Fleiri fréttir

Oddviti Samfylkingarinnar vill að Árni segi af sér

Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, krefst afsagnar Árna Sigfússonar bæjarstjóra eða að hann biðjist afsökunar. Friðjón segir að það sé staðfest að Árni hafi brotið stjórnsýslulög og samþykktir Reykjanesbæjar þegar hann ákvað að leggja ekki fyrir bæjarráð innsend drög að viljayfirlýsingu um uppbyggingu innviða í Helguvík og Reykjanesbæ frá Katrínu Júlíusdóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd Ríkistjórnar Íslands.

Harður árekstur í Grindavík

Sex umferðaróhöpp hafa verið skráð hjá lögreglunni á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Í gær varð harður árekstur í Grindavík.

Um 400 lítrum af eldsneyti stolið

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning þess efnis að um það bil 400 lítrum af eldsneyti hefði verið stolið af þremur vörubifreiðum í eigu verktakafyrirtækis.

Norður-Kórea bætir í kjarnorkuhótanir

Eftir yfirlýsingar yfirvalda í Norður-Kóreu síðustu vikur eykst spennan á Kóreuskaga sífellt. Stjórnvöld í Pjongjang hafa áður beitt svipuðum meðulum til að fá fjárhagsaðstoð og annað. Flest bendir til þess að hið sama sé uppi á teningnum nú.

Færri kjósa að ferðast til Indlands

Fréttaflutningur af ofbeldi gagnvart konum á Indlandi ógnar ferðamannaiðnaði þar í landi, sem árlega veltir tæpum 2.200 milljörðum íslenskra króna.

Vinstri grænir hvergi bangnir

Árni Þór Sigurðsson þingmaður Vinstri grænna segir flokkinn þurfa að leggja meiri áherslu á sérstöðu sína.

Fannst látinn á Litla Hrauni

Fangi fannst látinn í fangklefa sínum á Litla Hrauni í gærkvöldi. Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi, staðfestir það í samtali við fréttastofu. Andlátið er í rannsókn og verst lögreglan allra frétta. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ekki talið að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti.

Bensínverð lækkar

Nokkur bensínfélög lækkuðu bensínlítrann um þrjár krónur í morgun og dísellítrann um tvær krónur. Bensínlítrinn er nú í 249,60 krónur og dísel á 246,70.

Vitað hver Frakkinn var

Rannsóknadeild lögreglunnar á Akranesi er búin að finna út af hvaða manni líkið er sem fannst nýverið í slyysavarnaskýli við Dritvík á Snæfellsnesi. Það reyndist vera af þrítugum frakka og er búið að finna nafn hans og heimilisfang.

Klemmdist undir lyftara

Starfsmaður vöruafgreiðslu í Skútuvogi varð undir lyftara á níunda tímanum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var búið að losa manninn þegar tækjabíll slökkviliðsins kom á vettvang stuttu síðar. Hann var fluttur á slysadeild slasaður á fæti en ekki fengust frekari upplýsingar um líðan hans.

„Höfum ekki tekið þátt í þessum pólitísku leikjum“

Smári McCarthy, oddviti Pírata í suðurkjördæmi, telur flokkinn njóta góðs af framgöngu gömlu flokkanna í stjórnarskrármálinu. Píratar mælast með 5,6 prósenta fylgi í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Heldur sig frá hlaupabrautinni

Oscar Pistorius, suður-afríski spretthlauparinn, sem grunaður er um að hafa myrt kærustu sína í febrúar síðastliðnum, er ekki farinn að æfa aftur, hefur bandaríska fréttastofan CNN eftir frænda hans.

Tæpur helmingur heimila á erfitt með að láta enda ná saman

10,1% heimila höfðu lent í vanskilum með húsnæðislán eða leigu, samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofu Íslands fyrir árið 2012. Svarendur voru spurðir út í stöðuna tólf mánuði áður en könnunin var gerð en hún var gerð á tímabilinu mars til maí á síðasta ári. Niðurstöðurnar voru svo birtar í morgun. 10,4% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili. Rúm 27% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og tæp 14% heimila töldu greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána þunga.

Heimsfaraldur ekki í nánd

Ekki er talin hætta á að heimsfaraldur brjótist út þrátt fyrir að fuglaflensan H7N9 hafi dregið sex manns til dauða í Kína síðustu vikur. Alþjóðlega heilbrigðismálastofnunin segir að veiran berist ekki frá manni til manns.

Átti ekki fyrir reikningnum

Karlmaður, sem setið hafði í vellystingum á veitingahúsi í miðborginni lengi kvölds í gær, átti ekki fyrir reikningnum, þegar til kom.

Varnarlaus gegn auðkennisþjófnaði

Íslenskar stofnanir skortir heimildir til að sannreyna auðkenni útlendinga sem flytjast hingað til lands. Forstjóri Útlendingastofnunar og forstöðumaður Þjóðskrár segja að íslenska þjóðin hafi hingað til verið auðtrúa í þessum málum og ekki hafi verið tekið nægilega hart á þeim möguleika að hingað komi fólk sem sé í raun ekki það sem það segist vera. Útlendingastofnun stendur nú í byrjunarviðræðum við Noreg varðandi samvinnu ríkjanna í skjalafölsunarmálum.

Reynir að kæra sig inn á kjörskrá

„Svona er þetta bara,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, sem uppgötvaði í gær að hann væri ekki á kjörskrá og þar af leiðandi ekki kjörgengur í komandi alþingiskosningum.

Stefna á Íslandsmet í hundakerruakstri

Benedikt Magnússon ætlar ásamt félögum að setja tuttugu sleðahunda fyrir kerru í Heiðmörk um helgina. Hann segir þá fá mikla ánægju og útrás við dráttinn. Hundarnir munu draga vagna á hjólum en hver og einn vegur um hundrað kíló.

Verkamenn létust þegar bygging hrundi

Að minnsta kosti tuttugu og sjö eru látnir og yfir fimmtíu eru slasaðir eftir að bygging sem var í smíðum hrundi á Mumbai á Indlandi í nótt.

Framsókn tekur fylgi frá öllum

Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn hefur helmingast frá því í janúar. Tæp 18 prósent styðja flokkinn nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Framsóknarflokkurinn er meira en tvöfalt stærri. Stjórnarflokkarnir eru með samanlagt 15 prós

Framsókn nærri meirihluta

Framsóknarflokkinn vantar einn mann upp á þingmeirihluta samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Fylgishrun Sjálfstæðisflokks heldur áfram. Aðrir flokkar undir tíu prósentum. Píratar ná yfir fimm prósent.

Sex börn létust eftir íkveikju föðurins

Enskur faðir hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að standa fyrir því að kveikt yrði í heimili barnsmóður hans í Derby á Englandi. Sex börn hans létu lífið í brunanum.

Þrjár íbúðir yfirteknar á dag

Samtals hafa 4.645 íbúðir verið yfirteknar af bönkum, slitastjórnum banka eða Íbúðarlánasjóði frá Hruni. Þetta kemur fram í svörum viðkomandi stofnana við spurningum Spyr.is.

Ísbíltúr með Sigmundi Davíð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er í viðtali í Fréttatímanum sem kemur út á morgun. Segja má að viðtalið sé í óvenjulegri kantinum enda eru svör Sigmundar ítrekað sett í sögulegt samhengi og orð hans frá fyrri tíð rifjuð upp.

Langar til Norður-Kóreu

Stóryrtar yfirlýsingar stjórnvalda í Norður-Kóreu gætu skapað þjóðinni auknar gjaldeyristekjur. Þannig segir ensk ferðaskrifstofa að áhugi á kommúnistaríkinu hafi margfaldast undanfarið. Aukning í fyrirspurnum sé um 400 prósent.

Öskraði og var bjargað af bjargi

Hávær öskur hinnar átján ára Kyndall Jack leiddi til björgunar hennar úr Trabuco gljúfrinu í Kaliforníu í morgun. Hennar hafði verið leitað síðan á páskasunnudag.

Roger Ebert er látinn

Kvikmyndagagnrýnandinn Roger Ebert er látinn sjötugur að aldri. Ebert tilkynnti í gær að hann þyrfti að draga saman seglin vegna baráttu við krabbamein en baráttunni er lokið.

Erfitt að skipuleggja fjárhagslega framtíð

Síðustu tólf mánuði hækkaði verðbólgan um tæp fimm prósent, vó þar þyngst mikil hækkun í febrúar sem er sú mesta síðan í nóvember 2008. Þessi mæling í febrúar kom á greiðsluseðlana nú í byrjun apríl og því sáu margir verðtryggðu húsnæðislánin sín rjúka upp um síðustu mánaðarmót.

Formannskjörið ógilt

Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur ógilt kosningar til formanns félagsins sem fram fóru 1.-11. mars.

"Ég ætla ekki að hrapa að neinum ákvörðunum"

Innanríkisráðherra hefur ekki ákveðið hvort víkja eigi lögreglumanninum, sem Erla Bolladóttir hefur kært fyrir kynferðisbrot, úr starfi eða færa til. Þetta kom fram í kvöldfréttum Rúv.

Virkni farið hratt minnkandi

Jarðskjálftavirkni fyrir norðan hefur farið hratt minnkandi síðan í gærkvöldi. Virkni hefur verið svipuð og hún var í gær.

Helmingur í kaupmáttarsamdrætti

Hagsjá landsbankans segir stefna í að kaupmáttaraukning launafólks frá gerð kjarasamninga árið 2011 til loka samninga í nóvember á þessu ári verði ekki nema 3 prósent, þótt laun hafi almennt hækkað um 20 prósent á tímabilinu.

Norður-Kóreumenn vígbúast

Norður-Kóreumenn hafa flutt eldflaug sem talin er vera "nokkuð langdræg" á austurströnd landsins að sögn varnarmálaráðherra Suður-Kóreu, Kim Kwan-jin. Hann telur þó engin merki þess að Norður-Kórea sé að búa sig undir mikinn bardaga.

Sjá næstu 50 fréttir