Fleiri fréttir

Króatískar bullur eru blankar

Ivica Gregoric er að króatísku bergi brotinn og hann telur nánast engar líkur á því að hingað til lands slæðist valdalistar og bullur sem stundum fylgja króatíska liðinu.

Reykjavíkurborg hættir við gjaldskrárhækkanir

Hætt verður við hækkanir á gjaldskrám vegna leikskóla, skólamáltíða, frístundaheimila, bókasafnsskírteina, sundlaugakorta og vegna þjónustu sem velferðarsvið Reykjavíkurborgar veitir.

10 glötuðustu bílarnir

Bílavefurinn Jalopnik hefur valið þá 10 bíla sem þeir telja allra verstu kaupin núna.

Audi flýgur 70 metra yfir landamæri

Fæstir fljúga yfir landamæri nema í flugvélum. Þessi Audi eigandi gerði það hinsvegar yfir landamæri Frakklands og Sviss og fór 70 metra í stökkinu og var mest í um 5 metra hæð.

Airbus bjó til ský úr ösku Eyjafjallajökuls

Airbus flugvélaframleiðandinn bjó í gær til fyrsta manngerða öskuskýjið yfir Biscay-flóa undan ströndum Frakklands. Skýið var búið til úr einu tonni af ösku úr gosinu í Eyjafjallajökli árið 2010, sem lamaði flugumferð um alla Evrópu á sínum tíma.

Dýrasti demantur í heimi

Demanturinn „Bleika stjarnan“ sló met í svissnesku borginni Genf í gær þegar hann seldist á áttatíu og þrjár milljónir dollara eða rúma sextán milljarða íslenskra króna. Demanturinn er 59.60 karöt og sá langstærsti í sínum flokki, svo vitað sé. Sá sem næstur kemur er ekki hálfdrættingur á við „Bleiku stjörnuna“.

Bandaríkjamenn heita mikilli aðstoð á Filippseyjum

Bandaríska flugmóðurskipið USS George Washington er væntanlegt til Filippseyja í dag til þess að aðstoða við björgunarstörf á svæðinu þar sem fellibylurinn Haiyan fór yfir í síðustu viku. Skipið verður nýtt sem miðstöð fyrir leitarflokka og lendingarpallur fyrir björgunarþyrlur og þyrlur sem flytja hjálpargögn til einangraðra svæða.

Höfin súrna hratt

Sýrustig heimshafanna er að aukast með meiri hraða en sést hefur í þrjúhundruð milljón ár. Þetta fullyrða vísindamenn í nýrri skýrslu sem kynnt verður á loftslagsráðstefnu sem haldin verður í Póllandi í næstu viku að því er segir á vef BBC.

Fjórir hermenn fórust á æfingu

Fjórir bandarískir landgönguliðar létust í gær í sprengingu á herstöð í suðurhluta Kalíforníuríkis. Mennirnir voru að hreinsa upp sprengjur sem ekki höfðu sprungið á æfingavelli á stöðinni þegar ein þeirra sprakk með þeim afleiðingum að þeir létust. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem slíkut atburður á sér stað en í mars á þessu ári fórust fjórir landgönguliðar í Nevada með svipuðum hætti.

Goðafoss í viðgerð í Færeyjum

Unnið er að viðgerð á flutningaskipinu Goðafossi, þar sem það er statt í Þórshöfn í Færeyjum eftir eldinn, sem þar kviknaði um borð fyrir helgi. Ekki hefur verið staðfest hvað olli íkveikjunni og ekki liggur fyrir hversu mikið tjónið er.

Stormi spáð í flestum landshlutum

Veðurstofan spáir stormi víða um land í dag og rigningu fyrir norðan og austan. Það fer hinsvegar að snjóa suðvestanlands eftir hádegi, en verður vart nema slydda á höfuðborgarsvæðinu þar til úrkoman breytist í rigningu.

Ólögleg sala á líffærum blómstrar

Talið er að um 5000 til 10.0000 nýru séu seld ólöglega í heiminum á hverju ári. Í Sýrlandi reyna æ fleiri flóttamenn að selja úr sér líffærin í þeirri von að lifa hörmungarnar af.

Segir dýra skó ódýrari en ódýrir skór

Jónína Sigurbjörnsdóttir skósmiður segir vel getað borgað sig að láta gera við slitna skó. Það eigi sérstaklega við um vandaða og dýra skó. Íslenskir skósmiðir séu góðir og ódýrir. Minnsta viðgerð kostar eitt þúsund krónur.

Vegagerðarmenn í hættu á Kjalarnesi

Vegna ógætilegs aksturs um vinnusvæði á Kjalarnesi við Móa hafa hraðamyndavélar á svæðinu verið virkjaðar til að mynda þá sem aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Hann er 50 kílómetrar á klukkustund þar til framkvæmdum lýkur.

Jólaljósin á leiðinni upp í borginni

Starfsmenn Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar eru byrjaðir að setja upp hefðbundna jólalýsingu að því er segir í tilkynningu frá borginni. Kveikt verður á lýsingu seinni hluta nóvember.

Dýrasti demantur heims seldist á uppboði

Bleikur demantur, sem kallaður hefur verið Bleika stjarnan, seldist á uppboði Sotheby's í dag á 51,7 milljón punda eða sem svarar til um 10, 2 milljörðum íslenskra króna.

Vill að stúlkurnar taki út refsingu á Íslandi

"Stúlkurnar gerðu rangt og þær eiga að taka út sína refsingu.“ Þetta segir móðir stúlku sem var í dag ásamt vinkonu sinni dæmd í sjö ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl í Tékklandi.

Latibær á tunglinu

Upptökum á fjórðu þáttaröðinni af Latabæ lauk á dögunum. Öll leikmynd og búningar eru búin til frá grunni og það getur verið áskorun að koma öllum söguhetjum Latabæjar til Egyptalands til forna eða jafnvel alla leið til tunglsins.

Ekki of snemmt að spila jólalögin

Þó mörgum finnist eflaust enn langt til jóla hafa þónokkrir tekið forskot á jólasæluna með einum eða öðrum hætti. Meðal þeirra eru starfsmenn Létt-Bylgjunnar, sem spilar nú jólalög allan sólarhinginn allt til jóla.

Leita að fartölvu fyrir Franciscu

"Ég fékk þessa hugmynd þegar ég stóð á kassanum hjá henni. Francisca gefur alltaf svo mikið af sér án þess að biðja um neitt til baka svo ég vissi strax að margir myndu vilja hjálpa,“ segir Alda Sigmundsdóttir

Tvær níu ára stúlkur fundu Lóu

Chihuahua-hundurinn sem leitað hefur verið að síðustu daga er fundinn. Það voru tvær níu ára stúlkur sem náðu að króa hundinn af á leið sinni heim úr skólanum í dag.

Skotbardagar á götum úti

Mikið neyðarástand ríkir á Filippseyjum vegna fellibylsins Hayian sem gekk þar yfir síðastliðinn föstudag. Skotbardagar á götum úti hafa í dag komið í veg fyrir að hægt sé að taka fjöldagröf.

Kemur ekki til greina að loka neyðarbraut suðvesturlands

Áform um að loka minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar mæta harðri andstöðu. Friðrik Pálsson, sem fór fyrir undirskriftasöfnun til stuðnings vellinum, segir ekki koma til greina að suðvesturhorn landsins verði skilið eftir án neyðarflugbrautar í hvössum suðvestan- og norðaustanáttum.

Erfiðara að fá lán eftir að ný neytendalög tóku gildi

Ný lög um neytendalán sem tóku gildi síðustu mánaðamót gera það að verkum að erfiðara verður fyrir fólk að fá lán hjá bönkum og fjármálastofnunum. Hagfræðingur hjá ASÍ segir viðbúið að fólk hrekist út á leigumarkað en þar ríkir nú þegar ófremdarástand vegna takmarkaðs framboðs.

Ekið á dreng í Lönguhlíð

Fimmtán ára drengur er alvarlega slasaður eftir að ekið var á hann um klukkan hálf fjögur í dag.

Frosti vill fresta lögum um endurnýjanlegt eldsneyti

Frosti Sigurjónsson þingmaður Framsóknarflokksins skoraði á Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra á Alþingi í dag, að fresta gildistöku laga sem taka eiga gildi um næstu áramót um notkun á endurnýjanlegu eldsneyti í samgöngum á landi.

Ásmundur Einar þjónar tveimur húsbændum

Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna sagði á Alþingi í dag að það vekti athygli að hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar fjallaði lítið um kostnað ríkisstjórnarinnar og fjölda aðstoðarmanna ráðherra.

Sjá næstu 50 fréttir