Ásmundur Einar þjónar tveimur húsbændum Heimir Már Pétursson skrifar 13. nóvember 2013 16:22 mynd/stefán
Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna sagði á Alþingi í dag að það vekti athygli að hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar fjallaði lítið um kostnað ríkisstjórnarinnar og fjölda aðstoðarmanna ráðherra. En fjórir ráðherrar Framsóknarflokksins séu sagðir hafa 11 aðstoðarmenn. „Svo síðan liggur fyrir að einn þeirra verður ólaunaður hvað varðar stjórnarráðið. Það er að segja Alþingi á að greiða launakostnað nýjasta eða næst nýjasta aðstoðarmanns Framsóknarflokksins,“ sagði Steingrímur og vísaði þar með til ráðningar Ásmundar Einars Daðasonar alþingismanns og formanns hagræðingarhópsins í stöðu aðstoðarmanns forsætisráðherra. Þetta vekti spurningar um stjórnskipuleg mörk löggjafrvaldins og framkvæmdavaldsins. Starf aðstoðarmanna væri skilgreint í lögum og hann lyti boðvaldi ráðherra. „Það hlýtur því að þurfa að koma til skoðunar, annars vegar hvort þetta sé eðlilegt fyrirkomulag; að Alþingi greiði launakostnað aðstoðarmans upp í stjórnarráði og hins vegar, hvort þessi verkaskipting og trúnaðarskyldur sem þarna vegast þá á, annars vegar maður sem starfar undir boðvaldi ráðherra og hins vegar maður sem er sem þingmaður bundinn sannfæringu sinni einni hér á Alþingi,“ sagði Steingrímur. Fleiri gerðu athugasemdir við þessa ráðningu. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingmaður Samfylkingarinnar sagði hagræðingarhópinn leggja til fækkun starfa hjá hinu opinbera og skerðingar á kjörum atvinnulausra. „Það er til skammar fyrir flokka sem leggja leggja fram 111 niðurskurðar- og hagræðingartillögur að auglýsa á sama tíma sífellda fjölgun Framsóknarmanna í starfsmannahaldi stjórnarráðsins,“ sagði Sigríður Ingibjörg. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í hagræðingarhópnum sagði það greinilega fara illa með íhaldssömustu þingmenn að Ásmundur Einar skuli hafa verið ráðinn aðstoðarmaður forsætisráðherra án launa og gerði lítið úr athugasemdum þingmanna. „Svo veit ég ekki alveg hvað við eigum að gera, virðulegur forseti, með þá sem íhaldssamastir hér eru, þegar kemur þessi gríðarlega róttæka breyting að hvorki meira né minna en að háttvirtur þingmaður Ásmundur Einar Daðason sé að aðstoða forsætisráðherra,“ sagði Guðlaugur Þór í hæðnistón.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira