Þjóðskráin aftan úr fornöld Sunna Valgerðardóttir skrifar 4. apríl 2013 12:00 Þjóðskrá „
Mér líður stundum eins og ég sé að ganga inn í fornöld þegar ég kem í vinnuna,“ segir hún. „Við erum alltaf að átta okkur betur á því hversu mikið verk við eigum fyrir höndum,“ segir Sólveig J. Guðmundsdóttir, forstöðumaður Þjóðskrár Íslands. Tölvukerfi þjóðskrár byggja á tölvukerfi frá árinu 1986 sem gerir það að verkum að breytingar innan kerfisins eru illmögulegar, seinvirkar og dýrar. Sólveig segir stofnunina vart geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu lengur þar sem samfélagsgerðin hafi breyst svo mjög síðan tölvukerfið var sett á fyrir tæpum þrjátíu árum. „Það tölvukerfi rúmaði til að mynda einungis 31 stafabil í nafni og þannig er staðan enn í dag,“ segir hún. „Það hefur ekkert gerst síðan þá. Við getum til að mynda ekki staðist kröfur Hagstofunnar og þurfum oft að láta hana fá frumrit af gögnum sem liggja hér í hrúgum. Auðvitað ættum við að vera að senda þeim töflur á tölvutæku formi.“ Sólveig segir nýja heildarlöggjöf vanta um skrána miðað við samfélagið í dag. „Lögheimilislögin þurfa algjöra endurskoðun út frá samfélaginu sem við búum í. Þá þarf að taka mið af breyttu fjölskyldumynstri, taka inn skráningu blóðforeldra og forsjármanna út frá öðrum forsendum en lögheimilinu eingöngu.“ Verkefnið sem stofnunin stendur frammi fyrir er dýrt og fjármagn af skornum skammti. Án þess að nákvæm kostnaðargreining liggi fyrir sé ljóst að nýtt kerfi kosti mörg hundruð milljónir króna. „Við getum ekkert gert við núverandi kerfi, það er fullreynt.“ Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist hafa fullan skilning á vanda þjóðskrár og ætlar að beita sér fyrir auknu fé til stofnunarinnar á næsta kjörtímabili. „Það hefur ekki verið alltaf sá skilningur sem við hefðum viljað frá fjárveitingavaldinu, því við skulum ekki gleyma því að þegar þjóðskrá er annars vegar þá byggir hún sínar tekjur á alls kyns notendagjöldum sem þó eru háð samþykki ríkisvaldsins,“ segir hann. Ráðherra bætir við að nauðsynlegt sé að horfa til margra Evrópulanda þar sem gífurlegum fjármunum sé varið í tölvukerfi til að auka sparnað og öryggi notenda.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Sjá meira