Fleiri fréttir

Fischer stefnir stjórnvöldum

Bobby Fischer hefur stefnt bandarískum stjórnvöldum fyrir ólöglega frelsissviptingu vegna níu mánaða varðhaldsvistar í Japan. Í kærunni segir að japönsk stjórnvöld hafi að undirlægi bandarískra stjórnvalda haldið skákmeistaranum í slæmum aðbúnaði þar til hann samþykkti að snúa aftur til Bandaríkjanna.

Eldur í mannlausri sendibifreið

Eldur kviknaði í mannlausri sendibifreið í Reykjanesbæ í nótt. Slökkvilið brunavarna Suðurnesja var kallað á staðinn og slökkti eldinn um hálfsex leytið í morgun. Bifreiðin skemmdist mikið og er jafnvel talin ónýt. Ekki er vitað um upptök eldsins og er málið í rannsókn lögreglunnar í Keflavík.

Margmenni í miðbænum

Nóttin var róleg hjá lögreglunni í Reykjavík þótt margt fólk hafi verið í miðbænum fram eftir morgni. Margir skemmtistaðir og krár voru opnaðar á miðnætti og að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík var sem betur fer lítið fyrir lögreglumenn að gera þótt töluverður mannfjöldi hafi verið þar samankominn.

Vorfæri í Hlíðarfjalli

Opið er í Hlíðarfjalli til klukkan fjögur. Nú er vorfæri og skíðamenn beðnir að fara varlega vegna þess að grunnt er á grjótið utan hefðbundinna skíðaleiða.

Stangveiðimót við Reynisvatn

Almenningi býðst að taka þátt í stangveiðimóti við Reynisvatn í dag milli klukkan eitt og þrjú. Veglegir vinningar eru í boði, bæði veiðibúnaður og veiðileyfi. Fjögur þúsund krónur kostar að taka þátt en inni í því er fimm fiska kvóti.

Minnir á meðferð nasista

Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, tekur undir með samferðarmanni sínum í Palestínu, Magnúsi Þór Hafsteinssyni, þingmanni Frjálslynda flokksins, að ástandið minni á meðferð nasista á gyðingum í seinni heimsstyrjöld.

Fischer fór mikinn um gyðinga

Bobby Fischer fór mikinn um gyðinga á blaðamannafundinum í gær. Framkvæmdastjóri og lögfræðingur Alþjóðahúss segja það stefnu hússins að tjá sig ekkert um Fischer að svo stöddu.

Stuðningur Íslands svívirða

Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, gagnrýndi harðlega stuðning íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak á blaðamannafundi í gær og sagði hann vera svívirðu. Varaformaður utanríkismálanefndar segir íslensk stjórnvöld standa vörð um opna lýðræðislega umræðu, þótt þau séu sjónarmiðum Fischers ósammála í grundvallaratriðum.

Jarðskjálftar fyrir norðan

Jarðskjálfti upp á rúmlega þrjá á Richter varð 15-20 km norður af mynni Eyjafjarðar á tólfta tímanum í gærkvöld. Minniháttar eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið að sögn Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings.

Tilraun til að opna neyðarútganga?

Tyrkneskur maður með finnskt ríkisfang var grunaður um að hafa reynt að opna neyðarútganga í flugvél Icelandair á leiðinni frá Stokkhólmi til Keflavíkur í gær. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli tók hann til yfirheyrslu þegar í ljós kom að átt hafði verið við hurðirnar aftast í vélinni.

Ráðningin verði endurskoðuð

Alþjóðasamtök blaðamanna hafa lýst yfir fullum stuðningi við fréttamenn á fréttastofu Ríkisútvarpsins sem hafa hótað aðgerðum ef ráðning Auðuns Georgs Ólafssonar, nýráðins fréttastjóra, verður ekki dregin til baka. Samtökin skora á stjórnendur Ríkisútvarpsins að endurskoða ráðninguna.

Lóðin a.m.k. fimm milljarða virði

Lóðin í Öskjuhlíð sem Reykjavíkurborg hefur boðið Háskólanum í Reykjavík er að minnsta kosti fimm milljarða króna virði. 20-30 þúsund manns gætu starfað í Vatnsmýrinni á næstu árum þegar nýtt þekkingarþorp verður að veruleika.

Trúnaðarpappírar á víðavangi

Skjalamöppur með nöfnum fólks sem hefur átt í útistöðum vegna meðlagsmála, faðernismála, skilnaðarmála og forsjármála lágu fyrir hunda og manna fótum á bak við hús Sýslumannsins í Reykjavík. 

Þyrlan sótti slasaðan mann

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti ungan mann sem slasaðist alvarlega þegar hann féll af svokölluðu átthjóli við Gufuskála, nærri Ólafsvík, um sexleytið í kvöld. Fimm önnur ungmenni voru farþegar á hjólinu og slösuðust þau minna.

Ummæli Fischers verði rannsökuð

Íslenskur fornleifafræðingur í Danmörku hefur óskað eftir því að ríkissaksóknari hefji opinbera rannsókn á ummælum Bobbys Fischers um gyðinga. Ríkislögreglustjórinn og allsherjarnefnd hafa einnig fengið erindi frá honum vegna málsins. 

Páskafrí grunnskólanna ekki stytt

Ekki kom til greina að stytta páskafrí grunnskólabarna í ár til að vega á móti töpuðum skólatíma í kennaraverkfallinu. Svo virðist sem meirihluti foreldraráða og kennara í skólum í Reykjavík hafi verið því andsnúinn. 

Fann18 ára gamalt flöskuskeyti

Grænlenskt fótboltalið sendi flöskuskeyti frá suðurodda Grænlands fyrir átján árum. Kveðjan barst lítilli stúlku úr Kópavogi á skírdag sem fann flöskuna í fjörunni við Straumsvík.

Greiðfært um helstu þjóðvegi

Greiðfært er um helstu þjóðvegi landsins. Þó eru hálkublettir á Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði og á milli Akureyrar og Ljósavatns.

Opið á skíðasvæðum fyrir norðan

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið í dag til klukkan fimm. Þar er átta stiga hiti, logn og léttskýjað. Einnig er opið í Tindastóli ofan Sauðárkróks en lokað er í Bláfjöllum og Skálafelli.

Heimilislæknar lesa Passíusálmana

Heimilislæknar lesa Passíusálma Hallgríms Péturssonar í tilefni af Föstudeginum langa í Grafarvogskirkju í dag frá klukkan hálf tvö til sjö. Tónlistarumsjón hefur Hörður Bragason organisti, Birgir Bragason leikur á bassa og Hjörleifur Valsson á fiðlu.

Af hverju þessi áhugi á Fischer?

Af hverju eru Íslendingar svona hrifnir af Bobby Fischer? Erlendir fjölmiðlar hafa margir hverjir beint sjónum sínum að þessari óskiljanlegu ráðgátu. 

Fischer tók daginn snemma

Bobby Fischer tók daginn snemma og fór í gönguferð, þrátt fyrir að hann væri örþreyttur eftir langt ferðalag frá Japan, en hann kom loksins til landsins með íslenskt vegabréf og íslenskt ríkisfang seint í gærkvöld.

Skemmdir á skála eftir skothríð

Tilkynnt var um skemmdir á skála við Djúpavatn, m.a. eftir skothríð, í gær. Höfðu 20 rúður verið brotnar í skálanum auk salernis sem er í úthýsi. Þá höfðu tvær hurðir og tvö salerni verið brotin.

Segja Stöð 2 hafa stýrt heimkomu Fischers

Velunnarar Bobbys Fischers fara hörðum orðum um framgöngu Stöðvar 2 við heimkomu skákmeistarans og segja stöðina hafa stolið senunni. Í yfirlýsingu sem Einar S. Einarsson sendi frá sér segir að lögregla hafi tekið við fyrirmælum frá fréttastjóra Stöðvar 2 en ekki frá Fischer nefndinni. Ennfremur segir að það hljóti að vera algjört einsdæmi að fréttamiðill taki atburðarásina i eigin hendur af skipuleggjendum og stýri framvindu atburðar til að geta setið einn að hitunni.

Aldrei fór ég suður lengd

Rokkhátíðin „Aldrei fór ég suður“ hefst fyrr en áætlað var vegna meiri þátttöku tónlistarmanna en áætlað hafði verið. „Þegar farið var að raða niður hljómsveitum kom í ljós að okkur hafði ekki tekist að skera niður eins mikið og við ætluðum,“ segir Guðmundur Kristjánsson, einn skipuleggjenda hátíðarinnar í samtali við fréttavef Bæjarins besta.

Fjarðaál fær leyfi fyrir byggingu

Fjarðaál hefur fengið tímabundið leyfi frá umhverfisnefnd Fjarðabyggðar til að reisa þjónustu- og upplýsingamiðstöð við gamla þjóðveginn, vestan við Sómastaði. Um er að ræða upplýsingamiðstöð fyrir framkvæmdir á álverslóð og fyrir ferðaþjónustu í Fjarðabyggð.

Tekur ekki þátt í skáklífinu

Bobby Fischer ætlar ekki að taka neinn þátt í skáklífinu hér á landi, hvorki að tefla við aðra íslenska skákmenn né koma að skákkennslu. Hann vill frekar halda áfram þróun sinni á annarri útfærslu skákíþróttarinnar, svokallaðri „random chess“, þar sem meðal annars er önnur uppröðun skákmannanna en gengur og gerist.

Stýrði ekki atburðarásinni

Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna yfirlýsinga og umræðna sem tengjast framgöngu Stöðvar 2 við komu Bobbys Fischers til Íslands í gærkvöldi. Þar neitar hann að hafa stýrt atburðarásinni á Reykjavíkurflugvelli. Þá segir Páll í hlutarins eðli að Stöð 2 hafi reynt eftir fremsta megni að tryggja sér sem bestan aðgang að Fischer.

Íslendingar algerlega skákóðir

Erlendir fjölmiðlar leita ákaft svara við því hvers vegna Íslendingar eru svona hrifnir af hinum umdeilda Bobby Fischer. Niðurstaðan virðist aðallega á einn veg: Íslendingar eru upp til hópa þakklátir Fischer, gestrisnir og algerlega skákóðir.

Undrast ákvörðun Kópavogsbæjar

Forsvarsmenn íbúa Hjallahverfis í Kópavogi hafa í bréfi óskað eftir því að bæjaryfirvöld skoði skipulag Dalvegar í heild sinni.

Segist ekki hafa stýrt atburðarás

Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, segir í yfirlýsingu að hann hafi ekki stýrt atburðarásinni á Reykjavíkurflugvelli við komu Bobby Fischers eins og stuðningsmenn Bobby Fischer hafa sagt.

Olsen bræður næstum til Kiev

Íslandsvinirnir dönsku, Olsen-bræður, náðu ekki að koma lagi sínu Little Yellow Radio að í Eurovision í ár. Þeir urðu í öðru sæti í dönsku forkeppninni á eftir Jakob Sveistrup sem flytur lagið Tænder På Dig í forkeppninni í Úkraínu 19. maí.

Stjórvöld stjórna mannréttindum

Mannréttindaskrifstofa Íslands fær skilyrt styrktarfé að upphæð 2,2 milljónir króna frá dómsmálaráðuneytinu. Er það eina féð sem stjórnvöld hafa tryggt skrifstofunni einni sem áður var á fjárlögum.

Stórskothríð á veiðihús

Þrír menn um tvítugt úr Grindavík brutu tuttugu rúður í veiðiskála og salerni sem stendur í útihýsi við Djúpavatn sunnan Trölladyngju og Soga á Reykjanesskaga.

Lögreglufréttir

Tíu ökumenn voru teknir á of miklum hraða á Vesturlandsvegi við Borgarnes á fimmtudag. Voru ökumennirnir á 110 til 125 kílómetra hraða. Lögreglan í Borgarnesi sagði ökumenn hafa verið rólegri í gær en umferð heldur mikla.

Fischer bjartsýnn á framtíð sína

Bobby Fischer segist bjartsýnn á framtíð sína á Íslandi, þótt hann sé lítið farinn að skipuleggja hana. Hann segist engan áhuga hafa á venjulegri skák lengur. Fischer kom víða við á blaðamannafundi í dag.

Ráðist gegn ókeypis leikskóla

Formanni borgarráðs, Alfreð Þorsteinssyni, líst illa á hugmyndir fjármálaráðherra um að fasteignagjöld af opinberum byggingum renni í jöfnunarsjóð sveitarfélaganna.

Fannst ég frjáls þegar ég sá Sæma

Bobby Fischer lýsti væntumþykju sinni til Sæmundar Pálssonar á blaðamannafundi sem haldinn var á Hótel Loftleiðum í gærdag. Fischer sagðist fyrst hafa fundist hann vera frjáls þegar hann sá Sæmund í Kaupmannahöfn. 

Persónulegar svívirðingar

Á blaðamannafundi Bobby Fischers á Hótel Loftleiðum í gær kom til snarprar umræðu milli Fischers og blaðamanns frá bandarísku íþróttafréttastöðinni ESPN. Átökin voru farinn að snúast upp í persónulegar svívirðingar þegar blaðamaðurinn dró sig í hlé vegna geðshræringar. </font />

Segist ekki hafa beitt þrýstingi

Landbúnaðarráðherra segist ekki hafa þrýst á úthlutunarnefnd launasjóðs myndlistarmanna um að veita ákveðnum listamanni starfslaun. Hann hafi einungis talað við einn nefndarmanna til að fá upplýsingar.

Segja Stöð 2 hafa rænt Fischer

Stuðningnefnd gagnrýnir framgöngu Páls Magnússonar fréttastjóra Stöðvar 2 við komu Bobby Fischers. Þeir telja hann hafa reynt að stýra atburðarrásinni og nánast rænt Bobby Fischer um stundarsakir.

Persónulegar svívirðingar

Á blaðamannafundi Bobby Fischers á Hótel Loftleiðum í gær kom til snarprar umræðu milli Fischers og blaðamanns frá bandarísku íþróttafréttastöðinni ESPN. Átökin voru farinn að snúast upp í persónulegar svívirðingar þegar blaðamaðurinn dró sig í hlé vegna geðshræringar.

Niðurstöður í haust

"Erfitt er að segja til um hvenær rannsókn lýkur en við erum aðeins byrjaðir að sjá fyrir endann og niðurstöður gætu legið fyrir með haustinu," segir Helgi Magnús Gunnarsson, lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra, um rannsóknina á olíumálinu svokallaða.

Fundust heil á húfi

Laust eftir klukkan 17.00 í dag voru björgunarsveitir á Hellissandi og Ólafsvík kallaðar út vegna neyðarkalls sem borist hafði úr farsíma við sunnanverðan Snæfellsjökul. Ferðamenn höfðu villst sunnanmegin í Snæfellsjökli en fólkið fannst eftir rúmlega klukkutíma leit. Það var heilt á húfi en nokkuð kalt.

Sjá næstu 50 fréttir