Fleiri fréttir

Þriggja ára börn í spa-meðferð

Á nokkrum norskum hótelum geta nú ung börn, allt niður í þriggja ára, fengið ilmolíumeðferð, andlitsbað og andlitsnudd og fóta- og handnudd og lakkaðar neglur. Boðið er upp á sérstaka pakka fyrir stráka.

1,5 milljarðar í tækjakaup

Landspítalinn fær 1.262 milljónir til tækjakaupa á næsta ári og Sjúkrahúsið á Akureyri 273 milljónir standi áætlun heilbrigðisráðherra óbreytt. Ríkisstjórn hefur afgreitt tækjakaupaáætlunina til fjárlaganefndar.

Minni unglingadrykkja þökk sé Facebook

Verulega hefur dregið úr unglingadrykkju í Svíþjóð á síðustu árum. Í nýrri könnun sögðust 47 prósent níundubekkinga hafa bragðað áfengi og hefur hlutfallið aldrei verið lægra frá því byrjað var að kanna þetta árið 1971.

Vísindamönnum nóg boðið

Stjórnvöld voru gagnrýnd harkalega á Rannsóknaþingi í gær fyrir niðurskurð til tækni- og vísindasjóða. Aðeins einu sinni hafa framlög til sjóðanna verið hærri, segir menntamálaráðherra og minnir á stöðu ríkissjóðs.

Hundar með flugi í bootcamp-þjálfun

Flestir hundanna sem koma í þjálfun til hundaatferlisfræðings á Akureyri koma með flugi víðs vegar að af landinu. Venjast á slæma hegðun af of miklu frelsi.

Gáfust upp á Breiðafirðinum

Stóru síldveiðiskipin, sem verið hafa í Breiðafirði það sem af er vertíðinni, gáfust upp í gær og sigldu suður fyrir land.

Ökuréttindalaus með fíkniefni

Ökumaður, sem lögreglan stöðvaði í Breiðholti á öðrum tímanum í nótt, reyndist vera undir áhrifum fíkniefna.

Heitavatnsskortur á Akranesi

Kalt var í mörgum húsum á Akranesi í nótt, en þó ekki eins kalt og í fyrrinótt. Ekki hefur enn náðst viðunandi vatnsstaða í heitavatnsgeymi Orkuveitunnar á Akranesi og leiðslan frá Deildartunguhver í Borgarfirði, annar ekki eftirspurninni í bænum.

Ólögmætt að víkja Ingólfi frá

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Fjármálaeftirlitið til að greiða Ingólfi Guðmundssyni átta milljónir króna bætur.

Fjölmörg erlend bein í íslenskum kumlum

Líkamsleifar í að minnsta kosti tveimur af hverjum fimm íslenskum kumlum sem rannsökuð voru reyndust af fólki sem fæddist ekki á Íslandi. Niðurstöður rannsóknar benda til þess að landnám hafi tekið langan tíma segir fornleifafræðingur.

Krókódílar nota beitu til að ná fuglum

Krókódílar eru vel hannaðir til veiða, en vísindamenn hafa nú sýnt fram á að ákveðnar tegundir nota litlar trjágreinar sem beitu til að auðvelda sér að veiða fugla.

Vefsíða opnuð um skuldamál

Búið er að koma upp kynningarefni um aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána á vef forsætisráðuneytisins

Stal hlutum úr flaki bifreiðar Paul Walkers

Lögreglan í Los Angeles í Bandaríkjunum handtók í gær ungan karlmann fyrir að stela hlutum úr flaki bifreiðar leikarans Paul Walker sem lést bílslysi á laugardag.

Yfir 20 stiga frost

Tveggja stafa frosttölur voru á öllu landinu í nótt og í Húsafelli, á Þingvöllum og Gauksmýri fór frostið niður fyrir 20 gráður og enn neðar á hálendinu.

Lásasmiður hafði áður aðstoðað Sævar

Lásasmiðurinn sem tók hurðina úr lás á íbúð Sævars Rafns Jónassonar fyrir lögregluna í Hraunbæ aðfaranótt mánudags, hafði tveimur dögum fyrr hjálpað Sævari að komast inn um útidyrnar.

Kveiktu í bíl og hótuðu eiganda

Ræningjar kveiktu í bíl tvítugs manns og ráku hann í burtu með hótunum eftir að hafa stöðvað hann á sveitavegi á Jótlandi í fyrrinótt.

4.000 milljarðar í olíubransann

Heildarfjárfesting í olíu- og gasiðnaðinum í Noregi mun nema um 212 milljörðum norskra króna í ár, sem samsvarar rúmum 4.000 milljörðum íslenskra króna, að því er hagstofan þar í landi áætlar.

370 klíkumeðlimir í steininum

Aldrei hafa verið fleiri klíkumeðlimir í dönskum fangelsum. Sá hópur telur nú 370 menn sem hafa hlotið dóma fyrir morð, eiturlyfjasölu, líkamsárasir og önnur brot.

ShopUSA dulkóðar ekki lykilorð

Fyrirtæki taka upp dulkóðun á lykilorðum notenda eftir ábendingu Pírata en fleiri bætast við sem ekki verja notendur sína á vefsíðum.

Vilja viðurlög sem bíta á löndunarsvindlara

Fiskistofustjóri segir viðurlög við framhjálöndun vera væg og hafi ekki fælingarmátt. Sektir eru jafnvel lægri en verðmæti unnins afla sem tekinn hefur verið fram hjá vigt. Ráðherra efins um að öll hlutverk eigi að vera á einni stofnun.

Lögregla lokið rannsókn á svínshausunum í Sogamýrinni

Ákærusvið lögreglu mun á næstunni ákveða hvort gefin verður út ákæra á hendur manni sem játað hefur að hafa komið fyrir svínshausum og blóðugum Kóran á lóð þar sem reisa á mosku. Lögreglumaður segir að mönnum sé frjálst að mótmæla.

Votta Mandela virðingu sína

Erlendir ráðamenn, stofnanir og stórstjörnur keppast við að votta Nelson Mandela virðingu sína.

Mandela látinn

Nelson Mandela er látinn í Pretoríu í Suður-Afríku, 94 ára að aldri. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að sjúkrahúsinu síðustu daga til að votta honum virðingu sína.

Margar eignir Íbúðalánasjóðs ekki hæfar til leigu

Íbúðalánasjóður situr á fjölda íbúða sem eru í svo slæmu ásigkomulagi að ekki er hægt að leigja þær út. Yfir 1000 eignir Íbúalánasjóðs standa auðar þrátt fyrir mikla eftirspurn á leigumarkaði.

Um 20 byssum stolið á ári

Frá 2008 hefur Ríkislögreglustjóra borist 107 tilkynningar vegna þjófnaðar á skotvopnum. Ekki þarf að geyma byssur í sérstökum skotvopnaskáp fyrr en við kaup á fjórðu byssunni.

ASÍ slítur viðræðum við SA

Svo langt er á milli aðila að samninganefnd ASÍ telur forsendur brostnar fyrir þeirri leið sem átti að varða.

Skotárás: Hreinsunarstarf lögreglu mun taka viku áður en hægt er að rannsaka vettvang nánar

Hreinsun fer nú fram í íbúð mannsins sem skotinn var til bana í Árbænum og telja lögreglumenn að það geti tekið allt að viku áður en hægt er að rannsaka vettvanginn. Spurningar hafa vaknað í kjölfar málsins um eftirlit með félagsíbúðum og fólki sem lendir á gráu svæði innan kerfisins. María Lilja Þrastardóttir ræddi við systur manns, sem hafði verið látinn í félagsíbúð í viku þegar hann fannst.

Þúsund íslenskar heimasíður hakkaðar í ár

Samkvæmt hakkarasíðunni Zone-h.org hafa hátt í þúsund heppnaðra netárása verið gerðar á íslenskar vefsíður á árinu. Þingmaður Pírata segir árásir á íslenskar vefsíður hlaupa á milljónum.

Fyrri árásir ógnuðu ekki upplýsingaöryggi

Vodafone sá ekki ástæðu til að senda tilkynningu til Póst- og fjarskiptastofnunar eftir að ráðist var á vefsíðu fyrirtækisins í tvígang, þann 7. mars í fyrra og 3. maí í ár.

Sjá næstu 50 fréttir