Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heimskulegt segir Kristinn H. "Þetta er heimskuleg og vanhugsuð ákvörðun sem skapar ný og erfiðari mál en henni var ætlað að leysa," segir Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins. Þingflokkurinn ákvað í gær að reka Kristin úr öllum nefndum og ráðum sem hann hefur setið í á vegum þingflokksins. 28.9.2004 00:01
Engar undanþágur Þremur nýjum umsóknum til undanþágunefndar kennara og sveitarfélaganna var hafnað í gær. Sjö öðrum beiðnum var frestað af mismunandi ástæðum, segir Sigurður Óli Kolbeinsson lögfræðingur sem situr í nefndinni fyrir sveitarfélögin. 28.9.2004 00:01
Stórtjón þegar Votmúli brann Eldur kom upp í atvinnuhúsnæði á Blönduósi í fyrrinótt. Tjónið metið á ríflega hundrað milljónir. Gaskútar sprungu og reykurinn náði til Skagastrandar. </font /></b /> 28.9.2004 00:01
Það versta sem ég hef lent í "Maður bara brotnar niður þegar maður horfir á fyrirtækið sitt brenna," segir Vilhjálmur Stefánsson, sem er einn þriggja eigenda Bílaþjónustunnar sem var með starfsemi í Votmúla á Blönduósi. 28.9.2004 00:01
Við höldum ótrauð áfram Fimmtán starfsmenn þeirra þriggja fyrirtækja sem urðu eldinum að bráð í Votmúla á Blönduósi missa vinnuna að minnsta kosti tímabundið. Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæjarstjóri á Blönduósi, segir að bruninn sé mjög mikið áfall fyrir bæjarfélagið. 28.9.2004 00:01
Horfði á eigið fyrirtæki brenna Varaslökkviliðsstjórinn á Blönduósi var í þeirri sérstöku aðstöðu í fyrrinótt að vera að reyna að slökkva eld í sínu eigin fyrirtæki. 28.9.2004 00:01
Kristinn H. fallinn í ónáð Þingflokkur Framsóknar treystir Kristni H. Gunnarssyni ekki til að sitja í nefndum á vegum þingsins. Kristinn segir að sjálfstæði hans í tveimur málum hafi valdið óánægju innan forystu flokksins. Ætlar að starfa áfram innan þingflokksins. </font /></b /> 28.9.2004 00:01
Einn á báti Saga Kristins H. Gunnarssonar innan Framsóknarflokksins er stutt en viðburðarík. Fyrir sex árum gekk hann í raðir flokksins og var strax leiddur í öndvegi. Í gærkvöldi var hann orðinn útlagi í eigin flokki eftir að þingflokkurinn úthýsti honum úr nefndum alþingis. 28.9.2004 00:01
Reykingar bannaðar á matsölustöðum Reykingabann á veitingahúsum kann að verða samþykkt á Alþingi í vetur. Drög að frumvarpi til tóbaksvarnalaga, þar sem gert er ráð fyrir banninu, er tilbúið í heilbrigðisráðuneytinu og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hyggst leggja frumvarpið fram í haust. 28.9.2004 00:01
Önnur vikan hafin Önnur vika kennaraverkfallsins er hafin og að sagði Ríkissáttasemjari í gær að ekkert benti til þess að annar hvor deilenda myndi leggja fram nýjar tillögur til sátta á næstunni. Næsti samningafundur hefur verið boðaður á fimmtudagsmorgun 27.9.2004 00:01
Ekki vitað hver sprengdi Lögreglan á Selfossi er engu nær um það hver eða hverjir sprengdu öfluga sprengju í grennd við lögreglustöðina í fyrinótt. Til merkis um hversu kröftug hún var, þá flugu brot úr sprengjunni allt að tuttugu metra og höfnuðu meðal annars við vegg lögreglustöðvarinnar. 27.9.2004 00:01
Leikur veldur nærri stórtjóni Minnstu munaði að leikur tveggja ellefu ára stráka að eldi austur í Hveragerði um níuleitið í gærkvöldi ylli umtalsverðu tjóni. Þeir kveiktu í ruslagámi, sem stóð upp við áhaldahús bæjarins og náði eldurin að læsa sig í tréklæðningu á húsinu, en vegna þess hversu fljótt eldsilns varð vart, var strax kallað á slökkvilið 27.9.2004 00:01
Alvarlega slasaður eftir veltu Karlmaður, sem var ásamt fleirum að smala fé sunnan Myrdalsjökuls í gær, slasaðist alvarlega þegar fjórhjól hans valt. Ekki urðu vitni að slysinu en talið er að hann hafi orðið undir fjórhjólinu í veltunni. 27.9.2004 00:01
Þrír stöðvaðir vegna hraðaksturs Heimþrá bar löghlýðni þriggja ökumanna á heimleið til Akureyrar ofurliði í gærkvöldi og slóu þeir ótæpilega í fararskjóta sína. Lögreglumenn á eftirlitsferð sáu hinsvegar til þeirra og stöðvuðu þá alla með skömmu millibili enda mældust þeir allir á vel yfir 100 km. hraða. 27.9.2004 00:01
Afkoma sauðfjárbænda versnar Afkoma sauðfjárbænda var lakari í fyrra en árið áður þrátt fyrir að ýmis skilyrði hafi breyst þeim í hag. 27.9.2004 00:01
Kauphöll lokuð vegna bilunar Vegna bilunar hjá Landsíma Íslands, sæstreng, í morgun náði stór hluti kauphallaraðila ekki að ljúka við að hlaða gögnum sem nauðsynleg eru til að hefja viðskipti klukkan tíu. Kauphöllin ákvað því að fresta opnun markaða um 30 mínútur. Opnunaruppboð hófust því kl. 10:15 og samfelld viðskipti kl. 10:30. 27.9.2004 00:01
Skemmdir á byggðasafni Brotist var inn í Byggðasafn Austur-Skaftfellinga um helgina og þar unnin mikil skemmdarverk og óbætanlegt tjón að sögn safnvarðar. Þjófurinn, eða þjófarnir virðast ekki hafa verið að leita að neinu verðmætu, heldur aðeins bortist inn í safnið til að svala skemmdarfýsn sinni. 27.9.2004 00:01
Leikskólastarf líka í uppnámi? Verkfall grunnskólakennara gæti haft áhrif á starfsemi leikskóla, þar sem leikskólakennarar geti ekki mætt til vinnu vegna eigin barna. Leikskólabörn verði því hugsanlega send heim. 27.9.2004 00:01
Segja átti öllum starfsmönnum upp Til stóð að segja öllum starfsmönnum Norðurljósa upp störfum á vormánuðum hefði fyrsta fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar orðið óbreytt að lögum. 27.9.2004 00:01
Íhuga að skipuleggja starfsemi Hvorugur deilenda í Kennaraverkfallinu hafði nú undir hádegið óskað efitir því við Ríkissáttasemjara að fyrirhuguðum samningafundi hjá Ríkissáttasemjara á fimmtudag yrði flýtt. 27.9.2004 00:01
Hefur áhrif á starfsemi Icelandair Skyndiverkfall flugumferðarstjóra í Noregi hefur áhrif á flug Icelandair. Þannig lenti farþegaþota félagsins í áætlunarflugi til Osló í Bergen á vesturströnd Noregs klukkan 10 í morgun. Rúmlega hundrað farþegar voru um borð. Ekki er vitað hvenær flugumferðarstjórar hefja störf á ný, en samningafundir standa yfir. Flogið verður frá Bergen til Osló eins fljótt og unnt er eftir að opnað verður fyrir flugumferð og síðan frá Osló til Íslands með þá 150 farþega sem bíða þar, en til stóð að fljúga þaðan til baka síðdegis. Viðkomandi eru hvattir til þess að fylgjast með breytingum á áætlun á textavarpi eða Netinu. 27.9.2004 00:01
Deilt um undanþágur Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, telur synjun á undanþágum fyrir fjölfjötluð börn eðlilega á þessu stigi málsins, en Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, lýsti sig ósammála því í viðtali við Gunnlaug Helgason og Heimi Karlsson í Íslandi í bítið í morgun. 27.9.2004 00:01
Óbætanlegt tjón Listaverk eftir Ríkharð Jónsson urðu meðal annars fyrir barðinu á skemmdarvargi, sem svalaði skemmdarfýsn sinni í Byggðasafni Austur Skaftfellinga um helgina, þar sem óbætanlegt tjón var unnið. 27.9.2004 00:01
Viðræður fram í næsta mánuð Niðurstöðu úr sameiningarviðræðum Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík er ekki að vænta fyrr en undir miðjan næsta mánuð, að sögn Stefaníu Katrínar Karlsdóttur, rektors Tækniháskólans. 27.9.2004 00:01
Minni kálfaslátrun en í fyrra Slátrun nautkálfa hefur dregist saman síðustu mánuði, miðað við sama tímabil í fyrra, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Slátrun ungkálfa hefur dregist saman um 8 prósent síðustu 12 mánuði miðað við sama tímabil árið áður og um 15 prósent ef horft er til síðustu 6 mánuða. 27.9.2004 00:01
Kennarar fá stuðning og átalningu Í yfirlýsingu frá Kennarafélagi Vesturlands er fullum stuðningi við samninganefnd Kennarasambands Íslands lýst yfir og hún hvött til að kvika hvergi frá settum kröfum. Og stjórn Heimdallar átelur þá afstöðu KÍ að veita ekki undanþágur til kennara sem koma að kennslu og umönnun fatlaðra barna. 27.9.2004 00:01
Reynt að raska ekki leikskólum Bergur Felixson, framkvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur, segir að reynt verði að skipuleggja starfsemi leikskóla þannig að röskun vegna verkfalls grunnskólakennara verði sem minnst. 27.9.2004 00:01
Tveir endurnýja undanþágubeiðni Tveir af þeim sem var synjað um undanþágu vegna kennaraverkfallsins hafa endurnýjað umsóknir sínar. Öllum umsóknum um undanþágur hefur hingað til verið hafnað, en fulltrúi kennara í nefndinni hefur sagt að ekkert sé því til fyrirstöðu að sækja aftur um undanþágu dragist verkfallið á langinn. 27.9.2004 00:01
Hvatt til funda og viðræðna Stjórn Kennarasambandsins hefur sent frá sér ályktun, þar sem forsvarsmenn sveitarfélaga og ríkisvaldsins eru hvattir til þess að hætta að benda hvorir á annan og setjast heldur á rökstóla um hvernig fjármagna megi kjarabætur, til þess að binda endi á deiluna. <b><font face="Times New Roman" color="#0000ff"></font></b> 27.9.2004 00:01
Landhelgisgæslan rannsakar flak Nokkuð magn hættulegra hluta var fjarlægt úr flaki flugvélarinnar,,Flying Fortress” sl. föstudag, þegar Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar rannsökuðu flakið. Meðal þess sem fjarlægt var úr vélinni voru vélbyssur. Aðrir hættulegir hlutir, sem ekki var talið öruggt að flytja, voru merktir sérstaklega. 27.9.2004 00:01
Þingmenn hleyptu kostnaðinum upp Alþingishúsið hefur fengið andlitslyftingu eftir gagngerar endurbætur í sumar. Skipt var um jarðveg undir húsinu, ný gólfefni lögð og veggir málaðir. Kostnaður er nokkru hærri en áætlað var, meðal annars vegna ófyrirséðs sumarþings 27.9.2004 00:01
Jón Ragnarsson ákærður Ríkislögreglustjóri hefur gefið út ákæru á hendur Jóni Ragnarssyni framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Lykilhótela fyrir umboðssvik. Samkvæmt ákæru er honum gefið að sök að hafa tekið skuldabréfalán hjá Framkvæmdasjóði Íslands árið 1998 upp á 37 milljónir króna og þar með misnotað aðstöðu sína 27.9.2004 00:01
Tjaldanes til sölu Tjaldanes, heimili þroskaheftra drengja í Mosfellsdal, er til sölu, Starfsemi lagðist þar af í maí síðastliðnum, en frá því á síðasta ári hefur verið unnið að því að koma heimilismönnum fyrir annars staðar. Þeir búa ýmist einir eða fleiri í þjónustuíbúðum víðs vegar í Mosfellsbæ, þar sem veitt er þjónusta allan sólarhringinn. 27.9.2004 00:01
Enn strandaglópar í Björgvin Fjöldi Íslendinga eru enn strandaglópar á flugvellinum í Björgvin í Noregi vegna verkfalls flugumferðarstjóra í Osló. Vél Icelandair sem var á leið til Osló var á síðustu stundu snúið til Björgvin, en rúmlega hundrað farþegar voru um borð. 27.9.2004 00:01
Ætla að fjölga sumarbústöðum Tillaga að nýju aðalskipulagi Þingvallasveitar gerir ráð fyrir að landeigendum verði heimil stórfelld uppbygging sumarhúsabyggða, bæði með þéttingu núverandi svæða og nýjum sumarbústöðum. 27.9.2004 00:01
Þurfa 27,7 milljarða á næsta ári Stjórnendur Landspítalans telja sig þurfa 27,7 milljarða króna á næsta ári til að geta haldið rekstri spítalans óbreyttum frá því sem verið hefur. Formaður stjórnarnefndar spítalans er bjartsýnn á að spítalinn þurfi ekki að standa við 700 milljóna króna niðurskurð í haust. 27.9.2004 00:01
Hættulegir hlutir finnast Nokkrar vélbyssur og fleiri hættulegir hlutir fundust fyrir helgi við flak breskrar sprengjuflugvélar á Eyjafjallajökli. Vélin fórst í seinna stríði fyrir réttum sextíu árum. 27.9.2004 00:01
Enn óvíst með framsal Ekki er enn vitað hvort orðið verður við framsalsbeiðni íslenskra stjórnvalda vegna rannsóknar á einu umfangsmesta fíkniefnamáli síðari ára. Þrjár stórar sendingar fíkniefna komu frá Hollandi, tvær með Dettifossi og ein í pósti. 27.9.2004 00:01
Játuðu brottkast Skipstjóri og útgerðarmaður í Ólafsvík gengust undir það í Héraðsdómi Vesturlands að greiða hvor eina milljón króna í sekt fyrir brottkast. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur þriggja mánaða fangelsi í stað sektarinnar. 27.9.2004 00:01
Ákærður fyrir umboðssvik Fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Lykilhótela hefur verið ákærður af Ríkislögreglustjóra fyrir umboðssvik þegar hann tók 37 milljóna króna lán í nafni félagsins hjá Framkvæmdasjóði Íslands. 27.9.2004 00:01
Óbætanlegt tjón Listaverk eftir Ríkharð Jónsson urðu meðal annars fyrir barðinu á skemmdarvargi, sem svalaði skemmdarfýsn sinni í Byggðasafni Austur Skaftfellinga um helgina, þar sem óbætanlegt tjón var unnið. 27.9.2004 00:01
Samfylking vill úttekt Margrét Frímannsdóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar telur furðu sæta að ríkisfyrirtækið Síminn kaupi hlut í fjölmiðlafyrirtæki þegar talað sé um nauðsynlegan niðurskurð hjá Ríkisútvarpinu. Þingflokkurinn hefur farið fram á að gerð verði opinber úttekt á Landssímanum og dótturfélögum hans. 27.9.2004 00:01
Skákin heldur áfram Þingmenn Framsóknarflokksins hittast á morgun og skipta með sér nefndarstörfum fyrir komandi vetur. Siv Friðleifsdóttir bætist í hóp óbreyttra og er hart deilt um hver eigi að víkja úr hvaða embætti fyrir hana. 27.9.2004 00:01
Engin lausn í sjónmáli Engin lausn er í sjónmáli í kennaradeilunni. Deilendur reikna ekki með því að leggja fram sáttatilboð á fimmtudag og ríkissáttasemjari segir engar forsendur fyrir sáttatillögu. Staðan er því hin sama og þegar síðasti fundur var haldinn á fimmtudaginn. 27.9.2004 00:01
Ný stólalyfta í Bláfjöllum Verið er að reisa nýja 250 milljóna króna skíðalyftu í Bláfjöllum, þrátt fyrir mesta snjóleysi í manna minnum á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins undanfarna vetur. En lyftan verður einnig notuð á sumrin, til að flytja ferðamenn og reiðhjólin þeirra upp á fjallstindana. 27.9.2004 00:01