Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn óvissa um sölu Símans Þeir sem áttu von á að ríkisstjórnin ákveddi fyrir páska hvernig staðið verður að sölu Símans mega bíða enn. Á fjármálamarkaði er mikið rætt um það hverjir munu bjóða í Símann. Því er haldið fram ítrekað að Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, segi kaupin í höfn svo lengi sem nægilega breiður hópur fjárfesta sameinist um tilboð. 22.3.2005 00:01
Íslenskættuð kona tæplega 110 ára Guðrún Björg Björnsdóttir Johnson átti einungis eftir tvo mánuði í að ná 110 ára aldri þegar hún dó 1998. Guðrún Björg fæddist á Vopnafirði en flutti fjögurra ára gömul til Kanada. Tengdadóttir Guðrúnar segir lykilinn að löngum aldri að líkindum fólginn í því hve mjög hún elskaði börnin sín og þau hana. 22.3.2005 00:01
Hundi bjargað af þaki "Hvolpurinn var björguninni feginn enda skalf hann af hræðslu þegar við náðum til hans," segir Oddur Eiríksson, hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, en þeir fengu sérstætt verkefni um miðjan dag í gær þegar óskað var eftir aðstoð þeirra við að bjarga hundi af þaki íbúðarhúss við Tjarnargötu í Reykjavík. 22.3.2005 00:01
Vilja upplýsingar um starfslok Fjármálaeftirlitið hefur krafið stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins um upplýsingar um starfslokasamning sem fyrruverandi stjórn sjóðsins gerði við Jóhannes Siggeirsson, þáverandi framkvæmdastjóra. Einnig er óskað upplýsinga um starfslok hans í síðasta mánuði. 22.3.2005 00:01
Minna fé til listaverkakaupa Listasafn Íslands hefur átta milljónum króna minna fé að raunvirði til kaupa á listaverkum en það hafði árið 1989. Þetta kemur fram í svari menntamálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri-grænna. 22.3.2005 00:01
Neytendur sviknir um ágóðann Innflytjendur og verslanir hafa nýtt sér sterka stöðu krónunnar til að hækka álagningu sína, að mati Neytendasamtakanna. Þetta geri þeir með því að halda verðinu að mestu óbreyttu þótt innkaupsverð lækki. 22.3.2005 00:01
Ólína verst ásökunum Stjórn Félags framhaldsskólakennara hefur skorað á menntamálaráðuneytið að gera rækilega úttekt á framgöngu Ólínu Þorvarðardóttur, skólameistara Menntaskólans á Ísafirði, gagnvart samstarfsfólki við skólann. Í bréfi félagsins til ráðuneytisins er talað um að "ógnarstjórn" ríki í skólanum. Ólína segir ásakanirnar staðlausar ærumeiðingar. 22.3.2005 00:01
Örfá atriði ófrágengin "Það voru nokkur atriði sem talin var ástæða til að skoða betur," segir Jón Sveinsson, formaður einkavæðinganefndar, spurður um ástæður þess að söluferli Símans verður ekki kynnt fyrir páska eins og til stóð. Hann vill ekki tilgreina nánar hvaða atriði þurfi nánari skoðunar við. 22.3.2005 00:01
Brugðist við verðbólguógn Seðlabankinn ætlar að hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig á þriðjudaginn eftir páska. Þá verða vextirnir komnir í níu prósent en í maí í fyrra voru þeir 5,3 prósent. 22.3.2005 00:01
Pólverjar teknir án atvinnuleyfis Þrír Pólverjar, sem reyndust vera án atvinnuleyfis í vinnu á hérlendis, voru yfirheyrðir af lögreglunni á Selfossi í gær. 22.3.2005 00:01
Gagnagrunnur um bíóaðsókn Samtök myndrétthafa á Íslandi, SMÁÍS, hafa tekið í notkun nýja veflausn sem heldur utan um aðsókn í kvikmyndahús og gerir kvikmyndahúsunum kleift að vinna með hagkvæmum hætti tölfræði um aðsókn að kvikmyndum. 22.3.2005 00:01
Nóatún þakkar slökkviliðinu Nóatún þakkaði slökkviliðsmönnum fyrir störf sín að Hringbraut 121 í dag þegar endurgerð Nóatúnsverslun var opnuð þar á ný eftir stórbruna sem varð í versluninni í desember sl. Sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf færði Nóatún Líknarsjóði brunavarðafélags Reykjavíkur peningagjöf að upphæð 500.000 krónur. 22.3.2005 00:01
Essó og Olís hækka einnig Olíufélögin Essó og Olís hafa fylgt í kjölfar Skeljungs og hækkað bensínlítrann um 2,70 og kostar bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu nú víða um hundrað krónur. Hann er enn nokkrum krónum ódýrari hjá dótturfélögum stóru olíufélaganna og Atlantsolíu. 21.3.2005 00:01
Tveir bátar urðu vélarvana Vélarbilun varð í tveimur trillubátum út af Reykjanesi í gærdag og óskuðu bátsverjar eftir aðstoð. Í báðum tilvikum komu nálægir bátar þeim til aðstoðar og drógu bátana til lands. 21.3.2005 00:01
Snarræði kom í veg fyrir eldsvoða Snarræði vaktmanns að Reykjalundi kom í gærkvöldi í veg fyrir að eldur næði að breiðast út á vinnusvæði þar sem plaströr eru steypt og mikill eldsmatur er. Strax og hann varð eldsins var kallaði hann á slökkvilið sem þegar hafði mikinn viðbúnað, en á meðan maðurinn beið þess að það kæmi á vettvang náði hann að slökkva eldinn. 21.3.2005 00:01
Íslendingar aflahæstir í Evrópu Íslenskir og hollenskir sjómenn skipta með sér fyrsta sætinu þegar skoðað er aflaverðmæti á hvern sjómann í Evrópu. Samkvæmt samantekt <em>Sjávarfrétta</em> yfir aflaverðmæti í hitteðfyrra nam verðmæti á hvern sjómann frá þessum þjóðum röskum fjórtán milljónum íslenskra króna. Næst komu svo færeyskir, belgískir og norskir sjómenn. 21.3.2005 00:01
Á veiðum vestur af Skotlandi Nokkur íslensk fiskiskip sem voru á loðnuveiðum þar til vertíðinni lauk í síðustu viku eru nú komin á kolmunnaveiðar á Hatton Rockall svæðinu vestur af Skotlandi. Þar hafa meðal annars norsk skip verið að fá all góðann afla upp á síðkastið og hafa nokkur þeirra landað hér á landi þar sem talsvert styttra er hingað af miðunum en til Noregs. 21.3.2005 00:01
Dómur í Skeljungsráninu þyngdur Hæstiréttur þyngdi í morgun um hálft ár dóm yfir Stefáni Aðalsteini Sigmundssyni fyrir Skeljungsránið svokallaða sem framið var fyrir áratug. Stefán fékk tveggja ára dóm í héraði en ránið framdi hann ásamt tveimur öðrum við Íslandsbanka í Lækjargötu í febrúar árið 1995. 21.3.2005 00:01
Tveggja jeppa leitað Lögreglan og Landssamband björgunarsveita, Landsbjörg, eru nú í hádeginu að hefja leit á tveimur Toyota Hi-Lux jeppum sem fóru frá Dalvík um klukkan 14 í gær. Í bílunum eru tveir karlmenn og ein kona. Fólkið ætlaði suður til Keflavíkur um Kaldadal en hefur ekki skilað sér. 21.3.2005 00:01
Báru ljúgvitni um nauðgun Átján ára stúlka hefur hlotið sjö mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa borið ljúgvitni með jafnöldru sinni og vinkonu sem kærði ungan Varnarliðsmann fyrir að hafa nauðgað sér í fyrra. Sú hlaut níu mánaða fangelsisdóm og óttast sýslumaður að málið kunni að hafa áhrif á nauðgunarmál í framtíðinni. 21.3.2005 00:01
Skilafrestur framtala framlengdur Skilafrestur skattframtala hefur verið framlengdur fram á miðvikudag. Áður auglýstur almennur framtalsfrestur rennur út í dag, 21. mars. 21.3.2005 00:01
Aðgerðirnar gerðar hér á landi Þeir sjúklingar sem eru með op á milli hjartagátta sjá nú fram á að geta farið í aðgerð á Landspítalanum í stað þess að þurfa að fara í aðgerð í útlöndum. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur samkvæmt vefsíðu ráðuneytisins ákveðið að tryggja Landspítalanum fé svo gera megi aðgerðirnar hér á landi. 21.3.2005 00:01
Sást til bílanna við Dúfunefsfell Staðfest hefur verið að sést hefur til bílanna sem saknað er við Dúfunefsfell um klukkan 17 í gær. Þá var ætlunin að halda niður á Hveravelli. Öll áhersla er nú að kanna þetta svæði til hlítar. Lögreglan og Landsbjörg hófu leit í hádeginu að tveimur Toyota Hi-Lux jeppum sem voru á leið frá Dalvík til Keflavíkur. 21.3.2005 00:01
Eins og fangabúðir nasista Sjálfsstjórnarsvæði Palestínumanna eru eins og fangabúðir og meðferðin minnir helst á meðferð nasista á gyðingum, segir Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður sem er á ferð í Miðausturlöndum. 21.3.2005 00:01
Þrettán afbrot á einum degi Þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í sex mánaða fangelsi, óskilorðsbundið, fyrir tugi afbrota af ýmsum toga sem hann hefur framið upp á síðkastið. Einn daginn náði hann að fremja þrettán afbrot. 21.3.2005 00:01
2000 hafa skrifað undir Um 2000 manns á Suðurnesjum hafa skráð sig á lista í undirskriftasöfnun vegna kröfu um sólarhringsvakt á skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. 21.3.2005 00:01
Þyrlan sveimar yfir Hveravöllum Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú komin að Hveravöllum og sveimar þar yfir svæðið í leit að tveimur Toyota Hi-Lux jeppum sem fóru frá Dalvík um klukkan 14 í gær. Lögreglan og landssamband björgunarsveita, Landsbjörg, hófu leit í hádeginu. 21.3.2005 00:01
800 manns á leið til Ísafjarðar Það stefnir í góða þátttöku á Skíðaviku Ísfirðinga sem fram fer um páskana en skíðavikan fagnar 70 ára afmæli um þessar mundir. Á milli 700 og 800 farþegar eru bókaðir með Flugfélagi Íslands til Ísafjarðar um páskahelgina og hefur verið bætt við aukavélum til að anna fólksflutningum, að því er fram kemur á vefsíðu Bæjarins besta. 21.3.2005 00:01
Hvalaskoðunarsamtök mótmæla Hvalaskoðunarsamtök Íslands mótmæla harðlega þeirri fullyrðingu að hvalveiðar Íslendinga árið 2003 hafi ekki haft áhrif á ímynd Íslands á helstu markaðssvæðum ferðaþjónustunnar, en því er haldið fram í niðurstöðu skýrslu samgönguráðherra um áhrif hvalveiða á ímynd Íslands. 21.3.2005 00:01
Fært fyrir Horn Siglingaleiðin fyrir Horn hefur opnast á ný, segir Þór Jakobsson veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Landhelgisgæslan flaug yfir Hornstrandir og Norðurland á sunnudag og var þá meginísinn staddur 15 sjómílur norðan af Horni. 21.3.2005 00:01
Truflun á togararalli Togararall Hafrannsóknarstofnunar hefur orðið fyrir truflandi áhrifum af hafísnum sem legið hefur við norðanvert landið að undanförnu, að sögn Jóns Sólmundssonar fiskifræðings hjá stofnuninni. 21.3.2005 00:01
Kvartað á Alþingi Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, kvartaði yfir því á Alþingi í dag að hans flokksmenn fengu ekki að koma að óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra. Helgi Hjörvar Samfylkingu kvaddi sér einnig hljóðs og sagði þingmenn Sjálfstæðisflokks fá greiðari aðgang að ráðherrum þegar kæmi að óundirbúnum fyrirspurnum. 21.3.2005 00:01
Portami via síðasta Skífuskífan Síðasta platan sem kom út á vegum hinnar fornfrægu hljómplötuútgáfu Skífunnar var Portami via með Kristjáni Jóhannssyni. Í takt við almennar nafnabreytingar á fyrirtækjum hefur Skífunafnið verið aflagt og önnur tekin upp í staðinn. 21.3.2005 00:01
Slippstöðin fær Pólverja í vinnu Slippstöðin á Akureyri á von á tíu til fimmtán Pólverjum til starfa. Anton Benjamínsson, verkefnastjóri hjá Slippstöðinni, segir að auglýst hafi verið eftir mönnum til að sjá um suðu á stáli austur í Fljótsdal vegna Kárahnjúkavirkjunnar en nægilega margar umsóknir hafi ekki borist. 21.3.2005 00:01
Mikil ásókn í Lambaselslóðir Alls bárust 136 umsóknir um þrjátíu einbýlishúsalóðir í Lambaseli í Breiðholti á fyrsta umsóknardegi sem var í gær. Vagnbjörg Magnúsdóttir, deildarfulltrúi á skrifstofu framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, segir aðsókn í lóðirnar rétt eins og um síðasta dag úthlutunar væri að ræða. 21.3.2005 00:01
Mjöll Frigg fær starfsleyfið Starfsleyfi efnaverksmiðju Mjallar Friggjar á Akureyri hefur verið framlengt. 21.3.2005 00:01
Reglur um kaupskip enn í skoðun Nefnd sem skoðar tilhögun breytta reglna um kaupskip, svo fyrirtæki sjái hag í að skrá þau hér, hefur ekki lokið störfum. 21.3.2005 00:01
90 manns leita fólksins Um níutíu manna björgunarlið í 23 hópum leitar nú tveggja Toyota Hi-Lux jeppa sem fóru frá Dalvík um klukkan 14 í gær en lögreglan og Landsbjörg hófu leit í hádeginu. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur leitað á svæðinu frá því um hádegi og mun halda því áfram fram eftir degi. 21.3.2005 00:01
Fjármálaráðherra hnýtir í VG Það er engu líkara en að vinstri grænir hafi tekið að sér fjármálin í borginni, sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra á Alþingi í dag. Þannig lauk gagnrýni hans á þá ákvörðun R-listans að bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla. 21.3.2005 00:01
Mildaði kynferðisbrotadóm Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir kynferðisbrotamanni vegna mótsagnakennds framburðar eins fórnarlamba hans. Maðurinn var sakfelldur í Héraðsdómi fyrir gróf og alvarleg kynferðisbrot gagnvart tveimur dætrum sínum og þriðju stúlkunni og dæmdur í þriggja ára fangelsi. Stúlkurnar voru 11-14 ára þegar brotin áttu sér stað. 21.3.2005 00:01
Fischer orðinn Íslendingur Bobby Fischer er orðinn Íslendingur eftir að umsókn hans um ríkisborgararétt fékk sérstaka flýtimeðferð í þinginu. Aukafundur var haldinn í allsherjarnefnd síðdegis vegna athugasemda sem bárust frá bandarískum stjórnvöldum. 21.3.2005 00:01
Nýjar aðgerðir á Landspítalanum Þeir sjúklingar sem eru með op á milli hjartagátta geta nú farið í aðgerð á Landspítalanum í stað þess að þurfa að fara í aðgerð til útlanda. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur tryggt Landspítalanum fé svo framkvæma megi aðgerðirnar hér á landi. 21.3.2005 00:01
Fundarstjórn Halldórs gagnrýnd Fundarstjórn Halldórs Blöndal forseta Alþingis og skipulag óundirbúinna fyrirspurna var harðlega gagnrýnd í gær. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði algjörlega óþolandi að Frjálslyndir skyldu ekki hafa fengið að koma með óundirbúna fyrirspurn um lífeyrissjóðina á þinginu. "Mér er misboðið," sagði Sigurjón. 21.3.2005 00:01
Sveitarfélögum klesst upp við vegg Geir H. Haarde fjármálaráðherra gagnrýndi harkalega áform meirihluta R-listans í Reykjavík að bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla innan fárra ára. Hann sagði að með ákvörðun sinni hefðu borgaryfirvöld sett óþarfa þrýsting á öll önnur sveitarfélög og í raun klesst þeim upp við vegg. 21.3.2005 00:01
Dræm sala á íbúðum í blokk Sala á íbúðum í sjö hæða fjölbýlishúsi á Egilsstöðum er dræmari en búist var við. Íbúðirnar voru tilbúnar í haust og eru níu af 21 óseldar. 21.3.2005 00:01