„Flettist ofan af svikamyllu stjórnarflokkanna“ Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 5. desember 2013 19:30 Björn Valur kallar skuldaleiðréttinguna svikamyllu.
Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna, segir í pistli á heimasíðu sinni að smám saman sé að flettast ofan af svikamyllu stjórnarflokkanna eftir því sem frá líði sýningunni í Hörpu. Björn nefnir fjögur dæmi sem hann segir raunveruleg um mismunandi áhrif aðgerðanna eftir stöðu fólks og efnahag:Dæmi 1: Fjölskylda, hjón með tvö börn, skuldaði 25 m.kr. verðtryggð húsnæðislán. Hún fékk 4 milljónir niðurfelldar í 110% leiðinni á síðasta kjörtímabili og sérstakar vaxtabætur líka og fær því ekkert í aðgerðunum núna þar sem sú leiðrétting er dregin frá og er yfir 4 m.kr. hámarkinu í aðgerðunum núna. Samanlagðar mánaðartekjur þessarar fjölskyldu eru 550 þúsund krónur (bæði í kennslu) sem bendir til þess að afar ólíklegt sé að hún geti nýtt sér nokkuð af 70 milljörðunum í gegnum sérstakan viðbótarsparnað.Dæmi 2: Fjölskylda, hjón með tvö börn, sem á einbýlishús sem nú er metið á 90 m.kr. og skuldaði 18 m.kr. í verðtryggt húsnæðislán (sem var greitt upp 2011) fær um 3 m.kr. með aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þessi fjölskylda fær svo auðlegðarskattinn felldan niður og ætti því að vera í góðu jólaskapi.Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kynntu skuldaleiðréttingarnar um síðustu helgi.Mynd/DaníelDæmi 3: Einstætt foreldri með eitt barn í lítilli íbúð skuldaði 14 m.kr. verðtryggt húsnæðislán, fékk 1,4 milljónir niðurfelldar í 110% leiðinni og einnig sérstakar vaxtabætur upp á 400.000 (2x200.000/hámark). Þetta foreldri fær ekkert af 80 milljörðunum og afar litlar líkur á að geta nýtt sér nokkuð af 70 milljörðunum heldur vegna lágra tekna.Dæmi 4: Einstæð móðir með eitt barn keypti íbúð 2006 sem hún seldi 2012, fór á leigumarkaðinn og í háskólanám. Hún fékk ekki eina einustu krónu út úr íbúðinni sem var í raun bara yfirtaka kaupandans á skuldum seljanda. Lánið stóð þá í 21 m.kr. Miðað við boðaðar aðgerðir á hún að fá sérstakt skattaafsláttarkort sem fyrnist á næstu fjórum árum. Hún hefur hins vegar engar tekjur (námsmaður) og borgar því engan skatt. Hún mun þess vegna ekki geta nýtt sér afsláttinn fyrr en að námi loknu (2016) og fær því nánast ekkert út úr aðgerðinni. Að lokum segir Björn Valur að hann hafi grun um að sá eini sem ekki átti von á neinu sé sá sem er í dæmi 2 á meðan allir hinir bjuggust við feitum tékka - eins og þeim var lofað.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Fleiri fréttir Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Sjá meira