Fleiri fréttir

Víða hálka

Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og á höfuðborgarsvæðinu en hálka austur yfir Hellisheiði og Þrengsli.

Flugeldi skotið inn um bréfalúgu

Klukkan hálf fimm í morgun barst lögreglunni tilkynning um minniháttar skemmdarverk, er skoteld hafði verið settur inn um bréfalúgu þar sem hann sprakk.

Telja vinnslu á Vopnafirði vel í sveit setta

Fiskvinnsla Vopnfisks á Vopnafirði telur sig í stakk búna til að taka við öllum þeim afla sem fyllir byggðakvótann sem Vopnafjarðarhreppur hefur fengið úthlutað á yfirstandandi fiskveiðiári og gagnrýnir fullyrðingar sveitarstjórnar um að ekki séu haldbær rök fyrir því að fiskvinnsla sé á Vopnafirði.

Fjögur lík fundin til viðbótar

Leitarsveitir hafa nú fundið fjögur lík til viðbótar úr farþegaflugvél flugfélagsins AirAsia í Jövuhafi. Alls hafa 34 lík fundist ásamt fimm stórum hlutum flugvélarinnar.

Skattskil voru 99,59% með rafrænum hætti

Innan tveggja ára mun pappírsframtalið heyra sögunni til með öllu. Enn meiri einföldun skattskila verður kynnt til sögunnar á næsta ári. Hagræði og sparnaði rafrænna skila er líkt við byltingu og eru hér mest á öllum Norðurlöndum.

10.000 miðar á strætó-appinu

10 þúsund strætómiðar hafa verið keyptir í gegnum Strætó-appið síðan það var uppfært þann 20. nóvember. Ýmsar endurbætur voru gerðar og nýjungum bætt við, til dæmis möguleikanum á að kaupa farmiða í gegnum appið. Þá nýtist miðinn einnig sem skiptimiði í 75 mínútur eftir að hann er virkjaður.

Upplýsa ekki um bætur vegna díoxínmengunar

Ísafjarðarbær neitar að afhenda drög að samkomulagi vegna díoxínmengunar frá sorpbrennslustöð sveitarfélagsins. Bóndinn í Engidal segir enn deilt um upphæðir og bótatímabil. Búskapur lagðist af vegna mengunarinnar en er nú hafinn að nýju.

Grófu tvöfalt meira en verktakar undir Vaðlaheiði

Verktakar í Norðfjarðargöngum grófu samtals 4,5 kílómetra á síðasta ári, eða um 60 prósent af heildarlengd ganganna. Heitt vatn tafði framkvæmdir í Vaðlaheiðargöngum þar sem afköstin voru um tveir kíló

Forsetahjónin snúa aftur heim

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Michelle, eiginkona hans, veifuðu til stuðningsmanna sinna þegar þau gengu um borð í forsetaflugvélina, Air Force One, áður en þau flugu til Washington á laugardaginn. Hjónin voru í þriggja vikna leyfi á Havaí, en Obama er fæddur þar.

Bandaríkjaher mögulega lengur í Afganistan

Ashraf Ghani, forseti Afganistans, segir hugsanlegt að endurskoða þurfi áður gefinn frest Bandaríkjastjórnar um að kalla alla bandaríska hermenn heim frá Afganistan fyrir árslok 2016.

Vill ekki nefna dæmi um aðra leka

Forsætisráðherra segir að fjölmörg dæmi um leka á persónuupplýsingum um einstaklinga úr stjórnsýslunni sé að finna í fréttum undanfarinna ára. Hann vill þó ekki nefna sérstök dæmi slíkt.

Von á nýrri tillögu um afturköllun aðildarumsóknar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráherra á von á nýrri tillögu um afturköllun aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu snemma á þessu ári. Utanríkisráðherra fagnar því og segist vilja klára málið sem fyrst.

Rauði herinn syngur lagið Happy

Rússneski herinn birti myndbandið á YouTube á þriðjudaginn þar sem kór hersins sést syngja lagið í fullum skrúða.

Segir hugrekkið í víkingablóðinu

Vestur- Íslenskur ofurhugi ætlar á næstu dögum að hlekkja sig við brennandi víkingaskip í Reykjavíkurhöfn, reyna að losa sig og synda í land áður en hann verður eldinum að bráð. Hann segir hugrekkið víkingablóðinu að þakka.

Hættumat almannavarna skóp hættu á Breiðdalsvík

Flutningur vararafstöðvar frá Austurlandi til Norður-Þingeyjarsýslu vegna hættu á hamfarahlaupi frá Bárðarbungu varð til þess að hættuástand skapaðist vegna langvarandi rafmagnsleysis í Breiðdal fyrir jól.

Opinbera svindlara á Facebook

Á síðunni segir að tilgangur hennar sé að deila upplýsingum um varasamt fólk í viðskiptum í netheimum.

Allar líkur á verkfalli lækna

Allar líkur eru á að verkfall lækna skelli á á miðnætti að mati formanns Læknafélags Íslands. Samningafundur lækna og ríkisins í gær reyndist árangurslaus.

Hálka um land allt

Búast má við flughálku víða þegar líður á daginn þegar hlánar og bleytir í klaka og þjöppuðum snjó.

Græddu milljónir á flóttamönnunum

Talið er að flóttamennirnir sem voru um borð í flutningaskipinu Ezadeen hafi greitt allt upp undir 8.000 dollara fyrir að komast um borð í skipið.

Ekkert formlegt eftirlit verður með afnámi vörugjalda

Stjórnvöld ætla ekki að hafa sérstakt eftirlit með því afnám vörugjalda og lækkun virðisaukaskatts skili sér til neytenda. Ólöf Nordal, ráðherra neytendamála, segir að markaðurinn muni sjá um að veita fyrirtækjum aðhald.

Sjá næstu 50 fréttir