Ungir jafnaðarmenn vilja Gunnar Braga burt Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 5. desember 2013 18:21 Mynd/Stefán
Ungir jafnaðarmenn skora á Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra að segja af sér vegna ófaglegra og ólýðræðislegra vinnubragða. Í ályktun sem sambandið sendi frá sér segir að ákvörðun núverandi ríkisstjórnar um að stöðva aðildarviðræður við Evrópusambandið var tekin án þess að leggja hana fyrir atkvæðagreiðslu á Alþingi eða í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún sé í óþökk meirihluta landsmanna ef marka megi fjölmargar skoðanakannanir undanfarna mánuði, sem sýni allar að meirihluti landsmanna vilji sjá aðildarsamning og kjósa um hann í þjóðaratkvæðagreiðslu. Framsóknarflokkurinn hafi bæði fyrir og eftir kosningar talað fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna. Ungir jafnaðarmenn segja ríkisstjórnina nú ganga á bak orða sinna með orðhengilshætti og útúrsnúningi. Sem utanríkisráðherra beri Gunnar Bragi pólitíska ábyrgð á þessari ólýðræðislegu ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Þar fyrir utan hafi hann sýnt hræsni og vanþekkingu í umfjöllun sinni um utanríkismál. Hræsnin birtist meðal annars í þeim mótsagnakennda málflutningi að segja vinnubrögð Evrópusambandsins forkastanlega í IPA styrkjamálinu, þegar það var ríkisstjórnin sem í raun afþakkaði alla frekari IPA styrki með því að stöðva viðræður og lýsa því yfir að Ísland sé ekki á leiðinni inn í Evrópusambandið. Þá hafi Gunnar Bragi gagnrýnt Evrópusambandið fyrir lýðræðishalla, á meðan ríkisstjórnin hefur talað fyrir auknum viðskiptum og samstarfi við ríki sem seint teljast til fyrirmyndar í lýðræðismálum, eins og Kína, Rússland, Ungverjaland og Kakastan[sic]. Ungir jafnaðarmenn segja að Gunnar Bragi haldi ESB umsókn Íslands í gíslingu. Hvorki þjóð né þingi sé leyfð aðkoma að ákvörðun um umsókn, hann vill ekki draga umsóknina formlega til baka, en lýsir því ítrekað yfir að Ísland eigi ekkert erindi inn í ESB og leysir samninganefndina frá störfum. Ungir jafnaðarmenn telja þessi vinnubrögð skaðleg fyrir trúverðugleika Íslands og skora því á Gunnar Braga Sveinsson að axla sína pólitísku ábyrgð og stíga til hliðar sem utanríkisráðherra. Að lokum segja þau Gunnar Braga geta þá kannski notað tækifærið og farið í sína langþráðu Benidorm ferð.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira