Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
38% aukning innlendra útlána Samkvæmt gögnum sem Seðlabankinn birti síðastliðinn föstudag var aukning innlendra útlána bankanna alls um 305 milljarðar króna á síðasta ári, eða um 38%. Þetta er meira en helmingi hærri aukning en á árinu 2003 þegar hún nam 15%. 24.1.2005 00:01
Reiði Össurar tilefnislaus IMG Gallup er ekki að gera skoðanakönnun fyrir stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, eins og Össur Skarphéðinsson hélt fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Varaþingmaður Samfylkingarinnar segir Össur hafa sýnt tilefnislausa reiði með ummælum sínum. 24.1.2005 00:01
Vélsleða enn leitað Lögreglan á Selfossi leitar enn tveggja vélsleða sem hurfu frá Litlu kaffistofunni í Svínahrauni í fyrrinótt. Þeir voru af Ski Doo gerð og tilheyra vélsleðaleigu. Nokkrir vélsleðar voru einnig geymdir við Skíðaskálann í Hveradölum um helgina en þeir voru ekki hreyfðir. 24.1.2005 00:01
Erindi Fischers afhent Alþingi Forseta Alþingis, Halldóri Blöndal, var í morgun afhent erindi frá Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, þar sem hann óskar eftir því að Alþingi veiti honum íslenskan ríkisborgararétt. Það voru Garðar Sverrisson og Sæmundur Pálsson sem afhentu forseta Alþingis erindið fyrir hönd Fischers. 24.1.2005 00:01
Ingimundur hættir sem sendiherra Ingimundur Sigfússon sendiherra lætur af störfum þann 1. febrúar næstkomandi að eigin ósk. Ingimundur var fyrsti sendiherra Íslands með aðsetur í Japan en hann starfaði áður sem sendiherra í Þýskalandi, fyrst í Bonn og síðar í Berlín. Áður var Ingimundur forstjóri Heklu. 24.1.2005 00:01
Snjóflóðahættan hefur minnkað Snjóflóðahættu var lýst yfir alls staðar á Vestfjörðum rétt fyrir miðnætti en engin íbúðarhús hafa verið rýmd. Snjórinn hefur þjappast mikið sem er góðs viti. Því hefur Veðurstofan ekki miklar áhyggjur einmitt núna en mun fylgjast vel með þróun mála í allan dag og jafnvel fram á nótt. 24.1.2005 00:01
Uppgröftur á fornminjum Hrafnkels Landsvirkjun hefur óskað eftir tilboði í að grafa upp rústir sem taldar eru vera af seli Hrafnkels Freysgoða, sem uppi var á tíundu öld, en munu fara á kaf í Kárahnjúkalóni. Þetta eru tvær rústir sem hvor um sig er u.þ.b. 18 x 8 metrar að flatarmáli og eru á svonefndum Hálsi við Jökulsá á Brú, sunnan við Kárahnjúka. 24.1.2005 00:01
Tók myndir inni á kvennasalerni Ungur maður á yfir höfði sér sektir fyrir brot á blygðunarsemi en hann var staðinn að því að taka myndir af konu á kvennasalerni á skemmtistað í bænum aðfararnótt sunnudags. Konan varð hans vör og kallaði á lögreglu sem handtók hann á staðnum og lagði hald á minniskubb úr stafrænni myndavél sem hann notaði til verksins. 24.1.2005 00:01
Alþingismönnum afhent virkjanakort Náttúruverndarsamtökin tíu sem standa að útgáfunni „Ísland örum skorið“ afhentu alþingismönnum kort nú á þriðja tímanum þar sem sést hver árif virkjanaframkvæmda á landið verða á næstu fimmtán árum, ef farið verður að stefnu stjórnvalda. 24.1.2005 00:01
Utanríkismálanefnd má birta gögnin Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að utanríkismálanefnd mætti sín vegna birta það sem henni sýndist um umræður um aðdraganda stríðsins í Írak. Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar, skoraði á Halldór að hreinsa loftið með því að aflétta trúnaði af eigin ummælum í fundargerðum nefndarinnar. 24.1.2005 00:01
Húsaleiga hefur margfaldast Gríðarleg aukning á sér stað á húsnæðismarkaði og í byggingu verslunar- og skrifstofuhúsnæðis á Egilsstöðum og hefur verð á húsnæði hækkað gríðarlega. Sama gildir um húsaleigu. </font /></b /> 24.1.2005 00:01
Atvinnuleyfin gefin út í dag Búist er við að í dag liggi fyrir niðurstaða í vinnu ráðuneytisstjóranefndarinnar og í framhaldi af því verði gefin út atvinnuleyfi fyrir hóp erlendra verkamanna til starfa hjá Impregilo. 24.1.2005 00:01
Órofa tengsl Samskipti verkalýðshreyfingarinnar og Samfylkingarinnar hafa talsvert verið til umræðu. Slík tengsl eiga sér langa sögu í íslenskum stjórnmálum og hafa velflestir flokkar kappkostað við að hafa ítök í launþegahreyfingunum og þær um leið í flokkunum. 24.1.2005 00:01
Stuðningurinn hófst í febrúar 2003 Íslensk stjórnvöld gáfu leyfi til þess í febrúar árið 2003 að herflugvélar gætu flogið um íslenska lofthelgi og haft hér viðdvöl vegna innrásar í Írak. Listi hinna staðföstu þjóða var ekki birtur fyrr en 18. mars. Í millitíðinni töluðu formenn stjórnarflokkanna í austur og vestur í afstöðunni til Íraksdeilunnar. 24.1.2005 00:01
Lögbann á fyrrum starfsmenn SÍF Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur sett lögbann á fjóra fyrrverandi starfsmenn SÍF sem sögðu upp störfum og stofnuðu fisksölufyrirtæki í beinni samkeppni við SÍF. Bannið gildir til júníloka. Í millitíðinni verður skorið úr um málið fyrir dómstólum. 24.1.2005 00:01
Lögreglufréttir Innbrot í Fossvogi Brotist var inn í hús í Fossvogi snemma á mánudagsmorgni. Eldhúsgluggi var spenntur upp og lyfjum, skólatösku, áfengi, sundpoka og peningum stolið. 24.1.2005 00:01
Lögreglufréttir Partí á sunnudegi Tvö útköll bárust lögreglunni í Keflavík á næturvaktinni aðfaranótt mánudags vegna hávaða í partíum í heimahúsum, annað í Keflavík og hitt í Sandgerði. 24.1.2005 00:01
Örorka hækkar um 14 milljarða Í fyrsta sinn liggur fyrir örorkulíkan sem byggist á íslenskum raunveruleika. Hingað til hefur verið stuðst við danskt líkan. Samkvæmt íslensku útreikningunum hækka skuldbindingar lífeyrissjóðs VR vegna örorku um tæpa fjórtán milljarða. 24.1.2005 00:01
Flugfært til Bandaríkjanna Flugvél Icelandair lagði af stað frá Keflavíkurflugvelli til Bandaríkjanna síðdegis í gær. Hún flutti og sótti farþega sem áttu pantað flug milli landanna á sunnudag en því hafði verið aflýst vegna óveðurs. 24.1.2005 00:01
Viðbúnaðarstig fyrir vestan Viðbúnaðarstigi vegna hláku sem eykur hættu á snjóflóðum hefur verið lýst yfir í byggðum á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum. Fylgst er með ástandinu. 24.1.2005 00:01
Halldór neitar ásökunum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra þvertekur fyrir að málflutningur hans um þá ákvörðun að setja Ísland á lista hinna staðföstu þjóða í Íraksstríðinu hafi verið villandi. Hann segir utanríkismálanefnd Alþingis frjálst að birta það sem hún vill varðandi málið. 24.1.2005 00:01
Kostaboð verslana standast ekki Svo virðist sem auglýst kostaboð raftækjaverslana eigi ekki ávallt við rök að styðjast. Í auglýsingabæklingi ELKO, sem datt inn á borð landsmanna í byrjun árs, má finna verðupplýsingar sem hreinlega standast ekki. 24.1.2005 00:01
Gígarnir í Eyjum skemmdir Unnar hafa verið skemmdir á gosgígunum í Vestmannaeyjum með skurðgröfu. Gígarnir mynduðust í gosinu árið 1973 og eru á náttúruminjaskrá. Ráðist var í þessar óvæntu framkvæmdir á 31 árs afmæli gossins. 24.1.2005 00:01
Vilja breyta lögum um eftirlaun Forsætisráðherra vill breyta lögum um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins þannig að ekki verði lengur unnt að starfa á fullum launum og þiggja um leið eftirlaun. Guðmundur Árni Stefánsson, eini stjórnarandstæðingurinn sem studdi eftirlaunafrumvarpið, er sammála þessu. 24.1.2005 00:01
Fresta afhendingu olíuyfirlits Starfsfólk Essó neitaði í liðinni viku viðskiptavinum sínum um yfirlit yfir viðskipti þeirra við félagið undanfarin ár. Töluvert var um að fólk óskaði eftir upplýsingunum eftir að Neytendasamtökin hvöttu almenning til að afhenda samtökunum nótur vegna olíukaupa. Það var gert vegna fyrirhugaðrar skaðabótakröfu sem rekin verður fyrir dómstólum. 24.1.2005 00:01
Vilja selja refaveiðileyfi Hugmyndir eru um það í Skagafirði að selja skotveiðimönnum leyfi til refaveiða í sveitinni. Jón Garðarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, kynnti þessar hugmyndir á fundi nefndarinnar í liðinni viku. 24.1.2005 00:01
Nýbyggingar í undirbúningi Engilbert Runólfsson, eigandi verktakafyrirtækisins Stafna á milli, hefur keypt fjölda húsa frá horni Laugavegs, niður Frakkastíg og niður á Hverfisgötu. Þar ætlar fyrirtækið að reisa fimmtán þúsund fermetra nýbyggingu sem í verða bæði íbúðir og verslunarhúsnæði, en sex þúsund fermetrar fara undir bílageymslu. 24.1.2005 00:01
Eldur í vél Eldur kom upp við húsnæði Ísafoldarprentsmiðjunnar í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, sem er með slökkvistöð í grennd við prentsmiðjuna, náði að slökkva eldinn áður en hann breiddist út. 24.1.2005 00:01
Lögbann á starfsmenn Fjórum af fimm fyrrverandi starfsmönnum SÍF sem sögðu upp störfum fyrir áramót og stofnuðu eigið fisksölufyrirtæki hefur verið meinað að starfa fyrir nýja félagið eða taka á nokkurn annan hátt í starfsemi félagsins til 30. júní. 24.1.2005 00:01
Kjarabætur stóðu ekki til Forsætisráðherra segir að mönnum hafi sést yfir þann möguleika að fyrrverandi ráðherrar gætu þegið eftirlaun á sama tíma og þeir gegndu starfi á vegum hins opinbera. Hann segir ástæðu til að taka málið til athugunar. </font /></b /> 24.1.2005 00:01
Hús rýmd Fjögur hús voru rýmd á Bíldudal seint í gærkvöld vegna snjóflóðahættu. Lögreglan á Patreksfirði segir að húsin séu við Gilsbakkagil og gripið hafi verið til þessa af öryggisástæðum. 24.1.2005 00:01
Krefst 94 milljóna af Arngrími Arngrími Jóhannssyni, stjórnarformanni Atlanta, hefur verið stefnt af eiganda Scandinavian Historic Flight vegna vanefnda á samningi. Stefnufjárhæðin nemur tæplega 94 milljónum króna. 24.1.2005 00:01
Borgarfulltrúar leiti sér sálfræðihjálpar Formaður bæjarráðs Kópavogs segir að vegna minnimáttarkenndar gagnvart Kópavogi ættu borgarfulltrúar R-listans kannski að leita sér sálfræðihjálpar. Reykjavíkurborg meinar Kópavogi að leggja vatnsleiðslu um land sitt. Iðnaðarráðuneytið er með málið til skoðunar. </font /></b /> 23.1.2005 00:01
Gripinn við þjófnað á næturklúbb Tæplega fertugur maður var staðinn að verki þegar hann reyndi að hnupla úr peningakassa á næturklúbbnum Casino í Keflavík í nótt. Að sögn lögreglu kom starfsfólk að manninum fyrir innan barborð og var hann þá búinn að opna peningakassa og taka úr honum 4500 krónur. Maðurinn var tekinn til yfirheyrslu hjá lögreglu. 23.1.2005 00:01
Óku fram á sofandi mann Lögreglan í Keflavík ók í nótt fram á mann sem lá steinsofandi úti á götu. Maðurinn lá sofandi á Kirkjuvegi í Keflavík og var orðinn kaldur. Þegar reynt var að vekja hann kom í ljós að hann var ofurölvi og gat vart mælt sökum ölvunar. Lögregla hlúði að honum og flutti hann í hlýja fangageymslu þar sem hans beið mýkri svefnstaður. 23.1.2005 00:01
Jeppi valt í Svínahrauni Ökumaður og farþegar sluppu ómeiddir þegar jeppi valt út af þjóðveginum í Svínahrauni laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Jeppinn valt skammt ofan Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna, ekki fjarri skiltinu þar sem ökumenn eru minntir á fjölda látinna í umferðarslysum. Talið er að hálka hafi átt þátt í því að ökumaður missti stjórn á jeppanum. 23.1.2005 00:01
Féll af flutningabíl og slasaðist Rúmlega fertugur maður slasaðist í vinnuslysi við fiskvinnslufyrirtækið Vísi í Grindavík síðdegis í gær. Maðurinn féll af flutningabíl þegar verið var að færa farm til á bílnum. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík þar sem gert var að sárum hans en hann hafði hlotið skurð í andliti, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík. 23.1.2005 00:01
Stjórnarandstaðan á villigötum Fréttir um að listi hinna staðföstu þjóða sé ekki lengur til undirstrikar á hvaða villigötum stjórnarandstaðan er í Íraksmálinu, að mati Sólveigar Pétursdóttur, formanns utanríkismálanefndar Alþingis. Hún segir stjórnarliða aldrei hafa efast um að rétt hafi verið staðið að ákvörðun um stuðning Íslands við innrásina í Írak. 23.1.2005 00:01
Stormviðvörun á Vestfjörðum Veðurstofan hefur gefið út stormviðvörun fyrir Vestfirði. Spáð er ört hlýnandi veðri á landinu samfara úrkomu og má búast við að snjóflóðahætta geti skapast. Í Reykjavík er búist við asahláku. 23.1.2005 00:01
Aðför Fréttablaðsins að Halldóri Páll Magnússon, varaþingmaður Framsóknarflokksins og aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að Fréttablaðið sé í herferð gegn Halldóri Ásgrímssyni, forsætisráðherra og formanni Framsóknarflokksins. Páll vísar þar til umfjöllunar Fréttablaðsins um aðdraganda Íraksstríðsins og veru Íslands á lista hinna staðföstu þjóða. 23.1.2005 00:01
Meirihluti samþykki stuðning Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur samþykkt að flytja á Alþingi frumvarp til breytingar á stjórnarskrá Íslands sem hefur í för með sér að ríkisstjórn á hverjum tíma verði óheimilt að lýsa yfir aðild að eða stuðningi við stríðsaðgerðir nema með samþykki meirihluta Alþingis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrsta flutningsmanni frumvarpsins, Helga Hjörvar. 23.1.2005 00:01
Framsóknarmenn í ójafnvægi "Mig undrar að Framsóknarmenn skuli kalla fréttaskrif Fréttablaðsins aðför að forsætisráðherra. Blaðið hefur ekki gert annað en segja fréttir af umræðunni dagana sem Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson ákváðu stuðning Íslendinga við innrásina í Írak," sagði Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri á Fréttablaðinu, um fullyrðingar Páls Magnússonar, aðstoðarmanns iðnaðarráðherra, um að Fréttablaðið væri með aðför að Halldóri Ágrímssyni forsætisráðherra. 23.1.2005 00:01
Brunagildran reist án leyfis Ef húsið þar sem eldur varð laus á athafnasvæði Hringrásar hefði verið byggt eftir venjulegum leiðum hefði ekki þurft að fara eins og fór, segir brunamálastjóri. Lyftarahleðsla hefði verið í sérstöku brunahólfi. </font /></b /> 23.1.2005 00:01
Sérkennilegar kveðjur Formaður skipulagsráðs Reykjavíkur segir lögnámsbeiðni Kópavogs vera ótímabæra og ummæli Gunnars I. Birgissonar sérkennilega kveðju. Bæjarráðsmaður í Kópavogi segir ummæli Gunnars fordómafull og afturhaldssöm.</font /></b /> 23.1.2005 00:01
Deilt um stuðningsyfirlýsingu "Mönnum finnst að Gylfi sé að taka að sér umboð sem hann ekki hefur og það sé ómaklegt," segir Árni Guðmundsson formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar og félagi í verkalýðsmálaráði Samfylkingarinnar. 23.1.2005 00:01