Fleiri fréttir

Áfenisneysla Íslendinga eykst mest

Áfengisneysla Íslendinga hefur aukist verulega umfram það sem gerst hefur annars staðar á Norðurlöndum, að því er fram kom í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í gær.

Konur með Sirrý

Mun fleiri karlar en konur vinna á íslenskum fjölmiðlum. Kvenstarfsmenn eru þó í miklum meirihluta í þættinum Fólk með Sirrý á Skjá einum. Sirrý segir engin sérstök karla- og kvennastörf á Skjánum. </font /></b />

Atlansskip unnu mál við ríkið

Atlantsskip unnu í dag mál gegn ríkinu í Hæstarétti, en rétturinn segir að ríkinu hafi verið óheimilt að þrengja skilgreiningu um skipafélög sem mega annast sjóflutninga fyrir varnarliðið.

Áttu von á deilum um varnarmál

Framtíðarhópur Samfylkingarinnar bjóst við því að tekist yrði um tillögur vinnuhóps um varnarmál þegar áfangaskýrsla var kynnt á flokksstjórnarfundi um síðustu helgi.

Spjöll unnin á leiðum

Spjöll hafa verið unnin á leiðum í kirkjugarðinum í Keflavík. Spellvirkjar hafa velt við um það bil tuttugu legsteinum, rifið upp krossa og brotið skildi með nöfnum látinna í mél. Eins hafði ýmsu smálegu, eins og lugtum og öðru skrauti, verið dreift eins og hráviði um allan garð.

Slitnaði upp úr viðræðum

Upp úr viðræðum grunnskólakennara og sveitarfélaga slitnaði nú undir kvöld. Ríkissáttasemjari lagði fyrir deilendur í dag hugmynd að lausn sem ekki náðist sátt um. Hann hyggst ekki boða til nýs sáttafundar fyrr en eftir hálfan mánuð.

Landeigendur unnu

Ríkið beið ósigur í Hæstarétti í dag þegar staðfest var að land innan tiltekinna jarða í Árnessýslu teldust ekki til þjóðlendna, eins og ríkið krafðist. Landeigendur segja langri og erfiðri baráttu þar með lokið. Lögmaður landeigenda segir dóminn fela í sér skilaboð til ríkisins um að gæta hófs í kröfum sínum.

Milljónir tonna af sandi fuku

Það tekur náttúruna að minnsta kosti fimm ár að vinna upp þá landeyðingu sem varð í ofsarokinu í byrjun vikunnar, þegar milljónir tonna af sandi fuku yfir landið. Svörðurinn er nú sérstaklega viðkvæmur fyrir öðrum eins veðurofsa, og óskar landgræðslustjóri sér nú helst af öllu mikillar snjókomu til að vernda landið.

Fækkar ef dregur úr karlmennsku

Nauðgunum fækkar ef dregið er úr karlmennskudýrkun í samfélaginu. Þetta segir mannfræðingur sem leitar svara við því í meistararitgerð sinni af hverju karlmenn nauðga. Hún segir nauðganir algengar á Vesturlöndum, en fátíðar í menningarsamfélögum þar sem er jafnræði milli kynjanna.

Þróunin góð segir Guðni

Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra segir ekkert að því að fjársterkir menn kaupi upp jarðir og framleiðslu og að tugir jarða séu í eigu sömu manna. Þetta sé framfaraþróun sem styrki búin og sveitina.

Fyrir Mannréttindadómstólinn

Ólafur Björnsson, lögmaður jarðeigenda í Biskupstungum, segir þá fagna niðurstöðu Hæstaréttar þar sem eignarréttur þeirra yfir eigin jörðum sé staðfestur. Línur milli afréttar og jarða haldi þrátt fyrir að ríkið hafi gert kröfu um hluta af jörðum skjólstæðinga hans.

Nauðsynlegt prófmál

"Niðurstaða Hæstaréttar staðfesti eignarrétt landeigenda og ég óska þeim til hamingju með það," segir Geir H. Haarde, fjármálaráðherra. "Rétturinn tekur þó á hinn bóginn undir aðrar kröfur sem ríkið gerði." Hann segir að það hafi verið nauðsynlegt að reka málið alla leið í Hæstarétt til að fá skýra niðurstöðu um ákveðin grundvallaratriði sem kunna að hafa þýðingu í öðrum þjóðlendumálum.

Deilan um landið á tímamótum

Jarðeigendur í uppsveitum Biskupstungna halda jörðum sínum óskertum en afréttur sem þeir gerðu kröfu til verður að þjóðlendum samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær. Ríkið gerði kröfu um hluta jarðanna. Með dómnum er staðfestur úrskurður óbyggðanefndar frá því árið 2000. Þetta er fyrsti dómur Hæstaréttar í þjóðlendumáli.

Mengun 15 sinnum yfir viðmið

Svifryk í andrúmslofti í Reykjavík fór fimmtán sinnum yfir viðmiðunarmörk á síðasta ári, oftar en nokkru sinni áður. Þetta kemur fram í skýrslu Umhverfisstofu Reykjavíkur. Talið er að aukin notkun bíla og breytt veðurfar í borginni hafi haft þessi áhrif. Svifryk mælist mest á þurrviðrisköflum að vetrarlagi þegar jörð er snjólaus.

Lokatilraun til samninga brást

Kennarasambandið vill semja sér við hvert sveitarfélag í næstu kjarasamninga. Fundum samninganefndanna verður ekki framhaldið næstu tvær vikurnar nema eitthvað nýtt komi fram. Sveitarfélögin segjast ekki munu óska eftir nýjum fundum. Allt er því strand í kennaradeilunni.</b />

Lögfræðingur skoðar rétt bæjarins

Sveitarstjórnin í Súðavík hefur fengið lögfræðing til að meta hvort um verkfallsbrot yrði að ræða, eins og verkfallsstjórn kennara telur, fari dagvistun barna fram í íþróttahúsi bæjarins í verkfalli kennara.

Skemmdir í kirkjugarði í Keflavík

Skemmdir voru unnar í kirkjugarðinum við Aðalgötu í Keflavík í gær. Fimm krossar voru losaðir upp og 21 legsteini var velt við. Einn legsteinn var brotinn sem og nokkur luktarhús, blómaker og styttur.

Gríðarlegt áfall að ekki samdist

Fundarslitin í Karphúsinu eru gríðarlegt áfall, segir Stefán Jón Hafstein formaður fræðsluráðs Reykjavíkur. "Það sem gerist núna kallar á varfærin viðbrögð. Það má alls ekkert út af bregða," segir Stefán Jón.

32. dagur verkfalls

"Á jákvæðan hátt sendur fólk saman," segir Ólafur Loftsson formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Kennarar hafi hreina samvisku því kröfur þeirra séu á engan hátt óréttmætar.

Borgin mismunar börnum

Reykjavíkurborg mismunar fötluðum börnum með því að greiða einungis úr neyð einhverfra barna í verkfalli kennara, segir Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir.

Fjölda lamba og kinda bjargað

Fjölmennu liði björgunarsveitarmanna tókst að bjarga tugum ef ekki hundruðum lamba og kinda, sem voru hætt komin í Eiðaþinghá á Fljótsdalshéraði í gær. Þegar björgunarmenn komu á vettvang við erfiðar aðstæður, voru margar kindur við það að örmagnast þar sem blautur snjór hafði sest í ullina og hálf forsið, þannig að kindurnar voru að sligast og örmagnast.

Eitthvað að gerast

Talið er að einhver hreyfing hafi komist á samningaviðræður kennara og sveitarfélaga á fimm klukkustunda samningafundi hjá Ríkissáttasemjara í gær og hefur hann boðað deilendur aftur á fund klukan eitt í dag. Menn verjast þó nánari fregna af fundinum, en í dag hefur verkfall kennara staðið í réttan mánuð.

Verið að gera við brúnna

Vegagerðarmenn eru nú byrjaðir að gera við brúnna yfir Núpsvötn austan við Kirkjubæjarklaustur, eftir að hluti af nýrri málmklæðningu á brúargólfinu flettist upp í veðurofsanum í gærmorgun. Þjóðvegi eitt var þá lokað á milli Skeiðarár og Lómagnúps og er hann það enn. Vegagerðarmenn gátu ekkert aðhafst í gær vegna veðurofsans.

Logaði í heyi fram á kvöld

Glæður loguðu í heyi að bænum Knerri á Snæfellsnesi alveg fram á kvöld í gærkvöldi, efitr að þar kviknaði í í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að á milli 600 og 700 fjár drápust þegar fjárhúsin brunnu. Talið er að þetta sé eitthvert mesta búfjártjón hjá einum bónda í Íslandssögunni.

10 milljarða hækkun lífeyris

Lífeyrisskuldbindingar ríkisins hækka um 10 milljarða sé miðað við rúmlega 16 prósent hækkun dagvinnulauna kennara. Hækki laun kennara um 35 prósent á samningstímanum hækka lífeyrisskuldbindingar ríkisins um allt að 20 milljarða.

Bílbeltanotkun ábótavant

Bílbeltanotkun í hópbifreiðum og bílaleigubílum er verulega ábótavant að mati framkvæmdastjóra rannsóknarnefndar umferðarslysa. Hann segir nauðsynlegt að fara af stað með sérstaka herferð þar sem brýnt er fyrir fólki að nota bílbelti í hópbiffreiðum. Aðeins þrír þeirra 48 sem voru í rútunni sem valt nálægt Hvalfjarðargöngunum í gær notuðust við bílbelti.

Allt að 92% kostnaðar í fræðslumál

Dæmi eru um að 92% af heildartekjum aðalsjóðs sveitarfélaga renni til fræðslumála. Þetta kemur fram í svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers, þingmanns Samfylkingarinnar.

Kominn í skikkjuna

Jón Steinar Gunnlaugsson hefur hafið störf við Hæstarétt. Hann hefur þegar hlýtt á munnlegan málflutning í þremur málum.

Vinnuvikan lengist enn

Vinnuvika hjá íslenskum karlmönnum heldur áfram að lengjast samkvæmt tölum Haggstofunnar. Þar kemur fram að á þriðja ársfjórðungi í ár hafi vinnuvikan verið að meðaltali tæpar 44 klukkustundir, en 48,7 klukustundir hjá körlum, hafi lengst um hátt í eina klukkustund frá sama tímabili í fyrra.

Eru ekki að skipta um skoðun

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær samhljóða tillögu þar sem skorað er á ríkisvaldið að efla tekjustofna sveitarfélaga. Þetta þýðir þó ekki að borgarstjórn telji að ríkisvaldið eigi að koma að lausn kennaradeilunnar, segir borgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins.

Karlmenn þurfa líka að passa sig

Vakin er athygli á því á alþóðlega beinverndardeginum í dag, að beinþynning sé heilbrigðismál, sem karlmenn þurfa að gefa gaum ekki síður en konur. Samkvæmt nýjmum íslenskum rannsóknum má gera ráð fyrir að þriðji hver karlmaður um fimmtugt verði fyrir því að beinbrotna síðar á lífsleiðinni.

Brotist inn í Hertz á Akureyri

Brotist var inn i bílaleigu Hertz við Akureyrarflugvöll um klukkan hálf fjögur í nótt, en viðvörunarkerfi fór í gang. Við það kom styggð að innbrotsþjófunum sem voru horfnir þegar lögreglan kom á vettvang, en klukkustund síðar handtóku þeir tvo menn, sem eru grunaðir um verknaðinn og er verið að yfirheyra þá.

Búið að gera við brúna

Vegagerðarmenn gerðu í morgun við brúna yfir Núpsvötn á hringveginum austan við Kirkjubæjarklaustur, eftir að hluti af nýrri málmklæðningu á brúargólfinu flettist upp í veðurofsanum í gærmorgun. Þjóðvegi eitt var þá lokað á milli Skeiðarár og Lómagnúps og var ekki opnaður fyrr en upp úr klukkan tíu í morgun.

Rækjuveiðar bannaðar

Rækjustofnarnir í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði virðast vera að hruni komnir og leggur Hafrannsóknastofnun til að allar rækjuveiðar á þessum svæðum verði bannaðar í vetur.

Réðust inn á ritstjórnarskrifstofu

Þrír menn réðust inn á ritstjórnarskrifstofu DV, gripu einn blaðamann hálstaki og gerðu síðar tilraun til að bakka á annan blaðamann þegar þeir voru á leiðinni frá húsinu aftur. Mennirnir kröfðust þess að fá að tala við annan ritstjóra blaðsins en brugðust hinir æstustu við þegar þeim var sagt að hann væri ekki viðstaddur og þeir beðnir um að fara.

Foreldrar taki sér frí

Heimili og skóli - landssamtök foreldra hvetja foreldra grunnskólabarna til þess að sýna í verki samstöðu með börnum sínum og taka sér frí frá vinnu eftir hádegi á morgun. Samtökin hvetja einnig atvinnurekendur til að sýna foreldrum skilning og gefa þeim frí þennan eftirmiðdag svo foreldrar geti gert eitthvað uppbyggilegt með börnum sínum og unglingum.

Fréttamenn gefa kennurum pening

Félag fréttamanna hefur gefið 220 þúsund krónur í verkfallssjóð kennara. Frá þessu er greint á heimasíðu Kennarasambandsins. Segir þar að borist hafi bréf frá Karli Eskil Pálssyni gjaldkera Félags fréttamanna þar sem tilkynnt er um styrkinn. Í félagi fréttamanna eru fréttamenn sem starfa hjá Ríkisútvarpinu, útvarpi og sjónvarpi.

Skipulagði gamla hafnarsvæðið

Þresti Þórssyni hugnuðust ekki hugmyndir hins opinbera um skipulag hafnarsvæðisins í miðborginni og tók til sinna ráða. </font /></b />

Í heljargreipum heróínsins

Bókin Eftirmál eftir feðgana Frey Njarðarson og Njörð P. Njarðvík kemur út í dag. Í henni er sagt frá hrikalegu lífi Freys í viðjum heróínfíknar en hún hefur fylgt honum um undirheima Kaupmannahafnar og Amsterdam. </font /></b />

Gáfu skotum egg heiðargæsarinnar

Forseti Alþingis, Halldór Blöndal, afhenti forseta skoska þingsins, George Reid, nýlega gjöf frá Alþingi í tilefni af opnun nýs skosks þinghúss, sem tekið var í notkun við hátíðlega athöfn í Edinborg 9. októktóber. Gjöfin er egg heiðargæsarinnar, mótað úr graníti sem hvílir á hraunhellu frá Þingvöllum.

Lán verði 90% af matsverði

Félagsmálaráðherra lagði fram á Alþingi í dag stjórnarfrumvarp um að húsnæðislán frá Íbúðalánasjóði geti numið allt að 90 prósentum af matsverði íbúðar. Gert er ráð fyrir að breytingin taki gildi um næstu áramót. Hámarkslánshlutfall hefur fram til þessa verið 65%, eða 70% ef um er að ræða fyrstu íbúðakaup lántaka.

Mikill mannfjöldi í kröfugöngu

Mikill mannfjöldi er nú saman kominn í miðbæ reykjavíkur. Þúsundir manna fylla Ingólfstorg, Austurstræti, Bankastræti og uppá laugaveg. Kennarasambandið stendur fyrir kröfugöngu og útifundi á Ingólfstorgi sem nú stendur yfir en nákvæmlega mánuður er liðinn frá því yfirstandandi verkfall félagsmanna í félagi grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands hófst.

Margir með illlæknanleg sár

Þeir sem þjást af slæmum langvarandi sárum eru þögull hópur. En nú er komið að stofnun samtaka.

Hvað á hann að heita?

Enn er óvíst hvað nýr sameinaður skóli Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands mun heita enda barnið svo að segja ný fætt. Þeir sem unnu að sameiningunni létu það ógert að velta nafnamálum fyrir sér og ætla nýrri stjórn hins sameinaða skóla að sjá um málið.

Um 260 milljóna heimildir ónýttar

Hátt í þriðja hundrað milljónir vantaði upp á að Tryggingastofnun fullnýtti heimildir sínar til niðurgreiðslu á tannlæknakostnaði á síðustu þremur árum. Tannlæknir telur, að fjárhæðina hefði átt að nota til að hækka gjaldskrá heilbrigðisráðherra. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir