Fleiri fréttir Stjórnvöld í Sádi Arabíu ætla að lama mann Bresk stjórnvöld hvetja Sádí-Araba til þess að lama ekki mann sem dæmdur var fyrir að ráðast á annan mann með hnífi þannig að hinn síðarnefndi lamaðist. Árásarmaðurinn var dæmdur fyrir árásina af dómstólum í Sádí Arabíu og urðu viðurlögin sem fyrr sagði. Talsmaður utanríkisþjónustunnar í Bretlandi segir að bresk stjórnvöld hafi gríðarlegar áhyggjur af málinu. 4.4.2013 15:08 Þjóðleikhússtjóri leysir móður sína af hólmi Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri ætlar að taka að sér hlutverk búddanunnu í verkinu Karma fyrir fugla. Móðir Tinnu, Herdís Þorvaldsdóttir, fór með hlutverk nunnunar í verkinu en Herdís lést, sem kunnugt er, á dögunum. Herdís stafaði við Þjóðleikhúsið allt frá stofnun þess og stóð síðast á sviði viku fyrir andlátið. 4.4.2013 14:37 Guðmundur Franklín ekki kjörgengur - hættir sem oddviti í Suðvesturkjördæmi Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, og oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi, er ekki á kjörskrá og því ekki kjörgengur. "Það lítur út fyrir að við verðum að finna nýjan oddvita í kraganum,“ sagði Guðmundur Franklín þegar Vísir hafði samband við hann en þá var hann nýbúinn að frétta að hann væri ekki kjörgengur hér á landi. 4.4.2013 14:31 Fimmtíu ára bið á enda "Fimmtíu ára bið er lokið,“ sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra þegar hann tók fyrstu skóflustunguna að nýju fangelsi á Hólmsheiði. Jarðvegsframkvæmdir hefjast í næstu viku en útboð vegna byggingarinnar sjálfrar fer fram í vor. Taka á fangelsið í notkun haustið 2015. 4.4.2013 14:22 Erla Bolladóttir lagði fram kæru Erla Bolladóttir einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefur kært einn rannsóknarlögreglumannanna sem kom að málinu fyrir að hafa nauðgað henni í einangrunarfangelsinu í Síðumúla. Hún segist gera þetta nú eftir að hafa rætt við starfshópinn sem gerði skýrsluna um málið og til að binda enda á þennan hluta málsins. 4.4.2013 13:37 Sprautufíkill dæmdur: „Viljið þið fá einhvern kokkteil í ykkur frá okkur“ Tuttugu og þriggja ára gömul kona var dæmd í fimmtán mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir þjófnað, umferðalagabrot og brot gegn valdstjórn. Konan, sem er sprautufíkill, fór ásamt öðrum manni inn í forstofu Hjálpræðishersins í byrjun janúar. Þar hreiðruðu þau um sig og ætluðu að gista þar næturlangt. 4.4.2013 13:34 Stjórnarmyndun gæti orðið erfið Stjórnarmyndun gæti orðið strembin og erfitt að stjórna landinu ef allir nýju flokkarnir ná manni á þing. Þetta segir Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði. Útlit er fyrir að fjórtán flokkar verði í framboði fyrir komandi alþingiskosningar. Fjöldi nýrra framboða endurspeglar óánægju hluta almennings með það stjórnmálakerfi og þá flokka sem við erum með segir Gunnar Helgi. 4.4.2013 13:04 Fjöldi nýrra mála hjá Barnahúsi gæti farið í 500 Fjöldi nýrra mála hjá Barnahúsi hefur aukist gífurlega og ef fram fer sem horfir verða þau fimmhundruð á árinu, eða tvöfalt fleiri en í fyrra. 4.4.2013 12:52 Þrýstingur á að Bjarni fari frá Vaxandi þrýstingur er í röðum Sjálfstæðismanna um að Bjarni Benediktsson víki til hliðar og láti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur um að leiða kosningabaráttuna. Stjórnmálafræðingur og fyrrverandi frambjóðandi flokksins segir hins vegar sögur um að Bjarni eigi að víkja til hliðar ekki trúverðugar. 4.4.2013 12:46 Fiskibátar fengu högg í skjálftanum Mikið högg kom á nokkra fiskibáta, sem voru að veiðum austan við Grímsey þegar stóri skjálftinn varð þar aðfararnótt þriðjudags og fiskur virðist vera flúinn af svæðinu. Dregið hefur úr skjálftavirkninni í nótt. 4.4.2013 12:00 Þjóðskráin aftan úr fornöld „Mér líður stundum eins og ég sé að ganga inn í fornöld þegar ég kem í vinnuna,“ segir hún. „Við erum alltaf að átta okkur betur á því hversu mikið verk við eigum fyrir höndum,“ segir Sólveig J. Guðmundsdóttir, forstöðumaður Þjóðskrár Íslands. 4.4.2013 12:00 Viðsnúningur í gengisþróun á fyrsta fjórðungi: Krónan hefur styrkst á árinu 4.4.2013 12:00 Lyfjanauðgunum fjölgaði í fyrra Alls leituðu 22 aðstoðar vegna lyfjanauðgana í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Stígamóta. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir að lyfjanauðganamál tengist oft tveimur skemmtistöðum. Kona sem varð fyrir lyfjanauðgun segir þörf á vakningu og úrbótum. 4.4.2013 12:00 Kjósendur seinni að velja á milli flokka Flokkarnir hafa tækifæri til að ná til um helmings kjósenda fram í síðustu vikuna fyrir kosningar. Nær helmingur kjósenda ákvað hvað hann ætlaði að kjósa innan við viku fyrir síðustu þingkosningar. Kjósendur nýrra framboða ákveða sig seinna. 4.4.2013 12:00 Vilja skikka dómara til að nota Barnahús Nefnd á vegum Alþingis vill skoða hvort auka megi heimildir lögreglu til að nota tálbeitur við störf sín. Til skoðunar er að skikka dómara til að nýta sér þjónustu Barnahúss við skýrslutöku á börnum. Leggur til að lögreglan fái aukafjárveitingu. 4.4.2013 12:00 Bjuggu til smáforrit sem efla þroska barna Íslenskir þroskaleikir fyrir ung börn eru nú til í snjallsíma og á netinu. Tvær konur í fæðingarorlofi eiga fyrirtækið Lean Laundry og búa til smáforrit sem efla eiga þroska barna og skemmta um leið. Hagnaðarvonin er á stærri markaði erlendis. 4.4.2013 12:00 Árni Johnsen segir að sér hafi verið bolað burt - Mærir Davíð Oddsson Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þröng klíka í Reykjanesbæ hafi ákveðið hverjir ættu að bjóða fram fyrir flokkinn í Suðurkjördæmi. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag segir hann að þeir þrír frambjóðendur sem urðu efstir í prófkjörinu, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir og Ásmundur Friðriksson hafi "rottað sig saman til þess að skáka mér út af hlaupabrautinni“ eins og hann orðar það. 4.4.2013 11:56 Flórída afnemur lög um alþjóðleg ökuskírteini Ökuskírteinislögin hefðu stefnt ferðamannaiðnaðinum í tvísýnu. Flórída staðráðið í að verða öflugasta ferðamannasvæði heims. 4.4.2013 11:53 Bensínlítrinn lækkað um 14 krónur frá því í febrúar Atlantsolía lækkaði verð á bensíni í morgun um 2 krónur og á díselolíu um 1 krónu. Bensínlítrinn er því nú á 252 krónur og dísel á 245 krónur. Búast má við að hin olíufélögin fylgi í kjölfarið. 4.4.2013 11:36 Kjötkrókur handtekinn í Vesturbænum Á áttunda tímanum í morgun var tilkynnt um mann að stela kjöti í vesturborginni og fara með það í bifreið. Þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að maðurinn hafði stolið 60 kílóum af kjöti sem var á lítilli trillu og átti að fara í mötuneyti. 4.4.2013 11:18 Tilkynning frá Öskju vegna innköllunar Kia bíla Á Íslandi eru 537 Kia bílar sem falla undir innköllunina. 4.4.2013 10:46 Lögreglan óskar upplýsinga um látinn ferðamann Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi óskar eftir upplýsingum um ferðamann sem fannst látinn í Dritvík á Snæfellsnesi þann 28. mars síðastliðinn. Talið er að hinn látni sé franskur og hafi dvalið á landinu í u.þ.b. mánuð. Þeir sem geta gefið upplýsingar sem hjálpa til við að bera kennsl á manninn hafi samband við Lögregluna á Akranesi í síma 4440111. 4.4.2013 10:22 Líkir meðferð á Berki og Annþóri við Guðmundar- og Geirfinnsmálið Hjörleifur Sveinbjörnsson, þýðandi og eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, líkir málatilbúnaði gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni við málsmeðferð sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. 4.4.2013 09:58 Birgitta komin til Bandaríkjanna Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar og frambjóðandi Pírata, lenti í New York síðla kvölds í gær. Hún sendi smáskilaboð til Íslands eftir að hún steig út af Kennedy flugvellinum. 4.4.2013 09:30 Hyundai og Kia innkalla 1,6 milljón bíla Vegna bilunar í bremsuviðvörunarbúnaði í 6 gerðum Kia og 6 gerðum Hyundai. 4.4.2013 08:45 620 milljónir fyrir Kony Yfirvöld í Bandaríkjunum gáfu það út í gær að þau myndu greiða þeim sem gæfi upplýsingar um það hvar stríðsglæpamaðurinn Joseph Kony héldi sig, fimm milljónir dollara - um 620 milljónir króna. 4.4.2013 08:05 Með sautján hænur í ferðatöskunni Þrjátíu og þriggja ára maður var handtekinn á flugvellinum í Manchester í Bretlandi á dögunum eftir að hann reyndi að smygla sautján hænum inn í landið. 4.4.2013 07:57 Angela Merkel mynduð í sundbol Angela Merkel, kanslari Þýkalands, er bál reið út í paparazzi ljósmyndara sem tók myndir af henni og fjölskyldu hennar í fríi á Ítalíu á dögunum. 4.4.2013 07:55 Þingmaður deildi klámi á Twitter Rob Wilson, þingmaður breska íhaldsflokksins, deildi vefsíðuslóð af klámsíðu á Twitter-síðu sinni í gær. Ætlaði hann að deila viðtali breska ríkisútvarpsins við samflokksmann sinn en eitthvað virðist hann hafa ruglast í ríminu. 4.4.2013 07:53 Sjálfstæðisflokkurinn á að halda sig til hlés við stjórnarmyndun Sjálfstæðisflokkurinn á að halda sig til hlés við næstu stjórnarmyndun ef hann fær það fylgi sem honum er spáð í skoðanakönnunum. Þetta sagði Elín Hirst, nýr frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi, á fésbókarvegg sínum í gærkvöldi. 4.4.2013 07:37 Ekkert lyfjaeftirlit hjá löggunni 4.4.2013 07:30 Tímabært að endurskoða reglur um sinubruna Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur falið Mannvirkjastofnun að meta hvort rétt sé að banna sinubruna eða takmarka hann umfram ákvæði núgildandi laga um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi. 4.4.2013 07:01 Ekki í ábyrgð fyrir öllu saman Kristján Arason, fyrrverandi yfirmaður einkabankaþjónustu Kaupþings, var ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir öllum 1,7 milljörðunum sem hann fékk að láni til hlutabréfakaupa í bankanum fyrir hrun. 4.4.2013 07:00 Töluvert tjón í Hafnarfirði Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í tveimur bílum fyrir utan bílapartasölu og verkstæði við Kaplahraun í Hafnarfirði á tíunda tímanum í gærkvöldi og eldur barst í þak hússins. 4.4.2013 06:58 Kannabisræktanir í heimahúsum Lögreglan upprætti þrjár kannabisræktanir á höfuðborgarsvæðinu í gær og í öllum tilvikunum var ræktunin í heimahúsum. Ekki kemur fram hjá lögreglu um hversu margar plöntur var að ræða, nema hvað í öllum tilvikum hafi þetta verið minniháttar ræktun. 4.4.2013 06:55 Mikil skjálftavirkni í nótt Mikil skjálftavirkni hélt áfram í alla nótt á báðurm upptakasvæðunum austur- og suðaustur af Grímsey. Nokkrir skjálftar mældust á bilinu þrjú til fjögur stig, samkvæmt fyrstu mælingum, en ekki er búið að fara nánar yfir þær. Að sögn jarðvísindamanna, sem fylgjast grannt með framvindunni, kom ekkert á óvart í nótt, og enn sem fyrr bendir ekkert til að eldvirkni sé í aðsigi. 4.4.2013 06:54 Bjarni segir botninum náð "Nú er botninum náð," segir Bjarni Benediktsson í tölvupósti til flokksbundinna sjálfstæðismanna í dag. Hann segir að Þjóðarpúls Gallup í gær hafi valdið sjálfstæðismönnum vonbrigðum. Sú staða að mælast fjórum vikum fyrir kosningar með 22,4% fylgi sé eitthvað sem sjálfstæðismenn hafi talið óhugsandi fyrir fjórum vikum. 3.4.2013 23:14 "Menn verða að vera við öllu búnir" Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, segir að jafnvægisleysið sem birtist í yfirlýsingum Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, geri það að verkum að menn verði að vera við öllu búnir. 3.4.2013 22:38 Búið að slökkva eldinn Eldur er kominn upp í Kaplahrauni 5 í Hafnarfirði. Í tilkynningu segir að eldurinn hafi komið upp í bílum og sé við það að læsa sig í hús. Starfsmaður Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu staðfesti við fréttastofu að slökkviliðið væri rétt mætt á vettvang og að reyna að ná tök á eldinum. 3.4.2013 22:06 "Leiðtogarnir hafa þrælpínt þjóðina í sextíu ár" "Þetta er náttúrulega snarbilað samfélag. Þetta er náttúrulega bara fjölskyldufyrirtæki því þetta gengur í erfðir," segir stjórnmálafræðingurinn Jón Hákon Magnússon. 3.4.2013 22:04 Vara við miskunnarlausum árásum "Það styttist óðum í fyrstu sprenginguna," segir í yfirlýsingu frá her Norður-Kóreu sem var birt á ríkismiðlinum KCNA í dag. Yfirlýsingin kemur í kjölfar ákvörðunar Bandaríkjahers að styrkja varnarstoðir með því að senda eldflaugavarnarkerfi til eyjarinnar Gvam. 3.4.2013 21:18 Smygla sæði út úr fangelsum Palestínumaðurinn Ammar al-Ziben var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt árásir gagnvart Ísraelsmönnum árið 1998. Þrátt fyrir það á hann átta mánaða gamlan son. 3.4.2013 21:00 Raunveruleg ógn af hendi Norður-Kóreu Bandaríkin ætla að senda háþróað eldflaugavarnarkerfi til eyjarinnar Gvam í Kyrrahafi vegna yfirvofandi ógnar af hendi Norður-Kóreu. 3.4.2013 20:54 Hann á afmæli í dag "Joel, þetta er Marty. Ég er að hringja í þig úr farsíma, alvöru síma sem hægt er að ganga með." Svona hljóðaði fyrsta símtalið fyrir fjörutíu árum. 3.4.2013 20:30 Pálmi Haraldsson vill 114 milljónir frá slitastjórn Glitnis Flestir þeirra sjömenninga sem slitastjórn Glitnis stefndi fyrir dóm í New York hafa krafið slitastjórnina um greiðslu málskostnaðar. Mál Pálma Haraldssonar gegn slitastjórninni var þingfest í morgun. Í kröfugerðinni kemur fram að Pálmi Haraldsson krefst samtals því sem nemur um 114 milljónum íslenskra króna í bætur frá slitastjórninni. 3.4.2013 19:54 Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnvöld í Sádi Arabíu ætla að lama mann Bresk stjórnvöld hvetja Sádí-Araba til þess að lama ekki mann sem dæmdur var fyrir að ráðast á annan mann með hnífi þannig að hinn síðarnefndi lamaðist. Árásarmaðurinn var dæmdur fyrir árásina af dómstólum í Sádí Arabíu og urðu viðurlögin sem fyrr sagði. Talsmaður utanríkisþjónustunnar í Bretlandi segir að bresk stjórnvöld hafi gríðarlegar áhyggjur af málinu. 4.4.2013 15:08
Þjóðleikhússtjóri leysir móður sína af hólmi Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri ætlar að taka að sér hlutverk búddanunnu í verkinu Karma fyrir fugla. Móðir Tinnu, Herdís Þorvaldsdóttir, fór með hlutverk nunnunar í verkinu en Herdís lést, sem kunnugt er, á dögunum. Herdís stafaði við Þjóðleikhúsið allt frá stofnun þess og stóð síðast á sviði viku fyrir andlátið. 4.4.2013 14:37
Guðmundur Franklín ekki kjörgengur - hættir sem oddviti í Suðvesturkjördæmi Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, og oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi, er ekki á kjörskrá og því ekki kjörgengur. "Það lítur út fyrir að við verðum að finna nýjan oddvita í kraganum,“ sagði Guðmundur Franklín þegar Vísir hafði samband við hann en þá var hann nýbúinn að frétta að hann væri ekki kjörgengur hér á landi. 4.4.2013 14:31
Fimmtíu ára bið á enda "Fimmtíu ára bið er lokið,“ sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra þegar hann tók fyrstu skóflustunguna að nýju fangelsi á Hólmsheiði. Jarðvegsframkvæmdir hefjast í næstu viku en útboð vegna byggingarinnar sjálfrar fer fram í vor. Taka á fangelsið í notkun haustið 2015. 4.4.2013 14:22
Erla Bolladóttir lagði fram kæru Erla Bolladóttir einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefur kært einn rannsóknarlögreglumannanna sem kom að málinu fyrir að hafa nauðgað henni í einangrunarfangelsinu í Síðumúla. Hún segist gera þetta nú eftir að hafa rætt við starfshópinn sem gerði skýrsluna um málið og til að binda enda á þennan hluta málsins. 4.4.2013 13:37
Sprautufíkill dæmdur: „Viljið þið fá einhvern kokkteil í ykkur frá okkur“ Tuttugu og þriggja ára gömul kona var dæmd í fimmtán mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir þjófnað, umferðalagabrot og brot gegn valdstjórn. Konan, sem er sprautufíkill, fór ásamt öðrum manni inn í forstofu Hjálpræðishersins í byrjun janúar. Þar hreiðruðu þau um sig og ætluðu að gista þar næturlangt. 4.4.2013 13:34
Stjórnarmyndun gæti orðið erfið Stjórnarmyndun gæti orðið strembin og erfitt að stjórna landinu ef allir nýju flokkarnir ná manni á þing. Þetta segir Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði. Útlit er fyrir að fjórtán flokkar verði í framboði fyrir komandi alþingiskosningar. Fjöldi nýrra framboða endurspeglar óánægju hluta almennings með það stjórnmálakerfi og þá flokka sem við erum með segir Gunnar Helgi. 4.4.2013 13:04
Fjöldi nýrra mála hjá Barnahúsi gæti farið í 500 Fjöldi nýrra mála hjá Barnahúsi hefur aukist gífurlega og ef fram fer sem horfir verða þau fimmhundruð á árinu, eða tvöfalt fleiri en í fyrra. 4.4.2013 12:52
Þrýstingur á að Bjarni fari frá Vaxandi þrýstingur er í röðum Sjálfstæðismanna um að Bjarni Benediktsson víki til hliðar og láti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur um að leiða kosningabaráttuna. Stjórnmálafræðingur og fyrrverandi frambjóðandi flokksins segir hins vegar sögur um að Bjarni eigi að víkja til hliðar ekki trúverðugar. 4.4.2013 12:46
Fiskibátar fengu högg í skjálftanum Mikið högg kom á nokkra fiskibáta, sem voru að veiðum austan við Grímsey þegar stóri skjálftinn varð þar aðfararnótt þriðjudags og fiskur virðist vera flúinn af svæðinu. Dregið hefur úr skjálftavirkninni í nótt. 4.4.2013 12:00
Þjóðskráin aftan úr fornöld „Mér líður stundum eins og ég sé að ganga inn í fornöld þegar ég kem í vinnuna,“ segir hún. „Við erum alltaf að átta okkur betur á því hversu mikið verk við eigum fyrir höndum,“ segir Sólveig J. Guðmundsdóttir, forstöðumaður Þjóðskrár Íslands. 4.4.2013 12:00
Lyfjanauðgunum fjölgaði í fyrra Alls leituðu 22 aðstoðar vegna lyfjanauðgana í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Stígamóta. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir að lyfjanauðganamál tengist oft tveimur skemmtistöðum. Kona sem varð fyrir lyfjanauðgun segir þörf á vakningu og úrbótum. 4.4.2013 12:00
Kjósendur seinni að velja á milli flokka Flokkarnir hafa tækifæri til að ná til um helmings kjósenda fram í síðustu vikuna fyrir kosningar. Nær helmingur kjósenda ákvað hvað hann ætlaði að kjósa innan við viku fyrir síðustu þingkosningar. Kjósendur nýrra framboða ákveða sig seinna. 4.4.2013 12:00
Vilja skikka dómara til að nota Barnahús Nefnd á vegum Alþingis vill skoða hvort auka megi heimildir lögreglu til að nota tálbeitur við störf sín. Til skoðunar er að skikka dómara til að nýta sér þjónustu Barnahúss við skýrslutöku á börnum. Leggur til að lögreglan fái aukafjárveitingu. 4.4.2013 12:00
Bjuggu til smáforrit sem efla þroska barna Íslenskir þroskaleikir fyrir ung börn eru nú til í snjallsíma og á netinu. Tvær konur í fæðingarorlofi eiga fyrirtækið Lean Laundry og búa til smáforrit sem efla eiga þroska barna og skemmta um leið. Hagnaðarvonin er á stærri markaði erlendis. 4.4.2013 12:00
Árni Johnsen segir að sér hafi verið bolað burt - Mærir Davíð Oddsson Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þröng klíka í Reykjanesbæ hafi ákveðið hverjir ættu að bjóða fram fyrir flokkinn í Suðurkjördæmi. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag segir hann að þeir þrír frambjóðendur sem urðu efstir í prófkjörinu, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir og Ásmundur Friðriksson hafi "rottað sig saman til þess að skáka mér út af hlaupabrautinni“ eins og hann orðar það. 4.4.2013 11:56
Flórída afnemur lög um alþjóðleg ökuskírteini Ökuskírteinislögin hefðu stefnt ferðamannaiðnaðinum í tvísýnu. Flórída staðráðið í að verða öflugasta ferðamannasvæði heims. 4.4.2013 11:53
Bensínlítrinn lækkað um 14 krónur frá því í febrúar Atlantsolía lækkaði verð á bensíni í morgun um 2 krónur og á díselolíu um 1 krónu. Bensínlítrinn er því nú á 252 krónur og dísel á 245 krónur. Búast má við að hin olíufélögin fylgi í kjölfarið. 4.4.2013 11:36
Kjötkrókur handtekinn í Vesturbænum Á áttunda tímanum í morgun var tilkynnt um mann að stela kjöti í vesturborginni og fara með það í bifreið. Þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að maðurinn hafði stolið 60 kílóum af kjöti sem var á lítilli trillu og átti að fara í mötuneyti. 4.4.2013 11:18
Tilkynning frá Öskju vegna innköllunar Kia bíla Á Íslandi eru 537 Kia bílar sem falla undir innköllunina. 4.4.2013 10:46
Lögreglan óskar upplýsinga um látinn ferðamann Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi óskar eftir upplýsingum um ferðamann sem fannst látinn í Dritvík á Snæfellsnesi þann 28. mars síðastliðinn. Talið er að hinn látni sé franskur og hafi dvalið á landinu í u.þ.b. mánuð. Þeir sem geta gefið upplýsingar sem hjálpa til við að bera kennsl á manninn hafi samband við Lögregluna á Akranesi í síma 4440111. 4.4.2013 10:22
Líkir meðferð á Berki og Annþóri við Guðmundar- og Geirfinnsmálið Hjörleifur Sveinbjörnsson, þýðandi og eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, líkir málatilbúnaði gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni við málsmeðferð sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. 4.4.2013 09:58
Birgitta komin til Bandaríkjanna Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar og frambjóðandi Pírata, lenti í New York síðla kvölds í gær. Hún sendi smáskilaboð til Íslands eftir að hún steig út af Kennedy flugvellinum. 4.4.2013 09:30
Hyundai og Kia innkalla 1,6 milljón bíla Vegna bilunar í bremsuviðvörunarbúnaði í 6 gerðum Kia og 6 gerðum Hyundai. 4.4.2013 08:45
620 milljónir fyrir Kony Yfirvöld í Bandaríkjunum gáfu það út í gær að þau myndu greiða þeim sem gæfi upplýsingar um það hvar stríðsglæpamaðurinn Joseph Kony héldi sig, fimm milljónir dollara - um 620 milljónir króna. 4.4.2013 08:05
Með sautján hænur í ferðatöskunni Þrjátíu og þriggja ára maður var handtekinn á flugvellinum í Manchester í Bretlandi á dögunum eftir að hann reyndi að smygla sautján hænum inn í landið. 4.4.2013 07:57
Angela Merkel mynduð í sundbol Angela Merkel, kanslari Þýkalands, er bál reið út í paparazzi ljósmyndara sem tók myndir af henni og fjölskyldu hennar í fríi á Ítalíu á dögunum. 4.4.2013 07:55
Þingmaður deildi klámi á Twitter Rob Wilson, þingmaður breska íhaldsflokksins, deildi vefsíðuslóð af klámsíðu á Twitter-síðu sinni í gær. Ætlaði hann að deila viðtali breska ríkisútvarpsins við samflokksmann sinn en eitthvað virðist hann hafa ruglast í ríminu. 4.4.2013 07:53
Sjálfstæðisflokkurinn á að halda sig til hlés við stjórnarmyndun Sjálfstæðisflokkurinn á að halda sig til hlés við næstu stjórnarmyndun ef hann fær það fylgi sem honum er spáð í skoðanakönnunum. Þetta sagði Elín Hirst, nýr frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi, á fésbókarvegg sínum í gærkvöldi. 4.4.2013 07:37
Tímabært að endurskoða reglur um sinubruna Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur falið Mannvirkjastofnun að meta hvort rétt sé að banna sinubruna eða takmarka hann umfram ákvæði núgildandi laga um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi. 4.4.2013 07:01
Ekki í ábyrgð fyrir öllu saman Kristján Arason, fyrrverandi yfirmaður einkabankaþjónustu Kaupþings, var ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir öllum 1,7 milljörðunum sem hann fékk að láni til hlutabréfakaupa í bankanum fyrir hrun. 4.4.2013 07:00
Töluvert tjón í Hafnarfirði Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í tveimur bílum fyrir utan bílapartasölu og verkstæði við Kaplahraun í Hafnarfirði á tíunda tímanum í gærkvöldi og eldur barst í þak hússins. 4.4.2013 06:58
Kannabisræktanir í heimahúsum Lögreglan upprætti þrjár kannabisræktanir á höfuðborgarsvæðinu í gær og í öllum tilvikunum var ræktunin í heimahúsum. Ekki kemur fram hjá lögreglu um hversu margar plöntur var að ræða, nema hvað í öllum tilvikum hafi þetta verið minniháttar ræktun. 4.4.2013 06:55
Mikil skjálftavirkni í nótt Mikil skjálftavirkni hélt áfram í alla nótt á báðurm upptakasvæðunum austur- og suðaustur af Grímsey. Nokkrir skjálftar mældust á bilinu þrjú til fjögur stig, samkvæmt fyrstu mælingum, en ekki er búið að fara nánar yfir þær. Að sögn jarðvísindamanna, sem fylgjast grannt með framvindunni, kom ekkert á óvart í nótt, og enn sem fyrr bendir ekkert til að eldvirkni sé í aðsigi. 4.4.2013 06:54
Bjarni segir botninum náð "Nú er botninum náð," segir Bjarni Benediktsson í tölvupósti til flokksbundinna sjálfstæðismanna í dag. Hann segir að Þjóðarpúls Gallup í gær hafi valdið sjálfstæðismönnum vonbrigðum. Sú staða að mælast fjórum vikum fyrir kosningar með 22,4% fylgi sé eitthvað sem sjálfstæðismenn hafi talið óhugsandi fyrir fjórum vikum. 3.4.2013 23:14
"Menn verða að vera við öllu búnir" Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, segir að jafnvægisleysið sem birtist í yfirlýsingum Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, geri það að verkum að menn verði að vera við öllu búnir. 3.4.2013 22:38
Búið að slökkva eldinn Eldur er kominn upp í Kaplahrauni 5 í Hafnarfirði. Í tilkynningu segir að eldurinn hafi komið upp í bílum og sé við það að læsa sig í hús. Starfsmaður Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu staðfesti við fréttastofu að slökkviliðið væri rétt mætt á vettvang og að reyna að ná tök á eldinum. 3.4.2013 22:06
"Leiðtogarnir hafa þrælpínt þjóðina í sextíu ár" "Þetta er náttúrulega snarbilað samfélag. Þetta er náttúrulega bara fjölskyldufyrirtæki því þetta gengur í erfðir," segir stjórnmálafræðingurinn Jón Hákon Magnússon. 3.4.2013 22:04
Vara við miskunnarlausum árásum "Það styttist óðum í fyrstu sprenginguna," segir í yfirlýsingu frá her Norður-Kóreu sem var birt á ríkismiðlinum KCNA í dag. Yfirlýsingin kemur í kjölfar ákvörðunar Bandaríkjahers að styrkja varnarstoðir með því að senda eldflaugavarnarkerfi til eyjarinnar Gvam. 3.4.2013 21:18
Smygla sæði út úr fangelsum Palestínumaðurinn Ammar al-Ziben var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt árásir gagnvart Ísraelsmönnum árið 1998. Þrátt fyrir það á hann átta mánaða gamlan son. 3.4.2013 21:00
Raunveruleg ógn af hendi Norður-Kóreu Bandaríkin ætla að senda háþróað eldflaugavarnarkerfi til eyjarinnar Gvam í Kyrrahafi vegna yfirvofandi ógnar af hendi Norður-Kóreu. 3.4.2013 20:54
Hann á afmæli í dag "Joel, þetta er Marty. Ég er að hringja í þig úr farsíma, alvöru síma sem hægt er að ganga með." Svona hljóðaði fyrsta símtalið fyrir fjörutíu árum. 3.4.2013 20:30
Pálmi Haraldsson vill 114 milljónir frá slitastjórn Glitnis Flestir þeirra sjömenninga sem slitastjórn Glitnis stefndi fyrir dóm í New York hafa krafið slitastjórnina um greiðslu málskostnaðar. Mál Pálma Haraldssonar gegn slitastjórninni var þingfest í morgun. Í kröfugerðinni kemur fram að Pálmi Haraldsson krefst samtals því sem nemur um 114 milljónum íslenskra króna í bætur frá slitastjórninni. 3.4.2013 19:54