu, gæti hafist strax á næsta ári, samkvæmt áformum ríkisstjórnarinnar. Hún ákvað í gær að skipa nefnd ráðuneytisstjóra þeirra ráðuneyta, sem málið varðar.

Íslensk stjórnvöld ekki staðið við sitt

Íslensk stjórnvöld hafa ekki staðið við þau fyrirheit sem þau gáfu Íslenskri erfðagreiningu og hafa yfirlýsingar þeirra frekar skaðað fyrirtækið en hitt að sögn Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins. Kári Stefánsson ver gestur Þorfinns og Rósu á Fréttavaktinni eftir hádegi í gær. Þar sagði hann velvilja stjórnvalda ekki hafa skilað sér til Íslenskrar erfðagreiningar og frekar skaðað það en hitt.

Viðgerðum á TF-SIF lokið

Viðgerð á minni þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, lauk í gærkvöldi og er hún nú komin í gagnið eftir langt stopp vegna skorts á varahlutum. Stóra þyrlan verður áfram úr leik fram í miðjan mánuðinn.

Eþíópískur maður í farbann

Hæstiréttur staðfesti í gær farbann Héraðsdóms yfir eþíópskum manni, sem er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur barnungum stúlkum.

Vatnalög rædd fram á nótt

Stjórnarandstöðunni tókst það ætlunarverk sitt að koma í veg fyrir að annarri umræðu um ný vatnalög iðnaðarráðherra lyki í gær. Umræðan stóð fram á nótt.

Glæsilegur skáksigur

Þröstur Þórhallsson bar sigur úr býtum í viðureign sinni við stórmeistarann Shakriyar Mamedyarov sem er einn af fimmtán bestu skákmönnum heims að sögn Lilju Grétarsdóttur, forseta Skáksambands Íslands. Þetta er fyrsti sigur Íslendings á stórmeistara með yfir 2700 stig í sjö ár.

Óttist ekki

Íslendingum er ekki bráð hætta búin þótt fuglaflensan berist hingað til lands. Þetta segir Jarle Reiersen, dýralæknir alifuglasjúkdóma. Hann segist ekki búast við sýktum farfuglum til landsins fyrr en sjúkdómurinn er búinn að greinast í farfuglum á Bretlandseyjum þar sem flestir íslenskir farfuglar hafi vetursetu þar eða komi þar við á leiðinni.

Mun virkja gamlar olíuborholur í Ungverjalandi

Fyrirtækið Enex mun virkja gamlar olíuborholur í Ungverjalandi til framleiðslu á raforku með jarðvarmastöð sem er sú fyrsta sinnar tegundar þar í landi. Framkvæmdir hefjast nú í haust.

Óánægja með nýtt vaktakerfi Strætó

Trúnaðarmaður vagnstjóra hjá Strætó lýsir óánægju með nýtt vaktakerfi sem Ásgeir Eiríksson, forstjóri fyrirtækisins kynnti í morgun. Vaktakerfið tekur að óbreyttu gildi 9. apríl.

Íslendingar kaupa meira áfengi

Áfengissala hér á landi jókst um tæp 7% á milli áranna 2004 og 2005. Um 5% aukningu er að ræða á hvern íbúa 15 ára og eldri sem er með því mesta sem verið hefur á síðustu árum.

Metþátttaka á skákmóti

Aldrei hafa fleiri erlendir stórmeistarar tekið þátt í alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu og aldrei fleiri konur. Færri komust að en vildu og tóku sumar konurnar mótið fram yfir heimsmeistaramót kvenna sem haldið er nú á sama tíma.

Læknir braut lög um persónuvernd

Yfirlæknir á Landspítalanum braut lög um persónuvernd þegar hann sótti upplýsingar í sjúkraskrá í heimildarleysi þegar hann var að vinna álit fyrir tryggingafélag.

Ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, er ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna sjóslyss. Slysið varð þegar bátur hans steytti á Skarfaskeri í Viðeyjarsundi í september síðastliðnum.

Eldingar granda ekki flugvélum

Ekkert er að óttast þótt eldingu ljósti niður í flugvélar, líkt og gerðist í flugtaki vélar Icelandair í gær, að sögn fyrrum flugmanns og sérfræðings í áfallahjálp við farþega sem lenda í uggvænlegum uppákomum í háloftunum.

Úr pólitík í bankann

Fyrrum erfðaprins Framsóknarflokksins gekk af leikvelli stjórnmálanna í dag þegar forseti Íslands samþykkti afsögn hans sem félagsmálaráðherra á Ríkissráðsfundi í morgun. Eftir fundinn bað Árni flokksfélaga sína afsökunar á brotthvarfinu en sagði ástæður sínar persónulegar.

16 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur á Akureyri

Það virðist ekkert lát á hraðakstri ökumanna. Lögreglan á Akureyri hefur stöðvað 16 ökumenn fyrir of hraðan akstur frá klukkan sjö í morgun. Allir ökumenn voru að keyra innanbæjar og fimm þeirra ökumanna sem lögreglan stöðvaði voru að keyra í nágrenni við skóla þar sem hámarkshraði er 30 km.

Sjá næstu 50 fréttir