Fleiri fréttir

Fimmfaldur næst

Lottópotturinn verður fimmfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti vikunnar.

Hún var stórkostleg hún mamma

Tinna Gunnlaugsdóttir hefur mörgu að sinna þessa dagana. Fyrir utan að stjórna þjóðleikhúsi Íslendinga tekur hún þátt í að undirbúa útför móður sinnar, Herdísar Þorvaldsdóttur.

Árni Páll skorar á Sigmund Davíð að mæta sér

Það hefur ekki blásið sérstaklega byrlega fyrir Samfylkingunni í skoðannakönnunum síðustu vikna. Það var hinsvegar hugur í þeim sem mættu á baráttugleði flokksins í Gamla Bíói í dag.

Yfir 80% vilja taka málið upp aftur

Langflestir landsmenn eru þeirrar skoðunnar að taka eigi Guðmundar- og Geirfinnsmál upp að nýju fyrir íslenskum dómstólum. Þetta sýnir ný könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Sonur Sævars Ciecelskis segir niðurstöðuna bera vott um að sleggjudómar síðustu ára séu á undanhaldi.

Eldur í þurrkara

Eldur kom upp í kjallara íbúaðarhúsnæðis á Langholtsvegi á sjötta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kviknaði í þurrkara. Töluvert mikill reykur barst í nærliggjandi íbúðir og reykræstu slökkviliðsmenn þær íbúðir. Enginn slasaðist.

Pottur gleymdist á eldavél

Slökkviliðinu var tilkynnt um reyk sem barst út úr íbúð á annarri hæð íbúðar við Skógarveg í Reykjavík um klukkan þrjú í dag. Reykkafarar fóru inn í gegnum svalarhurð. Kom þá í ljós að pottur gleymdist á eldavél. Íbúarnar voru ekki heimi en komu á vettvang þegar slökkviliðið var að reykræsta íbúðina.

Setti í vitlausan gír

Tvær konur voru fluttar til skoðunar á slysadeild eftir árekstur á Tryggvagötu við Kolaportið á öðrum tímanum í dag.

Alvöru þungarokk í Eldborg í kvöld

"Það var alltaf planið að sýna þessa tónlist við bestu mögulegu aðstæður,“ segir Þorsteinn Kolbeinsson, skipuleggjandi hljómsveitarkeppninngar Wacken Metal Battle, sem haldin verður í Eldborgarsalnum í Hörpu í kvöld.

Mandela útskrifaður af sjúkrahúsi

Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, var í morgun útskrifaður af sjúkrahúsi eftir að hafa dvalið þar vegna þrálátrar sýkingar í lungum.

Svínakjöt í lasagna frá Ikea

Sænska húsgagnaverslunin Ikea hefur innkallað hátt í 18 þúsund frosna lasagna rétti eftir að svínakjöt fannst í þeim.

Vilja halda úti skrá um dæmda kynferðisbrotamenn

Nefnd fjögurra ráðuneyta sem ætlað var að sporna gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, leggur til að embætti saksóknara verði eflt til að takast á við málaflokkinn og að skoðað verði hvernig megi halda utan um skráningu dæmdra kynferðisbrotamanna.

Ísland í þriðja sæti í nýrri rannsókn

Ísland er í þriðja efsta sæti í nýrri samanburðarrannsókn á árangri af heilbrigðisstefnu í 43 Evrópuríkjum. Svíþjóð og Noregur verma efstu sætin, en lakasta útkomu hljóta Úkraína, Rússland og Armenía.

Banaslys við Hvalfjarðargöngin

Banaslys varð á Akrafjallsvegi skammt norðan Hvalfjarðarganga um klukkan hálf þrjú í nótt. Jeppabifreið, sem ekið var til austurs, hafnaði framan á fólksbifreið sem kom úr gagnstæðri átt með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbifreiðarinnar lést.

Spenntari fyrir Gangnam Style

Almenningur í Suður-Kóreu lætur ekki spennuna í samskiptum við nágrannana í norðri á sig fá, enda hafa þeir áður upplifað slíkar hótanir.

Risastórt verkefni NASA

Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar munu á næstu árum freista þess að snara nokkur hundruð tonna smástirni og draga í átt að jörðu. Markmiðið er að rýna í efnasamsetningu slíkra steina og um leið auðvelda mannkyni að verjast mögulegum loftsteinaárekstri í framtíðinni.

Enn skelfur jörð við Grímsey

Enn er nokkur skjálftavirkni undan Norðurlandi. Fjölmargir skjálftar mældust þar í nótt en sá stærsti mældist 2,6. Upptök hans voru þrjátíu sjö kílómetra vestan af Grímsey og á tæplega tólf kílómetra dýpi.

Ellefu í fangaklefa - líkamsárás í miðborginni

Ellefu þurftu að gista fangageymslur í nótt vegna ýmisskonar mála og þá fóru sumir fram á það sjálfir við lögreglu að fá húsaskjól, að því er segir í tilkynningu lögreglu.

Líkamsárás á skemmtistað

Einn gisti fangaklefa á Akureyri í nótt en sá er grunaður um að hafa ekið ölvaður á ljósastaur í Lækjargötu í bænum um klukkan átta í gærkvöld. Þegar lögregla kom á staðinn var hann kominn út úr bílnum og vildi ekki kannast við hafa ekið á staurinn. Hann var handtekinn grunaður um ölvun við akstur og verður yfirheyrður þegar líður á daginn.

Hrikalegt fylgistap hjá stjórninni

Sveiflur á fylgi flokkanna eru með miklum ólíkindum og stemningin í kringum Framsóknarflokkinn virðist svipuð því sem var í kringum framboð Besta flokksins í síðustu sveitarstjórnarkosningum, segir Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Verðhækkanir í skjóli sykurskatts

"Það eru engin efnisleg rök sem styðja við 10% verðhækkun á brauðmeti vegna þessarar nýju skattheimtu, nema brauðið sé eingöngu gert úr sykri,“ segir Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ, um sykurskattinn svokallaða, sem lagður var á ákveðnar matvörur þann 1. mars síðastliðinn. Hún segir 1-3% verðhækkun á matvörur vegna gjaldtökunnar eðlilega, en gjaldið sé reiknað í hlutfalli við sykurinnihald matvælanna.

Gjald á kvikmyndun í Þingvallaþjóðgarði

„Þetta getur verið alveg gríðarlega umfangsmikið,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, um vaxandi umsvif kvikmyndagerðarfólks í þjóðgarðinum. Nýju gjaldi er ætlað að fjármagna aukið eftirlit með þeirri starfsemi.

Ætlaði að draga upp mynd af áhugaverðum leiðtoga

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri Fréttatímans, segir að tilgangur viðtals síns við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formanns Framsóknarflokksins, hafi verið að draga upp mynd af áhugaverðum og umtöluðum stjórnmálaleiðtoga.

Rannsókn stóra amfetamínmálsins lokið

Rannsókn lögreglu á umsvifamiklu amfetamínsmygli er lokið og hefur málið verið sent ríkissaksóknara, samkvæmt heimildum Vísis. Sex karlmenn voru úrskurðaðir í úrskurðaðir í gæsluvarðhald, grunaðir um að hafa átt aðild að smygli á hátt í tuttugu kílóum af amfetamíni og 1.7 lítra af amfetamínbasa. Ætla má að hægt hefði verið að framleiða 17 kíló af amfetamíni úr basanum. Það gerir þetta eitt stærsta fíkniefnamál á Íslandi í langan tíma.

Bandarísk stjórnvöld beittu Íslendinga þrýstingi vegna Palestínu

Bandarísk stjórnvöld reyndu að beita fortölum gagnvart íslenskum stjórnvöldum þegar þau undirbjuggu viðurkenningu Íslands á fullveldi Palestínu árið 2011. Þær hættu um leið og WikiLeaks málið kom upp. Þetta kemur fram í viðtali Hrafns Jökulssonar við Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í Reykjavík - vikublað sem kemur út á morgun.

Hvað er "dogging"?

Mick Philpott, sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi í Englandi í gær fyrir að verða valdur að dauða sex barna sinna í íkveikju, tók reglulega þátt í afbrigðilegri kynlífsathöfn sem Bretinn kallar "dogging".

Bjarni segir stefnu flokks síns vera í þágu heimilanna

Fylgishrun, neikvæð umfjöllun og þrýstingur um formannsskipti. Þetta eru verkefni Sjálfstæðismanna þessa dagana. Bjarni Benediktsson fomaður flokksins segir tölurnar ekki snúast um sig og hann langi ekki að hætta í stjórnmálum.

Fimmta hjólið undir stólinn

Maður sem lamaðist fyrir neðan mitti fyrir átta árum sér fram á að geta komist mun víðar en áður á hjólastólnum sínum eftir að fimmta hjólið var sett undir.

Milljón til Margrétar og Bjarka

Bjarki Þór Jónsson og Margrét Gunnarsdóttir hlutu í dag eins milljóna króna styrk úr menningarsjóði Seðlabanka Íslands sem kenndur er við Jóhannes Nordal, fyrrverandi Seðlabankastjóra.

Jákvæðar fréttir af Framsókn en neikvæðar af Sjálfstæðisflokki

Sjálfstæðisflokknum heppnast ekki að koma skilaboðum til kjósenda og takast á við erfið mál. Hann er eini flokkurinn sem fær meiri neikvæða umfjöllun en jákvæða. Þetta segir forstöðumaður Fjölmiðlavaktarinnar sem hefur farið yfir um þrjú þúsund fréttir og greinar sem birtust um stjórnmálaflokka í mars. Framsókn fær lang jákvæðustu umfjöllunina.

Nýju framboðin höfða til yngri kjósenda

Yngri kynslóðir og fjölskyldufólk hafna gömlu stjórnmálaflokkunum og leita á ný mið í næstu kosningum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar fylgiskönnunar Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Nærri þriðjungur kjósenda undir fimmtugu gefur nýju framboðunum atkvæði sitt.

Fimm stjörnu hótel fyrir fanga á Hólmsheiði

"Ég hef misskilið þetta alveg ef það á að vera jafngildi þess að vera á fimm stjörnu lúxushóteli þegar maður er í fangelsi," segir Júlíus Sólnes verkfræðingur og fyrrverandi ráðherra.

Fagna nýju Barnahúsi

UNICEF á Íslandi fagnar nýútkominni skýrslu samráðshóps stjórnvalda um aðgerðir gegn kynferðislegu ofbeldi. Í skýrslunni sem kynnt var í dag er lagt til að tæplega 300 milljónum verði varið til aðgerða gegn barnamisnotkun.

Eldur í bíl í Skipholti

Eldur kviknaði í bifreið fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti síðdegis í dag. Slökkviliðsbíll var sendur á vettvang og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Eldsupptök eru ókunn.

Íslendingar vinsamlegastir

Ísland er vinsamlegasta þjóð í heimi þegar kemur að gestrisni gagnvart ferðamönnum. Þetta kemur fram í könnun World Economic Forum sem náði til 140 landa.

Hjúkrunarrýmum fjölgað á Sólvangi

Þjónusta við aldraða í Hafnarfirði verður aukin með fjölgun hjúkrunarrýma og nýjum dagvistarrýmum á hjúkrunarheimilinu Sólvangi samkvæmt tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. Þetta er liður í aðgerðum til að bæta rekstrarstöðu heimilisins sem nokkur pólitískur styr hefur staðið um í gegnum tíðina.Jafnframt mun heimilið afla aukinna sértekna og hagrætt verður í rekstri að því er fram kemur í tilkynningu.

Karlmaður féll í sprungu á Sólheimajökli

Um þrjúleytið í dag voru björgunarsveitirir frá Hvolsvelli, Hellu og Landeyjum ásamt fjallabjörgunarmönnum af höfuðborgarsvæðinu kallaðir út vegna slyss á Sólheimajökli.

Sjá næstu 50 fréttir