Útilokar ekki breytingar á skiptingu ráðuneyta Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. janúar 2015 15:23 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, var gestur Sigurjóns M. Egilssonar á Sprengisandi í morgun. Vísir/Vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, útilokar ekki að ráðuneytum verði skipt upp á milli stjórnarflokka. Þetta kom fram í þættinum á Sprengisandi í morgun en þar spurði Sigurjón M. Egilsson hann út í þessi mál. Tveir nýir ráðherrar tóku nýlega sæti í ríkisstjórn; Ólöf Nordal fer nú með innanríkismálin fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og Sigrún Magnúsdóttir með umhverfis-og auðlindamál fyrir hönd Framsóknarflokksins. Sigmundur Davíð segir engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi breytingar á skiptingu á ráðneyta. Hann segir slíkar breytingar bæði hafa kosti og galla. „Kosturinn við óbreytt fyrirkomulag er að það tekur hvern ráðherra alltaf ákveðinn tíma að komast inn í sinn málaflokk og vera með hann á hreinu þannig að hlutirnir gangi smurt fyrir sig. Svo er hitt að oft er ágætt að fá inn nýtt sjónarhorn og hrista aðeins upp í hlutunum. Þetta togast á og ég skal ekki segja hver niðurstaðan verður úr því en það er alveg möguleiki á einhverjum tilfærslum en það hafa engin sérstök drög verið lögð að því.“Eru ekki einhver ráðuneyti sem að Sjálfstæðismenn eru með sem þú vildir hafa í þínum flokki? „Jú, jú. Ég vildi helst hafa þau öll en það er víst ekki hægt að fara fram á það. Þeir eru með ýmis stór og mikilvæg ráðuneyti sem vissulega væri eftirsóknarvert að hafa og við gerum ráð fyrir að þeim þyki það sama um þau ráðuneyti sem við erum með.“Værir þú til dæmis til í að skipta við Bjarna? „Nei, það hefur nú aldrei komið til tals. Þvert á móti var gengið frá því í upphafi samstarfsins að við myndum halda okkur í þeim ráðuneytum sem við erum í en hinn möguleikinn var skilinn eftir opinn.“
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Sjá meira