Lóðin a.m.k. fimm milljarða virði 26. mars 2005 00:01
Lóðin í Öskjuhlíð sem Reykjavíkurborg hefur boðið Háskólanum í Reykjavík er að minnsta kosti fimm milljarða króna virði. 20-30 þúsund manns gætu starfað í Vatnsmýrinni á næstu árum þegar nýtt þekkingarþorp verður að veruleika. Lóðin sem Háskólanum í Reykjavík stendur til boða í Öskjuhlíð er um tuttugu hektarar og er talin a.m.k. fimm milljarða króna virði. Hluti lóðarinnar liggur innan flugvallargirðingar þar sem áður var gert ráð fyrir nýrri samgöngumiðstöð en samkvæmt samkomulagi borgarinnar og samgönguráðherra hefur hún nú færst norðar. Líkt og Háskóli Íslands fær skólinn lóðina án endurgreiðslu en greiðir þá eingöngu gatnagerðargjöld. Um fimm þúsund nemendur stunda nám við skólann í dag eftir að hann var sameinaður Tækniháskólanum en lóðin sem er gríðarlega stór að að rúma alla starfsemi skólans á næstu árum. Þar með hátæknifyrirtæki í rannsóknarsamstarfi og stúdentagarða. Skólanum stendur einnig til boða lóð í Garðabæ en stjórnendur hans hafa tekið sér frest fram í miðjan aprílmánuð til að ákveða hvaða tilboði þeir taka. Bakvið Öskju og Íslenska erfðagreiningu hefur Háskóli Íslands skipulagt vísindagarða sem telja um fimmtíu þúsund fermetra. Visindagarðarnir eru hugsaðir sem aðsetur þróunar- og rannsóknardeilda hátæknifyrirtækja. Undirbúningur er kominn vel á veg og áætlað að framkvæmdir geti hafist fljótlega. Áformað er að stækka Landspítalann um 180 þúsund fermetra á lóðinni við Hringbraut. Þar af verður byggt yfir rannsóknar og líftæknistarfsemi þar sem Umferðarmiðstöðin stendur núna. Þetta verður uppistaðan í þekkingarþorpinu sem á að reisa á þessu svæði, frá Vatnsmýrinni að Öskjuhlíð, en þar munu starfa að jafnaði 25-30 þúsund manns á hverjum degi, ef Háskólinn í Reykjavík verður með. Ljóst er að allar þessar framkvæmdir til viðbótar við nýja samgöngumiðstöð kalla á öflugar ráðstafanir í umferðarmálum. Svokallaður Hlíðarfótur er inni á samgönguáætlun en sá vegur á að liggja frá Hringbraut og að Samgöngumiðstöð. Þá eru Öskjuhlíðargöng inni á langtímaáætlun, neðanjarðargöng frá Hlíðarfæti, undir Öskjuhlíðina að Kringlumýrarbraut. Framtíð Samgöngumiðstöðvarinnar veltur á því að göngin verði að veruleika en þau eru háð umhverfismati. Framtíðarstaðsetning Háskólans í Reykjavík er hins vegar ekki háð göngunum þótt þau myndu gera staðsetninguna enn eftirsóknarverðari. Borgaryfirvöld vonast til að samstarf ólíkra skóla, hátæknifyrirtækja og rannsóknarstofnana á svæðinu geri Vatnsmýrinni kleift að keppa við öflugustu háskóla- og hátæknisvæði í heimi. Sú framtíðarsýn skýrir kappið sem borgaryfirvöld leggja á að greiða götu þessarar uppbyggingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira