Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samfylking vill rannsókn á Símanum Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur farið fram á það við forsætisnefnd Alþingis að ríkisendurskoðun rannsaki fjárfestingar Símans á undanförnum árum og nýleg kaup hans á hlut í Skjá einum. Þingflokkurinn vill fá skýringar á því hvers vegna Síminn ákvað að blanda sér í fjölmiðlarekstur þar sem engin eðlileg útskýring hafi verið gefin fyrir þeirri ákvörðun. 27.9.2004 00:01
Íþróttir kunna að verða undir Eggert Magnússyni, formanni Knattspyrnusambands Íslands, finnst ástæðulaust að sameina íþróttamál og menningarmál í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. Tillögur um það eru til umfjöllunar hjá borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans. 27.9.2004 00:01
Þúsund ára ísjaki stal senunni Viðamikil íslensk menningar- og vísindakynning hófst í París í gær með því að 14 tonna íslenskum ísjaka var komið fyrir við vísindasafnið nærri Champs Elysée. Flutningur jakans hefur vakið gríðarlega athygli í Frakklandi. </font /></b /> 27.9.2004 00:01
Ekkert lát á straumi fíkniefna Mörg stór fíkniefnamál hafa komið upp síðustu ár. Tólf ára fangelsisdómur yfir Austurríkismanni var mildaður í níu ár í Hæstarétti. Tryggvi Rúnar Guðjónsson situr nú af sér tíu ára fangelsisdóm sem er þyngsti fíkniefnadómur Hæstaréttar. </font /></b /> 27.9.2004 00:01
Kviknaði í eldavél Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að sambýlinu við Reykjadal í Mosfellsdal laust eftir klukkan sjö í morgun. Þar hafði kviknað í við eldavélina í húsinu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og urðu skemmdir vegna brunans óverulegar. 26.9.2004 00:01
Þrefaldur pottur næst Enginn vann tvöfalda pottinn í lottóinu í gær. Tölurnar sem upp komu voru 7 - 11 - 16 - 22 og 25 og bónustalan var 25. Rúmlega 6,6 milljónir voru í pottinum tvöfalda. Hann verður því þrefaldur um næstu helgi og fer því væntanlega yfir 10 milljónir. 26.9.2004 00:01
Brennisteinsfnykur í Eyjum Nokkrir jarðskjálftar hafa orðið út af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg í gærkvöldi og í nótt. Sá snarpasti mældist 3,3 stig á Richter. Í Vestmannaeyjum hefur orðið vart við mikinn brennisteinsfnyk í bænum og kemur hann úr vesturátt. 26.9.2004 00:01
Þyrlan send vegna umferðarslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð vestur á Bíldudal klukkan sex í morgun vegna umferðarslyss sem átti sér stað klukkustund áður. Þá ók fólksbifreið í gegnum handrið á rimlahliði í útjaðri bæjarins. Tveir menn á þrítugsaldri voru í bílnum og flaug farþeginn í gegnum framrúðuna og lenti á viðardrumbi í hliðinu. 26.9.2004 00:01
Tvisvar ekið á stólpa á sólarhring Jeppa var ekið á stólpa sem er hluti af vegartálma á Vesturlandsvegi skammt frá Korpúlfsstöðum á sjötta tímanum í morgun. Ökumaður er grunaður um ölvun. Eitthvað virðist þessi vegartálmi þvælast fyrir ölvuðum ökumönnum því um svipað leyti í gær lenti annar bíll á stólpanum. Sá ökumaður reyndi að flýja af vettvangi en náðist skömmu síðar. 26.9.2004 00:01
Furðar sig á undanþágunefnd Undanþágunefnd kennara og sveitarfélaga hefur hingað til synjað öllum undanþágubeiðnum vegna kennslu fatlaðra barna í yfirstandandi verkfalli grunnskólakennara. Halldór Gunnarsson, formaður landssamtakanna Þroskahjálpar, furðar sig á þessu. 26.9.2004 00:01
Brennisteinslyktin liðin hjá Brennisteinslyktin sem fannst í Vestmannaeyjum í morgun er liðin hjá en margir Eyjamenn hafa fundið fnykinn á morgungöngunni í morgun. Lyktin kom úr vesturátt að sögn Gísla Óskarssonar, fréttaritara í Vestmannaeyjum, en hann segir það óvenjulegt að finna brennisteinslykt úr vesturátt því hún komi yfirleitt frá jöklunum þegar það er austanátt. 26.9.2004 00:01
Síðari viðgerðin tókst vel Neysluvatn er farið að streyma til Vestmannaeyja frá fastalandinu. Fyrsta viðgerð leiðslunnar mistókst þar sem þéttingar leiðslunnar gáfu sig. Þá voru búnar til nýjar þéttingar og er útlit er fyrir að síðari bráðabirgðaviðgerðin hafi tekist vel. 26.9.2004 00:01
Karlmaður nefbraut stúlku í nótt Stúlka nefbrotnaði er hún var slegin í andlitið fyrir utan veitingastað við Hafnargötu í Keflavík í nótt samkvæmt Víkurfréttum. Árásaraðilinn er karlmaður og var hann yfirheyrður af lögreglu. 26.9.2004 00:01
Vatnsskortur úr sögunni að sinni Í gær tókst að gera við aðra leiðsluna sem flytur vatn frá fastalandinu til Vestmannaeyja. Neysluvatn streymir nú til Eyja og ótti þeirra við vatnsskort er úr sögunni, í bili að minnsta kosti. 26.9.2004 00:01
Störfum fækkar jafnt og þétt Erfiðleikar eru í atvinnumálum Siglufjarðar. Gífurlegur samdráttur á undanförnum árum, segir formaður verkalýðsfélagsins. Verðum að vera bjartsýn, segir formaður bæjarráðs. </font /></b /> 26.9.2004 00:01
Of lítið samráð innan Framsóknar Tveir þingflokksfundir hafa verið afboðaðir hjá Framsóknarflokknum undanfarna viku þar sem tilkynna átti um breytingar á nefndarsetum þingmanna. Sumir þingmanna flokksins telja of lítið samráð hafa verið haft við þingmenn vegna málsins en endanleg ákvörðun verður tilkynnt á þingflokksfundi á þriðjudag. 26.9.2004 00:01
Mótmælir orðum og athöfnum Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Safamýrarskóla, er óhress með að forysta Kennarasambandsins noti nafn skólans til að réttlæta og styðja ákvörðun fulltrúa síns í undanþágunefnd kennara og sveitarfélaga. </font /></b /> 26.9.2004 00:01
Olíulykt af heita vatninu Héraðsbúum brá sumum í brún á dögunum þegar olíufnyk lagði af heita vatninu úr krönum þeirra. Skipt var um dælu í einni af borholum Hitaveitu Egilsstaða og Fella og var notast við sérstaka feiti til að skrúfa dæluna saman. Liggur þar hundurinn grafinn. Fnykinn lagði af feitinni. </font /></b /> 26.9.2004 00:01
Nota sér neyðarástand fatlaðra Neyðarástand hjá fjölskyldum fatlaðra barna er notað sem vopn í kjarabaráttu kennara. Þetta segir formaður Þroskahjálpar sem einnig spyr hvers vegna undanþágunefnd, sem ekki veitir undanþágur, starfi yfirleitt. 26.9.2004 00:01
Höfnun beiðnanna óskiljanleg Skólastjóri Safamýrarskóla, sérskóla fyrir fyrir börn með alvarlega fjölfötlun, segir óskiljanlegt að fulltrúi kennara í undanþágunefnd skuli hafa hafnað beiðni um undanþágu til kennslu. Ekki síst í ljósi þess að fulltrúinn er sérkennari og starfar í Safamýrarskóla. 26.9.2004 00:01
Fjórði bekkur í samræmd próf? Óvissa er um samræmd próf fjórða bekkjar í 180 grunnskólum sveitarfélaganna. Prófa á börnin í stærðfræði og íslensku dagana 10. og 12. október. 26.9.2004 00:01
Fá börn í dagvistun Fá börn í Hornafirði sækja í Hafnarskóla eftir klukkan tvö á daginn þó starfsemi dagvistunarinnar sé í fullum gangi. Um 400 börn sitja heima vegna verkfalls kennara. 26.9.2004 00:01
Enginn varanlegur skaði Barnasálfræðingur segir ólíklegt að verkfall valdi fötluðum börnum varanlegum skaða. Þau geti þó þurft sinn tíma til að jafna sig. Móðir fatlaðs drengs segir stöðuna vonlausa til lengri tíma. </b /> 26.9.2004 00:01
Undrast ásakanir kennara Formaður samninganefndar sveitarfélaganna undrast ásakanir forsvarsmanna kennara um að loðið orðalag hafi rýrt gildi samninga sem kennarar gerðu við sveitarfélögin árið 2001. Hann segir ekki hægt að lofa því að komið verði til móts við kennara á fimmtudaginn, haldi þeir áfram tali um ófrávíkjanlegar kröfur. 26.9.2004 00:01
Keppt í samlokugerð Samloka er ekki bara tvær brauðsneiðar með áleggi sem búið er að skella saman. Það kom í ljós í hörkuspennandi keppni í samlokugerð sem fram fór í dag, þeirri fyrstu sinnar tegundar hér á landi. 26.9.2004 00:01
Breytingar breytinganna vegna Forsvarsmenn íþróttahreyfinga Reykjavíkur óttast að breytingar á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar dragi úr fjármagni til íþrótta- og tómstundamála sé litið til lengri tíma, segir Ragnar Reynisson formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur. 26.9.2004 00:01
Ríkið leysi deiluna úr sjálfheldu Sífellt fleiri sveitarstjórnarmenn telja að ekki sé hægt að leysa kjaradeilu kennara nema að ríkið auki tekjur sveitarfélaganna. Talið er að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti ekki nægilegri hörku í viðræðum við ríkið. 26.9.2004 00:01
Lítill vilji til lagasetningar Lítill hljómgrunnur er meðal þingmanna fyrir því að binda enda á kennaraverkfall með lögum. Vinsti-grænir útiloka lagasetningu. Þingmenn Samfylkingar áttu fund með sveitarstjórnarmönnum í vikunni. </font /></b /> 26.9.2004 00:01
Ók á hliðstólpa Maður ók á hliðstólpa skammt frá Bíldudal um fimmleytið á sunnudagsmorguninn. Stólpinn gekk í gegnum framrúðuna á bílnum og í höfuð ökumannsins sem hlaut af því töluverða áverka. Ökumaðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF, á Borgarspítalann. 26.9.2004 00:01
Sigruðu Frakka í skák Íslendingar voru sigursælir á árlegu skákmóti öldungadeildar franska þingsins í París um helgina. Ísland sigraði Frakkland 3-1 í landskeppni og síðan sigraði Helgi Ólafsson í hraðskákmóti fjögurra stórmeistara frá hvoru landi. 26.9.2004 00:01
Áhyggjur af hnignun atvinnulífs Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði lýsir þungum áhyggjum af hnignun atvinnulífs á Siglufirði í ályktun félagsfundar Vöku sem haldinn var í gær. Þar segir að störfum fækki með hverju árinu sem líði og atvinnulífið verði fábreyttara. 26.9.2004 00:01
Þörf á umbótum innan Sþ Íslensk stjórnvöld telja að þörf sé á umbótum á skipulagi Sameinuðu þjóðanna, sérstaklega innan öryggisráðsins. Geir H. Haarde fjármálaráðherra fjallaði meðal annars um þetta í ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna seint í gærkvöld í fjarveru Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra. 25.9.2004 00:01
Fjáröflun fyrir börn í stríði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun hefja fjáröflunarátak Rauða krossins fyrir börn í stríði, „Göngum til góðs“, í Smáralind nú klukkan hálfellefu. Auk forsetans munu Ellert B. Schram, forseti Íþróttasambands Íslands, Kristján Sturluson, varaformaður Rauða krossins, og Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, kynna landssöfnunina. 25.9.2004 00:01
Ölvun, hass og haglabyssa Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökumann á 137 kílómetra hraða á ellefta tímanum í gærkvöld við Ytri vík á Ólafsfjarðarvegi á milli Dalvíkur og Akureyrar. Ökumaðurinn sem er á fimmtugsaldri er grunaður um ölvun við akstur. Í bílnum fannst smáræði af hassi, sem og haglabyssa og skotfæri. 25.9.2004 00:01
Mikið hvassviðri í nótt Mikið hvassviðri var á suður- og suðvesturhorni landsins í nótt. Lögregla á Akranesi var á ferðinni og tíndi til lausamuni ásamt bæjarstarfsmönnum. 25.9.2004 00:01
Tíu verkfallsbrot staðfest Um tíu fyrirtækjum og stofnunum hefur verið bent á það skriflega að það tómstundastarf sem börnum starfsmanna er boðið upp á sé verkfallsbrot. Bréfin eru frá verkfallsnefnd kennara en ekki fæst uppgefið hvaða fyrirtæki þetta eru. 25.9.2004 00:01
Umbylting skipulags Sþ Það þarf að umbylta skipulagi Sameinuðu þjóðanna, sérstaklega öryggisráðsins, að mati Geirs H. Haarde fjármálaráðherra sem í gær hélt ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. 25.9.2004 00:01
Gargandi þvæla segir Sveinn Andri Alls hafa um 120 lögmenn skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við Jón Steinar Gunnlaugsson um að hann verði skipaður í stöðu hæstaréttardómara. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segist ekki vita hversu margir hafi verið beðnir um að skrifa undir áskorunina. 25.9.2004 00:01
KSNV harmar ummæli Einars Odds Kennarasamband Norðurland vestra, KSNV, harmar óheppileg ummæli þingmanns kjördæmisins, Einars Odds Kristjánssonar, í fjölmiðlum þar sem hann segir kennara vera að brjóta niður stefnu þjóðarinnar með kjarabaráttu sinni, eins og segir í ályktun sambandsins sem send var fjölmiðlum í dag. 25.9.2004 00:01
Viðgerðin í Eyjum mistókst Viðgerð á vatnsleiðslunni til Vestmannaeyja mistókst í gær. Þetta kemur fram á fréttavefnum Eyjar.net. Sigurjón Ingólfsson, veitustjóri hjá Hitaveitu Suðurnesja í Vestmannaeyjum, segir í samtali við vefinn að viðgerð verði haldið áfram í dag. 25.9.2004 00:01
Engin verkfallsbrot fyrir vestan Kennarar á Ísafirði segjast ekki hafa orðið varir við nein verkfallsbrot þar í bæ að sögn fréttavefjarins Bæjarins besta. Aðspurðir hvort þeir telji sig njóta stuðnings almennings eða hafi orðið fyrir aðkasti segja kennarar að flestir taki máli þeirra vel. 25.9.2004 00:01
Viðgerðum enn ólokið Enn hefur ekki tekist að gera við vatnsleiðsluna til Vestmannaeyja sem skemmdist í fyrradag. Viðgerð sem fram fór í gær mistókst að sögn Sigurjóns Ingólfssonar, veitustjóra hjá Hitaveitu Suðurnesja í Vestmannaeyjum, og hafa áframhaldandi viðgerðir staðið yfir í allan dag. 25.9.2004 00:01
Bifreið fór fram af Elliðaárbrú Bifreið hrapaði fimm metra niður í gegnum vegrið á brúnni yfir Elliðaár á ellefta tímanum í gærkvöld og lenti á göngustíg við árnar. Bifreiðin kom úr áttinni frá Breiðholti og var á leið inn á Vesturlandsveg til austurs þegar ökumaður missti stjórn á henni. 25.9.2004 00:01
Bíósýningar að nýju á Selfossi Kvikmyndasýningar munu hefjast að nýju á Selfossi í vetur eftir 20 ára hlé. Eigendur Hótel Selfoss hafa undirritað samstarfssamning við Einar Rúnar Einarsson og Magnús Ninna Reykdalsson á Selfossi um rekstur á Selfossbíói í hótelinu. Fyrsta bíósýningin verður 1. desember næstkomandi. 25.9.2004 00:01
Dómurinn gæti haft fordæmisgildi Dómur í máli danskrar handboltakonu gegn tímaritinu <em>Se og hör</em> kann að hafa fordæmisgildi hér landi. Ritstjórar og blaðamenn danska tímaritsins töpuðu málinu og voru dæmdir til greiðslu sektar fyrir að hafa birt grein um einkalíf konunnar, gegn vilja hennar. 25.9.2004 00:01