Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn leitað vitna að árás á stúlku sem beið í strætóbiðskýli Rannsóknarlögreglan leitar enn vitna að árás karlmanns á 16 ára gamalli stúlku í strætóskýli við Miklubraut á föstudagskvöldið. Stúlkan var að bíða eftir strætosvagni í biðskýli milli hálf-níu og níu og lenti í átökum við karlmann. Átökin bárust að Sogavegi þar sem stúlkunni tókst að losa sig frá manninum. 8.1.2006 11:51
Nefnd um flutning heilbrigðisþjónustu bíður enn svara Nefnd um flutning heilbrigðisþjónustu til sveitarfélaga skilaði áliti sínu fyrir rúmu ári síðan og bíður enn viðbragða. Ástæðan fyrir biðinni er tregða sveitarfélaga til sameiningar, segir heilbrigðisráðherra. 8.1.2006 11:47
Gefur ekki kost á sér í sameiginlegu prófkjöri fyrir sveitastjórnarkosningarnar Bryndís Friðgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Ísafirði mun ekki gefa kost á sér í sameiginlegu prófkjöri minnihlutaflokkanna fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor. Bryndís hefur verið í bæjarstjórn á Ísafirði og í Ísafjarðarbæ meira og minna í um 15 ár. 8.1.2006 11:16
Ekið á ungan dreng í Grindavík Ekið var á ungan dreng við Miðgarð í Grindavík um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Talið var að drengurinn væri fótbrotinn en annar fótur hans hafði orðið undir afturhjóli bifreiðar sem hafði ekið framhjá honum. Drengurinn, sem er sex ára, var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar og þar kom í ljós að hann var ekki fótbrotinn. Hann hafði tognað á fætinum og fékk að fara heim að skoðunn lokinni. 8.1.2006 10:00
Ófært víða á Vestfjörðum Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum sem og á flestum vegum á Suðurlandi. Á Vesturlandi er víða ýmist hálka eða hálkublettir og á Holtavörðuheiði er hálka og skafrenningur. Á Vestfjörðum er óveður og ófært, bæði á Hálfdán- og Gemlufallsheiði en verið er að moka Kleifarheiði og Klettháls. 8.1.2006 09:39
Sinueldar blossa upp á Akureyri Slökkvilið Akureyrar var kallað út um sjöleitið í gær vegna sinuelda sem höfðu kviknað út frá brennu inn í Melgerði, hjá Torfum. Slökkvilið var síðan kallað út aftur í nótt en þá hafði eldur blossað upp að nýju. Engin hætta stafaði af eldinum en girðingar urðu hvað verst úti í sinueldinum. Þrír voru ökumenn voru stoppaðir, grunaðir um ölvun við akstur í Reykjavik í nótt. Að því frátöldu var nóttin róleg hjá lögreglunni í Reykjavík og sömuleiðis víða um land. 8.1.2006 09:23
Stjórnmálaflokkar ekki sammála um breytingar á eftirlaunalögum Engar breytingar hafa verið gerðar á eftirlaunalögunum þar sem stjórnmálaflokkarnir eru ekki samstíga um hversu langt eigi að ganga til breytinga. Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna segir engar málamiðlanir til. Það verði að rífa þessi ólög upp með rótum. Allt hik sýni að hugur fylgi ekki máli hjá stjórnarflokkunum. 7.1.2006 18:15
Jólahátíð rétttrúnaðarmanna gengin í garð Á sama tíma og flestir Íslendingar kveðja jólin eru þau rétt að hefjast hjá réttrúnaðarmönnum. Þeirra jól voru hringd inn eftir miðnætti í nótt, víða um heim, líka hér á landi. 7.1.2006 17:08
Félagsmálaráðherra efnir til víðtæks samráðs um framtíð húsnæðislána ríkisins Félagsmálaráðherra ætlar að efna til víðtæks samráðs um framtíð húsnæðislána ríkisins. Starfshópur á vegum ráðherra telur koma til greina að þróa Íbúðalánasjóð í átt til heildsölubanka. Að mati hópsins kemur tvennt til greina, að Íbúðalánasjóður verði rekin áfram í lítið breyttri mynd eða verði heildsölubanki. 7.1.2006 16:51
Nefnd um flutning heilbrigðisþjónustunnar til sveitarfélaga bíður svara Nefnd um flutning verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga skilaði skýrslu sinni til heilbrigðisráðherra fyrir meira en ári en þó hafa enn engin viðbrögð borist frá Ráðuneytinu. Þetta kom fram í viðtali við Dag B. Eggertsson, í þættinum Skaftahlíð 24 á NFS í dag. 7.1.2006 16:40
Eldur í bílskúr við Safamýri Mikill eldur varð laus í bílskúr við Safamýri í Reykjavík á fjórða tímanum í dag. Tveir dælubílar voru sendir á staðinn og enn var verið að ráða niðurlögum eldsins klukkan fjögur. Bílskúrinn var áfastur íbúðarhúsi að hluta engin slys urðu á fólki þar sem húsráðendur voru ekki heima við. Ekki er vitað um upptök eldsins. 7.1.2006 15:59
Skopmyndir af Múhammeð ekki kæruverðar Saksóknari í Viborg í Danmörku hefur vísað frá kæru ellefu múslimasamtaka á hendur Jótlandspóstinum. Múslimasamtökin kærðu Jótlandspóstinn fyrir birtingu skopmynda af spámanninum Múhammeð. Lögmaðurinn segir birtingu myndanna hvorki brjóta lög um mismunun eftir trú og kynþætt,i né lög um guðlast. Múslimar eru æfir vegna þessa og ætla með málið fyrir hæstarétt. 7.1.2006 14:00
Ráðist á stúlku í strætóskýli í gærkvöldi Lögreglan í Reykjavík rannsakar atvik sem átti sér stað í gærkvöldi, föstudaginn 6. janúar um kl: 20.30 til 21.00, í biðskýli Strætó við Miklubraut, gegnt Skeifunni, í akstursleið austur. Þar er talið að veist hafi verið að ungri stúlku sem beið þar eftir strætisvagni.og að til átaka hafi komið milli hennar og árásarmannsins. Átökin munu hafa borist í átt að Sogavegi áður en stúlkan náði að losa sig frá árásarmanninum. 7.1.2006 14:00
Opinn fundur um Norðlingaölduveitu í Norræna húsinu í dag Átta félagasamtök sem láta sig varða umhverfisvernd efna í dag til opins fundar um mikilvægi þess að vernda Þjórsárver og koma þannig í veg fyrir Norðlingaölduveitu. Yfirskrift fundarins er "Þjórsárver eru þjóðargersemi sem ekki má spilla" en fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu og hefst klukkan hálftvö. 7.1.2006 13:30
Eyþór Arnalds tilkynnnir viðbrögð við framboðsáskorun Sunnlendinga Eyþór Arnalds heldur fund í Tryggvaskála á Selfossi klukkan fjögur í dag. Þar ætlar að tilkynna viðbrögð sín við auglýsingu í Sunnlenska fréttablaðinu í vikunni. Þar skoruðu eitthundrað og fimmtíu sunnlendingar á hann að gefa kost á sér í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkin í komandi sveitarstjórnarkosnigum í vor. 7.1.2006 13:23
Starfshópur um Íbúðalánasjóð vill jafnvel heildsölubanka Starfshópur á vegum félagsmálaráðuneytisins, sem falið var að leggja mat á stöðu Íbúðalánasjóðs og möguleika sjóðsins við breyttar markaðsaðstæður, telur eðlilegt að kannað verði til hlítar hvort rétt sé að þróa hlutverk Íbúðalánasjóðs í átt til heildsölubanka. 7.1.2006 13:00
Færeyingar leita langmest allra Norðurlandabúa að barnaklámi á netinu Færeyingar leita langmest allra Norðurlandabúa að barnaklámi á netinu. Aðgangur að sambærilegum upplýsingum um sambærilega netnotkun Íslendinga er ekki að finna. 7.1.2006 12:47
Ber botn og djöfullinn á borðum landsmanna Ber botn og djöfullinn er eitthvað sem stundum sést á borðum landsmanna og þá sem teikningar aftan á mjólkurfernum. Flestir láta sér þetta í léttu rúmi liggja, en öðrum er ekki skemmt. 7.1.2006 12:40
Hálka víða um land Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum en annars eru flestar fleiðir greiðfærar á Suðurlandi. Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Á sunnanverðum Vestfjörðum er hálka, snjóþekja og éljagangur. 7.1.2006 12:23
Eldur á Njálsgötu Engin slys urðu á fólki þegar eldur kom upp í parhúsi á Njálsgötu um klukkan fjögurleitið í gær. Enginn var heimavið þegar eldurinn kom upp en þegar íbúar komu heim urðu þeir varir við reyk og kölluðu til Slökkvilið Reykjavíkur. 7.1.2006 12:18
Engin ástæða til að forðast ferðalög til Tyrklands Tyrknesk yfirvöld rannsaka nú þann möguleika hvort fyrstu dauðsföll af völdum fuglaflensu þar í landi sé um smit manna á millum að ræða. Haraldur Breim, sóttvarnarlækninr segir enga ástæðu til að forðast ferðalög til Tyrklands. 7.1.2006 12:16
Tvær brennur á höfuðborgasvæðinu í kvöld Ákveðið hefur verið að kveikja í þrettándabrennum í Mosfellsbæ neðan Holtahverfis við skeiðvöllinn og í Gufunesi í kvöld, en öðrum brennum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið frestað þar til eftir helgi. Brennan í Mosfellsbæ hefst með blysför frá Nóatúni klukkan 17:00 og í Gufunesi verður kveikt í brennunni klukkan 17:30. 7.1.2006 12:08
Rússar fagna jólum í dag Rússar halda upp á jólin í dag en rússnesk jólin voru hringd inn eftir miðmætti í nótt víða um heim, meðal annars á Íslandi. Samkvæmt rússneska tímatalinu eru ganga jólin í garð 6.janúar sem samsvarar aðfangadag í kristinni trú. 7.1.2006 11:54
Starfsfólk leikskóla Kópavogs bíður svara til 20. janúar Allt útlit er fyrir að ófaglært starfsfólk á leikskólum í Kópavogi dragi uppsagnir sínar til baka, en það er þó háð því að sátt náist í launamálum. Nú þegar hafa fimmtíu og níu starfsmenn sagt upp á leikskólum bæjarins og þar af eru fimmtíu ófaglærðir. Jófríður Sigfúsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogs, sagði í samtali í morgun að á næstu dögum væri búist við enn fleiri uppsögnum. Hún reiknaði með að eftir helgi yrði talan líklega komin upp í áttatíu. 7.1.2006 10:23
Stórtónleikar gegn stóriðju í kvöld Stórtónleikar gegn stóriðju verða haldnir í Laugardalshöll í kvöld. Tónleikanna hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu en fjölmargir íslenskri og erlendir tónlistarmenn munu spila á tónleikunum, meðal annars Björk, Damon Albarn, Damien Rice, Mugison, Sigur Rós, múm, HAM og fleiri og fleri. 7.1.2006 10:21
Tveir úrskurðaðir í gsæluvarðhald vegna dreifingar á fíkniefnum Lögreglan á Ísafirði handtók tvo einstaklinga við húsleit sem gerð var á Ísafirði í gær. Lagt var hald á nokkurt magn fíkniefna, áhöld og fjármuni sem ætlað er að tengist sölu fíkniefna. Einstaklingarnir tveir eru grunaðir um dreifingu á fíkniefnum á norðanverðum Vestfjörðum. Héraðsdómur Vestfjarða úrskurðaði þá í gæsluvarðhald til klukkan 16 næstkomandi þriðjudag. 7.1.2006 10:07
Verið að hreinsa vegi á Vestfjörðum Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum en flestar leiðir á Suðurlandi eru greiðfærar. Á Snæfellsnesi er víða hálka eða snjóþekja og þæfingur er á Fróðárheiði og þar er verið að moka. Þá er hálka og éljagangur á Holtavörðuheiði. Eins og er er ófært yfir Kleifaheiði en verið er að moka. 7.1.2006 09:58
Róleg nótt hjá lögreglu víða um land Nóttin var róleg hjá lögreglu víða um land og má telja líklegt að vont veður hafi sett strik í reikninginn. Vestmannaeyingar létu þó vonskuveður ekki stoppa sig en um sex hundruð manns voru samankomnir á balli í eyjum í gærkvöldi. Slökkvilið Akureyrar var kallað út fjórum sinnum í gærkvöldi vegna sinuelda. 7.1.2006 09:52
Heilsugæslan Fjörður vígð í Hafnarfirði í dag Heilsugæslan Fjörður í Hafnarfirði var vígð við hátíðlega athöfn í dag. Um nýja heilsugæslu er að ræða og mun hún þjóna íbúum Álftanes og Hafnarfjarðar. Á heilsugæslunni verður veitt almenn læknis- og hjúkrunarþjónusta, slysa og bráðaþjónusta. 6.1.2006 21:22
Viðvörun frá Veðurstofu íslands. Viðvörun frá Veðurstofu íslands. Búist er við stormi víða um land í kvöld og nótt. Sunnan hvassviðri eða stormur um mest allt land. Talsverð rigning er sunnan- og vestantil, en þurrt að mestu norðaustanlands. Veðrið snýst í hægari vestan átt með slyddu og síðar snjókomu um landið vestanvert um og upp úr miðnætti. 6.1.2006 20:58
Bjóða biskup fræðslu um málefni samkynhneigðra. Samtökin ´78 hafa boðið Karli Sigurbjörnssyni, biskup Íslands, og biskupsstofu sérstaka fræðslu um málefni samkynhneigðra og fullan aðgang að bókasafni samtakanna. Þetta kemur fram í bréfi sem samtökin sendu biskup í dag. 6.1.2006 19:33
Forseti Íslands var 66 daga í útlöndum. Forseti Íslands var sextíu og sex daga í útlöndum á síðasta ári í embættisferðum og heimsótti lönd í þremur heimsálfum í þessum ferðum. Ekki fást upplýsingar um aðrar ferðir forseta til útlanda enda eru þær jafnan farnar á eigin reikning og dagpeningar ekki greiddir fyrir þær. 6.1.2006 19:22
Bakgrunnur einkaþjálfara misjafn. Fjöldi fólks hefur einsett sér að komast í betra form á nýju ári og vinsælt er að kaupa þjónustu einkaþjálfara til að halda sér við efnið. er þó misjafn og meðal þeirra má finna allt frá alþjóðlegum kynbótadómurum hrossa til sjúkraþjálfara. 6.1.2006 19:16
Stærstu fasteignakaup Íslandssögunnar voru innsigluð í dag Stærstu fasteignakaup Íslandssögunnar voru innsigluð í dag þegar fasteignafélagið Stoðir keypti Atlas Ejendomme sem á þrjátíu og fjórar fasteignir í Danmörku, flestar miðsvæðis í Kaupmannahöfn. 6.1.2006 19:13
Forsætisráðherra ræðir við formenn stjórnmálaflokka um breytingar á eftirlaunalögunum Forsætisráðherra hefur rætt við formenn allra . Flokkarnir eru hinsvegar ósamstíga um hversu langt sé hægt að ganga. 6.1.2006 19:11
Öllum brennum frestað Búið er að fresta öllum þrettándabrennum og flugeldasýningum sem áttu að vera á höfuðborgarsvæðinu í kvöld. Eins hefur brennum verið frestað í Grindavík, á Blönduósi og Selfossi. 6.1.2006 19:08
Biskub Íslands vill ekki hjónaband samkynhneigðra Varaformaður allsherjarnefndar Alþingis segir að samþykkja eigi breytingu á hjúskaparlögum sem heimili giftingu samkynhneigðra, að því gefnu að slík athöfn verði kölluð annað en hjónaband. 6.1.2006 18:47
Umræðufundur um fræðslumál Samtök Ferðaþjónustunnar boða til fundar um fræðslumál fimmtudaginn 19. janúar næstkomandi kl. 13:00 í Borgartúni 35. 6.1.2006 17:16
Sterling selt til Easy Jet? Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir að til greina komið að selja breska lággjaldaflugfélaginu Easy Jet, danska flugfélagið Sterling, sem er í eigu FL Group. Í viðtali við danska viðskiptablaðið Börsen segir Hannes að einnig komi til greina að auka mjög samstarf þessara tveggja flugfélaga. Sameinuð yrðu flugfélögin stærsta lággjaldaflugfélag í Evrópu. 6.1.2006 16:44
Viðvörunarkerfi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fór í gang. Viðvörunarkerfi í Flugstöð Leifs Eiríkssona fór af stað fyrir stundu. Vatnsrör sem tengt er sprinkler kerfi hússins fór í sundur á annarri hæð og er talið að óhappið tengist framkvæmdum í flugstöðinni. 6.1.2006 16:07
Sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði frá dómi í dag skaðabótakröfu og sýknaði mann sem kona hafði sakað um að hafa sært blygðunarkennd sína þegar hann tók um rass hennar, sleikti andlit hennar og káfaði á kynfærum hennar utan klæða. Í 6.1.2006 15:58
Þrettándagleði Þórs á Akureyri verður haldin kl. 19.00 í kvöld Hin árlega þrettándagleði Þórs á Akureyri verður haldin í kvöld í Knattspyrnuhúsinu og mun gleðin hefjast kl 19.00. Mun þetta vera fimmtugasta og fimmta skipti sem Þór á Akureyri heldur Þrettándagleði sína. 6.1.2006 15:39
Hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum. Einnig er hálka, hálkublettir og snjóþekja á Vesturlandi. Á Vestfjörðum er hálka, hálkublettir og éljagangur. Eyrarfjall í Ísafjarðardjúpi er ófært og einnig á Hrafnseyrarheiði og þungfært á Dynjandisheiði. 6.1.2006 15:28
Íþróttamaður Garðabæjar 2005 kjörinn á sunnudag. Kjör á íþróttamanni Garðabæjar 2005 fer fram í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ sunnudaginn 8. janúar kl 14. 6.1.2006 14:51
Sterling brýtur samkeppnislög Dönsk samkeppnisyfirvöld segja lággjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Íslendinga, brjóta lög með því að innheimta of há gjöld af flugmiðum sem keyptir eru með greiðslukortum. 6.1.2006 14:40